Morgunblaðið - 02.04.2002, Blaðsíða 25
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 25
!
! "
!
#
$##%
"# $ %#&#!
! ' %#&#!
(! ! %#)
' ! %#&#!*
!
" # $$% & '(#$ !
) # $$% '
*+! $ !
# # $$% "
$
$ !
# $$%
") ,$ % !
% )$
! "#$
%&' (&
! "#
) *+ ,-! !. '-. .
! (. !. ,-! !/'. 0.1 .
' !. ,-! ( )! 2) .
& ) !. ,-! 3., ! '. .
%.,( !. ,-! 4 3.. 4 3.. .
).33/.2
!
" ! ! "#!$%&& "
'!'!
'!'! &%(
) $* +" "#!$%&%( ),
" !& "
-,$ +"
"#!$%&%(
, ! "#!$%&%(
.&& "
*! "!* "
! " # $$ %&' ( #! %)
'*'#' #' " )
+$ ,#%! " # $$ ' )
)$ " ) " '' " # $$
" ! " ) '*'# # # $$
- " ) './0 / # $$
. .0!)!. . .01
! "
!
" # $
%%&
#$!%"
& '! #(#"
$! #%"
)# # #%"
*# $ #%"
+, - (#"
$ *#%.
Með þessum fátæk-
legu orðum vil ég
kveðja vin minn og fé-
laga Ingvar Guð-
mundsson.
Ég átti því láni að
fagna að vinna með
Ingvari í tæp fjögur ár. Á þeim tíma
kynntist ég vel þeim manni sem
hann hafði að geyma. Iðulega fórum
við tveir saman í lengri eða skemmri
ferðir fyrir fyrirtækið, áttum við þar
góðar og skemmtilegar stundir.
Ekki má heldur gleyma hjálpsemi
Ingvars en alltaf var hann boðinn og
búinn til að aðstoða þá sem á þurftu
að halda. Þess naut til dæmis Körfu-
knattleiksdeild Hamars og fyrir það
vil ég þakka. Ómetanlegt var það
líka fyrir dóttur mína að fá far með
frænda sínum svo til daglega á Sel-
foss svo hún gæti stundað þar
íþróttaæfingar.
Ein af mínum síðustu minningum
um Ingvar er frá helginni áður en
hann lést en þá var hann í miklum
ham heima hjá mér við að rífa milli-
veggi og loft, við skemmtum okkur
konunglega og mikið var hlegið.
Ég bið algóðan Guð að gefa Dísu
og frænda styrk í þeirra miklu sorg.
Ingvars verður sárt saknað en minn-
ingin lifir um góðan dreng.
Lárus Ingi Friðfinnsson,
Hveragerði.
Elsku Ingvar vinur minn er dáinn.
Einn tryggasti og besti vinur sem ég
þekki. Alltaf tilbúinn til að aðstoða ef
á þurfti. Eða bara til að grínast með.
Það væri efni í heila bók að skrifa um
þig, Ingvar, en þar sem ég hef nú
aldrei verið góður penni ætla ég í
staðinn að geyma allar fallegu minn-
ingarnar um þig í brjósti mínu.
Ég mun aldrei gleyma öllum ferð-
unum niður að barnaskóla þar sem
ég, þú og Guðjón spiluðum körfu-
bolta. Stundum í marga klukkutíma,
langt fram á kvöld. Eða þegar þú
bauðst mér heim til þín eitt skiptið
og lést mig máta nýja mótorhjólaleð-
urgallann þinn. Svo hlóstu svo að
mér því auðvitað var hann alltof stór
á mér. Okkur langaði bæði í mótor-
hjól en komumst samt að þeirri nið-
urstöðu að það væri allt of hættulegt.
Það væri alveg nóg að eiga bara leð-
urdressið og hjálminn og þykjast
bara eiga hjól.
Svo var alltaf svo gaman að koma í
heimsókn til þín og foreldra þinna
því þið áttuð alltaf fulla frystikistu af
íspinnum, enda vannstu í Kjörís. Svo
sátum við þrjú á rúminu og spjöll-
uðum um heima og geima og sleikt-
um frostpinna þess á milli.
Þú varst alltaf svo umhyggjusam-
ur, hafðir alltaf miklar áhyggjur af
því hvernig ég hefði það. Sem dæmi
um umhyggju þína þá man ég að á
hverju kvöldi kveiktir þú á kerti fyrir
ofan mynd af Óttari vini þínum sem
lést fyrir nokkrum árum og fórst í
ófá skipti með rós að leiði hans. Það
voru þessir þættir sem gerðu þig svo
sérstakan. Ég sakna þín svo mikið,
þú ættir bara að vita það. Þinn tími
var kominn og áður en langt um líður
munum við hittast aftur elsku Ingv-
ar og spila meiri körfubolta, borða
frostpinna í öll mál, spjalla og gera
allt það sem okkur þykir skemmti-
legast. Hvert tár sem ég felli verður
að fallegri stjörnu á himninum hjá
þér. Elsku Ásdís, Guðmundur, ætt-
ingjar og vinir. Ég votta ykkur mína
dýpstu samúð. Megi góður Guð
styrkja ykkur í þessari miklu sorg.
Elfa Rún Árnadóttir,
Hellu.
Góður vinur er fallinn frá svo
langt fyrir aldur fram, í blóma lífsins
INGVAR
GUÐMUNDSSON
✝ Ingvar Guð-mundsson fædd-
ist á Selfossi 10.
mars 1979. Hann lézt
af slysförum 8. mars
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Selfosskirkju 22.
mars.
þegar svo margt er
ógert.
Mann skortir orð og
mann setur hljóðan,
þegar ungt fólk deyr.
Skýr- inga er leitað, en
oftar en ekki er fátt um
svör.
Ingvars minnist ég
sem góðs vinar og fé-
laga sem alltaf var
reiðubúinn að hjálpa til
við hlutina. Hann var
hress og skemmtilegur
og aldrei þekkti ég
Ingvar af öðru en glað-
værð og hjálpsemi, það
eru góðir kostir mann að prýða.
Það var eins og gengur hitt og
þetta sem við Ingvar gerðum saman.
Við fórum oftar en ekki í bíltúra og
bíóferðir til Reykjavíkur. Ég verð
þér ævinlega þakklátur fyrir það,
kæri vinur, að gefa þér tíma með
mér þegar ég þurfti á því að halda,
hafðu þökk fyrir.
Eftir á að hyggja og þegar ég
hugsa málið, þá var ekki til í orða-
safni þínu að nenna ekki að gera
hlutina, þvert á móti varst þú alltaf
boðinn og búinn að rétta mér vin-
arhönd, því þannig varst þú einfald-
lega, tryggur og trúr félögum þínum.
Ingvar var duglegur og ósérhlíf-
inn, stundaði vinnu sína af krafti og
var ætíð reiðubúinn að leggja á sig
aukalega, væri eftir því óskað.
Í vinahópi var Ingvar ákaflega vel
liðinn, enda ævinlega hress og kátur
og ætíð tilbúinn að gera vinum sínum
greiða.
Kæri vinur, ég læt skrifum mínum
nú lokið. Bestu þakkir fyrir vinátt-
una, tryggðina og allar ánægju-
stundirnar í gegnum árin.
Ég bið góðan Guð að blessa minn-
ingu þína, minningu um góðan og
traustan dreng.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Fjölskyldunni sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Þinn vinur,
Valgeir Matthías Pálsson.
Kæri vinur. Skyndilegt brotthvarf
þitt, svo ótímabært sem það er, hel-
tekur huga minn.
Bilið milli lífs og dauða getur verið
svo ótrúlega stutt. Þegar við kvödd-
umst um eftirmiðdaginn og þú hélst
heimleiðis, vorum við aðeins hálfn-
aðir í verki sem að við ætluðum að
klára eftir helgi. Eins og svo oft áður
varst þú tilbúinn að standa lengur og
hjálpa til, þó að hinum lögboðna
vinnudegi væri lokið. Hjálp þín var
ómetanleg á stundum.
Fölskvalaus dugnaður þinn og elja
er oft búinn að stytta mér og öðrum
viðgerðarmönnum hjá Kjörís langan
vinnudaginn og gera okkur kleift að
klára verkin og komast heim að
kvöldi.
Ég vildi aðeins fá að þakka þér
samfylgdina, sem nú hefur staðið í
um fimm ára skeið.
Foreldrum þínum og ástvinum
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Það verður tómlegt án þín,
og það eru fáir til þess að fylla þitt
skarð.
Gylfi Símonarson.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, –
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þessi lýsing kemur nákvæmlega
heim við unga manninn, Ingvar Guð-
mundsson, sem lést í einu af þessum
skelfilegu bílslysum. Dagurinn var 8.
mars. Hér misstu hjónin Ásdís Ingv-
arsdóttir og Guðmundur Kristinsson
einkason sinn og eina barn. Hall-
grímur Pétursson stendur við hlið
allra syrgjenda með blómstrið sitt
eina, Steinunni litlu, sem hann
missti. Hér á þetta vers við, því að
ungur maður lagði niður lit og blöð í
blóma lífsins.
Ingvar var fallegt barn. Um það
bil ársgamall fékk hann heilahimnu-
bólgu, sem greindist ekki nógu fljótt
til þess að meðöl dygðu. Lengi náði
hann því ekki eðlilegum þroska. Ég
var í næsta nágrenni fjölskyldunnar
og því ljóst hve erfitt var að hugsa
um hann. Ég er nærri viss um að
sumir foreldrar hefðu látið hann á
stofnun. Aldrei mætti hann öðru en
mesta ástríki, aldrei kvörtun yfir
fyrirhöfn. Ekki er líklegt að hann
hefði tekið þeirri framför á barna-
heimili sem hann náði smátt og
smátt, við nákvæma umhyggju hins
óbrigðula kærleika. Móðirin var allt-
af við. Farið var með hann til tal-
meinafræðings. Hann varð læs
heima, lauk barnaskóla og var
fermdur á réttum tíma. Þegar hann
kom í kirkju eftir fermingu settist
hann alltaf hjá mér og leiddi mig svo
niður kirkjutröppurnar. Slík var
tryggð hans og hann heimsótti líka
fleira gamalt fólk sem komið var á
elliheimili.
Það sýndi sig að hann var alinn
upp í kærleika og marga sigra vann
hann í sívakandi umhyggju foreldra
sinna. Hann vann í fyrirtæki hin síð-
ustu ár af miklum dugnaði.
Þegar hann kom heim úr skóla
sem barn, kallaði hann strax
„mamma“ í útidyrunum. Alltaf var
hún viðstödd til að svara og svo mun
það einnig hafa verið þegar hann
kom úr vinnunni. Hann kom aldrei
að tómu húsi.
Nú þegar „blómstrið eina“, sem
hafði komist til mikils þroska, hefur
lagt niður „lit og blöð“ í blóma lífsins,
er hann sárt syrgður. Skyndilega frá
þeim tekinn. Þau voru búin að líða
mikið með honum og líka gleðjast yf-
ir unnum sigrum. Nú takast þau á
við þá þjáningu, sem hans hefði ein-
hvern tíma beðið, að vera syrgjandi.
Hann reyndi því aldrei þá kvöl að
standa grátandi við gröf nánasta ást-
vinar og finna sársaukann og tóm-
leikann hellast yfir sig þegar komið
er heim.
Ekki efast ég um að Jesús hefur
staðið við dyrnar og tekið hann inn í
ríki kærleikans.
Þá, sem hlúa að sjúku barni af
ójarðlenskum kærleika, hefur Krist-
ur kallað móður sína, systur og
bræður. Páll postuli segir: Trú, von
og kærleikur. „En þeirra er kærleik-
urinn mestur.“ „ Kærleikurinn fellur
aldrei úr gildi.“
Hjartanleg samúðarkveðja.
Rósa B. Blöndals.