Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 9
49 UNGLINGAR hlutu borgaralega
fermingu síðasta sunnudag við at-
höfn í Háskólabíói sem um 900 gest-
ir voru viðstaddir. Þetta var fjór-
tánda borgaralega fermingin frá
árinu 1989 og hafa alls tæplega 500
börn fermst á þennan hátt, sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
Siðmenntar, félags um borgara-
legar athafnir.
Tólf fermingarbörn komu fram
við athöfnina og sýndu listir sínar
með hljóðfæraleik, söng og ljóða-
lestri. Fermingarstjóri var Sveinn
Kristinsson kennari.
Á heimasíðunni segir að tilgang-
urinn með borgaralegri fermingu
sé að efla heilbrigð og farsæl við-
horf unglinga til lífsins og kenna
þeim að bera virðingu fyrir mann-
inum, menningu hans og umhverfi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjórtánda
borgara-
lega ferm-
ingin
AUKIÐ samstarf Landspítala –
háskólasjúkrahúss og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri er m.a.
umtalsefni Magnúsar Péturssonar,
forstjóra LSH, í nýlegu bréfi til
starfsmanna. Segir hann þar
samning í undirbúningi milli spít-
alanna um starfsmannaskipti og
þjálfun starfsmanna og ýmsa þjón-
ustu sem spítalarnir gætu haft
samstarf um.
Í bréfinu ræðir forstjórinn ýmis
atriði í starfsemi spítalans og gerir
hann samstarf við landsbyggðina
m.a. að umtalsefni. Segir hann
einnig verið að ganga frá sam-
komulagi við heilbrigðisráðuneytið
um að barnalæknar LSH veiti
þjónustu út um land. Sagði Magn-
ús í samtali við Morgunblaðið að
hugsanlega færu læknar í heim-
sóknir á tiltekna staði á landinu til
að sinna ákveðinni þjónustu. Væri
þetta liður í því að færa mikilvæga
þjónustu nær spítalanum.
Þá er til umræðu að fara yfir
ritaraþjónustu spítalans. Magnús
segir um 200 starfsmenn sinna
henni og vill hann kanna hvort
unnt er að gera þjónustuna skil-
virkari. Hyggst hann ræða það við
starfsmenn og kalli það á breyt-
ingar muni verða hugað að þeim
en annars ekki.
Í lok bréfsins nefnir forstjórinn
hugmyndir sínar um að ráðfæra
sig í auknum mæli við sjúklinga.
Segist hann vilja hlera betur sjón-
armið sjúklinga, hjá einstökum
sjúklingum, sjúklingahópum eða
samtökum þeirra og aðstandend-
um. Hann segir lög um rétt sjúk-
linga færa þeim ákveðinn rétt og
leggja ákveðnar skyldur á spít-
alann og segir hann í bréfinu að ef
til vill sé nauðsynlegt að hlusta
meira á málsvara sjúklinga.
LSH og
FSA semja
um starfs-
manna-
þjálfun
Kremuð síð pils
Fleygnir bolir með síðum
ermum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
St
afr
æn
a H
ug
m
yn
da
sm
ið
jan
/
17
51
...framundan
Laugardagur
4. og 11. maí
Laugardagur
27. apríl
Föstudagur
26. apríl
Föstudagur
12. apríl
Eurovisionveisla
Húnvetninga!
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.
Föstudagur
19. apríl
Eurovision
kvöld
Húnvetninga
Fimmtudagur
18. apríl
Ungfrú
Reykjavík
Fegurðarsamkeppni
Íslands
Föstudagur og
laugardagur 17. og 18. maí
Vocal
Sampling
Listahátíð:
Miðvikudagur og
fimmtudagur 29. og 30. maí
Taraf De
Haïdouks
Listahátíð:
Hafið samband við
Jönu eða Ingólf.
Árshátíðir - ráðstefnur
fundir - vörukynningar
starfsmannapartý
Fjölbreytt úrval
matseðla.
Stórir og litlir
veislusalir.
Veitum persónulega ráðgjöf
við undirbúning.
Laugardagur
1. júní
Sjómannadagurinn:
Sjómanna-
dagshóf
Nýkomin sending af
hinum frábæru þýsku
og amerísku handunnu
sjúkraskóm.
Þýsku tréklossarnir sem beðið
var eftir, margar nýjar
tegundir af hvítum vinnuskóm
og götuskóm í lit.
15% afsláttur
af Delilah og Samson
flugsokkum í mörgum litum.
Kynning
á nýju amerísku
fjölvítamíni
fyrir eldri borgara
á frábæru verði!
15% kynningarafsláttur.
Gerið ykkur klár fyrir sumarið
Allt fyrir fæturna í Remedíu
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511.
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
26 ára afmæli
Við höldum upp á það með því að bjóða viðskiptavinum okkar
20% afslátt út þessa viku
Verið velkomnar - Við erum í afmælisskapi
Sérhönnun st. 42-56