Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 2
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Heims- ferðum, Sérferðir Heims- ferða 2002. Blaðinu verður dreift um allt land. FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ELFAR Logi Hannesson, leikstjóri á Ísafirði, afhenti í gærmorgun fjöl- skyldunni á Þórustöðum í Önund- arfirði rúmar 826 þúsund kr. sem hann hefur safnað handa yngsta meðlimi heimilisins, Rakel Maríu Björnsdóttur. Rakel fæddist í mars á síðasta ári og var fljótlega greind með hjartagalla. Vegna hans hefur hún tvisvar þurft að gangast undir mjög sérhæfðar og kostnaðarsamar læknisaðgerðir í Boston sem gengu þó báðar að óskum. Hefur það rask- að högum fjölskyldunnar mjög. Þegar Elfar Loga bar að garði í dag var litla stúlkan nýkomin heim úr hjartaþræðingu á Landspít- alanum sem tók skamma stund og gekk mjög vel. Rakel María þykir mjög hress og kát þessa dagana, hún er að mestu laus við súrefn- iskút sem hún hefur þurft að nota allan sólarhringinn, en verður þó að sofa með hann. Foreldrar Rakel- ar Maríu þakka Elfari Loga og öll- um þeim sem á einhvern hátt hafa lagt þeim lið á erfiðum tímum. Vildi láta gott af sér leiða Elfar Logi hóf söfnunina fyrir Rakel Maríu í desember sl. þegar hann las upp úr Jólasögu Charles Dickens í Edinborgarhúsinu á Ísa- firði á Þorláksmessu. Var aðgangur ókeypis en fólki þess í stað bent á reikning sem Elfar Logi stofnaði til styrktar stúlkunni. Einnig rann fé, sem safnaðist með styrktarlínum í leikskrá, til söfnunarinnar. Í kjölfar umfjöllunar um söfn- unina fóru að berast framlög frá fólki af öllu landinu. Elfar Logi seg- ir að með söfnuninni hafi hann vilj- að láta gott af sér leiða en tekur fram að hann hafi aldrei búist við þvílíkum viðtökum. Vill hann koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem á einhvern hátt lögðu honum lið við söfnunina. Stuðningur við Rakel litlu Björnsdóttur sem er með hjartagalla Rúmlega 800 þúsund krónur söfnuðust handa litlu telpunni Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Björn Björnsson og Jónína Eyja Þórðardóttir, foreldrar Rakelar Maríu Björnsdóttur, taka, ásamt Rakel, við ávísuninni úr höndum Elfars Loga Hannessonar leikara. Morgunblaðið, Ísafjörður. FORMAÐUR Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, Unnur Pét- ursdóttir, dregur í efa að breyttar reglur Tryggingastofnunar um end- urgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sem boðaðar eru 1. mars, standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og samkeppnislög. Hún segir regl- urnar einnig bera það með sér að Tryggingastofnun ætli að spara á kostnað sjúklinga. „Ég er í sjálfu sér ekki undrandi á að nýjar reglur séu settar. En margt í þeim hljómar mjög einkennilega. Í þeim tilboðum sem Tryggingastofn- un hefur lagt fyrir okkur hefur verið tekið skýrt fram að þau séu miðuð við bolmagn stofnunarinnar til að hækka greiðslur. Miðað hefur verið við að hlutur sjúklinga hækkaði ekki. Síðan koma reglur um að ekkert eigi að greiða nema eftir þrengsta skiln- ingi laganna. Það segir manni að Tryggingastofnun ætli að spara út- gjöld á kostnað sjúklinganna. Stórum hópi okkar viðskiptamanna er hent út,“ segir Unnur. Margar stofur að komast í þrot Hún bendir jafnframt á að stofn- unin ætli að endurgreiða fyrir sjúkraþjálfun sem veitt er á heil- brigðisstofnunum, óháð sjúkdóms- greiningu. En ef fólk ætli til sjálf- stætt starfandi sjúkraþjálfara verði um engar greiðslur að ræða. Unnur segist hafa ráðfært sig við lögfræð- inga og telur að þetta sé bæði brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og nýjum lögum um jafna sam- keppnisaðstöðu. Unnur segir að á undanförnum ár- um hafi fag sjúkraþjálfara rýrnað að verðgildi. Á meðan hafi t.d. talmeina- fræðingar og hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun, sem eru með samn- ing við Tryggingastofnun, fengið hækkun frá árinu 1995 um allt að 60- 90%. Á sama tíma hafi taxti sjúkra- þjálfara hækkað um 25%. „Rekstrargrundvöllur okkar er brostinn og margar stofur sjúkra- þjálfara að komast í þrot. Við höfum dregist svo aftur úr að við myndum glöð taka þessa 7% hækkun sem samninganefnd heilbrigðisráðuneyt- isins hefur verið að bjóða ef við hefð- um hækkað á sama grunni og okkar viðmiðunarhópar. Það sem hefur haldið okkur á floti er mikil og vax- andi eftirspurn eftir sjúkraþjálfun. Fólk hefur bara bætt á sig meiri vinnu,“ segir Unnur og bendir á að árið 1996 hafi um 19 þúsund manns leitað til sjúkraþjálfara en í fyrra hafi þessi fjöldi verið kominn í tæp 25 þúsund. Aukningin á fimm árum er upp á rúm 30%, sem er sambæri- leg hlutfallstala og sjúkraþjálfarar hafa verið að fara fram á í hækk- uðum samningi við stofnunina. „Þessi viðbót kostar sitt en á sama tíma hefur krónutala fyrir hverja meðferð ekki hækkað að sama skapi til að reksturinn standi undir sér. Þar liggur hundurinn grafinn í okkar vandræðum í dag,“ segir Unnur. Segja verið að spara á kostn- að sjúklinga Efast um lögmæti nýrrar reglugerð- ar Tryggingastofnunar ið þennan kynbróður sér til fyr- irmyndar á konudaginn, sem er framundan, og sparað sínum heittelskuðu sporin. HANN var mikill herramaður sá er tók unnustu sína á háhest er þau voru á gangi um miðbæ Reykjavíkur. Karlmenn gætu tek- Morgunblaðið/Golli Konan í hávegum höfð VEÐURSTOFAN gerir ráð fyrir heldur kólnandi veðri í dag og næstu daga. Reiknað er með norðaustanátt með 10–15 m/s á Vestfjörðum en annars suðvestanátt með 10–15 m/s sunnan og vestan til en hægari suð- vestanátt á Norðurlandi. Él verða sunnan og vestan til en úrkomulítið norðanlands og frost á bilinu 1–8 stig. Á morgun má búast við norð- vestanátt og éljum norðanlands og fremur köldu veðri. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum landsins, einkum á heiðum. Nokkur hálka var í gær á veginum frá Hvolsvelli að Kirkjubæjar- klaustri og snjóþekja á vegum í upp- sveitum Árnessýslu og í Ísafjarðar- djúpi. Annars eru allir helstu þjóðvegir landsins færir. Kólnandi veð- ur en helstu vegir færir TALSVERÐAR skemmdir urðu á gamla Alþýðuhúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði þegar eldur kom upp í húsinu í fyrrinótt. Lögreglu barst til- kynning um eldsvoðann um kl. hálftvö. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út og tók um tvær klukku- stundir að ráða niðurlögum eldsins. Húsið var mannlaust þegar slökkvi- lið bar að og engan sakaði af völdum elds eða reyks. Verslun er á jarðhæð hússins og skrifstofur á annarri hæð. Reyk- ræsta þurfti galleríið Hafnarborg sem stendur við gamla Alþýðuhúsið. Grunur leikur á að brotist hafi verið inn og kveikt hafi verið í Alþýðuhús- inu líkt og gert var fyrir um hálfum mánuði. Eldur í gamla Alþýðuhúsinu Dyrnar að Alþýðuhúsinu voru lok- aðar og innsiglaðar eftir brunann. LÖGREGLAN í Reykjavík tók níu ökumenn í fyrrinótt grunaða um ölv- un við akstur. Þá mældust nokkrir ökumenn rétt undir mörkunum og voru látnir leggja bílunum áður en lengra var haldið. Að sögn lögregl- unnar eru þetta óvenjumargir öku- menn sem teknir eru ölvaðir á einni nóttu, en að öðru leyti var nóttin ró- leg og lögreglumenn gátu því sinnt þessum þætti eftirlitsins betur. Níu ölvaðir ökumenn ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.