Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 11 fyrirtækið yrði selt? Var ekki óeðlilegt að binda hendur nýrra eigenda til svo langs tíma? „Aðdragandi málsins er sá að þegar ég tek við embætti sam- gönguráðherra hafði forveri minn, Halldór Blöndal, gefið Þórarni V. Þórarinssyni, sem þá var stjórn- arformaður Símans, fyrirheit um að hann tæki við starfi forstjóra. Verkefni mitt var þess vegna að efna þetta samkomulag sem þeir höfðu gert. Það var hins vegar ekki búið að semja við Þórarin um kaup og kjör. Ég fékk Friðrik Pálsson til að taka við stjórnarfor- mennsku. Það var síðan verkefni stjórnar Símans, undir forystu Friðriks Pálssonar, að gera samn- ing við Þórarin. Ég gaf engin fyr- irheit um að ráðningarsamningur- inn ætti að vera til fimm ára. Þetta mál kom hins vegar til umræðu milli mín og Þórarins og það var hann sem gerði þá kröfu að samn- ingurinn yrði til fimm ára. Kröfu sína studdi hann með ýmsum rök- um, m.a. þeim að það væri í sam- ræmi við hagsmuni fyrirtækisins að tryggð væri ákveðin festa í kringum stjórn þess, m.a. með því að forstjórinn væri ráðinn til fimm ára. Jafnframt var bent á að for- stjórar ríkisfyrirtækja væru al- mennt ráðnir til fimm ára. Auk þess að halda kröfunni um árin fimm hátt á lofti, var Þórarinn jafnframt með mjög háar launa- kröfur. Ég féllst á endanum á kröfuna um fimm árin, en síðan fór það í hendur stjórnarformanns Landssímans að ganga endanlega frá málinu. Hann bar undir mig launakröfur forstjórans og þó að það væri ekki mitt að taka ákvörð- un um laun hans gerði ég stjórn- arformanninum grein fyrir því að ég teldi ekki eðlilegt, miðað við fimm ára samning, að verða við þeim launakröfum sem uppi voru. Því varð niðurstaðan sú, að for- stjórinn fékk samning til fimm ára, en langtum lægri laun en kröfur hans stóðu til. Þeir sem komu að málinu voru á þessum tíma sammála um að ráðn- ing sterks forstjóra, sem bæði myndi undirbúa sölu fyrirtækisins og skuldbinda sig til þess að standa áfram í brúnni ef nýir eig- endur óskuðu þess, yrði til þess að auka verðmæti Símans. Það er hins vegar auðvelt að vera vitur eftir á og nú keppast menn við að gagnrýna samning sem talinn var fullkomlega eðlilegur á þeim tíma sem hann var gerður. Að sjálf- sögðu átti enginn von á því þegar verið var að ráða fyrrverandi framkvæmdastjóra Vinnuveitenda- sambandsins til þessa verkefnis, að sú staða myndi koma upp að hann yrði látinn fara. Það má kannski segja að menn eigi að gera ráð fyrir öllum hugs- anlegum möguleikum í öllum samningum, en við áttum sann- arlega ekki von á öðru en að hann stæði sig vel og að óskað yrði eftir starfskröftum hans út þetta fimm ára tímabil. En hann brást þessu mikla trausti, sem bæði ég, og for- veri minn, bárum til hans.“ Fullkominn trúnaðarbrestur Því hefur aldrei verið svarað með skýrum hætti hvers vegna Þórarni var sagt upp störfum. Á ekki þjóðin, sem er að stærstum hluta eigandi þessa fyrirtækis, heimtingu á því að vita hvers vegna hann var látinn fara? „Það er vandasamt að gefa skýr- ingar á því þegar mönnum er sagt upp störfum. Í þessu máli varð fullkominn trúnaðarbrestur milli fulltrúa eigandans og forstjórans. Það voru stöðugir árekstrar inn á við og út á við sem leiddu til þess að nauðsynlegt var að taka af skarið. Eftir að hafa legið rækilega yfir málinu; rætt við einkavæðingar- nefnd og fulltrúa PriceWater- houseCoopers varð það sameigin- leg niðurstaða okkar að það væri svo djúpstæður ágreiningur og trúnaðarbrestur milli aðila að það væri ekki fyrirtækinu til hagsbóta að hann veitti því forystu áfram. Þegar Þórarinn var ráðinn var hann í stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar og í stjórn Þróunar- félagsins og ég gerði honum þá strax grein fyrir því að þetta væri óheppilegt vegna þess að það mætti vera ljóst að báðir þessir aðilar kynnu að koma við sögu þegar að einkavæðingu fyrirtæk- isins kæmi. Seint og um síðir gerði hann okkur grein fyrir því að hann myndi fara út úr þessum tveimur stjórnum, en síðan kom í ljós að hann hafði einungis stigið til hliðar og kallað inn varamenn fyrir sig, en ekki sagt sig úr stjórnunum. Þórarinn vildi halda ítökum sínum víða á sama tíma og við gerðum þá skýlausu kröfu að hann einbeitti sér óskiptur að störfum sínum fyr- ir Símann og hagsmunum fyrir- tækisins í þessu gífurlega mikil- væga verkefni sem einkavæðingin er. Það var auðvitað ekki auðvelt að taka ákvörðun um uppsögn Þór- arins í ljósi þeirrar staðreyndar að gerður hafði verið samningur við hann til þetta langs tíma. Það má heldur ekki gleyma því að það voru bundnar miklar vonir við störf hans við fyrirtækið. Ég trúði því að það hefði verið rétt ákvörð- un að fá hann til þessa verkefnis og vissulega tók hann mjög ræki- lega til hendi. Að mörgu leyti varð heilmikill árangur á starfstíma hans. Það er hins vegar einfald- lega þannig að ef eigandinn og for- stjórinn geta ekki starfað saman þá er ekki um annað að ræða en forstjórinn víki. Í öllu þessu ölduróti hefur mætt mikið á stjórnarformanni Lands- símans, Friðriki Pálssyni. Fram- ganga hans í þessu máli hefur ein- kennst af miklum heilindum og trúnaði.“ Fórum að lögum í máli trúnaðarlæknisins Mig langar þá að víkja að máli trúnaðarlæknis Flugmálastjórnar sem hefur verið fyrirferðarmikið í fréttum. Hvernig hófust afskipti ráðuneytisins af þessu máli og hvers vegna telur þú að þetta mál, sem virðist ekki vera stórt í snið- um, hafi farið úr böndunum? „Eftir að Þengill Oddsson, trún- aðarlæknir Flugmálastjórnar, hafði komist að þeirri niðurstöðu að Árni G. Sigurðsson flugmaður uppfyllti ekki skilyrði til að fljúga benti hann honum á að hann gæti áfrýjað úrskurðinum til sérstakrar nefndar sem samgönguráðherra skipaði. Þannig hófust afskipti samgönguráðuneytisins af málinu. Skipaðir voru þrír valinkunnar læknar í áfrýjunarnefnd og þeir komust að þeirri niðurstöðu að flugmaðurinn væri hæfur til að fljúga. Trúnaðarlæknirinn gaf síð- an út heilbrigðisvottorð þar sem honum var heimilað að fljúga en með takmörkunum sem flugmað- urinn sætti sig ekki við. Hann leit- aði til ráðuneytisins þar sem hann taldi að trúnaðarlæknirinn hefði ekki farið að niðurstöðu áfrýjunar- nefndarinnar, sem er endanlegur úrskurðaraðili. Úrskurður ráðu- neytisins var sá að trúnaðarlækni Flugmálastjórnar hefði borið að fara að niðurstöðu áfrýjunarnefnd- arinnar, og að það væru engar for- sendur til annars en að flugmað- urinn fengi vottorð í samræmi við niðurstöðu nefndarinnar. Vegna deilunnar óskaði flugmálastjóri eftir að ég skipaði nefnd til að fara yfir málið. Niðurstaða úttektar- nefndarinnar, en í henni sátu Sig- urður Guðmundsson landlæknir og hæstaréttarlögmennirnir Gestur Jónsson og Andri Árnason, var sú að ráðuneytið hefði farið að lögum og ekki haft óeðlileg afskipti af málinu, en að trúnaðarlæknirinn og Flugmálastjórn hefðu ekki farið að réttum stjórnsýslureglum.“ Í reglugerð segir að niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar sé endanleg á sviði stjórnsýslu. Hefði ekki ver- ið eðlilegra fyrir þig, í ljósi þessa, að vísa málinu aftur til áfrýjunar- nefndar eftir að ágreiningur reis um þær takmarkanir sem Þengill Oddsson setti í heilbrigðisvottorðið og spyrja nefndina hvort hún væri sammála þessum takmörkunum? „Það er ekki gert ráð fyrir þeim ferli í þessu máli. Ráðuneytið leit svo á að ef við færum að hafa af- skipti af málinu værum við að ve- fengja niðurstöðu áfrýjunarnefnd- arinnar. Enda kemst úttektarnefndin að þeirri niður- stöðu að það hefði verið Flugmála- stjórnar og trúnaðarlæknisins, sem er að fjalla um þetta á lækn- isfræðilegum forsendum, að kalla eftir mati áfrýjunarnefndarinnar. Það var ekki gert og því fór sem fór. Ég hafði reynt að leggja mig fram um að láta ráðuneytið vinna þetta mál faglega. Trúnaðarlækn- irinn kom síðan á fund minn og dró fyrri yfirlýsingar til baka um að ég hefði haft óeðlileg afskipti af málinu.“ Með því að draga til baka um- mæli sem Þengill viðhafði um af- skipti þín af málinu má kannski segja má að hann hafi sýnt vilja til að ljúka málinu í sátt. Hvað finnst þér um ummæli forystumanna flugmanna sem ítrekað hafa fyrri yfirlýsingar sínar um trúnaðar- brest milli þeirra og Þengils? „Þetta er mál milli flugmanna og Flugmálastjórnar og ráðuneytið hvorki á né mun skipta sér af því. Ég verð þó að segja að mér finnst forystumenn Félags íslenskra at- vinnuflugmanna hafa gengið nokk- uð hart fram í kröfum gagnvart Flugmálastjórn, en það er auðvit- að alveg ljóst að Flugmálastjórn verður að standa sig. Hún verður fara að lögum og réttum stjórn- sýslureglum. Það má engan afslátt veita í þeim efnum. Þetta mál kennir okkur að það skiptir miklu máli að stofnanir kunni að fara að reglum og einnig er mikilvægt að læknar vandi sína stjórnsýslu. Ég vona að menn læri af þessu en minni á að þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona deila kemur upp. Það var kveðinn upp Hæstaréttardómur árið 1996 í svipuðu máli, sem ráðuneytið hef- ur stuðst við í sinni aðkomu að málinu. Það er líka nauðsynlegt að komi fram að JAR-reglurnar eru við- miðunin og af minni hálfu hefur enginn afsláttur verið gefinn frá þeim. Það hefur verið gerð tilraun til að koma því inn hjá fólki, en þær ásakanir hafa algjörlega verið þurrkaðar út með niðurstöðu út- tektarnefndarinnar og með yfirlýs- ingu trúnaðarlæknisins.“ Brugðist við athugasemdum í kjölfar flugslyssins í Skerjafirði Flugmálastjórn og þú sem yf- irmaður flugmála í landinu hafið orðið fyrir harðri gagnrýni í fram- haldi af flugslysinu í Skerjafirði. Aðstandendur þeirra sem létust í flugslysinu sökuðu Flugmálastjórn um ónógt eftirlit, mistök við út- gáfu skírteina og að reyna við rannsókn málsins að breiða yfir mistök sem þeir sögðu að gerð hefðu verið. Áttu sér þarna stað mistök að þínu mati? „Niðurstöður Rannsóknarnefnd- ar flugslysa vegna þessa slyss liggja fyrir. Enn stendur þó yfir lögreglurannsókn á því. Það gefur augaleið að þegar flugslys á sér stað, þá hafa því miður einhvers- staðar verið gerð mistök. Vafa- laust hefði mátt standa betur að ýmsum þáttum í kjölfar þessa slyss. Við höfum farið mjög vandlega yfir athugasemdir aðstandenda þeirra sem fórust í flugslysinu. Ég met mikils að þeir hafa lagt í mjög mikla vinnu við að greina það sem gerðist og bent á fjölmargt sem betur hefði mátt fara. Það hafa margir aðrir einnig gert og við þessum athugasemdum hefur verið brugðist á margan hátt. Þannig hefur t.d. verið skipað með nýjum hætti í Rannsóknarnefnd flugslysa og ég hef nú þegar lagt drög að breytingum á lögum um starfsemi nefndarinnar. Það er fyrst og fremst hlutverk Rannsóknarnefnd- ar flugslysa að greina ástæður flugslysa og gera tafarlaust tillög- við Reykjavíkurflugvöll. Það eru uppi stórhuga áform um úrbætur í samgöngumálum bæði á höfuð- borgarsvæðinu og úti um allt land. Það er verið að byggja á höfuð- borgarsvæðinu hver mislægu gatnamótin af öðrum. Það er verið að undirbúa framkvæmdir við tvö- földun Reykjanesbrautar. Fram- kvæmdir eru einnig fyrirhugaðar á Vesturlandsvegi og Suðurlands- vegi og verið er að hrinda jarð- gangaáætlun í framkvæmd. Ég hef einnig lagt mikla áherslu á að efla ferðaþjónustuna sem orð- in er önnur stærsta atvinnugrein landsins. Við höfum lagt mikla áherslu á markaðsaðgerðir. Í N- Ameríku höfum við starfað með fisksölufyrirtækjunum, Bænda- samtökunum, Flugleiðum og fleiri fyrirtækjum að sérstöku markaðs- átaki undir kjörorðinu Iceland Naturally. Við höfum lagt mikla fjármuni í verkefnið sem hefur gengið mjög vel og er að skila sér núna þegar niðursveifla kemur í ferðaþjónustuna. Okkur hefur tek- ist að halda hlut okkar langt um- fram það sem búast hefði mátt við. Við erum að fara út í viðbót- araðgerðir í markaðasmálum bæði innanlands og utanlands. Ég hef gert samninga um svokallaðar Gestastofur bæði við Geysi og í Reykholti, þar sem veittir eru styrkir til að halda úti þjónustu á þessum stóru ferðamannastöðum. Ég hef gert samning við Hóla- skóla til að efla fjarkennslu á sviði ferðamála og við Vesturfarasetrið á Hofsósi. Ég hef einnig lagt áherslu á heilsutengda ferðaþjón- ustu og menningartengda ferða- þjónustu. Á sviði ferðamála hefur því mjög margt verið að gerast. Miklar breytingar hafa einnig átt sér stað á sviði fjarskiptamála. Ný fjarskiptalög tóku gildi í byrj- un árs 2000, sem fela í sér geysi- lega mikla breytingu í þjónustu við alla landsmenn. Í lögunum er að finna ákvæði um að ISDN-gagna- flutningar séu skylduþjónusta á sama verði um allt land. Þetta hef- ur allt tekið tíma en Síminn áætlar að í lok þessa árs verði búið að koma þessari þjónustu um allt land. Tækniþróunin á þessu sviði er hins vegar mjög ör. Í síðustu viku var ég t.d. í heimsókn á Skálpa- stöðum í Lundarreykjadal þar sem verið að taka í notkun gervihnatta- móttakara í sveitinni. Ég er sann- færður um að þessi tækni mun leysa mörg vandamál inn til dala þar sem erfitt er að leggja ljósleið- ara. Það er trú mín að gervi- hnattatæknin og þessi þráðlausa tækni muni að mörgu leyti leysa gagnaflutningsvanda hinna dreifðu byggða, og það ánægjulega er að tæknin stenst fullkomlega sam- keppni í verði við þá tækni sem ljósleiðarinn byggist á. Ég hef einnig lagt áherslu á að lagður verði nýr sæstrengur til Evrópu og hvatt til þess að Lands- síminn dragi þar vagninn. Þarna er bæði verið að hugsa um að auka öryggi í gagnaflutningum en einn- ig að tryggja nauðsynlega aukn- ingu í bandvídd. Feiri símafyrir- tæki þurfa að koma þar að málum. Ég hef í mínum störfum sem samgönguráðherra lagt sérstaka áherslu á öryggismál sjómanna og á öryggismál í flugsamgöngum eins og ég vék að áðan. Við höfum gert rammasamning við Slysavarnafélagið Landsbjörg, sem er algjör nýlunda, en hann gerir ráð fyrir að félagið taki að sér margvísleg verk á sviði örygg- ismála, sem er í samræmi við lang- tímaáætlunina sem unnið er eftir á þessu sviði. Ég tel því að við í samgöngu- ráðuneytinu höfum verið að ná miklum árangri og staðið fyrir miklum breytingum og framförum í öllum þáttum samgöngumála. Að- alatriði er að við höfum burði til að takast á við erfið mál hverju sinni og gerum það þannig að það standist skoðun. Ég er viss um, að þegar litið verður um öxl munu menn sjá að tímabær uppstokkun og endurnýjun hefur átt sér stað í mörgum þeim málum sem undir samgönguráðuneytið heyra.“ ur um úrbætur til þess að koma í veg fyrir að mistök endurtaki sig. Ég er sannfærður um ágæti þeirra manna sem annast þessi störf um þessar mundir. Ég kallaði einnig eftir því að Al- þjóðaflugmálastofnunin gerði út- tekt á störfum og verklagi Rann- sóknarnefndarinnar og Flug- málastjórnar. Það var gert og það voru gerðar ýmsar athugasemdir og breytingatillögur við starfsemi þessara stofnana. Það hefur verið tekið tillit til þeirra nú þegar en sumar ábendingarnar birtast í frumvarpi til laga um loftferðir sem var lagt fram á Alþingi í haust og nú er til meðferðar í þinginu. Í frumvarpinu er verið að taka á mörgum atriðum. Það gerir m.a. ráð fyrir að gerð verði svokölluð flugverndaráætlun. Einnig er gert ráð fyrir að eftirlitshlutverk Flug- málastjórnar verði hert. Ástæðan fyrir því að við teljum ástæðu til að tryggja enn betur stöðu Flug- málastjórnar til eftirlitsins er sú að á síðasta ári staðfesti ég reglu- gerð sem felur í sér að litlu flug- félögin verða nú að fara eftir JAR- reglunum. Sum flugfélögin upp- fylltu þessar reglur strax. Önnur gerðu það ekki. En það er ekki nóg að vera með þessar reglur því það þarf að fylgja þeim fast eftir af hálfu Flugmálastjórnar. Þá gerist það hins vegar að litlu flugfélögin, sem sum hver höfðu verið með ýmsa hluti í ólagi, ráð- ast gegn frumvarpinu sem, í grundvallaratriðum, gengur út á að auka flugöryggi í landinu. Og það sérkennilega gerist einnig, að fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar í sam- göngunefnd Alþingis, sem sumir hverjir höfðu gagnrýnt Flugmála- stjórn, ganga til liðs við sjónarmið þeirra sem ekki vilja herða á kröf- um. Stjórnarandstaðan hefur gert allt sem hún hefur getað til að koma í veg fyrir afgreiðslu frum- varpsins. Í meirihluta samgöngu- nefndar eru hins vegar traustir menn sem hafa unnið afskaplega vel að þessu máli.“ Setti mér skýr markmið Við höfum farið yfir þau mál sem mest hafa verið til umræðu á síðustu misserum, en hvaða önnur mál leggur þú mesta áherslu á í þínu starfi? „Þegar ég tók við starfi sam- gönguráðherra setti ég mér strax á fyrstu dögum skýr markmið. Ég vildi endurskipuleggja ráðuneyti upplýsingatækninnar og nýta upp- lýsingatæknina við stjórnun. Það höfum við gert. Þá setti ég mér það markmið að flytja störf út á land, efla fjarskiptakerfi um landið allt undir kjörorði mínu að þau eigi að vera allt í senn ódýr, örugg og aðgengileg og loks að koma á samræmdri samgönguáætlun. Í öllum þessum málum hefur orðið mikill árangur. Ég skipaði strax hóp manna til að vinna að samgönguáætluninni undir forystu Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hópurinn skilaði skýrslu sem byggist á sam- ræmdri áætlun til næstu 12 ára um uppbyggingu vega, hafna, flug- valla og almenningssamgangna. Makmiðið var að nýta fjár- munina, sem í þetta fara, sem allra best. Þessum undirbúningi er lok- ið. Í þinginu er frumvarp, sem ég vona að verði samþykkt fyrir vor- ið, en það fjallar um lögfestingu samgönguáætlunar. Í haust verður síðan lögð fram fyrsta samgöngu- áætlunin, til næstu 12 ára. Í minni tíð sem samgönguráð- herra hafa farið auknir fjármunir í vegi, hafnir og flugvelli. Við höfum að mestu lokið við framkvæmdir egol@mbl.is ’ Þó að það væri ekki mitt að taka ákvörð-un um laun hans gerði ég stjórnarformann- inum grein fyrir því að ég teldi ekki eðlilegt, miðað við fimm ára samning, að verða við þeim launakröfum sem uppi voru. Því varð niðurstaðan sú, að forstjórinn fékk samning til fimm ára, en langtum lægri laun en kröf- ur hans stóðu til. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.