Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 41

Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 41 ✝ Guðmundur Pét-ursson fæddist á Dvergasteini á Hell- issandi 17. ágúst 1917. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. apríl síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Ingveldar Sigurðardóttur, f. í Öndverðarnesi 4.12. 1891, d. 31.8. 1987 í Keflavík, og Péturs Magnússonar, f. á Hellissandi 3.5. 1892, d. 23.02. 1937 í Reykjavík. Þau áttu átta börn; Sig- urð Annel, f. 23.10. 1912, d. 23.10. 1987. Maki Vigdís Jónsdóttir, f. 13.10. 1917, d. 28.12. 2001; Huldu Dagmar, f. 8.7. 1914, d. 13.7. 1985, maki Guðbrandur Magnússon, f. 17.6. 1908, d. 5.9. 1972; Unni, f. 18.8. 1915, d. 28.6. 1980. Maki Páll Sig- urðsson, f. 9.9. 1911, d. 3.1. 1992; þá Guðmund; Guðfinnu, f. 24.5. 1920, maki Ólafur Guðmundsson, f. 4.11. 1923, þau eru búsett á Englandi; Vigfús, f. 26.10. 1921, maki Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 5.11. 1935, þau eru búsett á Hellissandi; Cýrus, f. 10.9. 1924, d. 7.12. 1924; Herbert Pétur, f. 21.8. 1927, d. 9.12. 1935. Guðmundur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Gunnhildi Sesselju Jakobsson, f. 26.6. 1952. Þau eru búsett í Garði. Auk þeirra á Guð- mundur Ingibjörgu Steinu, f. 17.5. 1936, búsett í Reykjavík; Sigrúnu Guðnýju, f. 19.10. 1942, búsett í Þorlákshöfn; og Ragnar, f. 14.1. 1944, búsettur í Vestmannaeyjum. Afkomendur Guðmundar eru um 100. Fyrstu árin ólst Guðmundur upp í foreldrahúsum á Hellissandi og gekk þar í barnaskóla. Fyrir ferm- ingu fór hann að Görðum í Stað- arsveit og var þar öll sumur þar til hann varð 16 ára, þá fór hann til Borgarfjarðar og vann þar sem kaupamaður á nokkrum bæjum. Gunnhildur og Guðmundur hófu búskap á Kirkjubrú á Álftanesi. Ár- in 1943–1950 bjuggu þau á Arnar- bæli í Grímsnesi. Þau fluttu til Njarðvíkur 1951 og byggðu sér hús á Hólagötu 33 í Njarðvík. Lengst bjuggu þau í Ásgarði í Miðnes- hreppi eða þar til þau fluttu til Sandgerðis árið 1997. Síðan 1998 bjuggu þau í íbúð fyrir aldraða í Miðhúsum í Sandgerði. Guðmundur og Gunnhildur voru með búskap í Arnarbæli en eftir að þau fluttu til Suðurnesja vann hann m.a. hjá Esso við að aka olíubíl og í nokkur ár vann hann við smíðar hjá Húsi og innréttingum. Árið 1974 hóf hann störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli við pípulagnir. Hann tók sveinspróf í pípulögnum og vann við þær þar til hann hætti störfum árið 1993. Útför Guðmundar fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag og hefst athöfnin kl. 14. Jónsdóttur, f. 2.2. 1918, hinn 22. júlí 1940. Þau eiga saman níu börn. Þau eru 1) Sæunn Hulda Björg, f. 24.3. 1940, maki Sig- urður Hilmar Guð- jónsson, f. 2.8. 1939. Þau eru búsett í Sand- gerði; 2) Kolbrún Inga, f. 2.2. 1942, maki Anton Eyþór Hjör- leifsson, f. 1.7. 1942. Þau eru búsett í Garði; 3) Svanhvít, f. 14.9. 1946. Maki Einar Sör- ing. Hann lést 24.11. 2001. Búsett í Njarðvík. 4) Herbert Pétur, f. 26.10. 1947. Sambýliskona Ingibjörg Ransý Ingólfsdóttir, f. 25.7. 1966. Þau búa í Ásgarði; 5) Jóna, f. 24.3. 1949. Maki Ronnie Lee Turnbull, f. 26.1. 1961. Þau eru bú- sett í Bandaríkjunum; 6) Guðmund- ur Bjarni, f. 27.6. 1950. Hann var ættleiddur af Guðfinnu, systur Guð- mundar, og Ólafi, manni hennar. Sambýliskona Catherine Anne Stormont. Þau eru búsett á Eng- landi; 7) Óskar, f. 6.10. 1951. Maki Guðfinna Reimarsdóttir, f. 7.11. 1951; 8) Ingigerður, f. 16.2. 1954. Maki Friðrik Már Valgeirsson, f. 14.11. 1953. Þau eru búsett í Kefla- vík; 9) Dagbjört Anna, f. 27.9. 1956. Sambýlismaður Guðmundur M. Þín söknum við en síst má kvíða því svona tímar alltaf líða. Að kveðja vini kæra hér Kristur Jesús hjálpi mér. En ég má eigi um það kvarta angrið þó að særi hjarta. Því ég veit minn ástvin er ó, minn Guð í faðmi þér. Sofðu væran síðsta blundinn við signum þig, því nú er stundin. Og biðjum Drottinn beðinn þinn blómum skreyta, pabbi minn. (Sigríður Cýrusdóttir.) Við kveðjum ástkæran föður. Hvíl í friði. Börnin. Mágur minn Guðmundur Péturs- son lést 2. apríl sl. í Keflavík, eftir skamma sjúkrahúslegu. Hann fædd- ist á Hellissandi, sonur hjónanna Ingveldar Sigurðardóttur og Péturs Magnússonar á Staðarhóli. Það var þá algengt í sjávarþorpum landsins að hlutskipti unglinga væri að hefja störf svo fljótt sem kraftar leyfðu og var Guðmundur einn í þeirra hópi, fyrst sem léttadrengur í sveitum Snæfellsness og Borgarfjarðar, síðar fullgildur kaupamaður. Þá tók hann þátt í síldarævintýrum Norðurlands og var á bátum frænda síns Karvels Ögmundssonar í Ytri-Njarðvík. Það var almælt að Pétur faðir hans hefði verið einstaklega handlaginn maður, hvort heldur var við allar vélar og smíðar eða rafmagns- og útvarps- tækni frumbýlingsára þeirra, og erfðu synir hans mikið af þessum eig- inleikum föður síns, ekki síst Guð- mundur. Má sjá merki þess í vel gerðum gripum eftir hann. Ungur að árum kvongaðist Guð- mundur borgfirskri stúlku, Gunnhildi S. Jónsdóttur, og bjuggu þau um tíma í Reykjavík, en um 1945 gerðust þau bændafólk í Arnarbæli í Gríms- nesi, nutu þar sveitasælu í fögru um- hverfi í um áratug. Um miðja öldina var það ævintýri fyrir okkur borgar- búa að geta skotist til þeirra í sveitina til þess að eyða með þeim frídögum við veiðiskap, berjatínslu eða á hest- baki, að því ógleymdu að fara á fjall og taka þátt í fjallskilum Grímsnes- bænda. Í sveitinni vegnaði fjölskyld- unni vel og börnunum fjölgaði ár frá ári. Til þess að auðvelda menntun og framtíð nýrrar kynslóðar virtist hag- stæðara að flytjast um set, og urðu Suðurnes fyrir valinu sem framtíðar- staður fjölskyldunnar, Ytri-Njarðvík og Ásgarður hjá Garði. Jafnframt gerðist Guðmundur pípu- lagningamaður og starfaði við þá iðn sína á Keflavíkurflugvelli þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Barnahópurinn þeirra stóri var þá floginn úr hreiðrinu og hafði myndað eigin fjölskyldur, aðallega á Suður- nesjum, en afkomendur Guðmundar munu vera orðnir yfir 100 að tölu. Að starfsævinni lokinni fluttu þau Gunn- hildur og Guðmundur í húsnæði aldr- aðra í Sandgerði, þar hafa þau búið og unað hag sínum vel síðustu árin. Guðmundur var þeim góða eigin- leika gæddur að geðprýði hans lýsti gleði og ánægju og möguleikum til að færa flest til betri vegar, og þetta góða skapferli breyttist sjaldan þótt gera verði ráð fyrir því að ekki hafi alltaf verið leikur einn að sjá fyrir af- komumöguleika fyrir stóra fjölskyldu þeirra hjónanna. Það var ætíð gott að vera í návist Guðmundar. Ungur hafði hann öðlast kunnáttu til þess að leika létta tónlist á orgel harmoníum og var skemmtun að því að sjá hve vel hann naut þess, jafnvel eftir þreyt- andi vinnudag, að setjast að hljóðfæri og leika gömlu lögin af innlifun. Við Guðfinna systir hans munum GUÐMUNDUR PÉTURSSON sakna þess að hann fagni ekki lengur heimkomu okkar með hlýju handtaki og „takk fyrir síðast“, en minningin um góðan vin mun ætíð lifa með okk- ur. Jafnframt þökkum við fyrir sam- veruna og fögnum því að hafa átt með honum svo margar góðar stundir. Gunnhildi og allri fjölskyldu þeirra Guðmundar sendum við hjónin og Guðmundur sonur okkar innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Guðmundsson, Epsom, Bretlandi. Elskulegur afi er horfinn heimi frá, hjartkær minning skín, sem geisli fagur. Dýrmæt var hver stund, er við áttum afa hjá, okkar ljúfa samleið, líkt og bjartur sólskinsdagur. Hans glaða og hlýja hjarta, það átti auðinn þann, sem ungum sálum gaf hið besta í heimi. Við elskuðum og virtum þennan yndislega mann, og afann okkar kæra nú ljóssins englar geymi. Við hörmum það, hve fjarlægðir okkur skildu að, en árin „heima“ blessum öll af hjarta. Drottinn styrki ömmu, nú lífs er brotið blað, um besta afa í heimi við geymum minning bjarta. (Ingibjörg Sig.) Elsku amma, við vottum þér og öðrum aðstandendum dýpstu samúð okkar. Davíð, Róbert og Stella Rós. &                 8.+: 9  %BC =      +  %  )    9 )    *   *+44 -  "8 $ /  > %% &+8 $ /  %7  %% $   *  + &                .:1..( 0,,. *  =  "-D# # &A =7 ,)  )- -  9 !    +   :    9 ! )   *   *''4 % &# 5 $ 1=% &#$  5 % &#$  *) %  %%  % &#$   5  %% ##* $  ##* + 6 2              (.,01-9 "= #B    % )    (%    )    *   *+ 5  %    "    "   % )    0 ;   !   )  % 0  ,!  0  0        & %# 0  $ % & -  %%    %% 6 >. $    $ &     %%   &#$ $       %% % &#$ $ -   %% 7&#$ $ $ )=7  #  %%+ 6 2 0$                 , ,.1.-,9   *ECF 7=) &=  %  '  %  )     602) )     **   *''4  $   %% 7, % $  & & %%   , % %% 8 $  3 >, % $    %% 1*%, % $  > => %% *  * $ *  *  * + &            0,-189 3 *E =    ")      %  )     7  )    *'   */44    %% * % * $ *  * + Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.