Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vitundarvakning gegn fordómum Öll umræða af hinu góða ÁTAKINU Vitund-arvakning gegnfordómum var hleypt af stokkunum þann 1.desember síðast liðinn, en átakið er samstarfs- verkefni Stúdentaráðs og Jafnréttisnefndar Háskóla Íslands og byggist á röð málfunda í Norræna hús- inu á vor- og haustmisseri 2002. Næsti málfundur er mánudaginn n.k., 18. febr- úar og ber yfirskriftina Fordómar gegn femín- isma. Þrír fyrirlesarar koma þar fram, m.a. Elísa- bet Þorgeirsdóttir, rit- stjóri Veru, sem svaraði nokkrum spurningum um málefnið út frá sinni reynslu í blaðamennsku. Finnurðu fyrir fordóm- um gegn femínisma í þínu starfi? „Nei, kannski vegna þess að Vera er femínískt tímarit og leit- ast við að fjalla um mál út frá fem- ínískum sjónarhóli. Femínisminn er andstaðan við feðraveldið en hugsunarháttur samfélagsins er mjög litaður af feðraveldinu sem hefur stýrt heiminum í svo marg- ar aldir. Hins vegar er margt ungt fólk sem vill breytingar í sam- félaginu og í Veru erum við eink- um að tala við og fjalla um slíkt fólk og hugmyndir þess.“ Nú eru konur fjölmennar í blaðamannastétt, er greinin sterkt vígi femínisma? „Ég held að flestar blaðakonur verði að fara eftir þeirri stefnu sem ríkir á þeirra fjölmiðli og því er ekki hægt að tala um greinina sem sterkt vígi femínísma. Hins vegar hafa margar blaðakonur (og menn) áhuga fyrir málefnum kvenna og femíniskri sýn á ýmis samfélagsmál. Ég sé t.d. miklar breytingar á því hvað má skrifa um núna eða fyrir 20 árum. Vera heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt á þessu ári og á þessum ferli hefur blaðið oft hafið umræðu um ýmis viðkvæm mál í samfélaginu, t.d. heimilisofbeldi og sifjaspell, sem ekki voru rædd í öðrum fjöl- miðlum. Nú er það breytt og þykir t.d. sjálfsagt að hafa vandaða um- fjöllun í Morgunblaðinu um mál af þessu tagi.“ Hvernig lýsa fordómar gegn femínisma sér? „Ég veit kannski minnst um þessa fordóma því í mínu um- hverfi þykir femínismi sjálfsagð- ur, er bara lífsstíll, það að vinna að jafnrétti og breyta þannig heim- inum til hins betra. Ég verð hins vegar talsvert vör við ranghug- myndir, einkum meðal ungs fólks sem ekki upplifði þær gleðilegu breytingar í samfélaginu sem kvennahreyfingin stuðlaði að upp úr 1970. Þau halda t.d. að femín- istar séu á móti því að konur séu fallegar, sem er auðvitað fjarri lagi. Frelsisboðskapur femínism- ans er einmitt sá að konur megi vera eins og þær vilja vera. Þurfi ekki allar að vera eins eða fara eftir tísku- straumum frekar en þær vilja. Svo er það staðal- myndin af femínistum sem eru alltaf reiðar, bitrar og pirraðar. Þann stimpil hafa kvenréttinda- konur reyndar alltaf fengið, enda auðvelt að gera fólk tortryggilegt með slíkum athugasemdum. Sama er að segja um konur sem brutust til mennta á síðustu öld, þegar að- eins karlmenn máttu mennta sig, eða konur sem völdu að giftast ekki. Sú tilhneiging að dæma kon- ur eftir útlitinu er lífseig en ég vona að næsta kynslóð breyti henni og leyfi ungum stúlkum að þroskast á eigin forsendum og njóta hæfileika sinna sem best.“ Hafa fordómar gegn femínisma aukist eða minnkað í þinni tíð í blaðamennsku? „Þeir hafa breyst. Á áttunda áratugnum logaði allt landið af umræðum um það sem rauðsokk- urnar voru að halda fram. Fólk vissi um hvað málið snerist. Sú barátta hefur leitt af sér árangur á ótal mörgum sviðum og margir telja að ekki þurfi lengur að berj- ast fyrir málefnum kvenna sér- staklega. Því miður koma bara alltaf upp nýir fletir og nýjar birt- ingarmyndir misréttisins. Kyn- lífsvæðingin er eitt dæmi um að enn skortir mikið á að jafnvægi sé milli kynjanna. Niðurlæging kvenna er þar mun meiri en karla og hefur alvarleg mótandi áhrif.“ Hvað heldur þú að valdi þessum fordómum? „Ég held að ímyndadýrkun samfélagsins eigi þar m.a. hlut að máli. Það hefur ekki verið búin til jákvæð ímynd af yfirlýstum fem- ínista, þó að sjónvarpsstjörnur og leikkonur megi og vilji lýsa yfir stuðningi við málstaðinn á hátíð- legum stundum, sem er auðvitað hið besta mál. Ungt fólk er kannski ekki nægilega upplýst um femínískan bakgrunn valdamestu konu landsins, borgarstjórans okkar, sem kemur úr okkar röðum og var m.a. brautryðj- andi hér á Veru. Hún er frábær fyrirmynd fyrir unga femínista og mætti kannski oftar minna á þann málstað.“ Er eitthvert gagn að svona málfundum? „Öll umræða er af hinu góða. Mér finnst það gott framtak hjá háskólafólki að fjalla svona ítar- lega um fordóma. Fordómaleysi og víðsýni hefur alltaf verið álitið aðalsmerki siðmenntaðrar mann- eskju og mikilvægur hluti góðrar menntunar, hvort sem hún hefur fengist í háskóla eða skóla lífsins.“ Elísabet Þorgeirsdóttir  Elísabet Þorgeirsdóttir er fædd á Ólafsfirði 12. janúar 1955. Stúdent frá Mennta- skólanum á Ísafirði 1975. Gaf út ljóðabækur 1977 og 1984 og við- talsbækur 1986 og 1993. Hefur unnið sem blaðamaður og rit- stjóri frá 1981. Blaðamaður og ritstjóri Sjómannablaðsins Vík- ings 1981-1984, ritstjóri Neyt- endablaðsins 1987–1991, blaða- maður hjá Fróða 1992–1997 og ritstjóri Veru frá 1997. Elísabet á einn son, Arnald Mána Finnsson. Niðurlæging kvenna hefur alvarleg mót- andi áhrif Þú lætur nú hann Grána gamla fá djobbið, Guðni minn, svona sem smá þakklætisvott fyr- ir allar þær merar sem hann hefur fyljað í gegnum tíðina, góði. ÁRANGUR skurðaðgerða við krabbameini í endaþarmi er breytilegur eftir skurðlæknum og stofnunum. Á það sérstaklega við um skurðlækna og stofnanir sem framkvæma fáar aðgerðir. Þetta kemur fram í grein í nýjasta hefti Læknablaðsins þar sem fjallað er um árangur aðgerða við sjúk- dómnum á Landspítalanum árin 1980 til 1995. Greinina skrifa læknarnir Tóm- as Guðbjartsson, Sigríður Más- dóttir, Páll Helgi Möller, Tómas Jónsson og Jónas Magnússon. Voru rannsökuð afdrif sjúklinga sem greindust með endaþarms- krabbamein á Landspítalanum frá ársbyrjun 1980 til ársloka 1995. Höfundar segja að til að ná betri árangri í skurðaðgerðum vegna endaþarmskrabbameins hafi þeim víða verið komið á færri hendur. Það sé t.d. gert í Svíþjóð og Hol- landi en þar séu lífshorfur þessara sjúklinga með því besta sem ger- ist. „Hér á landi hefur svipuð þró- un átt sér stað undanfarin ár og aðgerðir vegna ristil- og enda- þarmskrabbameina í höndum fárra skurðlækna og þrír ristilskurð- læknar sinna nú flestum tilfellum á landinu. Til samanburðar má nefna að sjö skurðlæknar í þessari rannsókn framkvæmdu 41 aðgerð á 16 árum,“ segir í greininni. Tæknilega krefjandi aðgerðir Alls greindust 43 sjúklingar, 22 karlar og 21 kona og var með- alaldur þeirra 73 ár. Af þeim fór 41 í skurðaðgerð og var ýmist tek- inn allur endaþarmurinn eða hluti hans. Enginn lést af völdum skurðaðgerðar. Algengasta ein- kenni sjúkdómsins var blóð í hægðum eða í 77% tilvika en hægðabreytingar voru í 63% til- vika og verkir í kvið eða grind- arholi í 37% tilvika. Í greininni kemur fram að brott- nám endaþarms sé tæknilega krefjandi. Staðbundið endurvakið krabbamein sé helsta vandamálið eftir aðgerð og greindist hjá 20 til 30% sjúklinga. Segir að erlendis hafi tekist með bættri aðgerðar- tækni að draga úr tíðni staðbund- ins endurvakins krabbameins um 5% og aðrar erlendar rannsóknir sýni rúmlega helmingsfækkun þeirra með því að geisla æxlin fyr- ir skurðaðgerð. Segir að lífshorfur þessara sjúklinga séu marktækt betri en þeirra sem ekki fái geisla- meðferð. Árangur breytilegur eftir skurðlæknum Færri fá æxli í endaþarm á ný ef geislað er fyrir skurðaðgerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.