Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 10.04.2002, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 17 MÁLMVINNSLUFYRIRTÆKIÐ BHP Billiton hefur sett fram áætl- anir um að auka arðsemi og spara 500 milljónir bandaríkjadala, eða 49,5 milljarða íslenskra króna, á ár- unum 2003 til 2006. Fyrirtækið er meðal þeirra sem Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, hefur nefnt sem hugsanlegan samstarfsaðila um álver á Austur- landi. Finnur Ingólfsson, seðlabanka- stjóri og formaður nefndar sem mun fara í könnunarviðræður við nýja fjárfesta í álveri á Austurlandi, hefur sagt að öll þau fyrirtæki sem Val- gerður nefndi sem hugsanlega sam- starfsaðila komi til greina. Það eru auk BHP Billiton, Alcoa, Alcan og Pechiney. Á fréttaavef CNN kemur fram að þessi áformaði sparnaður BHP Billi- ton kemur til viðbótar við þann 270 milljóna dala sparnað sem á eftir að skapast vegna samruna BHP og Billiton í júlí á síðasta ári. Billiton er breskt fyrirtæki en BHP ástralskt. Fyrirtækið rekur m.a. járnverk- smiðju í Ástralíu sem ekki hefur gengið vel og afskrifa þurfti um 600 milljónir dala vegna hennar árið 2000. Hugsanlegur sam- starfsaðili sparar TAP varð af rekstri Samskipa að upphæð 249 milljónir króna árið 2001 en árið áður var tapið 388 milljónir. Rekstrartekjur námu 14.258 milljónum króna og hafa hækkað um rúm 21% milli ára. Rekstrargjöld voru 13.944 milljónir og hækkuðu um 17%. Afkoma fyrir fjármagnsliði batnaði því verulega milli áranna og nam 313 milljónum en var neikvæð um 164 milljónir ár- ið áður. Fjármagnsliðir hækkuðu hins vegar verulega milli áranna og voru fjármagnsgjöld umfram fjár- magnstekjur 544 milljónir á árinu, en þar af er gengistap 391 milljón. Í tilkynningu frá Samskipum kemur fram að heildareignir félags- ins námu í árslok 7.675 milljónum króna, en skuldir voru 5.868 millj- ónir. Eigið fé var 1.832 milljónir og hefur hækkað milli ára vegna sölu á eigin bréfum félagsins. Eiginfjár- hlutfall er 24% og hefur hækkað lít- illega milli áranna. Eiginfjárhlutfall móðurfélagsins er hins vegar 30%. Veltufé frá rekstri var 361 millj- ón, en var aðeins 65 þúsund árið áð- ur. Handbært fé frá rekstri nam 273 milljónum, en var lítillega neikvætt árið áður. Veltufjárhlutfall í árslok var 1,04. Í tilkynningu Samskipa segir að þrátt fyrir að afkoman á árinu hafi verið undir væntingum séu augljós merki þess að hagræðing og að- haldsaðgerðir, sem unnið hefur ver- ið að, séu að skila sér í rekstrinum. Á síðasta ári urðu umtalsverðar breytingar á eignarhaldi Samskipa. Þrír af stærstu eigendum félagsins seldu hlut sinn til Olíufélagsins hf. og Olíuverslunar Íslands hf. Þau fé- lög eru eftir þessi viðskipti stærstu eigendur Samskipa. Stefnt er að umfangsmiklu samstarfi félaganna í dreifingu og flutningum sem og í samnýtingu upplýsingakerfa. Reiknað er með að sú hagræðing muni skila árangri á næstu þremur árum. Morgunblaðið/ÁsdísRekstrar- tap Sam- skipa 249 milljónir FÉLAGSDÓMUR hefur dæmt út- gerðarfélagið Bervík ehf. í Ólafsvík til að greiða félagssjóði Vélstjóra- félags Íslands (VFSÍ) 311 þúsund krónur í sekt fyrir að halda skipi sínu, Bervík SH, til veiða eftir að verkfall vélstjóra á fiskiskipum hófst hinn 15. mars á síðasta ári og fyrir að brjóta gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur með því að víkja vél- stjóra úr starfi eftir að verkfallið hófst. Formaður VFSÍ segir dóminn marka tímamót og hafa fordæmis- gildi gagnvart öðrum útgerðum sem stunduðu veiðar í verkfallinu. Hann áætlar að heildarsektargreiðslur vegna slíkra verkfallsbrota geti numið allt að 100 milljónum króna. Vélstjórafélag Íslands kærði út- gerð Bervíkur SH, Bervík efh., fyrir að stunda veiðar eftir að boðað verk- fall sjómanna á fiskiskipum sem hófst hinn 15. mars á síðasta ári. Út- gerðin taldi sig hins vegar ekki eiga aðild að málinu þar sem hún hafi gert samning við aðra útgerð, Beruvík ehf. um leigu á skipinu á meðan á verkfallinu stóð. Umræddar veið- ferðir hafi því verið farnar á vegum og á ábyrgð Beruvíkur ehf. VFSÍ hélt því hins vegar fram fyrir dómi að leigusamningurinn hefði verið gerður til málamynda og í því augna- miði að skjóta Bervík ehf. undan lög- lega boðaðri vinnustöðvun. Benti fé- lagið á stjórnunartengsl útgerðarfélaganna tveggja máli sínu til stuðnings. Í dómi félagsdóms segir að augljós og veruleg eigna- og stjórnunar- tengsl séu á milli útgerðanna tveggja á umræddum tíma, m.a. hafi sami maður, Kristján Sigurður Kristjáns- son, samtímis verið framkvæmda- stjóri Bervíkur ehf. og eini stjórn- armaður Beruvíkur ehf. Telur dómurinn því að leigusamingurinn beri keim af málamyndagjörningi sem virða beri að vettugi. Þá sé sannað að Bervík SH hafi verið hald- ið til veiða eftir að verkfall hófst og þannig brotið gegn ákvæðum kjara- samninga. Þá fellst Félagsdómur einnig á þá kröfu VFSÍ að útgerðin hafi brotið gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur með því að ráða vél- stjóra um borð í Bervík SH í stað vél- stjóra sem neitaði að sinna störfum sínum um borð eftir að verkfallið hófst. Fellst dómurin á að ráðning annars manns í starf vélstjórans hafi verið ígildi brottvikningar. Enn- fremur er útgerðin fundin sek um að hafa nýtt sér starfskrafta þriggja vélstjóra til að geta haldið Bervík SH að veiðum tvo daga í mars, sjö daga í apríl og þrjá daga í maí og þannig stuðlað að því að komast hjá löglegu verkfalli vélstjóra á fiski- skipum. Segir í dómnum að brot út- gerðarinnar sé ótvírætt og því verði ekki hjá því komist að hún greiði há- markssekt sem renni í félagssjóð VFSÍ, alls 311 þúsund krónur. Þá var Samtökum atvinnulífsins, fyrir hönd LÍÚ fyrir hönd Útvegsmanna- félags Snæfellinga vegna Bervíkur efh. gert að greiða VFSÍ 250 þúsund krónur í málskostnað. Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags Íslands, segir félagsdóminn marka viss tímamót í þeim skilningi að stofnun sérstaks hlutafélags um útgerð skipsins, til að gera því kleift að róa í verkfallinu, hafi reynst ólög- mæt. Dómurinn líti á slíkt sem mála- myndagjörning. Eins komist dómur- inn að þeirri niðurstöðu að þeim sem reru í verkfallinu beri að greiða fulla sekt, eða 311 þúsund krónur. Helgi segir að á milli 40 og 50 skip hafi róið í verkfallinu. Verkfalls- ákvæðin séu í kjarasamningum allra sjómannasamtakanna þriggja og því gæti sekt á hvert skip numið um einni milljón króna. Auk þess sé í flestum tilfellum um fleiri en eitt brot að ræða. Útgerðir hafi bæði óhlýðnast verkfallinu og haldið skip- um sínum til veiða á meðan á verk- fallinu stóð. Helgi áætlar að heild- arsektargreiðslur til sjómanna- samtakanna þrennra getið numið allt að 100 milljónum króna. Helgi segir að nú liggi fyrir að sektarákvæði kjarasamninga gilda í verkföllum og því líti hann á dóminn sem ákveðið tæki til að ala útgerð- armenn betur upp. „Helstu rök Sam- taka atvinnulífsins voru þau að þegar væri búið að boða til verkfalls væri enginn kjarasamningur í gildi. Fé- lagsdómur er á annarri skoðun og dómur markar því ákveðin tímamót að því leytinu,“ segir Helgi. Veiðar í sjómannaverkfalli brjóta gegn kjarasamningum Sektir gætu numið 100 milljónum króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.