Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 15 GRUNNSKÓLI Mýrdalshrepps hélt árlega árshátíð fyrir páskafrí með nokkuð breyttu sniði þetta árið. Opnað var kaffihús í skólanum og síðan fluttu nemendur dagskrá sem samanstóð af efni úr bókmenntum eftir Halldór Laxness, en eins og kunnugt er hefði hann orðið 100 ára á þessu ári og var því ákveðið að heiðra minningu hans. Krakkarnir fluttu leikþætti úr Heimsljósi og Brekku- kotsannál, röppuðu Maístjörnuna og rætt var við nokkrar þekktar per- sónur úr bókum Halldórs í Kastljós- þætti um það sem er að gerast í dag, svo að eitthvað sé nefnt. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hjörleifur Símonarson (Álfgrímur), Kristín Björnsdóttir (amman) og Haukur Einarsson (Björn afi) fluttu atriði úr Brekkukotsannál. Laxness-þema á árshátíð Fagridalur NÚ stendur yfir lagning reiðvegar frá hesthúsahverfi Grundfirðinga sem er rétt vestan við bæinn, að Gil- ósi, ofan kauptúnsins. Þetta er um 700 metra kafli. Átta aðilar gerðu tilboð í reiðvegagerðina og var lægsta tilboði tekið, en það áttu EB vélar ehf. í Stykkishólmi, 1.316.000 kr., en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1.890.000 kr. Hæsta tilboðið var frá Almennu umhverfisþjónust- unni, Grundarfirði, upp á 3.810.000 kr. Fram til þessa hafa hestamenn orðið að ríða eftir malbikinu gegnum bæinn með tilheyrandi ugg um að eitthvað fari úrskeiðis, sérstaklega ef farið var með lausa hesta. Þá hef- ur þetta haft hamlandi áhrif á ferðir hrossahópa um Grundarfjörð. Reiðvegurinn liggur í gegnum skógræktarsvæði Skógræktarfé- lagsins ofan við byggðina í Grund- arfirði. Að sögn Jökuls Helgasonar, byggingarfulltrúa í Grundarfirði, er gert ráð fyrir að halda áfram í vor með annan áfanga verksins þ.e. frá Gilósi ofan byggðar þar til reiðveg- urinn tengist inn á gamla þjóðveg- inn um Grundarbotn við Kverná. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Unnið við reiðveginn vestan við Fellin. Loksins reiðvegur Grundarfjörður FYRIR skömmu fór fram í Íþróttahöllinni á Húsavík Opna Húsavíkurmótið í boccia. Mótið er firmakeppni sem haldin er árlega, þátttakendur voru ýmis félög og fyrirtæki bæjarins auk tveggja sveita úr Bárðardal. Mótshaldið var eins og áður í umsjón félaga í Kiwanisklúbbnum Skjálfanda. Mótið fór vel fram og keppn- isgleðin blönduð hæfilegri alvöru leyndi sér ekki í andliti og fasi keppenda. Þeir voru á ýmsum aldri, frá 15 ára og sá elsti kominn yfir áttrætt. Eftir keppni í undan- og milliriðlum og að lokum úr- slitakeppni var það b-sveit Húsa- víkurkaupstaðar sem stóð uppi sem sigurvegari á mótinu eftir æsispennandi og jafnan úrslitaleik við sveit leikskólans Bestabæjar. Sigursveitina skipuðu þeir Guð- mundur Níelsson og Kristbjörn Óskarsson, sveit Bestabæjar skip- uðu þau Dagur Már Jóhannsson og Anna María Bjarnadóttir. Í þriðja sæti varð a-sveit Húsavík- urkaupstaðar skipuð þeim Rein- hard Reynissyni og Guðmundi Guðjónssyni. Í fjórða sæti varð ein af mörgum sveitum eldri borgara sem þátt tóku, skipuð þeim Sig- rúnu Hauksdóttur og Halldóru Theódórsdóttur. B-sveit Húsavíkur- kaupstaðar sigraði Húsavík Opna Húsavíkur- mótið í boccia VERÐLAUNAAFHENDING fór nýlega fram í félagsheimilinu á Breiðumýri þar sem bændum voru afhentir verðlaunagripir vegna mjólkurkúa sem hlutu flest stig á kúasýningum. Á fundinn mættu ráðunautarnir Jón Viðar Jónmundsson og Guð- mundur Steindórsson og kynntu þeir m.a. afkvæmadóma á nautum fæddum 1995 og fóru yfir almennt kynbótamat og ræktunarstarfið í heild sinni. Þá var og farið yfir þær sýningar sem haldnar hafa verið og kýr úr árgangi 1997 voru verðlauna- ðar. Þær kýr sem fengu flest stig fyrir útlit voru Hetja frá Björgum með 89 stig, en Búbót frá Grímshúsum, Sól- rún frá Hjarðarbóli og Ófeig frá Veisu voru allar með 88 stig. Þær kýr sem fengu mest fyrir af- urðir, kynbótamat og útlitsdóm samanlagt voru Drottning frá Mið- hvammi með heildareinkunnina 301, Róshyrna frá Vogum með 300 og Búkolla frá Sólvangi með 299 í heild- areinkunn. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Bændur með verðlaunagripi sína. Á myndinni eru Árni Snorrason, Kristín Linda Jónsdóttir, Karl Björnsson, Hallgrímur Óli Guðmundsson, Rúnar Jóakimsson og Sigurður Hálfdánarson. Verðlaun fyrir mjólkurkýr Laxamýri NEMENDUR Brúarásskóla héldu árshátíð nú á dögunum. Það er orð- in venja að sýna aðeins eitt stórt leikverk á hverri árshátíð. Nú varð Kardimommubærinn eftir Thor- björn Egner fyrir valinu. Að sýn- ingu verksins koma um 40 manns. Það var skemmtileg kvöldstund að fylgjast með með sýningu krakk- anna, leikgleðin skein úr hverju andliti. Auk þess er mikill söngur í sýningunni og greinilegt að Brúar- ásskóli býr að hæfileikafólki hvað það varðar. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Ræningjarnir þrír og rakarinn sem leiknir voru af Boga Kárasyni, Valdi- mar Veturliðasyni, Agnari Benediktssyni og Lindu Björk Kjartansdóttur. Nemendur Brúarásskóla Settu upp Kardi- mommubæinn Norður-Hérað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.