Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 12

Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚAR í Rimahverfi í Grafarvogi af- hentu í gær skipulagsyfirvöldum borgarinnar undirskriftalista þar sem ýmsum þáttum varðandi skipu- lag íbúðabyggðar á Landssímareitn- um svokallaða er mótmælt. Yfir 540 íbúar nálægra gatna við skipulags- reitinn rituðu nöfn sín á listann. „Sú þétta byggð sem áætlað er að byggja er ekki í nokkru samræmi við þá byggð sem fyrir er í hverfinu,“ sagði Emil Örn Kristjánsson, fulltrúi íbúanna, er hann afhenti mótmælin. „Þá er varla um að ræða nokkurt úti- vistarsvæði í Rimahverfi og sóun að taka svo mikið af því litla landsvæði sem enn er óbyggt undir íbúðabygg- ingar.“ Íbúarnir skrifuðu undir kröfu um að hluti af svæðinu yrði tekinn undir dvalar- eða leiksvæði og að lóða- stærðir og nýtingarhlutfall lóða verði í samræmi við aðliggjandi byggð beggja vegna Landssímalóð- arinnar. Frestur til að skila inn mót- mælum vegna tillögu að skipulagi lóðarinnar, sem nú er í kynningu, rennur út í dag. Stofnaður verði samráðshópur Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulagsnefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að farið yrði vel yfir allar athugasemdir sem berast og samráðshópi landeiganda, skipu- lagshöfunda og hverfafélagsins verði komið á laggirnar. „Þessi andstaða kemur mér ekki á óvart, á fundi með íbúunum um daginn kom hún í ljós,“ segir Árni. „En það má segja að þeg- ar sé búið að koma verulega til móts við sjónarmið þeirra og búið er að draga úr byggingarmagni.“ Árni segir marga eiga hagsmuna að gæta í þessu máli og taka verði til- lit til þeirra allra þegar endanleg nið- urstaða verður tekin. „Það er stefna borgarinnar að þétta byggðina eftir því sem hægt er. Íbúarnir koma með þau rök að þeir vilji búa dreift, en það er ekki óeðlilegt að auka fjöl- breytnina í hverfinu með því að hafa þétta byggð á þessu svæði.“ Björn Bjarnason, sem skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í vor, sagðist í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi í sjálfu sér ekkert hafa við það að athuga, að heimiluð hafi verið íbúabyggð á lóð- inni. Ólafur F. Magnússon, oddviti lista frjálslyndra og óháðra í Reykja- vík, sagði þéttingu byggðar í Reykjavík nauðsynlega, en leggur áherslu á að skipulagið sé unnið í góðri sátt við íbúa. Kynni að raska jafnvægi innan hverfisins Björn Bjarnason vekur athygli á því að íbúar í nágrenni fyrirhugaðs byggingarreits telji byggðina of þétta miðað við almennar forsendur í Grafarvogi og skipulagsmarkmið í hverfinu. „Byggðin, eins og hún er nú kynnt, myndi raska jafnvægi inn- an hverfisins. Þetta finnst mér vera málefnaleg sjónarmið sem ber að virða ef menn vilja leita sátta í mál- inu. Ég tel enn tíma til þess,“ segir Björn. Hann segir þá deilu sem risin er upp milli íbúanna og borgaryfir- valda ekki einsdæmi miðað við fram- göngu R-listans í skipulagsmálum. „Það er ekki tekið nægilegt tillit til íbúa. Nægir þar að nefna nýlegt dæmi úr Suðurhlíðum og einnig úr Laugarneshverfinu. Þetta stangast alfarið á við þær hugmyndir sem ég hef um lausn mála af þessu tagi, þ.e. að það verði að ganga fram með því hugarfari að leysa mál á sameigin- legum forsendum sé þess nokkur kostur,“ segir Björn. Skipulag sé unnið í sátt Um andstöðu íbúa í Rimahverfi sagði Ólafur F. Magnússon, sem skipar 1. sæti á lista Frjálslyndra og óháðra, á föstudag. „Reynslan sýnir að R-listinn hirðir lítt um slík mótmæli, eins og íbúar í Foldahverfi fengu að reyna nýlega þegar heilsugæslustöð í Hverafold var lokað,“ segir Ólafur. „Þá var gengið þvert á mótmæli yfir eitt þús- und Grafarvogsbúa og yfirlýsta stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur um að fleiri en ein heilsugæslustöð skyldi þjóna Grafarvogsbúum. Að- eins máttur atkvæða Grafarvogsbúa í næstu borgarstjórnarkosningum getur fengið R-listann til að hlusta á þá. Þétting byggðar í Reykjavík er nauðsyn. Um það eru öll framboðin í Reykjavík sammála, en mikilvægt er að skipulag sé unnið í góðri sátt við íbúana. Íbúum Rimahverfis finnst að verið sé að koma í bakið á þeim,“ seg- ir Ólafur. Yfir 540 íbúar í Rimahverfi lýsa andstöðu við skipulag Morgunblaðið/Golli Emil Örn Kristjánsson, fulltrúi íbúa í Rimahverfi, afhendir Helgu Bragadóttur, skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, undirskriftir rúmlega 540 íbúa vegna skipulags Landssímareitsins. Listi sjálf- stæðis- manna á Sel- tjarnarnesi FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag- anna á Seltjarnarnesi hefur sam- þykkt framboðslista til bæjarstjórn- arkosninga í vor. Listinn er í samræmi við niðurstöður prófkjörs sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi í nóvember sl. Alls tóku 1.622 Seltirningar þátt í í prófkjórinu og samþykkti fulltrúa- ráðið tillögu kjörnefndar um að 12 efstu menn í prófkjörinu héldu sæt- um sínum. Í heiðursæti listans koma inn Erna Nielsen, fyrrv. for- seti bæjarstjórnar og Sigurgeir Sig- urðsson, bæjarstjóri. Listan skipa: 1. Jónmundur Guð- marsson stjórnmálafræðingur, 2. Ásgerður Halldórsdóttir viðskipta- fræðingur, 3. Inga Hersteinsdóttir byggingaverkfræðingur, 4. Bjarni Torfi Álfþórsson ráðgjafi, 5. Ingi- mar Sigurðsson deildarstjóri, 6. Sigrún Edda Jónsdóttir fjármála- stjóri, 7. Sólveig Pálsdóttir bók- menntafræðingur og leikari, 8. Lár- us Lárusson flugmaður, 9. Gunnar Lúðvíksson verslunarmaður, 10. Magnús Örn Guðmundsson banka- maður, 11. Guðmundur Helgi Þor- steinsson framkvæmdastjóri, 12. Jón Jónsson ellilífeyrisþegi, 13. Erna Nielsen fyrrv. forseti bæjar- stjórnar og 14. Sigurgeir Sigurðs- son bæjarstjóri. Rætt um ný- skipan vísinda ÁRSFUNDUR RANNÍS (Rann- sóknarráðs Íslands) verður haldinn á morgun, fimmtudag, og í tengsl- um við fundinn verður haldið sér- stakt málþing um rannsóknir á Ís- landi undir yfirskriftinni Nýskipan vísinda- og tæknimála. Reynsla og væntingar. Fjöldi fyrirlesara tek- urþátt í málþinginu og pallborðs- umræður fara fram. Á ársfundin- um mun Davíð Oddsson forsætis- ráðherra afhenda Hvatningarverð- laun Rannsóknarráðs, 2002, fyrir hönd ráðsins. Meðal ræðumanna á ársþinginu verður Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra. Þá mun dr. Erik Arnold framkvæmdastjóri Techno- polis flytja erindi á málþinginu og á ársfundinum, þar sem hann fjallar um skipulag vísinda og tækni í smáum ríkjum. Erindi um rannsóknir á Ís- landi frá ýmsum sjónarhólum Aðrir ræðumenn á ársfundinum verða Hafliði P. Gíslason prófessor og formaður Rannsóknarráðs og Vilhjálmur Lúðvíksson fram- kvæmdastjóri RANNÍS. Á málþinginu munu eftirtaldir flytja erindi fyrir hádegi um við- horf vísindasamfélagsins til rann- sókna á Íslandi: Guðmundur G. Haraldsson mun fjalla um efnið frá sjónarhóli grunnvísinda, Þorgerð- ur Einarsdóttir frá sjónarhóli fræða, Kristinn Andersen frá sjón- arhóli fyrirtækja, Guðrún Mar- teinsdóttir frá sjónarhóli atvinnu- vega og Einar Mäntylä frá sjónar- hóli ungra vísindamanna. Eftir hádegi, að loknum ársfund- inum, heldur málþingið áfram og þar mun Ólafur Davíðsson ráðu- neytisstjóri fjalla um væntingar stjórnvalda, Ingvar Kristinsson framkvæmdastjóri Landsteina Ís- landi hf. fjalla um viðhorf tækni- samfélagsins, Jón Ólafsson for- stöðumaður Hugvísindastofnunar fjallar um viðhorf fræðasamfélags- ins og Bergljót Baldursdóttir út- varpsmaður flytur skýrslu frá mál- stofu. Að lokum fara fram panelum- ræður undir stjórn Elínar Hirst varafréttastjóra. Ársfundur RANNÍS ÍSÓLFUR Gylfi Pálmason, formað- ur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, segist mjög ánægður með þemaráð- stefnu Norðurlandaráðs um framtíð lýðræðis, sem lauk í Reykjavík í gær. Alls sóttu um 350 manns ráðstefn- una auk á þriðja tug blaðamanna og hafa aldrei áður jafnmargir sótt ár- lega þemaráðstefnu Norðurlanda- ráðs. „Ráðstefnan var fræðileg, skemmtileg og varpaði ljósi á fram- tíðarsýn lýðræðis. Öll þessi tækni- legu atriði gengu ákaflega vel upp og getum við verið stolt af því að geta haldið ráðstefnu sem þessa,“ segir Ísólfur Gylfi og bætir því að full ástæða sé til að þakka starfsfólki Al- þingis fyrir sitt framlag til þess að allt gengi upp. „Menn hafa á ráðstefnunni verið að velta fyrir sér alþjóðasamstarfi og á hvern hátt það hafi áhrif á lýðræði í hverju landi fyrir sig. Um það eru deildar meiningar. Lýðræðisþróun á Norðurlöndunum er nánast til fyr- irmyndar hvað önnur lönd varðar og hafa skapast miklar hefðir í kringum það. Menn velta mikið fyrir sér á hvaða hátt þátttaka landa í ESB hafi áhrif á lýðræðið,“ segir Ísólfur Gylfi. Hann segir að skiptar skoðanir hafi komið fram um það á ráðstefnunni en fulltrúar þeirra landa sem eru í ESB hafi talið að þátttakan hafi ekki haft mikil áhrif á lýðræðið í þeim löndum. Erindin sem flutt voru á ráðstefn- unni verða nú gefin út og segir Ísólf- ur Gylfi að þau muni gagnast sem gagnabanki um lýðræði og þróun þess í framtíðinni. Ráðstefnan varp- aði ljósi á framtíð- arsýn lýðræðis Þemaráðstefnu Norðurlandaráðs lauk í Reykjavík í gær FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur hafnað ósk Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ og Neytendasamtak- anna um að fella niður innflutnings- tolla á fryst grænmeti og frystar franskar kartöflur. Innflutningstoll- arnir verða því áfram 30% af frystu grænmeti og 76% af frystum frönsk- um kartöflum. SVÞ sendu fjármálaráðherra bréf í janúar og óskuðu eftir því að hann hlutaðist til um að fella niður tolla af frystu grænmeti og frystum frönsk- um kartöflum. Segir í bréfinu að eftir því sem næst verði komist séu þess- ar vörutegundir ekki framleiddar hér á landi og því sé tollunum ekki beitt til að vernda íslenska fram- leiðslu. Þess er getið að ef um er að ræða niðursoðið grænmeti í dósum þá séu engir tollar lagðir á slíka vöru við tollafgreiðslu. Neytendasamtök- in sendu síðar svipað erindi til ráð- herra. Meiri „staðkvæmdaráhrif“ Í svari fjármálaráðuneytisins er þessari ósk hafnað, að höfðu samráði við landbúnaðarráðuneytið. Í svarinu segir orðrétt: „Það er mat ráðuneytisins að mun meiri stað- kvæmdaráhrif og þar með sam- keppni ríki á milli frysts grænmetis og fersks heldur en á milli fersks grænmetis og niðursoðins og getur ráðuneytið þess vegna ekki fallist á þær röksemdir sem samtökin nefna í bréfi sínu til ráðuneytisins.“ Skv. Tölvuorðabók vísar „staðkvæmdar- áhrif“ til þess að fryst grænmeti geti komið í stað fersks grænmetis. Í fréttatilkynningu frá SVÞ er þessi niðurstaða hörmuð þar sem niðurfelling tollanna hefði stuðlað að lægra vöruverði hér á landi til hags- bóta fyrir neytendur. Árið 2000 voru flutt inn á annað þúsund tonn af frystu grænmeti í neytendaumbúðum og til frekari matvælagerðar. Fram kemur að tollatekjur ríkisins af frystu græn- meti nemi 26 milljónum króna á ári. Þar eru frátaldar tekjur af 76% toll- um á frystar franskar kartöflur. Ekki lágu fyrir upplýsingar hjá fjár- málaráðuneytinu um hversu miklar tekjur renna til ríkissjóðs vegna tolla á franskar kartöflur. Áfram inn- flutningstollar á fryst grænmeti HELMINGUR finnsku sendinefnd- arinnar á þemaráðstefnu Norð- urlandaráðs um framtíð lýðræðis tóku baðferð „á framandi baðstað “ í nágrenni Reykjavíkur, vænt- anlega Bláa lónið, fram yfir opn- unarræðu forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, á mánudag. Frá þessu var greint í norrænum netmiðlum í gær. „Mjög vandræðalegt,“ er haft eft- ir Outi Ojala, forseta Norður- landaráðs, sem sjálf er finnsk. Í skeyti frá finnsku fréttastofunni FNB er sagt að góð ráð séu dýr fyr- ir nefndarmennina sem megi búast við alvarlegri áminningu frá finnska þjóðþinginu. Ojala segir nauðsynlegt að ræða framkvæmd slíkra ferða og hver tilgangur þeirra sé. Það munu hafa verið 10 finnskir þingmenn sem tóku þátt í skemmti- ferðinni. Ojala segir að skýringin á þessu gæti verið sú að dagskrá ráð- stefnunnar var mjög þétt. Flestir hafi næstum engan frítíma þegar opinberri dagskrá lýkur. Tóku baðferð fram yfir ræðu forseta ♦ ♦ ♦ ÞRIÐJI maðurinn var í gær úr- skurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna rann- sóknar á smygli á 30 kílóum af hassi til landsins. Fleiri hafi verið handteknir vegna málsins en sleppt að loknum yfir- heyrslum og að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkni- efnadeildar lögreglunnar í Reykjavík miðar rannsókn málsins vel. Hassið fannst í gámi með húsgögnum sem kom með skipi frá Skandinavíu og er þetta mesta magn sem lögregla og tollgæsla hafa lagt hald á hér á landi. Gera má ráð fyrir að verðmæti fíkniefnanna í götu- sölu nemi yfir 60 milljónum. Fyrsti maðurinn var hand- tekinn um miðjan mars, annar í lok mars og sá þriðji á mánu- daginn. Þrír í gæsluvarð- haldi fyrir 30 kíló

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.