Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fasteignir Akureyrarbæjar og Byggðastofnun auglýsa
eftir tilboðum í fasteignir á lóðunum við Þórsstíg 2 og 4,
Akureyri.
Um er að ræða iðnaðar- og skrifstofuhús, talið vera um
3.773 m² við Þórsstíg 4 og iðnaðarhús við Þórsstíg 2,
talið vera um 414 m².
Á lóðinni við Þórsstíg 2 stendur einnig skemma/braggi
sem verður fjarlægður fyrir 15. júlí 2002, en grunn-
plata verður skilin eftir á staðnum.
Flatarmál lóðanna er 6.231 m² við Þórsstíg 2 og
7.341 m² við númer 4.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum ber að skila eigi síðar en 2. maí 2002 á
skrifstofu.
Fasteignir Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 4. hæð,
sími 460 1000, 460 1128.
Þórsstígur 2 og 4,
Akureyri
OF LÍTIÐ hlutafé og uppbygging
sem varð mun dýrari en áætlanir
gerðu ráð fyrir olli því að rekstur Ís-
landsfugls í Dalvíkurbyggð varð æ
erfiðari og var svo komið að hann
stefndi í þrot yrði ekkert að gert.
Skuldir fyrirtækisins nema um 450
milljónum króna, en kröfuhafar,
Norðlenska, Kaldbakur, Sparisjóður
Svarfdæla og Sparisjóður Norðlend-
inga keyptu nú fyrir skömmu allt
hlutafé fyrirtækisins og eru um
þessar mundir að ræða við aðra
kröfuhafa og lánardrottna um end-
urskipulagningu þess.
Ljóst er að rekstur Íslandsfugls
verður afar erfiður næstu mánuði.
Skortur er á varphænum og fram-
leiðslan verður því í algjöru lágmarki
næstu fimm mánuði. Nýir eigendur
kanna nú stöðu starfsfólks en um 40
manns starfa hjá félaginu og er Ís-
landsfugl einn stærsti atvinnurek-
andi í Dalvíkurbyggð.
Íslandsfugl hóf starfsemi sína í
byggðarlaginu í febrúar á síðasta ári,
en þá komu fyrstu fuglarnir í varp-
stöð fyrirtækisins sem er á Árskógs-
stönd. Starfsemi þess er á þremur
stöðum, varphúsið á Árskógsströnd,
eldishús í landi Ytra-Holts sunnan
Dalvíkur og sláturhús og kjöt-
vinnslustöð er á Dalvík.
Á öllum stigum framleiðsluferils-
ins er sérstaklega tekið á áhættu-
þáttum hvað smithættu varðar og
hefur verið eftir því tekið hversu vel
hefur tekist til. Áherslan hefur þann-
ig frá upphafi verið á hreinleika af-
urðanna, tæknivæðingu og sóttvarn-
ir auk þess sem mikil áhersla var
lögð á fullvinnslu vörunnar.
Áætlanir voru uppi um það í upp-
hafi að framleiða um 600–700 tonn á
ári til að byrja með en þegar fram í
sækti stóð til að auka við framleiðsl-
una og bæta við starfsfólki.
Eigendur Íslandsfugls voru Auð-
björn Kristinsson, sem átti 41% hlut,
Dalvíkurbyggð, Samherji, Heimir
Guðlaugsson, Jóhannes Torfi Sum-
arliðason, Guðlaugur Arason, Árni
Bergmann Pétursson og Eiríkur
Sigfússon sem var stjórnarformaður
þess. Þrír þeirra, Jóhannes, Heimir
og Guðlaugur drógu sig út úr félag-
inu síðla síðasta árs eftir að upp kom
ágreiningur á milli eigenda.
Hlutafé var 80 milljónir króna, en
hlutafé Dalvíkurbyggðar og Sam-
herja fólst einkum í því að leggja
fram húsnæði undir starfsemina á
Dalvík. Áætlanir gerðu ráð fyrir að
kostnaður við uppbyggingu Íslands-
fugls yrðu um 250 til 300 milljónir
króna.
Allt síðasta ár var mikill vöxtur í
fyrirtækinu og uppbyggingin hröð,
en verið var að reisa hús eða byggja
við á öllum starfsstöðvum.
Fyrstu kjúklingarnir komu á
markað undir síðasta haust og hefur
salan gengið vonum framar og eft-
irspurn hefur verið mikil.
Í október var samþykkt heimild til
stjórnar Íslandsfugls um að auka
hlutafé í fyrirtækinu um allt að 100
milljónir króna. Þá þegar voru hafn-
ar framkvæmdir við byggingu ann-
ars varphúss á Árskógsströnd. Þetta
nýja hlutafé skilaði sér hins vegar
ekki inn í fyrirtækið af ýmsum
ástæðum og fór því mjög að halla
undan fæti þegar á leið haustið.
Þá var einnig orðið ljóst að upp-
bygging fyrirtækisins myndi kosta
mun meira fé en áætlanir gerðu ráð
fyrir.
Erfitt að útvega fjármagn til
fyrirtækja á landsbyggðinni
Eiríkur Sigfússon, sem gegndi
stjórnarformennsku í Íslandsfugli,
sagði mikla erfiðleika hafa mætt for-
svarsmönnum félagsins þegar þeir
reyndu að útvega aukið fjármagn.
Leitað var til Lánasjóðs landbúnað-
arins og farið fram á 140 milljóna
króna lán, en þar fékkst lán upp á 60
milljónir króna. Einnig var leitað til
Byggðastofnunar um 50 milljónir
króna, en nú í febrúar síðastliðnum
fengust 30 milljónir króna frá stofn-
uninni. Þá nefndi hann að leitað hefði
verið til nokkurra sjóða og fjárfesta,
án árangurs.
„Það komu margir og skoðuðu fyr-
irtækið og leist vel á, en allt kom fyr-
ir ekki, við fengum ekki lánafyrir-
greiðslu,“ sagði Eiríkur.
Hann sagði það sína reynslu að
nánast ómögulegt væri að útvega
fjármagn til fyrirtækja á lands-
byggðinni en öðru máli gegndi væru
þau fyrir sunnan. „Miðað við þessa
reynslu virðist helst sem menn eigi
ekki að láta sér detta í hug að setja
peninga í fyrirtæki fyrir norðan,“
sagði Eiríkur.
Uppbyggingin kostnaðar-
samari en áætlað var
Kaup hinna nýju eigenda, Norð-
lenska, Kaldbaks og sparisjóðanna
tveggja, eru gerð með fyrirvara um
könnun á fjárhag félagsins en henni
á að vera lokið í vikunni. Sigmundur
Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norð-
lenska, hefur síðustu daga farið yfir
rekstur Íslandsfugls í tengslum við
breytingu á eignarhaldi. Hann sagði
að stofnað hefði verið til fyrirtæk-
isins af miklum metnaði, en hins veg-
ar hefðu áætlanir um kostnað vegna
uppbyggingar þess verið alltof lágar.
„Við teljumað uppbyggingin hafi
kostaði mun meira en áætlanir gerðu
ráð fyrir og einnig að eigið fé fyr-
irtækisins hafi verið alltof lítið í upp-
hafi. Það er líka komið á daginn að
kostnaður við uppbygginguna var
nær 500 milljónum króna, í stað 250–
300 milljóna sem menn gerðu ráð
fyrir. Að baki félaginu stóðu tveir
menn og það gefur aðra ímynd gagn-
vart lánastofnunum heldur en þegar
breið fylking fyrirtækja stendur þar
að baki. Rekstur þess frá degi til
dags hefur því verið mjög erfiður,“
sagði Sigmundur.
Hann sagði að félagið hefði orðið
fyrir áfalli þegar upp kom sýking í
stofnrækt í kjúklingum í Svíþjóð en
það varð til þess að skortur varð á
varphænum hér á landi. Það geri
hlutina mun erfiðari. Framleiðslan
er í algjöru lágmarki og svo verður
áfram næstu fimm mánuði að sögn
Sigmundar. „Það er því ekki nóg
með að fyrirtækið hafi staðið illa
heldur verða næstu mánuðir mjög
erfiðir,“ sagði hann.
Sigmundur sagði ljóst að grípa
þyrfti til einhverra aðgerða gagnvart
starfsfólki fyrirtækisins og leita
leiða til að draga úr kostnaði. Hann
sagði ekki ljóst hvort Atvinnuleys-
istryggingasjóður tæki þátt í slíkum
málum líkt og hann gerir varðandi
fiskvinnsluna, en það yrði skoðað.
Starfsmannafjöldinn nú, um 40
manns, væri þó eðlilegur miðað við
fulla framleiðslu.
Sigmundur sagði að sú vara sem
Íslandsfugl framleiðir félli mjög vel
að sölu- og dreifikerfi Norðlenska og
því hefði félagið haft áhuga á að
koma að rekstrinum. Íslandsfugl
verður rekinn sem sjálfstætt fyrir-
tæki með eigin kennitölu, en að sögn
Sigmundar munar engu fyrir Norð-
lenska að dreifa vörum þess í gegn-
um dreifikerfi fyrirtækisins og selja
vöruna um sölukerfið.
Ef sú áreiðanleikakönnun sem nú
er unnið að fer eins og vonir standa
til munu þau fyrirtæki sem að kaup-
unum standa fara í að leysa vanda Ís-
landsfugls, m.a. með því að breyta
skuldum í hlutafé, leggja fram nýtt
hlutafé og koma framleiðslunni í full-
an gang á ný. „Við höfðum áhuga á
að vera með í fyrirtækinu frá upp-
hafi, en það gekk ekki eftir. Ég tel
það jákvætt að við komum nú inn í
fyrirtækið og að það muni styrkja at-
vinnulífið á svæðinu.“
Ekki ögrun við einn eða neinn
Kaup Kaldbaks á hlut í Íslands-
fugli hafa verið nokkuð til umræðu
meðal bænda sem stunda fram-
leiðslu á nauta- og kindakjöti, en
KEA á meirihluta í Kaldbak. Telja
bændur að með þátttöku í kjötfram-
leiðslufyrirtæki sé um grundvallar-
breytingu að ræða hjá KEA, sem nú
sé með þessum hætti komið í sam-
keppni við aðra kjötframleiðendur.
Eiríkur Jóhannsson, kaupfélags-
stjóri KEA og framkvæmdastjóri
Kaldbaks, kvaðst hafa heyrt þessa
umræðu. Hann teldi hins vegar að
það að Norðlenska ætti í Íslandsfugli
kæmi báðum greinum til góða. Með
þessum hætti yrði hægt að bjóða
meira vöruúrval á síharðnandi mat-
vörumarkaði. „Það þýðir ekkert fyr-
ir menn að berja hausnum við stein-
inn og hér er ekki um að ræða neina
ögrun við einn eða neinn. Kjúklinga-
kjöt er í sókn og ég hefði haldið að
kjúklingaframleiðendur teldust til
bænda. Fyrir hönd Kaldbaks er al-
veg jafnmikilvægt að landið, Eyja-
fjörður og Þingeyjarsýslur byggist
upp á mjólkur-, sauðfjár- og kjúk-
lingabændum,“ sagði Eiríkur.
Uppbygging Íslandsfugls mun dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir og hlutafé of lítið
Framleiðsla í lágmarki
næstu fimm mánuði
Næstu mánuðir verða erfiðir í rekstri Ís-
landsfugls í Dalvíkurbyggð. Nýir eigendur
keyptu fyrirtækið í síðustu viku og munu
leita leiða til að snúa rekstri þess við. Talið
er að of lítið hlutafé og dýr uppbygging
skýri þá stöðu sem fyrirtækið var komið í.
Óvissa ríkir um stöðu starfsfólks Íslandsfugls næstu mánuði og verður
m.a. kannað hvort Atvinnuleysistryggingasjóður komi að málum.
STAÐA öldrunarmála á Akureyri
verður rædd á opnum fundi sem
Framsóknarflokkurinn á Akureyri
boðar til í kvöld. Fundurinn verður í
Hólabraut 13 og hefst kl. 20.
Frummælendur á fundinum verða
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra og Jóhannes Gunnar Bjarna-
son sem skipar 3. sæti á framboðs-
lista Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn
á Akureyri
Staða öldrunar-
mála rædd
HÓPUR nemenda úr Verkmennta-
skólanum á Akureyri opnar ljós-
myndasýningu í Ketilhúsinu á Akur-
eyri í dag kl. 17.
Myndefni sýningarinnar eru and-
stæður, þar sem nemendur gátu val-
ið úr viðfangsefnunum lítið–stórt,
heitt–kalt, gamalt–nýtt. Sýningin
stendur til föstudagsins 19. apríl en
þann dag verður opið frá kl. 14 til 18.
Sýna ljósmyndir
í Ketilhúsinu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦