Morgunblaðið - 10.04.2002, Síða 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HORFUR eru á vaxandi hagvexti í
flestum Asíuríkjum á næstu tveimur
árum að því er fram kemur í spám
tveggja lánastofnana. Það á þó ekki
við um Japan. Skýrslur Alþjóða-
bankans og Þróunarbanka Asíu eru
samhljóða í flestu um efnahagsútlitið
á næstu árum en í báðum er lögð
áhersla á, að staðan sé mjög við-
kvæm og ýmislegt geti orðið til að
halda aftur af endurreisninni, til
dæmis mikil olíuverðshækkun.
Alþjóðabankinn spáir því, að hag-
vöxtur í Austur-Asíu að Japan und-
anskildu verði 4,5% á þessu ári og
6% á því næsta en tekur þó fram, að
það sé komið undir „óhjákvæmileg-
um umbótum í efnahagsstjórnun-
inni“. Þróunarbanki Asíu gerir ráð
fyrir 4,8% hagvexti á þessu ári og
5,8% 2003.
Sýnt þykir, að efnahagslífið í
Austur-Asíu muni taka fyrr við sér
en talið var fyrir hálfu ári, en stjórn-
völd í ríkjunum eru samt vöruð við
að gerast of værukær. Framtíðar-
uppgangur sé til dæmis háður því, að
fjárfestingarumhverfið verði bætt,
bæði hvað varðar innlenda sem er-
lenda fjárfesta.
Auk olíuverðshækkunar eru
helstu hætturnar framundan þær, að
endurreisnin í bandarísku efnahags-
lífi verði skammvinn, að lítið eða
ekkert rofi til í japönskum efnahags-
málum og í þriðja lagi aukin sam-
keppni við kínverska framleiðslu.
Fáar góðar
fréttir frá Japan
Mesta áhyggjuefnið í þessum
heimshluta er Japan en búist er við í
skýrslu Alþjóðabankans, að þar
muni þjóðarframleiðslan minnka um
1,2% á þessu ári. Bendir margt til, að
erfiðleikarnir í japönsku fjármálalífi
séu meiri en áður var talið, og því fer
fjarri, að Junichiro Koizumi for-
sætisráðherra hafi uppfyllt þær um-
bótavonir, sem við hann voru bundn-
ar. Raunar er Þróunarbanki Asíu
aðeins bjartsýnni en Alþjóðabankinn
og spáir því, að efnahagslífið muni
hvorki vaxa né dragast saman á
þessu ári en vaxa um 1% á næsta ári.
Horfur á vaxandi
hagvexti í Asíu
Undantekningin
er Japan þar sem
uppdráttarsýkin
heldur áfram
Singapúr. AFP.
DAVID Duncan, fyrrverandi
starfsmaður bandaríska endur-
skoðunarfyrirtækisins Andersen,
hefur samið við saksóknara um að
játa sig sekan og bera vitni fyrir
hönd ákæruvaldsins í rannsókn
þess á gjaldþroti orkufyrirtækisins
Enron og aðild Andersens að mál-
inu. Samkomulagið við Duncan
eykur til muna möguleika saksókn-
ara á að leggja fram ákærur um
fjársvik og samsæri á hendur En-
ron og æðstu yfirmönnum þess.
Duncan er orðinn lykilmaðurinn
í rannsókn alríkisyfirvalda á
skjalaeyðingu hjá Andersen, sem
sá um endurskoðun og ráðgjöf fyr-
ir Enron. Starfsmenn Andersen
eru taldir hafa eytt fjölda skjala
sem hefðu getað varpað ljósi á við-
skiptahætti Enron, sem lýst var
gjaldþrota í desember sl., með
þeim afleiðingum að þúsundir
starfsmanna misstu vinnuna og
urðu af milljónum dollara í lífeyri,
sem var bundinn í hlutabréfum í
fyrirtækinu, sem urðu verðlaus við
gjaldþrot þess.
Saksóknarar vænta
þess að geta nýtt
upplýsingar, er
Duncan getur veitt,
til að átta sig á þeim
flóknu viðskiptahátt-
um sem yfirmenn
Enron viðhöfðu til
þess að fela gífurleg-
ar skuldir fyrirtæk-
isins og tap, með því
að stofna fjölda sam-
eignarfyrirtækja er
gerðu þeim kleift að
halda hundraða millj-
óna dollara tapi utan
við bókhald Enron og
þannig fela það fyrir
fjárfestum. Meðal þess, sem sak-
sóknarar vilja komast að, er hvaða
starfsmenn Enron gegndu lykil-
hlutverkum í skipulagningu og
stofnun þessara sameignarfyrir-
tækja.
Duncan var rekinn frá Andersen
í janúar og telja margir lögfræð-
ingar að það hafi verið tilraun til
að skella allri skuldinni á hann.
Sagði Andersen, að
Duncan hefði skipulagt
eyðingu þúsunda skjala
varðandi Enron eftir
að ljóst var að Verð-
bréfa- og viðskiptaeft-
irlitið hafði hafið rann-
sókn á gjaldþrotinu.
Duncan varði gjörðir
sínar með því að segja
að hann hefði verið að
fylgja fyrirmælum
Nancy Temple, lög-
fræðings hjá Andersen.
Endurskoðunarfyrir-
tækið hefur haldið því
fram, að Duncan og
aðrir starfsmenn, sem
eyddu umræddum skjölum, hafi
þar fylgt gallaðri og úreltri stefnu
fyrirtækisins um varðveislu skjala
og hefðu starfsmennirnir ekki vit-
að að skjöl bæri að varðveita þegar
búist væri við málshöfðun. Þá neita
yfirmenn Andersens því, að lög-
fræðingar fyrirtækisins hafi lagt
blessun sína yfir skjalaeyðinguna.
Þegar Temple bar vitni í síðasta
mánuði vegna hópmálshöfðunar
gegn yfirmönnum Enron og And-
ersen var hún spurð hvaða fyr-
irmæli hún hefði gefið Duncan, en í
vitnisburði sínum bar hún 138
sinnum fyrir sig stjórnarskrár-
bundnum rétti sínum til að neita að
svara.
Andersen á nú í viðræðum við
bandaríska dómsmálaráðuneytið
vegna ákæru er lögð var fram á
hendur fyrirtækinu í síðasta mán-
uði fyrir að hindra framgang rétt-
vísinnar. Er lögmaður fyrirtækis-
ins að reyna að ná dómssátt í
málinu, en að sögn heimildar-
manna bendir enn ekkert til að slík
sátt náist.
Enron-málið hefur haft mikil
neikvæð áhrif á starfsemi Ander-
sons, og hefur mikill fjöldi við-
skiptavina fyrirtækisns snúið baki
við því. Á mánudaginn var tilkynnt
að 7.000 starfsmönnum yrði sagt
upp, eða 27% af öllum mannafla
fyrirtækisins, sem er fimmta
stærsta endurskoðunarfyrirtæki í
Bandaríkjunum.
Lykilvitni í Enron-málinu
semur við saksóknara
Endurskoðunarfyrirtækið Andersen segir upp sjö þúsund starfsmönnum
Washington. The Washington Post, Los Angeles Times.
David Duncan
ÞESSI mynd ljósmyndarans Ruth
Fremson af afganskri flóttakonu
ásamt nýfæddri dóttur sinni er
hluti myndraðar ljósmyndara
bandaríska dagblaðsins The New
York Times er hlaut Pulitzer-
verðlaunin í ár, eftirsóttustu blaða-
mennsku- og menningarverðlaun
sem veitt eru í Bandaríkjunum. The
New York Times hlaut sjö verðlaun
alls, m.a. bæði fyrir myndröð og
fréttaljósmynd ársins, sem er það
mesta sem einu blaði hefur hlotnast
í sögu verðlaunanna.
Verðlaun fyrir blaðamennsku
eru veitt í fjórtán flokkum, og voru
átta þeirra nú fyrir umfjöllun um
hryðjuverkin 11. september og eft-
irmál þeirra. Enginn atburður hef-
ur hlotið viðlíka umfjöllun í 85 ára
sögu verðlaunanna, sagði Saymour
Topping, framkvæmdastjóri verð-
launanefndarinnar.
The New York Times hlaut enn-
fremur sérstök verðlaun fyrir al-
menningsþjónustu fyrir daglegt
aukablað sitt um eftirmál hryðju-
verkanna, og dálkahöfundur blaðs-
ins, Thomas L. Friedman, fékk
verðlaun fyrir umfjöllun sína um
áhrif hryðjuverkaógnarinnar í
heiminum. Fleiri blöð unnu til verð-
launa, þ.á m. Los Angeles Times,
Washington Post og The Wall
Street Journal, en það síðastnefnda
hafði ritstjórnarskrifstofur sínar í
næsta húsi við The World Trade
Center-turnana í New York. Starfs-
menn blaðsins hafa enn ekki getað
snúið aftur á þær skrifstofur.
Meðal þeirra er hlutu menning-
arverðlaun í ár var rithöfundurinn
Richard Russo fyrir skáldsögu sína
Empire Falls, leikritahöfundurinn
Suzan-Lori Parks fyrir leikritið
Topdog/Underdog og sagnfræð-
ingurinn Louis Menand fyrir bók
sína The Metaphysical Club.
Pulitzer-verð-
launin veitt
KISTA Elísabetar drottning-
armóður borin út úr Westminster-
kirkjunni í Lundúnum í gær eftir að
útför hennar hafði farið þar fram.
Fjöldi kóngafólks og stjórnmála-
manna hvaðanæva úr heiminum
var viðstaddur útförina. Drottning-
armóðirin lést 30. mars sl., 101 árs.
Hún verður greftruð í St.George-
kapellu í Windsor-kastala við hlið
eiginmanns síns, Georgs konungs
sjötta.
Útför drottningarmóður
Reuters
SEÁN Brady erkibiskup, æðsti
embættismaður kaþólsku kirkjunn-
ar á Írlandi, hét því á mánudag að
biskupar kirkjunnar myndu láta sér-
stakri rannsóknarnefnd, sem írska
stjórnin samþykkti fyrir helgi að
setja á laggirnar, í té „öll gögn sem
þeir teldu nauðsynleg“ við könnun á
ásökunum þess efnis að nokkrir kaþ-
ólskir prestar hefðu misnotað unga
drengi kynferðislega. Hann gekk þó
ekki svo langt að lofa að nefndin
fengi aðgang að öllum gögnum kirkj-
unnar og hlaut hann fyrir það gagn-
rýni í írskum fjölmiðlum í gær.
Æðstu embættismenn kaþólsku
kirkjunnar á Írlandi hittust á mánu-
dag og ræddu ásakanir á hendur
nokkrum kirkjunnar þjónum sem
komist hafa í hámæli undanfarna
daga. Hefur reiði almennings ekki
síst stafað af því að grunur leikur á
að kirkjan hafi kosið að aðhafast
ekkert jafnvel þó að yfirmönnum
hennar hafi í mörgum tilfellum verið
fullkunnugt um kvartanir á hendur
tilteknum prestum þess efnis að þeir
hafi áreitt börn kynferðislega.
Dagblaðið The Irish Times sá
ástæðu til þess í gær að kalla ástand-
ið „verstu kreppu sem kaþólska
kirkjan hefði lent í undanfarna ára-
tugi“ og vísaði þar til þess að sam-
bærileg mál hefðu einnig verið mjög
á döfinni í Bandaríkjunum.
Kaþólska kirkj-
an á Írlandi
gagnrýnd