Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 47 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669 Búðardalur Agnar Sæberg Sverrisson 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343 Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281 Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Frá örófi alda hefur umtalum náungann, bæði illtog gott, verið fylgifiskurmannkynsins. Nærtækheimild – og þó vafalaust ekki sú elsta, þótt hún bendi nokk- ur þúsund ár aftur í tímann – er Gamla testamentið. Þar er víða að finna skírskotun til hinnar dekkri myndar þessarar áráttu, að koma af stað vafasömum orðrómi í þeim tilgangi einum að meiða einhvern. Hina allra þekktustu tilvitnun, í þessu sambandi, er að finna í 2. Mósebók, 20:16, en þar segir, að maður skuli ekki bera ljúgvitni gegn náunga sínum. Og fleiri staði er líka að finna þar um kring, að vísu ekki eins þekkta, er gefur ákveðna vísbendingu um hvernig á slík mál var litið. Í 2. Mósebók, 23:1 segir t.d., að maður skuli ekki fara með lygikvittu, og þar litlu síðar (23:7) eru menn beðnir um að forðast lygimál. Og reyndar er sama hvar borið er niður þarna, áfram ber málið á góma, hvað eftir annað, í hinum ýmsu ritum; ekki síst í Orðskviðunum. Margt hefur líka varðveist frá heimspekingunum grísku, eins og t.d. Platóni (um 427–347 f. Kr.), er á að hafa sagt, að þegar einhverjir tali illa um þig, skulirðu lifa eins og enginn trúi þeim. Og eftir Rómverjanum Marcus Tullius Cicero (106–43 f. Kr.) er haft, að ekkert fljúgi hraðar en slúðrið. Í Nýja testamentinu er það sama upp á teningnum; þar er rógberinn fordæmdur af mikilli hörku. Í 3. kafla Jakobsbréfs segir t.d.: „Tungan er... eldur... Hún flekkar allan líkamann og kveikir í hjóli tilverunnar, en er sjálf tendr- uð af helvíti. Allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikindi og sjáv- ardýr má temja og hafa mennirnir tamið, en tunguna getur enginn maður tamið, þessa óhemju, sem er full af banvænu eitri.“ Og svo er þetta efni í um- ræðunni á öllum tímum eftir það, m.a. í fornbókmenntum Íslend- inga, og síðan hinum nýrri (sbr. Gróu á Leiti). Og allar eiga þær tilvitnanir það sameiginlegt, að benda á – með einum eða öðrum hætti – ljótleika eða skaðsemi þess, að fikta við slíkt óábyrgt og óstaðfest hjal. Mottóið er: Varúð. Já, tungan getur verið mönnum erfið. Jón biskup Vídalín (1666– 1720), sjálfur meistari orðlist- arinnar, vandar henni ekki kveðj- urnar í ritinu Sex prédikanir útaf Píningar Historíu Drottins vors Jesú Christí. Þar segir hann: „Hvör hæðir og spottar, nema túngan? Hvaraf kémur rógur og bakmælgi, nema af túngunni? Hvaðan útfljóta guðlastanir, nema af túngunni? Með hvörju ljúga menn lýtum og skömmum uppá náúngann, utan með túngunni? Hvar búa skammarlegar orðræð- ur og fíblsligt hjal, nema á túng- unni?“ Og hann segir líka: „Eitt vont orð grefur meira um sig í hjartanu, en flísin í holdinu.“ Fleiri þekkt ummæli, úr heimi öllum – enda er þetta jú sam- mannlegt - lúta að þessu. Bulwer- Lytton, enskur stjórnvitringur og ljóðsláld, sem uppi var á árunum 1831–1891, segir t.d.: „Galdur málsins er öllum öðrum töfrum hættulegri.“ Og þýski rithöfund- urinn Max Tau (1897–1976) segir: „Orð geta brennt heitar en eldur.“ Nathaniel Hawthorne (1804– 1864), bandarískur rithöfundur, er varfærnari: „Orð – jafn saklaus og hjálparvana sem þau eru, þar sem þau standa í orðabókinni, hve áhrifarík til góðs og ills verða þau ekki í höndum þess sem veit hvernig á að tengja þau saman.“ Það má nefnilega ekki gleymast, að orðin eru ekki alltaf vond, held- ur geta þau á stundum verið bjart- ari en sólin. „Eitt gott orð yljar þrjá vetrarmánuði,“ er haft eftir ónefndum indverskum spekingi. Og landi hans, Mahatma Gandhi (1869–1948), ritar á einum stað: „Vinsamleg orð, sögð í dag, geta borið ávöxt á morgun.“ Umfram allt skyldum við muna rússneska spakmælið: „Orð er eins og fugl. Fljúgi það af vörum manns er ekki auðvelt að ná því aftur.“ Og ekki sakar að minnast þess endrum og sinnum, að ein- hverra hluta vegna erum við gerð út með tvö eyru og jafnmörg augu, en bara einn munn og tungu. Eins og nefnt var í inngangi, hefur kjaftasagan – bæði ill og góð – lifað með þjóðum heimsins allt frá því maðurinn lærði að tala. Og þrátt fyrir harðan dóm oft á tíð- um, og þetta langa ævi, tórir hún enn, og reyndar meira en það, virðist hvergi bera þess merki að hafa látið á sjá, eftir hið langa skrið, göngu, hlaup og flug um mannanna eyru og varir, heldur fer um, ef sá er gállinn á henni, eins og eldur í sinu, og nær til enn fleiri en áður, vegna nútíma tækni. Um lífskraft hennar má best dæma af velgengni slúðurblaða í dag. Og lesendur kaupa, vel að merkja, og hafa gaman af. Orð svissneska guðfræðingsins Johanns Caspar Lavater (1741– 1801) virðast því ekki hafa náð augum margra, en hann mun ein- hverju sinni hafa ritað þetta: „Segðu ekki neitt ljótt um náunga þinn, einkum og sér í lagi ef þú ekki ert viss um hið sanna í málinu. En reyndist það nú vera svo, og búirðu yfir vitneskju um það, skaltu fyrst af öllu spyrja þig: Hvers vegna ætti ég að segja það?“ Mig langar svo að enda þessa hugleiðingu á ljóðabroti, sem ég þýddi úr ensku fyrir tveimur ára- tugum eða svo: Eitt biturt orð í bræði sagt fær brotið mann og eyðilagt, og kjöftugt orð og kærulaust í kala eftir skilið traust. En lítið orð í mildi mælt, fær manninn reist og stutt og leitt, af kærleik þrungið, heilt og heitt. Í nærveru sálar „Aðgát skal höfð í nærveru sálar,“ kvað Einar Benediktsson fyrir margt löngu. Sigurður Ægisson veltir fyrir sér tungunni og ávöxtum hennar, sem bæði geta verið ljótir og sætir. sigurdur.aegisson@kirkjan.is En flísalögnin tengist einmittmálefni sem ég hef verið að hugsa stundum um að undanförnu. Ég hef verið að velta fyrir mér umbun í samfélagslegu samhengi. Vitaskuld fékk flísalagninga- maðurinn greitt umsamið kaup og skundaði síðan burt í næsta verk- efni. Ég stóð eftir í hinu nýflísalagða baðherbergi og hugsaði með mér. „Þetta er svo fínt að hann ætti skilið að ég skrifaði um verk hans.“ Ef flísalagningamaðurinn hefði skrifað bók hefði ég getað gefið henni umsögn í blöðunum en af því að um var að ræða flísalögn voru skrif á skjön við það sem hefðir eru fyrir í samfélaginu. Enginn „tekur út“ slík verk. Og ábyggi- lega þætti það í meira lagi furðu- legt ef maður tæki upp á að birta í t.d. Morgunblaðinu dóm um flísa- lögn, jafnvel þótt harla góð sé. Þó væri lafhægt fyrir góðan fagmann að skrifa lærða pistla um einkar vel unnin verk á þeim vettvangi. Einhverra hluta vegna er það bara sumt sem þykir eðlilegt að birta dóma um í fjölmiðlum. Þá dóma skrifar fólk eða segir fram í afar hátíðlegum stellingum. Ef maður tæki upp á að birta dóma af því tagi um t.d. vel klippt tré, fal- lega þveginn þvott o.s.frv. þætti maður laglega bilaður – í það minnsta mjög skrítinn, og gilti þá einu þótt öllum væri viðkomandi verk vel sýnilegt og það afar vel unnið. Sem sagt – fyrir flísalagnir fá menn borgaða peninga sem umb- un, fyrir sögur, leiksýningar, tón- leika og fleira af því tagi eru birtir opinberir dómar. Víst er ágætt að fá refjalaust greitt sitt kaup fyrir verk eins og flísalögn, en þó mætti alveg lofa opinberlega það sem vel væri gert á þeim vettvangi. Og víst er líka ágætt að fá dóma um verk sín í fjölmiðlum eins og listamenn fá. Hitt er annað mál að enginn verður hökufeitur af orðum einum saman, a.m.k. ekki í byrjun ferils. Ég hef vissar grunsemdir um að þær hefðir að birta dóma um viss verk séu til komnar af því að það er ódýr aðferð til að umbuna fólki. Kannski mætti blanda meira sam- an þessum tveimur aðferðum til umbunar. Birta dóma um vel leyst verkefni í fleiri starfsgreinum og borga hinum betur í peningum sem nú fá umbun að mestu í orð- um einum. Ekkert er eilíft í þess- um heimi – heldur ekki óskrifaðar hefðir í einu samfélagi. Þær breyt- ast ýmist hægt eða hratt. Það sem þarf til að breyta þeim er að skoða þær vel í návígi – forsendur þeirra, gagnsemi og framtíðar- möguleika. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR / Eru umbunarhefðir óbreytanlegar? Umbun erfiðis Í SUMAR sem leið lét ég flísaleggja hjá mér baðherbergi. Ég fékk góðan flísalagningarmann til verksins og var vel ánægð með árangurinn. Vafalaust munu ýmsir sem lesa þetta segja við sjálfa sig: „Og hvað með það þótt eitt baðherbergi sé flísalagt? Það er nú varla í frásögur færandi!“ eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Á FÉLAGSFUNDI vinstrigrænna í Kópavogi sem haldinn var nýlega var kosin ný stjórn. Stjórnina skipa: Hafsteinn Hjartarson formaður, Sigurrós M. Sigurjónsdóttir varaformaður, Sig- mar Þormar gjaldkeri, Einar Ólafsson ritari og Þórir Stein- grímsson meðstjórnandi. Var- astjórn skipa: Kolbrún Valvesdótt- ir og Þorleifur Friðriksson, segir í fréttatilkynningu. Ný stjórn VG í Kópavogi HAFSTEINN Karlsson, sem gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingar- innar í Kópavogi 23. febrúar, hefur opnað heimasíðu þar sem hann kynnir sjálfan sig og hugmyndir sín- ar. Einnig geta gestir fengið að skrifa pistla á heimasíðuna. Slóðin er http://hafsteinn.ismennt.is, sam- kvæmt því sem fram kemur í frétta- tilkynningu. Frambjóðandi opnar heimasíðu VÍSINDAMAÐUR frá Suður-Kór- eu, dr. Si-Kwan Kim, prófessor, kemur hingað til lands föstudaginn 15. febrúar nk. Dr. Kim er sérfræð- ingur í notkun náttúrulegra efna við lyfjagerð og til lækninga. Hann mun flytja fyrirlestur á vegum fræðslu- nefndar Lyfjafræðingafélags Ís- lands og hjá Heilsustofnun NLFÍ. „Dr. Kim dvelst í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði í nokkra daga og er fyrirlestur hans í stofnuninni nk. mánudag kl. 17 og verður hann opinn öllu áhugafólki um austrænar lækn- ingar og jafnframt starfsfólki heil- brigðisstofnana. Þess má geta, að dr. Kim er svo kunnur fyrir rannsóknir sínar, að fréttamenn frá norrænum fjölmiðlum koma hingað til lands til að ræða við hann. Von er á a.m.k. fjórum blaðamönnum frá Danmörku og Noregi,“ segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um nátt- úrulega lyfjagerð ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ HUGVEKJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.