Morgunblaðið - 17.04.2002, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 49
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Grunnskóli Akrahrepps
Skagafirði,
óskar eftir kennara í hálfa til heila stöðu.
Kennslugreinar: Almennar kennslugreinar í
1.—7. bekk. Í skólanum er samkennsla árganga.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl nk.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Sara R.
Valdimarsdóttir, í símum 453 8268 og 453 8247.
Tæknimaður —
frystihús
Grandi hf. óskar eftir að ráða tæknimann í fisk-
vinnslu Granda við Norðurgarð, Reykjavík.
Starfið felur í sér eftirlit og viðhald frystivéla,
fiskvinnsluvéla og annars vinnslubúnaðar. Um
er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf við ný-
tísku vinnslukerfi sem er í stöðugri þróun.
Við leitum að duglegum og samviskusömum
einstaklingi sem hefur menntun og reynslu
á sviði viðhalds í frystihúsi auk áhuga á að til-
einka sér nýjungar í fiskvinnslutækni.
Í frystihúsi Granda við Norðurgarð starfa um
100 manns í hátækni frystihúsi sem sérhæfir
sig í framleiðslu lausfrystra flaka og flakabita
úr karfa og ufsa.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 1. maí Svavari
Svavarssyni framleiðslustjóra eða á netfangið
svavar@grandi.is . Farið verður með allar um-
sóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
! "
Starfssvið:
Viðkomandi mun starfa á þeim sviðum sem
varða orku, ríkisstyrki, opinber innkaup og stál,
sjá um samhæfingu þessara sviða og styðja
við þjónustu við vinnuhópa EFTA og þátttöku
EFTA ríkjanna í viðkomandi nefndum Evrópu-
bandalagsins.
Hæfniskröfur:
Háskólagráða eða sambærileg menntun,
reynsla af svipuðu starfi hjá ríkisstofnun,
einkarekinni stofnun, stjórnsýslu- eða alþjóð-
legri stofnun, og hafa mjög gott vald á skrif-
aðri og talaðri ensku. Frönskukunnátta og
kunnátta í öðrum tungumálum ríkja innan
EFTA eða Evrópubandalagsins er kostur.
Áhugasömum umsækjendum er bent á
heimasíðu okkar, www.efta.int þar sem allan
texta auglýsingarinnar er að finna og umsókn-
areyðublað EFTA. Vinsamlegast takið fram
starfsnúmer á umsókn.
Umsóknarfrestur: 3. maí 2002.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Málfundafélagið
Óðinn
Opinn félagsfundur
Málfundafélagið Óðinn heldur opinn fund í
Valhöll fimmtudaginn 18. apríl nk. kl. 20.00
stundvíslega.
Dagskrá fundarins: Borgarmálefnin og kosning-
arnar framundan.
Björn Bjarnason, efsti maður á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, verður gestur fundarins.
Þá verða frjálsar umræður um kosningarnar
framundan.
Fundarstjóri verður Hannes H. Garðarsson.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hnýttu & bíttu kvöld
hjá SVFR
Opnu skemmti- og fræðslukvöldin, Hnýttu
& bíttu, verður framhaldið í félagsheimili
Stangveiðifélags Reykjavíkur, Háaleitisbraut,
miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.00.
Í samstarfi við netverslunina frances.is koma
fram nokkrir þekktir hnýtarar og veiðigarpar
og sýna listir sínar. Þar á meðal verða þeir dr.
Jónas Jónasson, Sigurður Héðinn Harðarson,
Kristján Guðjónsson og Jimmy Sjöland.
Að venju verður boðið upp á kaffi og brauð.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
SVFR.
TIL LEIGU
Sérbýli óskast til leigu
Einbýli, rað- eða parhús óskast til leigu á
Seltjarnarnesi eða í vesturbæ fyrir traust
fyrirtæki fyrir 1. ágúst nk.
Ársalir fasteignamiðlun,
sími 533 4200.
STYRKIR
Samstarfssjóður
Nuuk — Reykjavíkur —
Þórshafnar auglýsir eftir
styrkumsóknum
Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðborga
Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hef-
ur að markmiði að efla skilning og samstarf
milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og
stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna
sem þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðn-
um til verkefna sem tengjast samskiptum milli
bæjanna og efla tengsl þeirra með einhverjum
hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða
íþrótta.
Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum
ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu
og kostnaði.
Skriflegri umsókn skal beint til:
Samstarfssjóður Nuuk — Reykjavíkur — Þórs-
hafnar, b.t. Gunnars Eydal, skrifstofustjóra
borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur,
101 Reykjavík.
Umsóknir berist eigi síðar en 17. maí nk. og
koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki
til afgreiðslu. Ekki er um sérstök umsóknar-
eyðublöð að ræða. Æskilegt er að umsókn fylgi
þýðing á dönsku. Upplýsingar eru veittar á
skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur,
s. (354) 563 2000.
Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní nk.
Reykjavík, 15. apríl 2002.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
TILKYNNINGAR
Hafnarfjarðarkaupstaður
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi „Áslands
2. áfanga“
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 9. apríl 2002 að auglýsa til kynn-
ingar breytingu á deiliskipulagi „Áslands 2.
áfanga“ vegna legu Ásbrautar frá Goðatorgi
að Kaldárselsvegi ásamt breytingu á skipulags-
mörkum og að farið verði með tillöguna í sam-
ræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, m.s.br.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi
„Lækjargata — Hringbraut — Öldugata“
vegna Rafhareits.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 9. apríl 2002 að auglýsa til kynn-
ingar breytingu á deiliskipulagi „Lækjargata
— Hringbraut — Öldugata“ vegna Rafhareits
og að farið verði með tillöguna í samræmi við
1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, m.s.br.
Tillögurnar verða til sýnis í afgreiðslu umhverf-
is- og tæknisviðs, Strandgötu 8—10, þriðju
hæð, frá 17. apríl— 16. maí 2002. Nánari upp-
lýsingar eru veittar á bæjarskipulagi.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillögurnar og skal þeim skilað skriflega til bæj-
arskipulags í Hafnarfirði, eigi síðar en 31. maí
2002. Þeir, sem ekki gera athugasemd við til-
lögurnar, teljast samþykkir þeim.
Skipulagsstjóri
Hafnarfjarðar.
Kaupi bækur — bókasöfn.
Einnig ýmsa gamla muni.
Gvendur dúllari ehf.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Hafnarfjarðarkaupstaður
Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi
„Miðbær — Hraun“ vegna
bílskúra við Álfaskeið
35—53 Hafnarfirði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 9. apríl 2002 að auglýsa til kynn-
ingar tillögu að deiliskipulagi fyrir „Miðbæ —
Hraun“ vegna bílskúra við Álfaskeið 35—53,
Hafnarfirði, í samræmi við 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu umhverfis-
og tæknisviðs, Strandgötu 8—10, þriðju hæð,
frá 17. apríl—16. maí 2002. Nánari upplýsingar
eru veittar á bæjarskipulagi.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna og skal þeim skilað skriflega til bæjar-
skipulags í Hafnarfirði, eigi síðar en 31. maí
2002. Þeir, sem ekki gera athugasemd við til-
löguna, teljast samþykkir henni.
Skipulagsstjóri
Hafnarfjarðar.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is