Morgunblaðið - 10.04.2002, Page 1

Morgunblaðið - 10.04.2002, Page 1
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, kvaðst í gær ætla að halda áfram hernaðinum gegn Palestínu- mönnum eftir að þrettán ísraelskir hermenn féllu í hörðum átökum í flóttamannabúðum á Vesturbakkan- um. Er þetta mesta mannfall í röðum ísraelskra hermanna frá því að upp- reisn Palestínumanna hófst fyrir einu og hálfu ári. „Þetta er erfið herför og henni verður haldið áfram þar til við höfum brotið hryðjuverkasamtökin á bak aftur,“ sagði Sharon. Fyrr um daginn voru ísraelskir hermenn fluttir frá tveimur palest- ínskum bæjum á Vesturbakkanum, Tulkarem og Qalqiliya. Ísraelskar hersveitir eru enn í fjórum bæjum, Nablus, Betlehem, Jenín og Ramall- ah, þrátt fyrir áskoranir George W. Bush Bandaríkjaforseta um að her- inn verði fluttur af sjálfstjórnar- svæðunum. A.m.k. 124 Palestínumenn og 24 ísraelskir hermenn hafa fallið frá því að Ísraelar hófu hernaðinn 29. mars, að sögn palestínskra lækna og tals- manna Ísraelshers. Búist er við að tala fallinna hækki því fregnir herma að mörg lík Palestínumanna hafi ekki enn verið flutt af átakasvæðunum. „Ætla að berjast til síðasta blóðdropa“ Hörðustu átökin voru í flótta- mannabúðum við bæinn Jenín. Fregnir herma að nokkur hundruð skæruliða hafi verið króuð af á litlu svæði í flóttamannabúðunum. Hermennirnir þrettán, sem féllu í gær, voru í tveimur hópum, að sögn talsmanns Ísraelshers. Annar hópur- inn lét lífið þegar sprengjugildrur sprungu í húsi sem hann fór inn í og hinir hermennirnir voru skotnir til bana þegar þeir komu að húsinu til að bjarga félögum sínum. Á sama tíma sprengdi Palestínumaður sig í loft upp, líklega nálægt fyrri hópnum. A.m.k. sjö hermenn særðust, þar af einn alvarlega, og líbönsk sjónvarps- stöð hafði eftir skæruliða í flótta- mannabúðunum að Palestínumenn hefðu tekið nokkra særða hermenn til fanga. Skæruliðarnir segjast ekki ætla að gefast upp, að sögn félaga í íslömsku hreyfingunni Hamas sem býr í flótta- mannabúðunum. „Þeir sögðust ætla að berjast til síðasta blóðdropa.“ Ísraelar sögðust í gær ekki ætla að meina Yasser Arafat, leiðtoga Pal- estínumanna, að ræða við Colin Pow- ell, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sem fer til Ísraels á morgun. Powell kvaðst í gær vonast til þess að geta átt fund með Arafat síðar í vik- unni. Þrettán ísraelskir hermenn falla í átökum við Palestínumenn í Jenín Mesta manntjón hers Ísraela á einum degi Jenín, Jerúsalem. AFP, AP. Sharon segist ætla að halda hern- aðinum áfram Reuters Rússneskir stuðningsmenn Palestínumanna rífa í sundur mynd af Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, með hakakross á enninu, við bandaríska sendiráðið í miðborg Moskvu þar sem þeir mótmæltu hernaði Ísraela í gær.  Vík milli vina/21 82. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 10. APRÍL 2002 AFTÖKUR til fullnægingar dauða- dómum ríflega tvöfölduðust í heimin- um á síðasta ári, og er meginástæðan mikil fjölgun líflátsdóma í Kína, að því er mannréttindasamtökin Amnesty International greindu frá í gær. Að minnsta kosti 3.048 manns voru tekn- ir af lífi í 31 landi 2001, en árið áður var talan 1.457, að því er fram kemur í skýrslu samtakanna. „Tölur okkar sýna ennfremur, að dauðarefsingum er beitt gegn þeim sem hvað síst geta borið hönd fyrir höfuð sér, fátækum, fólki úr minni- hlutahópum og ómenntuðu fólki,“ sagði Judith Arenas, talsmaður Amn- esty. Samtökin segja að 2.468 hafi verið teknir af lífi í Kína í fyrra, „fleiri en samanlagður fjöldi þeirra sem líf- látnir voru í öðrum löndum á þrem undangengnum árum“, sagði Arenas. Aftökur í Kína, Íran, Sádi-Arabíu og Bandaríkjunum voru 90% allra af- takna sem vitað er um. Sextíu og sex voru líflátnir í Bandaríkjunum, 139 í Íran og 79 í Sádi-Arabíu í fyrra. Amn- esty segir þó, að líklega sé heildar- fjöldi þeirra sem líflátnir hafa verið mun hærri, því ógerningur sé að henda nákvæmar reiður á tölunni þar eð mörg ríki haldi raunverulegum fjölda aftakna leyndum. Tvöfalt fleiri aftökur Genf. AFP. BANDARÍSKA innflytjendaeftirlit- ið, INS, hefur hert reglur um vega- bréfsáritanir námsmanna og lagt til að gildistími vegabréfsáritana ferða- manna verði styttur. Markmiðið er að auðvelda yfirvöldum að fylgjast með útlendingum og koma í veg fyrir að hugsanlegir hryðjuverkamenn kom- ist til landsins. Samkvæmt nýju reglunum þurfa útlendingar, sem ætla að ganga í skóla í Bandaríkjunum, að fá vega- bréfsáritanir sem námsmenn áður en þeir hefja námið. INS leggur enn- fremur til að vegabréfsáritanir ferða- manna og fólks, sem ferðast í við- skiptaerindum, gildi aðeins í mánuð en ekki í hálft ár eins og nú er. Á ári hverju dvelja meira en þrjár milljónir erlendra ferðamanna lengur en í mánuð í Bandaríkjunum og sam- tök bandarískra ferðaþjónustufyrir- tækja óttast að tillagan verði til þess að erlendum ferðamönnum fækki. „Í hvert sinn sem við torveldum fólki að koma til Bandaríkjanna með nýjum hindrunum hvetjum við það til að fara eitthvert annað,“ sagði talsmað- ur samtakanna. INS leggur til að heimilt verði að framlengja áritanirnar í hálft ár ef gild ástæða þykir til, t.a.m. ef ferða- maðurinn þarf að liggja á sjúkrahúsi. Samkvæmt núgildandi reglum er hægt að framlengja áritanirnar í ár. Tveir flugræningjanna, sem frömdu hryðjuverkin 11. september, voru með vegabréfsáritanir sem ferðamenn þegar þeir komu til Bandaríkjanna og óskuðu síðar eftir áritunum sem námsmenn. Þeir hófu nám í flugskóla í Flórída í júlí 2000 og beiðni þeirra um námsmannaáritun var ekki samþykkt fyrr en ári síðar. Hertar reglur um vegabréfsáritanir Washington. AP. HAMID Karzai, forsætis- ráðherra bráðabirgða- stjórnar Afganistans, hét því í gær að tvær risa- stórar Búddastyttur, sem talibanar eyðilögðu, yrðu endurreistar eins fljótt og mögulegt væri. Stytturnar voru höggnar í klett í Bamiyan-dal í miðhluta Afganistans fyrir 1.500 árum og tal- ibanar sprengdu þær fyrir rúmu ári þar sem þeir töldu þær „skurð- goð“ og í andstöðu við lögmál íslams. Karzai, sem skoðar hér klettinn í Bamiyan, sagði ekkert um hvenær hafist yrði handa við að endurreisa stytturnar eða hvernig verkið yrði fjármagnað. AP Búddastytturnar verði endurreistar JAPANSKIR ríkisstarfsmenn útbýttu niðursoðinni hvalakássu og djúpsteiktu hvalkjöti á fjöl- farinni verslunargötu í Tókýó í gær þegar Japanir héldu upp á „dag hvalsins“. Hvalkjötsréttirnir runnu út eins og heitar lummur og hundr- uð ungra Japana gæddu sér á þeim á götu sem einkum er þekkt fyrir tískuverslanir. Al- gengt var að japönsk börn fengju hvalkjöt í mötuneytum skólanna fyrir hvalveiðibannið 1986 en það telst nú fágætt og dýrt lostæti. „Ég hef aldrei bragðað hval- kjöt á ævinni,“ sagði 25 ára kona þegar hún stakk bita upp í sig. „Það væri jafnvel enn betra með bjór.“ Markmiðið með því að gefa hvalkjötið var að auka stuðning ungs fólks við hvalveiðar. Nýleg- ar skoðanakannanir benda til þess að stuðningurinn við veið- arnar sé miklu minni meðal unga fólksins en þeirra sem eldri eru. Starfsmennirnir sem útbýttu kjötinu voru í bolum með nýju vígorði stjórnarinnar: „Vernd- um og borðum.“ Hvalkjöt gefið á degi hvalsins Tókýó. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.