Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 23 ÞESSA daga höfum viðsem störfum við listir ogmenningu margt til aðhafa áhyggjur af. Ein-hver duglegasti og framsæknasti menntamálaráð- herra þjóðarinnar fyrr og síðar er á förum úr ráðuneytinu, góðærið er farið úr landi og menning- arstofnanir og -fyrirtæki við það að fara á hausinn eða þegar komin þangað. Þetta er sérlega alvarlegt mál í okkar fámenna landi vegna þess að innlend list- sköpun og menn- ingarstarfsemi eru áhrifaríkustu vopnin í sífelldri baráttu smáþjóð- ar fyrir andlegu sjálfstæði sínu. Oft er þó litið á listsköpun og menningarstarfsemi sem einhvers konar lúxus, aukagetu og afgangs- stærð og því er starfsemi á þessu sviði enn háðari efnahagssveiflum en mörg önnur. Þannig er þessu varið í menningarstofnunum okk- ar. Þegar búið er að gera ráð fyrir öllum svonefndum „föstum“ kostnaði við reksturinn, svo sem við starfsmannahald, húsnæði, tæknibúnað og svo framvegis, þá er loks hægt að sjá hvað mikið fé er „afgangs“ til að sinna listsköp- uninni, eða dagskrárgerðinni. Þetta er til dæmis í sinni ein- földustu mynd ástæðan fyrir því að RÚV-Sjónvarp hefur ekki efni á að framleiða alvöru leikið sjón- varpsefni í líkingu við erlent efni af því tagi, enda þótt RÚV sem heild velti heilum þremur millj- örðum króna árlega. Þegar illa árar eiga menning- arstofnanir okkar í enn meiri vanda en venjulega og jafnvel fullt í fangi með að standa undir „fasta“ kostnaðinum og nið- urskurðurinn bitnar því fyrst á framleiðslu afurðanna. Líkt og skip sem heldur til veiða full- mannað og ríkulega búið, nema hvað útgerðin hefur neyðst til að sleppa veiðarfærunum. Þegar svona er háttað gefur það augaleið hve miklu skiptir að téð- ar menningarstofnanir hafi skýr og nútímaleg markmið til að stefna að með rekstri sínum og láti það sem mestu skiptir til að ná markmiðunum ætíð ráða för. En þarna er komið að vandamáli sem lítið hefur verið fjallað um. Þó mátti lesa í Reykjavíkurbréfi sl. helgi afar tímabært innleg um þessi mál. Því er nefnilega þannig varið með helstu menningarstofnanir okkar að þær eru börn síns tíma og við höfum vanrækt uppeldið. Þetta á við um RÚV, Þjóðleik- húsið, Leikfélag Reykjavíkur, Sin- fóníuhljómsveitina, Íslenska dans- flokkinn, Óperuna, Listahátíð og svo framvegis. Lagalegur grunn- ur, uppbygging og hefðbundnar starfsaðferðir þessara stofnana eru sem von er mótaðar af þeim hugmyndum og skilyrðum sem ríktu þegar þeim var komið á fót. Það sem okkur hefur hins vegar láðst að gera, er að endurskoða þessa hluti í tímans rás og laga starfsemina og markmiðin með henni að nýjum tímum og gjör- breyttum aðstæðum. Undantekn- ing frá þessu er Íslenski dans- flokkurinn, eins og réttilega var bent á í Reykjavíkurbréfinu, en þar hefur verið mótuð ný og skýr stefna sem tekur mið af núverandi aðstæðum og virðist vera að skila stórgóðum árangri. Ein helsta breytingin á að- stæðum sem orðin er frá árdögum RÚV, Þjóðleikhúss, LR o.s.frv. felst í því að nú á dögum geta Ís- lendingar heyrt og séð merkustu afurðir erlendrar menningar með einföldum og tæknilega full- komnum hætti, annars vegar heima í eigin stofum, eða á tíðum ferðum sínum erlendis. Sú iðja að leggja áherslu á að flytja inn þess- ar sömu afurðir og flytja eða svið- setja hérlendis við misgóðar að- stæður en einatt miklum tilkostnaði, er arfur liðins tíma einangrunar og hafta og þjónar ekki lengur sama tilgangi og áður. Verr gengur hins vegar að koma á fjalirnar eða sjónvarps- skjáinn verkum sem fjalla um og eiga rætur sínar í okkar eigin veruleika, umhverfi og sögu. Ís- lensk leikverk eru sjaldséðir fugl- ar í stóru leikhúsunum, íslenskar óperur bíða ófluttar í bunkum, enginn opinber aðili styrkir fram- leiðslu á leiknu sjónvarpsefni og innlend dagskrárdeild Sjónvarps hefur ekki bolmagn til þess við nú- verandi aðstæður. Það er kominn tími til þess að endurskoða frá grunni þau mark- mið sem lögð hafa verið til grund- vallar í starfi menningarstofnana okkar með tilliti til nýrra tíma sem einkennast öðru fremur af ofgnótt og offramboði á alþjóðamenningu. Færandi varninginn heim HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Sjálfboðaliða vantar í verslanir okkar á sjúkrahúsum borgarinnar. Þeir er hafa áhuga á að leggja góðu málefni lið, hringi í Auði á skrifstofu Reykjavíkurdeildar RKÍ, sími 568 8188 eða í Huldísi, Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkurdeildar RKÍ, í síma 551 8800, milli kl. 10 og 15. SJÁLFBOÐALIÐA VANTAR RC Hús ehf, Sóltún 3, 105 Rvík. s. 511 5550 Veffang: www.rchus.is Netfang: rchus@rchus.is VERÐLÆKKUN - VERÐLÆKKUN Timbrið er sérvalin, þurkuð og hægvaxin norsk fura. Húsin eru einangruð með 5" 6" og 8" íslenskri steinull.Hringdu og við sendum þér fjölbreytt úrval teikninga ásamt verðlista, eða gerum þér tilboð eftir þinni teikningu. Vegna mikillar sölu og hagstæðra innkaupa, bjóðum við nú VERÐLÆKKUN af íbúðar-og sumarhúsum okkar úr norskum kjörviði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.