Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 14
SUÐURNES 14 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞÁTTTAKA í verkefninu Vistvernd í verki er góð í Reykjanesbæ. Í janúar hófu tveir hópar, sem samanstanda af fimm heimilum hvor, þátttöku. Í síðustu viku var svo öðrum tveimur hópum hleypt af stokkunum. Verk- efnið Vistvernd í verki er hluti af Staðardagskrá 21 sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta ári. „Í Staðardagskránni eru þrjú megin atriði; að bregðast við núver- andi ástandi, að ná til fyrirtækja og atvinnulífsins og í þriðja lagi að vekja almenning til umhugsunar um um- hverfismál,“ segir Kjartan Már Kjartansson, formaður stýrihóps Staðardagskrárverkefnisins í Reykjanesbæ. „Við ætlum að nálgast börnin í gegnum skólana og svo heimilin í gegnum Vistvernd í verki.“ Umhverfismat á hverju heimili Hóparnir sem taka þátt í verkefn- inu koma reglulega saman, ræða um verkefnið og meta árangur. Í verk- efninu er lögð áhersla á sex lykil- þætti; sorp, orku, samgöngur, inn- kaup, vatn og að virkja aðra til þátttöku. Þátttakendur fá handbók með leiðbeiningum sem unnið er útfrá. Í upphafi verkefnisins er gert um- hverfismat á þeim heimilum sem taka þátt, þar sem þættir verkefn- isins eru sérstaklega teknir fyrir og mældir. „Síðan fara næstu vikur í það að endurbæta umhverfismál heimilisins og gera það vistvænna,“ segir Johan D. Jónsson, ferðamála- fulltrúi Suðurnesja, sem leiðir hóp- ana í verkefninu og tekur sjálfur þátt í því. „Það er t.d. varlega áætlað að hægt er að draga úr heimilissorpi sem fer í venjulega sorptunnu um helming og mörg heimili í fyrstu hóp- unum gerðu gott betur en það.“ „Það kostar um 10 þúsund krónur að brenna hverju tonni af sorpi,“ seg- ir Kjartan, en öllu sorpi af Suður- nesjum er fargað í sorpbrennslustöð. „Ef fólk getur minnkað magnið margfalt, þá erum við að tala um beinan fjárhagslegan ávinning vegna verkefnisins upp á tugi milljóna króna á ári, ef allir næðu góðum ár- angri.“ Nýtt sorphirðukerfi í bígerð Kjartan og Johan eru sammála um að aðgengi að ruslagámum fyrir flokkað sorp mætti vera betra í bæj- arfélaginu og hafi þátttakendur verkefnisins eindregið bent á það. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja styður verkefnið og lagði til safnkassa handa þeim heimilum sem tóku þátt í verkefninu frá upphafi. „Lang- stærsti hlutinn af sorpinu sem til fell- ur á heimilinu er lífrænn úrgangur sem má setja í safnkassana,“ segir Kjartan. „Með honum má því minnka heimilissorpið um 30% eða meira.“ Hann segir nú unnið að því að bæta sorphirðukerfi Reykjanesbæj- ar og að búið sé að ákveða byggingu nýrrar sorpeyðingarstöðvar sveitar- félaga á Suðurnesjum í Helguvík. „Sú stöð mun taka mið af ströngustu kröfum um endurvinnslu og í tengslum við það verður tekin upp ný sorphirðuáætlun.“ Útfærsla áætlunarinnar er stutt á veg komin enn sem komið er, en ver- ið er að kanna ýmsa möguleika á út- færslum. Johan og Kjartan segjast hafa fundið fyrir því á fundinum með gömlum og nýjum hópum í síðustu viku að fólki finnist flokkunin á sorp- inu meiri fyrirhöfn en æskilegt væri. „Það er mikilvægt að sjá að verkefnið er eitthvað sem íbúar vilja taka þátt í, að samfélagið er vistvænt þenkj- andi,“ segir Kjartan og Johan bætir við: „Það er bæði fjárhagslegur og umhverfisvænn ávinningur af því.“ Vistvernd fyrir lífið „Ég varð fyrir mjög skemmtilegri upplifun á fyrsta fundinum, þegar á þriðja tug manna mættu á fundinn og vildi með beinum eða óbeinum hætti taka þátt í verkefninu,“ segir Johan. „Á kynningarfundinn í síðustu viku mættu einnig margir, sem var mjög ánægjulegt. Það sýnir að fólk hér er afskaplega vakandi fyrir þessum málum og að vistvernd er smám sam- an að verða ríkjandi hugsunargang- ur.“ Hóparnir tveir sem hófu verkefnið í Reykjanesbæ í vetur munu halda áfram að starfa að vistvernd, enda mynduðust að sögn Johans tengsl milli heimilanna sem eiga eftir að auðvelda þessum aðilum að halda sig við efnið. „Nú eiga þau sér stuðnings- aðila í umhverfisverndinni í hvert öðru,“ segir Johan. „Nú hafa fyrstu hóparnir farið í gegnum reynslustig- ið en munu síðan halda áfram að þróa sitt líf með vistvernd að leiðarljósi.“ Johan og Kjartan segja að áfram verði haldið með verkefnið Vistvernd í verki í Reykjanesbæ, en hluti af því felst, eins og fyrr segir, í að breiða út boðskap umhverfisverndar og því má ætla að sífellt fleiri muni taka þátt ef allt gengur samkvæmt áætlun. „Verkefnið boðar engar öfgar. Þarna er venjulegt fólk frá venjulegum heimilinum að stíga ákveðið skref til að vinna að framtíðinni,“ segir Johan, „og reyna að svara því hvernig það eigi að skila landinu sem það hefur að láni til barnanna.“ Og Kjartan bætir við: „Hlutverk ríkis og sveitarfélaga er síðan að skapa þær aðstæður sem til þarf svo fólk geti stundað vistvernd í verki um ókomna framtíð.“ Verkefnið Vistvernd í verki komið vel á veg Unnið markvisst að vistvænni framtíð Morgunblaðið/RAX Kjartan og Johan segja verkefnið Vistvernd í verki vera fyrir allt lífið, en gera þurfi fólki auðveldara fyrir að hlúa að umhverfinu. Reykjanesbær HJÓNIN Ólafur Örn Ingibersson og María Arnardóttir voru meðal fyrstu þátttakenda í Vistvernd í verki, en þau skráðu sig til þátt- töku í verkefninu í kjölfar kynn- ingarfundar í janúar á þessu ári. Þau segja ástæðuna fyrir þátttök- unni vera þá að þau vilji skila betra samfélagi til komandi kyn- slóðar. „Þetta er verkefni sem við eig- um öll að hugsa um og við höfð- um haft hugann við þetta lengi. Við hjónin ákváðum svo að slá til þegar verkefnið var auglýst,“ sögðu hjónin. Í verkefninu er farið í fimm viðfangsefni; sorp, orku, sam- göngur, innkaup og vatn en mest áhersla var lögð á sorpið. „Sorp- eyðingarstöð Suðurnesja lagði til safnkassa í upphafi verkefnisins þannig að það var auðvelt að tak- ast á við sorphlutann. Varðandi hin atriðin fjögur þá eru þau erf- iðari viðfangs hvað varðar við- horf og venjur. Við urðum auðvit- að meðvitaðri um ýmsa hluti sem snúa að þeim sem leitt hafa til smá breytinga en yfir höfuð sýn- ist okkur að lengri tíma taki að breyta til þar.“ Erfitt að finna umhverfisvæn hreingerningarefni Ólafur og María segja að margt þurfi að koma til svo auðveldara sé fyrir fólk að breyta og hægt sé að sinna þessu almennilega og að þetta eigi einnig við um flokkaða sorpið. „Við myndum t.d. vilja sjá gáma fyrir fleira en dagblöð og fernur á aðgengilegum stöðum um bæinn, svo ekki þurfi að fara langar leiðir til að koma flokkuðu sorpi frá sér. Einnig finnst okkur að fólk ætti ekki að þurfa að kaupa safnkassana ef það vill gerast þátttakendur í verkefninu, það virkar letjandi en ekki hvetj- andi að þurfa að leggja í fjárútlát til að hefast handa. Því aðveldara sem fólki verður gert að hefjast handa, því fyrr getum við búist við árangri.“ Hvað aðra þætti varðar segja þau hjónin að þau hafi helst merkt breyttar venjur í innkaupum og vatnsnotkun. Þau hafi fljótlega farið að forðast vörur sem voru pakkaðar inn í mörg lög af umbúðum og hugsað betur út í það hvernig þau skila af sér vatninu, m.t.t. hreingern- ingarefna. „Reyndar komumst við líka að því hve erfitt er að finna umhverfisvæn hreingerning- arefni. Úr þessu gætu verslanir auð- veldlega bætt með því að koma fyrir merkingum á viðkomandi hillur eða jafnvel enn betur með því að skapa ákveðin hillusvæði eða standa með umhverfisvænum vörum.“ Ólafur og María eiga þrjú börn og segja þau að verkefnið hafi ekki vakið neina sérstaka lukku hjá börnunum til að byrja með en síðan hafi þau hrifist með. Fjöl- skyldunni hefur nú tekist að minnka heimilissorpið um rúm- lega helming. „Áður en við byrj- uðum vó heimilissorpið rúmlega 16 kíló á viku en nú vegur það um 8 kíló.“ Aðspurð um hvort eitthvað hafi komið þeim á óvart í verkefninu segja þau bæði að það sem hafi komið mest á óvart sé hversu lít- ið mál þetta hafi verið. „Það eina sem þurfti voru smávegis hug- arfarsbreytingar og venjur sem við vorum fljót að tileinka okkur. Við héldum líka í upphafi að flokkuninni myndi fylgja leiðinleg lykt og önnur óþægindi en svo er ekki.“ Ólafur og María segjast ætla að halda áfram að flokka heim- ilissorpið og reyna jafnframt að hafa áhrif á fólk í kringum sig svo fleiri taki þátt. Næsta skrefið sé að koma fleiri fötum í rusla- skápinn til að auðvelda flokk- unina og í náinni framtíð vonast þau til að auðveldara verði að skila af sér flokkaða sorpinu í bæjarfélaginu. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir María og Ólafur bæta í safnkassann og geta vonandi að einu til tveimur árum liðnum notað moldina við vorverkin í garðinum. Betra samfélag til komandi kynslóða FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun í dag heimsækja endurhæfingarsambýli Byrgisins í Rockville. Hefst dagskráin með móttöku og hádegisverði. Um kl. 13 fer forsetinn í skoðunarferð um svæðið. Skoðuð verður m.a. ný- opnuð aðhlynningardeild og að- staða til skólahalds, íþróttaiðkun- ar, þjálfunar og endurhæfingar- vinnu, s.s. tré- og járnsmíða- verkstæði. Þá mun forsetinn heimsækja vistmenn í vistarverur þeirra, skoða starfsmannaaðstöðu, skrifstofu og eldhús. Að skoðunar- ferð lokinni mun Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgis- ins, kynna starfsemi endurhæfing- arsambýlisins og forsetinn ávarpa viðstadda. Byrgið hefur rekið endurhæf- ingarsambýli í Rockville á Reykjanesi síðan sumarið 2000 en uppbygging í Rocville hófst fyrir þremur árum. Í dag dvelja þar um 60 skjólstæðingar sem þangað hafa leitað eftir aðstoð við fíkni- efna- og áfengisvanda sínum. Forsetinn heimsækir Byrgið í dag Rockville

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.