Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 17. FEBRÚAR 2002
TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
17. febrúar 2002
Eiður Smári Guðjohnsen þótti á sínum tíma
eitthvert mesta efni í knattspyrnumann sem
fram hafði komið hér á landi. Alvarleg
meiðsli settu strik í reikninginn og
virtust á tímabili hafa gert
draumana að engu. Nú leikur Eið-
ur með einu sterkasta liði Eng-
lands og er eflaust orðinn verð-
mætasti íþróttamaður Íslands
fyrr og síðar. Víðir Sigurðsson
hitti Eið í London og ræddi
við hann um hæðir
og lægðir á stuttum en við-
burðaríkum ferli. 12
„Ég hef alltaf
haft trú á
sjálfum mér“
Á
erðalögEgyptaland bílarHyundai HCD-7 börnTeiknimyndanámskeiðbíóTony Scott
Sælkerar á sunnudegi
Íhaldssemi og ævintýragirni
Siðlausir klám
hundar eða
listamenn
nútímans?
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
Krafan um afsögn
er klámhögg
10
Við hliðargötu
í Las Vegas
12 Sniglaveislan
16
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hélt í gær í sex daga ferðalag
um Asíu en hann mun heimsækja
Kína, Japan og Suður-Kóreu í för
sinni. Mörg mikilvæg málefni eru á
dagskrá forsetans en upphaflega
hafði verið áætlað að Bush færi í
ferðalag til Asíu í október sl. För
hans þá var hins vegar frestað
vegna hryðjuverkaárásanna 11.
september.
Ferð Bush núna kemur á mik-
ilvægum tímamótum en Bush mun
í heimsókn sinni til Suður-Kóreu
m.a. heimsækja landamæri ríkisins
að Norður-Kóreu, sem hann hefur
farið hörðum orðum um að und-
anförnu og telur hluta „öxuls hins
illa“ í heimi hér.
Sagði Bush áður en hann lagði af
stað í gær að hann vonaðist jafnvel
til að eiga viðræður við stjórnvöld í
Norður-Kóreu í för sinni til Asíu en
að hann gerði sér þó engar grillur
um ríkið og leiðtoga þess, Kom
Jong Il. Kvaðst hann ætla að minna
á það að Norður-Kórea ógnaði um-
heiminum með tilraunum sínum til
að framleiða gereyðingarvopn.
Í heimsókn Bush til Japans er
gert ráð fyrir að hann muni í við-
ræðum sínum við Junichiro Koiz-
umi einblína á efnahagsmál en Jap-
anir eiga við mikinn vanda að etja í
þeim efnum um þessar mundir.
Heimsóknin til Kína er einnig mik-
ilvæg því gert er ráð fyrir að á að-
alfundi kínverska Kommúnista-
flokksins síðar á árinu muni Hu
Jintao, varaforseti Kína, taka við
embætti forseta landsins af Jiang
Zemin. Var haft eftir bandarískum
stjórnarerindrekum í gær að Bush
væri mjög áfram um að hitta vænt-
anlegan arftaka0 að máli, en Jintao
þykir nokkuð óskrifað blað í Wash-
ington.
George W. Bush Bandaríkjaforseti heldur í sex daga heimsókn til Asíu
Ítrekar var-
úðarorð sín
um N-Kóreu
Washington. AP.
Reuters
S-kóreskur verkamaður hrópar slagorð gegn Bandaríkjunum en marg-
ir S-Kóreumenn eru ósáttir við nýleg ummæli Bush Bandaríkjaforseta
um N-Kóreu, sem hann telur hluta „öxuls hins illa“ í heimi hér.
INDVERSKUR drengur situr við
útgang neðanjarðarlestarstöðvar í
miðborg Nýju-Delhí í gær og betlar
aur af vegfarendum. Mikill fjöldi
barna í indversku höfuðborginni
neyðist daglega til að betla til að
hafa í sig og á sökum þess að for-
eldrar þeirra hafa ekki bolmagn til
að brauðfæða þau.
Reuters
Betlað
fyrir
brauði
ÞRÍR Palestínumenn féllu í skot-
bardaga við ísraelska hermenn ná-
lægt flóttamannabúðunum El-Bur-
eij á Gazasvæðinu í gærmorgun en
Ísraelar höfðu áður jafnað við
jörðu nokkrar byggingar Palest-
ínumanna á þessu svæði. Síðar lést
einn liðsmaður Hamas-samtakanna
og þrjú börn meiddust illa þegar
bifreið sprakk í loft upp í bænum
Jenín á Vesturbakkanum. Ekki er
ljóst hvað olli sprengingunni en
Palestínumenn kenndu Ísraels-
mönnum um atburðinn.
Palestínskir byssumenn
Al-Aqsa-samtakanna höfðu fyrr
um morguninn skotið Ísraelsmann
til bana nærri bænum Ramallah á
Vesturbakkanum.
Hamas-menn skjóta
flugskeyti á Ísrael
Fulltrúar Ísraelshers greindu
frá því að palestínskir skæruliðar
hefðu skotið Qassam-2-flugskeyti á
skotmark í Ísrael en þetta er í ann-
að skipti sem Palestínumenn
skjóta slíkum flaugum frá Gaza-
svæðinu. Lenti flugskeytið á opnu
landsvæði í Kfar Azza og engin
meiðsl urðu á fólki. „Þetta er alvar-
leg ögrun á ísraelsku landsvæði,“
sagði Olivier Rafowicz, talsmaður
ísraelska hersins. „Við getum ekki
liðið slíkar flugskeytaárásir sem nú
er haldið áfram þrátt fyrir viðvar-
anir okkar.“
Sögðu fulltrúar hinna herskáu
Hamas-samtaka að þeir hefðu
skotið flugskeytinu og sögðu það
svar þeirra við því sem þeir kölluðu
siðlausar loftárásir síonískra
glæpamanna á Gazasvæðið á föstu-
dagskvöld.
Mannfall
í Miðaust-
urlöndum
Gaza. AP, AFP.
MIRA Markovic, eiginkona
Slobodans Milosevic, fyrrver-
andi forseta Júgóslavíu, sagði í
gær að eiginmaður sinn væri al-
ger „yfirburðamaður“ í dóm-
salnum en réttarhöld hófust yfir
Milosevic í Haag í vikunni. Sagði
hún að bónda sínum hefði tekist
vel upp við upphaf málsvarnar
sinnar en Milosevic er sakaður
um stríðsglæpi og þjóðarmorð í
átökunum á Balkanskaga.
„Ég undrast ekki yfirburða-
frammistöðu Slobodans í Haag,“
sagði Markovic. „Hann trúir því
sem hann segir þar, þannig að
hann á auðvelt með að sýna yf-
irburði sína á yfirvegaðan hátt.
Hann er reiðubúinn til að þola
ýmislegt til að koma á framfæri
sannleikanum um atburði sem
hafa valdið okkur öllum harmi.“
Markovic sagðist hafa talað
við eiginmann sinn símleiðis á
föstudag en þau hefðu lítið rætt
um réttarhöldin.
Segir
Milosevic
sýna
yfirburði
Belgrað. AFP.