Morgunblaðið - 10.04.2002, Page 57

Morgunblaðið - 10.04.2002, Page 57
Bandaríkjunum, ekki síst Disney- fyrirtækinu. Þar á bæ voru teikni- myndir álitnar vera fyrir börn ein- göngu, og ekki talið fýsilegt að reyna að höfða til fullorðinna. Þessu vildu Grimault og samstarfsfólk hans breyta, og tóku því þá stefnu að ein- beita sér að dekkri hliðum mannlífs- ins og áleitnari umfjöllunarefnum en áður höfðu þekkst í teiknimynda- gerð. Þannig má segja að Grimault og félagar hafi verið á undan sinni samtíð, þar sem teiknimyndir, sem höfða jafnt til barna og fullorðinna, eru alþekkt fyrirbrigði í dag, nægir að nefna kvikmyndir á borð við Shrek sem hafa náð geysilegum vin- sældum hjá öllum aldurshópum. Konungurinn og fuglinn er einnig af- ar vel unnin tæknilega og listrænt séð og minnir að vissu leyti á Manga- teiknimyndirnar japönsku. Konungurinn og fuglinn verður sýnd í Háskólabíói miðvikudaginn 10. apríl kl. 20, fimmtudaginn 11. apríl. kl. 22.30, laugardaginn 13. apr- íl. kl. 15 og 17, sunnudaginn 14. apríl kl. 15 og 17 og mánudaginn 15. apríl kl. 22.30. Atriði úr Konunginum og fuglinum. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 57 Því er svo farið með flesta glæpasagnahöfunda að sú stund rennur upp að lesandinn fær nóg af höfundinum eða höfundinn þrýtur hugkvæmni. Dæmi eru um höfunda sem sent hafa frá sér fyrirtaks spennubækur ár eftir ár, nefni til að mynda Eric Ambler sáluga, en Anne Perry er ekki einn af þeim eins og hefur komið æ betur í ljós eftir því sem sögunum fjölgar. Í hverri bók er glímt við morð sem eru mis-ævintýraleg en ástæð- urnar fyrir morðunum verða aftur á móti æ sérkennilegri og ótrú- verðugri, tengjast alltof oft ömur- legri stöðu kvenna á nítjándu öld, kynferðislegum afbrigðilegheitum, sem eru Perry hugleikin, og svo má telja. Anne Perry skrifar í miklum langlokustíl, allar bækur hennar eru troðnar af smáatriðum og at- vikum sem koma söguþræðinum ekki við en eru sjálfsagt til þess að skapa stemmningu og treysta sögulegan grunn bókanna. Smám saman verða öll þessi smáatriði einmitt það sem menn ekki þola í bókunum, sífellt sífur um sjálf- sagða hluti, allskyns skraut sem gerir textann að torfi. Í Funeral in Blue er það frásögn af uppreisn- inni í Vínarborg í október 1848 sem þvælist fyrir, síða eftir síðu af blaðri um hve uppreisnarmennirnir voru göfugir og uppfullt af sögu- legri ónákvæmni. Perry liggur mikið á hjarta, það fer ekki á milli mála, og hleður því inn í bækurnar bulli sem felur og flækir söguþráð- inn; efniviðurinn í Funeral in Blue hefði hugsanlega dugað í smásögu ef óþarfinn væri klipptur út. Það verður svo að segjast eins og er að allar djúpsálarlegu greining- arnar sem hinar ótrúlega göfugu, hugrökku söguhetjur lesa út úr hverju augnatilliti eða smáhreyf- ingu eru hreint út sagt hlægilegar. Árni Matthíasson M O N S O O N M A K E U P litir sem lífga Gjafabrjóstahöld Stuðningsbelti og nærfatnaður Þumalína Pósthússtræti og Skólavörðustíg alltaf á föstudögum Hin léttleikandi Britney Spears í sinni fyrstu bíómynd sem kemur öllum í gott skap. Hin frábæru lög „I’m Not A Girl, Not Yet A Woman“, „Over protected“ ofl. eru m.a. í myndinni. Sýnd kl.4. Ísl tal. Vit 338 „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 357. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i.12. Vit 353. Samuel L.Jackson og Ro- bert Carlyle eru frábærir í mynd þar sem hasar ogkol- svartur húmor í anda Snatch ræður ríkjum. Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit nr. 358. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i.16. Vit 366. Flottir bílar, stórar byssur og harður nagli í skotapilsi. HL. MBL Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit . 351 kvikmyndir.is  kvikmyndir.com  HJ Mbl ÓHT Rás 2 DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Vit 335. Sýnd kl. 6 og 9. B.i.12. Vit nr. 353 Hverfisgötu  551 9000 SG DV ½ RadíóX EIN AF BESTU MYNDUM ÁRSINS! Til eru þeir sem er ætlað að deyja, þeir sem er ætlað að hata og þeir sem kjósa að lifa. Margverðlaunuð gæðamynd þar sem Billy Bob Thornton og Halle Berry sýna stórleik. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i 16. HK. DV  SV. MBL 2 Óskarsverðlaun Halle Berry fékk Óskarinn sem besta leikkona í aðalhlutverki. 1/2Kvikmyndir.com 1/2HJ. MBL RadioX Yfir 25.000 áhorfendur Missið ekki af fyndnustu mynd ársins Sýnd kl. 6. Ísl. tal.  MBL Sýnd kl. 5.30 B.i 16. Sýnd kl. 8 og 10. Les 400 Coups - Æskubrek Sýnd kl. 6. Le Dernier Métro - Síðasta lestin Sýnd kl. 8. L´homme qui aimait les - Maðurinn sem elskaði konur Sýnd kl. 10.15 www.regnboginn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.