Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 12

Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ vegar við Breiðholtsbraut og eru þau hluti af fram- kvæmdinni. Þá verður veg- urinn með fjölda gatnamóta og fleiri mannvirki koma til, s.s. undirgöng og bygging hljóðmana. Fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að byggingu vegarins verði áfangaskipt í þrennt. Í fyrsta áfanga mun vegurinn tengja saman Fífuhvamms- veg, Salaveg og Sólarsali í Salahverfi með einni ak- braut og er áætlað að þetta verði gert á tímabilinu 2002- 2003. Í öðrum áfanga yrði gerð tenging við Reykjanes- braut og hugsanlega Breið- holtsbraut auk þess sem TILLAGA að matsáætlun vegna Arnarnesvegar auk tengivegar um Hörðuvelli í Kópavogi liggur nú til kynn- ingar hjá Skipulagsstofnun. Gert er ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir við fyrsta áfanga vegarins á þessu eða næsta ári. Arnarnesvegur mun ná til Garðabæjar, Kópavogs og Reykjavíkur en um er að ræða 4,3 kílómetra stofnveg sem liggja mun um Leirdal milli Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar. Tengi- brautin um Hörðuvelli er fyrirhuguð á milli Arnarnes- vegar og Elliðavatnsvegar. Í tillögunni segir að veg- inum sé ætlað það hlutverk að tengja jaðarbyggðir höf- uðborgarsvæðisins betur saman, þ.e.a.s. Breiðholt og Salahverfi í Kópavogi og síðar meir nýja byggð í Garðabæ. Með tilkomu veg- arins er gert ráð fyrir að dregið verði úr aukningu umferðar um Reykjanes- braut við Mjódd. Lega vegarins lítt hreyfanleg Endanleg lega vegarins liggur ekki fyrir þar sem enn er unnið að hönnun hans en tillagan gerir ráð fyrir að hann muni liggja milli fyrirhugaðs golfvallar í Leirdal og byggðarinnar í Salahverfi. Kemur fram í til- lögunni að fyrirhuguð land- notkun í Kópavogi geri legu vegarins tiltölulega lítt hreyfanlega. Gert er ráð fyrir mislæg- um gatnamótum Arnarnes- bygging mislægra gatna- móta við Breiðholtsbraut kann að falla undir þennan áfanga. Í þriðja áfanga yrði fullnaðarbygging vegarins. Ekki liggur fyrir tímaáætl- un fyrir 2. og 3. áfanga. Í nágrenni vatnsverndarsvæða Samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur frá 1996 er svæðið í nágrenni vegarins skilgreint sem almennt úti- vistarsvæði. Í nágrenni veg- arins er aukinheldur vatns- verndarsvæði og vatnaskil, m.a. vatnsból Garðbæinga og vatnaskil Elliðavatns. Verður gerð grein fyrir áhrifum vegarins á þessu svæði og mótvægisaðgerðum í matsskýrslunni sjálfri að því er segir í tillögu að mats- áætlun. Þá kemur fram að mikil uppbygging sé fyrirhuguð í nágrenni fyrirhugaðs vegar. Kópavogsmegin er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi við mislægu gatnamótin við Breiðholtsbraut, íbúðabyggð á Hörðuvöllum og golfvelli í Leirdal. Í Garðabæ er fyrirhuguð íbúðabyggð við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar á Hnoðraholti. Segir í tillög- unni að þessi mikla upp- bygging komi til með að valda mun meiri röskun á náttúrufari á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði en vega- framkvæmdirnar koma til með að valda. Þeir sem vilja kynna sér tillöguna geta nálgast hana hjá Skipulagsstofnun eða skoðað hana á heimasíðu VSÓ-Ráðgjafar sem sér um matsvinnu við veginn. Vef- fangið þar er www.vso.is. Þurfa athugasemdir að ber- ast Skipulagsstofnun fyrir 15. apríl 2002. Stefnt er að því að ákvörðun Skipulagsstofnun- ar um tillögu framkvæmda- raðila að matsáætlun muni liggja fyrir 2. maí 2002.                                                               !  " " #" "       Á að tengja jaðarbyggðir höfuðborg- arsvæðisins Arnarnesvegur VERSLUN við Bankastræti hefur dregist mun minna saman en áætlað var vegna vegaframkvæmdanna sem þar standa yfir. Þetta segir Símon Wiium, kaupmaður í Tískuvali. Hann þakkar góðu aðgengi fyrir gang- andi vegfarendur það hversu vel hefur gengið með verslun þrátt fyrir framkvæmdirnar. Í Morgunblaðinu í gær birtist mynd með fyrirsögn- inni „Illfært um Banka- stræti“. Símon segir þetta vera hinn mesta misskiln- ing. „Aðstæður eru mjög góðar miðað við umfang verksins og vel að öllu staðið. Það eru mjög góðar gönguleiðir fyrir gangandi vegfarendur og meira að segja er auðvelt að fara um með barnavagn. Þannig að aðgengið er mjög gott nema það er ekki akfært.“ Hann segir verktaka eiga hrós skilið fyrir hversu vel þeir hafa staðið sig í að draga úr neikvæðum áhrif- um framkvæmdanna. „Þeir hafa staðið sig gífurlega vel við allan frágang. Sem dæmi má nefna að allar göngubrýr að verslununum eru sópaðar til að valda okkur sem minnstum skaða af óhreinindum innan- dyra.“ En hvaða áhrif hafa framkvæmdirnar haft á viðskipti kaupmanna við Bankastrætið? „Eðlilega hafa viðskiptin dregist svo- lítið saman en mun minna en við gerðum ráð fyrir,“ segir Símon. Verður gullfallegt Hann segist hlakka til að fá nýtt og betra Banka- stræti að framkvæmdunum loknum enda sé mikið í lagt þannig að gatan eigi að verða gullfalleg um það er lýkur. Þá leggur hann áherslu á að framkvæmd- unum í Bankastrætinu eigi að ljúka í maí en ekki í lok ágúst eins og sagt var í frétt Morgunblaðsins í gær. Var þar verið að vísa til loka heildarframkvæmd- anna en þeim er áfanga- skipt. Að sögn Haralds B. Alfreðssonar, verkfræðings hjá Vegagerðinni, á fram- kvæmdunum í Bankastræti, frá Ingólfsstræti að Lauga- vegi, að ljúka 10. maí, framkvæmdum á Skóla- vörðustíg, frá Bankastræti að Bergstaðastræti, á að ljúka um miðjan júní, gatnamótum Bergstaða- strætis og Skólavörðustígs á að vera lokið í lok júní og loks verður kaflanum frá Berstaðastræti upp að Týs- götu lokið í ágústlok. Framkvæmdum í Bankastræti lýkur 10. maí Aðgengi til fyrirmyndar fyrir gangandi vegfarendur Morgunblaðið/Þorkell Símon segir verktaka í Bankastrætinu standa sig frábærlega og m.a.s. sópa göngubrýrnar. Miðborg SKÓGRÆKTARFÉLAG Mosfellsbæjar hefur mótmælt þeim áformum í aðalskipulagi bæjarins, að setja upp mislæg gatnamót við aðkomu félags- ins að útivistar- og skógrækt- arsvæði félagsins í Hamrahlíð. Í bréfi félagsins til bæjar- stjórnar segir að með gatna- mótunum eyðileggist bíla- stæði og aðkoma að skógræktarsvæðinu en núver- andi bílastæði þarfnist þegar stækkunar vegna aukinnar umferðar um skóginn. Segir að tryggja verði aðkomu al- mennings og bíla að útivistar- svæðinu. Árlega komi mikill fjöldi fólks í Hamrahlíð og með aukinni byggð Reykjavíkur í Úlfarsfelli muni öll umferð um skógræktarsvæðið stórauk- ast. Ekki ljóst hvenær af gatnamótum verður Tryggvi Jónsson, bæjar- verkfræðingur í Mosfellsbæ, segir ekki vitað um það hve- nær mislægu gatnamótin koma til framkvæmdar en á vegaáætlun sé gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar frá Víkurgatnamótum og upp í Mosfellsbæ á næstu tveimur árum. „Núna er hafin vinna við frumhönnun á þessari tvöföld- un ásamt mislægu gatnamót- unum þannig að það er ekki fyrr en þeirri vinnu lýkur sem menn vita hvernig þessi gatnamót munu líta út,“ segir Tryggvi. Hann telur líklegt að ekki komi til framkvæmda við gatnamótin fyrr en eftir árið 2005 en hugsanlegt sé að hringtorg verði sett upp við gatnamótin til bráðabirgða í framhaldi af tvöföldun vegar- ins. Hann segir ekki ljóst hvern- ig bílastæðamál Skógræktar- félagsins verði leyst. „Fyrst ætlum við að sjá hvernig þessi frumhönnun lítur út. Við það eitt að Vesturlandsvegurinn tvöfaldast er um leið búið að taka þessa aðkomu að Skóg- ræktarfélaginu í burtu. Það yrði aldrei öðruvísi en þannig að menn gætu keyrt inn á svæðið þegar þeir væru að koma úr Reykjavík og út af í átt að Mosfellsbæ. Þeir, sem væru að koma úr Mosfellsbæ og ætluðu inn á svæðið, yrðu alltaf að keyra að Víkurgatna- mótum og snúa þar við því það yrðu aldrei leyfðar vinstri beygjur þvert yfir tvöfaldan veg.“ Tryggvi segir því tvöföldun vegarins kalla á að aðrar að- komuleiðir verði skoðaðar og innanhúss sé rætt um að það gæti jafnvel orðið frá Skar- hólabraut. Nýtt aðalskipu- lag í vinnslu Ný tillaga að aðalskipulagi Mosfellsbæjar er nú í vinnslu hjá bænum eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Gert er ráð fyrir að tillagan verði tekin fyrir í bæjarstjórn 24. apríl næstkomandi og í framhald- inu verði það sett í lögform- lega auglýsingu. Tryggvi bendir þó á að umrædd gatna- mót séu inni á núgildandi að- alskipulagi og því sé ekki um ný gatnamót að ræða í aðal- skipulagi. Skógræktarfélagið uggandi um aðkomu að svæði sínu Mótmælir mislægum gatnamótum Mosfellsbær PENINGALEG staða bæjarsjóðs Hafnarfjarðar batnaði á síðasta ári um 381 milljón að teknu tilliti til hækkunar lífeyrissjóðs- skuldbindinga en sé ekki litið til þeirra batnaði pen- ingaleg staða sjóðsins um 665 milljónir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bænum en ársreikn- ingur bæjarsjóðs var lagð- ur fram í bæjarráði sl. fimmtudag. Segir í tilkynningunni að heildarskatttekjur bæj- arsjóðs á árinu 2001 hafi numið 4.358 milljónum króna en rekstur mála- flokka nam 3.664 milljón- um. Þá jukust peningaleg- ar eignir bæjarsjóðs um 2.223 milljónir í fyrra. Eft- ir sameiningu Rafveitu Hafnarfjarðar við Hita- veitu Suðurnesja er hlutur bæjarins í fyrirtækinu í árslok metinn á um 1.590 milljónir króna. Skuldir bæjarins voru í fyrra 8.701 milljón sem er 1.558 milljónum meira en árið á undan. Á móti koma auknar peningalegar eign- ir eins og fyrr segir og batnaði peningaleg staða bæjarsjóðs um 665 millj- ónir króna. Að teknu tilliti til hækkunar lífeyrisskuld- bindinga nemur batinn um 381 milljón en í fréttatil- kynningu bæjarins segir að lífeyrissjóðsskuldbind- ingar hafi aukist um 570 milljónir króna frá árinu 1998 reiknað á ársloka- verðlagi 2001. Stefnt er að því að af- greiða ársreikninginn í bæjarstjórn 23. apríl næst- komandi að því er fram kemur í tilkynningunni. Ársreikn- ingur af- greiddur í lok mán- aðarins Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.