Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 50

Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. UNDANFARNA mánuði hafa verka- lýðshreyfingin og samtök atvinnulífs- ins barist ötullega við að koma vitinu fyrir stjórnvöld þessa lands í barátt- unni við verðbólguna. Það er eitt út af fyrir sig umdeilanlegt að það eigi að þurfa fólk utan úr bæ til að segja ráð- herrum landsins hvernig þeir eigi að stjórna, þegar þessir sömu ráðherrar eru á launum okkar skattborgara við að „stjórna“ þessu landi. Segir kannski meira en mörg orð um frammistöðu ríkisstjórnarinnar. Látum það liggja milli hluta. Stundum er sagt að sama hvaðan gott komi og á það vel við hér. Einn þáttur í þessari fyrrnefndu baráttu við verðbólgudrauginn hefur þó gleymst alveg í umræðunni, það er hin gífurlega háa álagning ríkisins á bensínið. Ef ég man rétt leggur ríkið 70% á hvern seldan lítra af bensíni. Ef lítrinn kostar 100 krónur, er ríkið að hirða 70 krónur! Er þetta ekki tals- verð álagning? Hvað finnst fólki um svona hluti? Er þetta kannski bara allt í lagi? Það er í lögum að fjármun- um sem ríkið innheimtir með bens- ínverði skuli verja til vegagerðar, mér er stórlega til efs að það sé gert. Ef sú verður raunin að margnefnd rauð strik haldi ekki 1. maí nk. verður sökin að stærstum hluta hjá ríkinu. Ofsaleg skattpíning á mat, bensíni, eignum og öllum mögulegum hlutum er að sliga venjulegt launafólk og fyr- irtæki. Þegar forsætisráðherrann kemur í „viðtöl“ og nöldrar yfir álagn- ingu olíufélaganna, væri ráð að minna hann á hvernig bensínverðið er sam- ansett. Ríkið gengur á undan með bensínokrinu og það er kominn tími til að við bíleigendur setjum með ein- hverjum hætti pressu á stjórnvöld og þvingum þá háu herra til að lækka þessa álagningu og lækka þannig verðbólguna um leið. Sá alþingismað- ur sem tæki þetta mál upp á Alþingi og krefði ráðherrana svara um jafnsjálf- sagðan hlut og að lækka álagningu rík- isins á bensín, hann væri að gera þarft verk. En málið er að koma umræðu um þetta af stað og láta ráðherrana ekki sleppa við að svara þessu. Skora ég á bíleigendur og hagsmunasamtök þeirra að grípa til beinna og róttækra aðgerða til að knýja á um þetta. Hags- munir okkar allra eru í húfi. DANÍEL SIGURBJÖRNSSON, Kársnesbraut 135, Kópavogi. Bensínokur stjórnvalda Frá Daníel Sigurbjörnssyni: ÉG reikna ekki með að ég sé ein- asta manneskjan sem sofnar á kvöldin, vaknar á morgnana, þessa löngu morgna, með sömu hugs- unina: Hvað hafa þeir drepið mörg í nótt, í dag, í kvöld … Skrítið að hugsa alltaf um dráps- menn sem karlkyn, einsog Golda Meir hafi ekki verið til, einsog Thatcher hafi ekki verið til, einsog sú sæta Jessebel hafi ekki verið til … En í dag er það ekki málið, held- ur hve lengi ætlum við að láta við- gangast linnulaust ofbeldi ríkis- stjórnar Ísraels gegn Palestínu- mönnum? Hve lengi? Það er vegna þessa sem hugsanir mínar flögra um miðnætur og morgunskeið: Hve mörg er verið að drepa núna, núna … Fyrir augum mér renna mynd- skeið frá útrýmingarbúðum nasista, helförin öll blasir við og endurtekn- ingin núna, öfugsnúin, viðsnúin, í raun á okkar ábyrgð, okkar í merk- ingunni hinna heiðvirðu og hjarta- hreinu íbúa Vestur-Evrópu og Bandaríkjanna. Hve lengi ætlum við að láta viðgangast að þau sem beitt voru slíku ofbeldi skuli í skjóli okkar afskiptaleysis beita Palest- ínumenn sams konar ofbeldi? Eini samanburður sem hægt er að finna í seinni tíma sögu við að- gerðir ríkisstjórnar Ísraels nú gagnvart Palestínu er Þriðja ríkið – útrýmingarherferðin gegn, ekki bara Gyðingum, heldur einnig öllu hugsandi fólki, öllum sem hægt var að skilgreina sem öðruvísi, hvort heldur voru hommar eða kommar þess vegna. En því miður, þetta er það sem viðgengst í dag í Ísrael. Ísraelsríki var stofnað sem aðskiln- aðarríki, ríki Gyðinga, þar sem Gyðingar hafa forréttindi og for- gang, með frumburðarréttinn. Aðr- ir hafa ekki sama rétt og geta ekki öðlast, aldrei, ekki rétt bornir. Palestínumenn, upphaflegir íbú- ar landsins, hafa verið látnir ganga um með sérmerki, sambærilegt gyðingastjörnunni hjá nasistum, ekki fengið vinnu, samanber hjá nasistum, verslanir eyðilagðar, samanber hjá nasistum, hús jöfnuð við jörðu, samanber hjá nasistum, börnum neitað um skólagöngu, samanber hjá nasistum, hverfi og borgir lokuð af, skrúfað fyrir vatn, rafmagn, alla aðflutninga, saman- ber hjá nasistum ... Gettóið í Varsjá … Útlagar eigin heimkynna, og því miður í nafni vestrænnar réttlæt- iskenndar, eða öllu heldur aum- ingjaskapar, sem ekki þorði að horfast í augu við sjálfan sig eftir seinni heimsstyrjöldina, flutti glæp- inn úr landi og bjó til ný fórnar- lömb, og leyfir þess vegna endur- tekningu andstyggðarinnar – og græðir óspart. Og hvað nú? Hversu lengi skal bíða? Eigum við einungis að hrista höf- uðið yfir illskunni, eigum við að bíða fleiri „slysaskota í Palestínu“ þar sem barnamorð er ekki lengur samvisku virði, eða eigum við að rísa upp og beita okkur? Upprisan og uppreisnin hugnast mér betur. Á föstudaginn langa 2002. BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Óðinsgötu 11, Reykjavík. Ó … Palestína Frá Birnu Þórðardóttur:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.