Morgunblaðið - 02.04.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VW Golf Highline 1.6,
f. skr.d. 05.01.2000, ek. 29 þ.
km., 5 d., sjálfsk.,
leðurinnrétting, o.fl.
Verð 1.950.000.
Nánari upplýsingar hjá
Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
SAMBAND sveitarfélaga á Austur-
landi og iðnaðarráðuneytið efna til
opins fundar í íþróttahúsinu á Reyð-
arfirði í kvöld um framtíð Noral-
verkefnisins um byggingu álvers og
Kárahnjúkavirkjunar.
Framsögumenn á fundinum verða
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra, Halldór Ásgrímsson, utanrík-
isráðherra og fyrsti þingmaður
Austurlands, Smári Geirsson, for-
maður Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi, Geir A. Gunnlaugsson,
formaður Reyðaráls, og Agnar Ol-
sen, framkvæmdastjóri hjá Lands-
virkjun. Valgerður Sverrisdóttir
segir að á fundinum verði farið yfir
þá breyttu stöðu, sem upp er komin,
með Austfirðingum.
Opinn fundur
um framtíð
Noral-verk-
efnisins
KIRKJAN hvetur þá, sem kjósa
munu fulltrúa á Kirkjuþing, að rétta
hlut kvenna á þinginu en á síðasta
þingi var aðeins ein kona af 21 full-
trúa. Að sögn verkefnisstjóra
fræðslumála hjá Biskupsstofu endur-
speglar þetta ekki hlut kvenna innan
kirkjunnar.
Jafnréttisnefnd Þjóðkirkjunnar
mun efna til málþings undir yfir-
skriftinni „Konur á Kirkjuþing?“
hinn 8. apríl næstkomandi. „Við erum
að reyna að hvetja til ákveðinnar um-
ræðu þannig að menn átti sig á því
hvaða áherslum þarf að velta fyrir sér
í sambandi við kjörið og þá sérstak-
lega í sambandi við jafnréttismálin,“
segir Halldór Reynisson, prestur og
verkefnisstjóri fræðslumála hjá Bisk-
upsstofu.
Aðspurður hvort þörf sé á
hugarfarsbreytingu hvað þetta varð-
ar segir hann að staðreyndirnar tali
sínu máli. „Það sat 21 á síðasta
Kirkjuþingi og aðeins ein kona. Ég
hef verið í jafnréttisnefnd kirkjunnar
og við viljum sjá þetta breytast enda
er það í samræmi við allar yfirlýs-
ingar, bæði frá Kirkjuþinginu sjálfu,
frá prestastefnu og frá almennum
samfélagslegum hugmyndum.“
Meiri áhrif þingsins nú en áður
Halldór bendir á að þetta sé í sam-
ræmi við jafnréttisáætlun kirkjunnar
sem kveði á um að rétta skuli hlut
kvenna þar sem á þær hallar. Þannig
séu konur sérstaklega hvattar til að
sækja um prestaköll í starfsauglýs-
ingum. Að hans sögn endurspeglar
hlutfall kynjanna á síðasta Kirkju-
þingi ekki hlutfall þeirra innan kirkj-
unnar. Í sóknarnefndum sé hlutfallið
nokkurn veginn hnífjafnt og hvað
varðar presta séu 37 af 144 kjörgeng-
um prestum konur.
Hann segir Kirkjuþing hafa verið
að breyta um hlutverk síðari ár og
hafi meiri áhrif nú en áður. „Það hafa
kannski verið ákveðin tregðulögmál
sem gera það að verkum að menn
sem höfðu verið þarna fyrir voru bara
kosnir áfram.“
Kjörseðlar vegna kosninganna
verða sendir í pósti um 20. apríl næst-
komandi en Kirkjuþingið sjálft verð-
ur haldið í október. Af 21 fulltrúa eru
9 prestar og 12 leikmenn sem kjörnir
eru úr hópi fólks í sóknarnefndum
samkvæmt tilnefningum.
Vilja fá fleiri konur
kosnar á Kirkjuþing
HRINA lítilla jarðskjálfta hófst við
Flatey á Skjálfanda um kl. 16 á
páskadag. Stærsti skjálftinn mæld-
ist 2,5 stig og varð hann kl. 21.40.
Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræð-
ingur segir smáskjálftahrinur til-
tölulega algengar við Flatey.
Jarðskjálftar
við Flatey á
Skjálfanda
PÁSKAHELGIN var þolanleg
í umdæmi lögreglunnar í
Reykjavík, sem stöðvaði 17
ökumenn vegna gruns um ölv-
un við akstur frá 27. mars til 1.
apríl. Á sama tímabili voru 60
ökumenn teknir fyrir of hraðan
akstur og tilkynnt um 10 minni-
háttar líkamsárásir. Þá urðu 60
umferðaróhöpp, þar af 5 minni-
háttar slys. Þá telur lögreglan
að um 15 innbrot hafi verið til-
kynnt í bíla, fyrirtæki og heim-
ili.
Lögreglan
í Reykjavík
Þolanleg
páskahelgi
MIKIL aðsókn var að skíðasvæð-
unum í Bláfjöllum, Skálafelli og
Hengilsvæðinu yfir bænadagana og
er talið að rúmlega 13 þúsund
manns hafi heimsótt skíðastaðina
um páskana. Á skírdag var á
fimmta þúsund manns í blíðskap-
arveðri í Bláfjöllum og Skálafelli
og á föstudaginn langa var litlu
minni fjöldi á stöðunum. Skírdagur
og föstudagurinn langi voru því að-
alskíðadagarnir um páskana því
heldur dró úr aðsókninni frá og
með laugardegi til annars í páskum
þar sem samanlagt voru um 5 þús-
und manns á skíðastöðunum þessa
þrjá daga. Ekki var unnt að hafa
opið að fullu og var lokað í Bláfjöll-
um í gær og lokað hálfan daginn í
Skálafelli. Þá var ekki unnt að hafa
opið nema hálfan daginn á laug-
ardag á hvorum tveggja staðnum.
Þau Theodóra Þorsteinsdóttir,
Stefán Bjarki Ólafsson, Eydís
María Ólafsdóttir og Ólafur
Viggósson nutu blíðunnar í Blá-
fjöllum á föstudag, enda fátt betra
en heitur kakósopi og nestisbiti
undir berum himni við slíkar að-
stæður.
Morgunblaðið/Sverrir
Rúmlega 13
þúsund
manns á
skíðum
Höfuðborgarsvæðið
TRÚNAÐARLÆKNIR Flugmála-
stjórnar, sem falið var að skoða mál
Árna G. Sigurðssonar, flugstjóra hjá
Flugleiðum, hefur skilað niðurstöðu
sinni og hefur flugstjórinn andmæla-
rétt til 15. apríl. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins kemst læknirinn
að þeirri niðurstöðu að ekki sé unnt að
gefa flugstjóranum heilbrigðisvott-
orð.
Jón Þór Sverrisson trúnaðarlæknir
sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki geta tjáð sig um efni bréfs-
ins sem hann skrifaði Árna G. Sig-
urðssyni fyrir hönd heilbrigðisskorar
Flugmálastjórnar. Aðeins að hann
hefði sent bréfið og ekkert myndi ger-
ast í málinu uns flugstjórinn og/eða
lögmaður hans hefðu sent gögn og at-
hugasemdir varðandi bréfið. Flug-
stjóranum væri veittur frestur til 15.
apríl til andsvara.
Hjá Flugmálastjórn fengust þau
svör að ekki yrði látið uppskátt um
efni bréfs læknisins. Verði niðurstað-
an sú að flugstjórinn fái ekki heil-
brigðisáritun getur hann kært
ákvörðun fluglæknisins til samgöngu-
ráðuneytis. Ber ráðherra þá að skipa
kærunefnd til að fjalla um málið.
Í stuttu máli er forsagan sú að Árni
kenndi sér meins í október 1998 og
eftir rannsóknir var talið að öræð í
heila hefði lokast en ekki marktækur
eða varanlegur skaði orðið. Í fram-
haldi af því voru ýmsir áhættuþættir
meðhöndlaðir og í niðurstöðu áfrýj-
unarnefndar, sem skipuð var eftir að
trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar
hafði synjað Árna um heilbrigðisvott-
orð, segir að ný sjúkdómseinkenni
hafi ekki komið fram og að líkur á
nýju heilablóðfalli séu litlar. Árni fékk
skírteini aftur um mitt síðasta ár til
sex mánaða en flugmenn gangast
undir læknisskoðun á sex mánaða
fresti. Var Jóni Þór Sverrissyni falið
mál Árna eftir að Þengli Oddssyni,
trúnaðarlækni Flugmálastjórnar, var
vikið frá tímabundið en hann tók aftur
við starfi sínu í febrúar.
Málið rætt hjá Félagi ísl.
atvinnuflugmanna
Jóhann Þ. Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna,
tjáði Morgunblaðinu í gær að fulltrú-
ar félagsins myndu hitta Atla Gísla-
son, lögfræðing félagsins, sem jafn-
framt er lögmaður Árna G.
Sigurðssonar, og trúnaðarlækni fé-
lagsins til að fara yfir málið, skoða
greinargerð trúnaðarlæknis Flug-
málastjórnar og meta stöðuna. Jó-
hann telur að málið sé í raun komið á
byrjunarreit miðað við þá forsendu að
trúnaðarlæknirinn hafi ekki veitt
Árna heilbrigðisvottorð. Segir hann
að hafi ekki komið neitt nýtt fram frá
því að áfrýjunarnefndin taldi Árna
hæfan hljóti málið að fara að nýju fyr-
ir áfrýjunarnefnd.
Jakob Falur Garðarsson, aðstoðar-
maður samgönguráðherra, segir að
mál Árna G. Sigurðssonar komi ekki
til kasta ráðuneytisins nema Árni uni
ekki úrskurði trúnaðarlæknis Flug-
málastjórnar og kæri málið. Þá fyrst
komi til þess að ráðherra skipi áfrýj-
unarnefnd.
Árna G. Sigurðssyni flugstjóra ekki veitt heilbrigðisvottorð
Hefur andmælarétt til 15. apríl
FISKISKIPIÐ Sandfell ÍS-82 sem
sjósetja átti á páskadag, eftir að
hafa verið í slipp í Hafnarfirði, fór á
hliðina við sjósetninguna og liggur
enn í fjörunni við Hafnarfjarð-
arhöfn. Að sögn Daníels Sigurðs-
sonar, eins stjórnenda Óseyjar, út-
gerðafélags Sandfells, er óvíst
hvenær það verður dregið út á sjó
en hugað verður að því nú í vik-
unni. Sjáanlegar skemmdir eru
sáralitlar á skipinu og er það ekki
talið liggja undir frekari skemmd-
um þar sem það liggur í fjörunni.
Nánar verður unnt að meta
skemmdir á stjórnborðssíðu skips-
ins þegar það hefur verið rétt af.
Litlar skemmd-
ir á Sandfelli
Morgunblaðið/Sverrir
♦ ♦ ♦
UM 390 björgunarsveitarmenn
tóku þátt í útköllum björgunar-
sveita yfir bænadagana og
páskana. Björgunarsveitir hafa
notað sex snjóbíla, 40 vélsleða
og 48 breytta björgunarjeppa í
aðgerðum sínum, samkvæmt
því sem greint er frá í frétta-
tilkynningu Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar.
Tæplega
400 við
björgunar-
störf