Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 47 LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Þá er hann hættur að troða stígana í Reykjavík, hann Har- aldur Jóhannsson hagfræðingur. Og vantar ekki, að hann hafi markað þá spor- um sínum. Áratugum saman var hann einn þeirra manna, sem mestan svip settu á bæinn. Þó var hann fyrirferðarlítill maður í allri framkomu og tróð ekki nokkrum manni um tær. Hann var vel með- almaður á hæð, grannholda og bar hratt fram götuna. Hann var jafn- an snoðklipptur til hliðanna og aft- ur á hnakka, en hafði búsk á koll- inum. Og var mjóhöfða. Þetta mjóa höfuð var nánast eins og á sjálf- stæðri göngu, eilítið á undan lík- amanum. Haraldur Jóhannsson var einn þeirra manna, sem ekki bundu bagga sína sömu hnútum og sam- ferðamennirnir. Hann var sérlynt- ur og tolldi því ekki á þeirri framabraut, sem menntun hans og starfsframi framan af ævi benti til, að yrði hlutskipti hans að arka. En hugur hans var sívökull og með réttu taldi hann hugsanir sínar eiga erindi við aðra. Þær munu fylla hátt í þriðja tuginn, bæk- urnar og bæklingarnir, sem Har- aldur ritaði um dagana, bæði um hagfræði og ýmislegt annað, þ.á m. samtöl við áhugaverða menn, eins og t.d. Ólaf Friðriksson verkalýðs- leiðtoga. Síðustu áratugina gaf hann rit þessi út sjálfur, enda ekki til siðs í vel skipulögðum smæl- ingjasamfélögum, eins og Íslandi, að halda fram verkum þeirra, sem fara ótroðnar slóðir. Af ástæðum, sem ekki verða raktar hér, náðu kynni okkar Har- aldar allt aftur til bernsku minnar. Og leitar nú gömul minning á hug- ann. Við amma mín áttum um tíma heima við Rauðarárstíg. Gamla konan var Reykjavíkuríhald af gamla skólanum og vissi því fátt skuggalegra en heimskommúnis- mann. Og eins og títt var ruglaði hún þeirri stefnu saman við bar- HARALDUR JÓHANNSSON ✝ Haraldur Jó-hannsson fæddist í Reykjavík 7. júlí 1926. Hann lést 18. mars síðastliðinn og fór útför hans fram í kyrrþey frá Foss- vogskapellu 25. mars. áttuna gegn veru bandaríska hersins á Íslandi. Svo er það eitt sinn, að hernáms- andstæðingar efna til Keflavíkurgöngu og arka á þeirri leið framhjá heimili okkar ömmu. Við stóðum út við glugga og horfðum á göngumenn. Það var slagviðri. Allt í einu sé ég hvar amma mín beygir af. Það var vegna þess, að hún sá Harald í hópi göngu- manna. Gömlu kon- unni þótti illt til þess að vita, að svo góður drengur léti rigna á sig fyrir heimskommúnismann og það í beljandi stormi. Löngu síðar kom þar, að ég tók upp þann sið, að yrkja ljóð. Þá var það eitt sinn, að ég hitti frænda minn Jakob Hafstein en hann var þá prentsmiðjueigandi. Er ekki að orðlengja það, að hann bauðst til að prenta fyrir mig bók, mér að kostnaðarlausu. Þáði ég þetta höfðinglega boð með þökkum. En þá var eftir að fá einhvern til að fara yfir „pródúktið“. Ég sneri mér til Haraldar, enda vissi ég, að hann var bókmenntamaður, og hjálpaði hann mér við efnisval í bókina. Þetta varð ekki ýkja merkilegt rit að gæðum. En þeim Haraldi og Jakobi var báðum ljóst, að þegar ungir menn ýta úr vör og halda út á ólgusjó skáldskaparins er ráðlegast, að stýra þeim mildi- lega. Það gerist hvort sem er ekki nema annað af tvennu; kænan sekkur eða hún nær landi. Nokkrum árum síðar leigði ég herbergi af Haraldi vestur á Rán- argötu. Þar kynntist ég nokkuð undarlegri útfærslu hans á hag- fræði. Leigan var fremur há og það mátti ekki bregðast, að ég greiddi hana fyrsta dag hvers mánaðar. En þegar ég hafði afhent Haraldi peningana og hann talið þá rétti hann mér þá jafnharðan aftur. Haraldur var einlægur marxisti. En þar sem annars staðar fór hann sínar eigin leiðir. Í hópi vinstrisinnaðra menntamanna var það lenska, að hatast út í Krist- mann Guðmundsson. Hann hafði á sínum tíma sent frá sér heims- bókmenntasögu, sem olli þvílíku sálarójafnvægi í ofannefndum hópi, að dómstólarnir lentu að lok- um í sálgæsluhlutverki í því máli. Þessi „ógnþrungna“ bókmennta- saga er í tveimur bindum og er ekki annað um hana að segja í þessu samhengi en það, að Har- aldur gaf mér verkið í jólagjöf þegar hann herbergjaði mig þarna vestur á Ránargötunni. Og bað mig lesa vel, því þetta væri gott verk. Svo liðu árin. Fundum okkar Haraldar bar gjarnan saman á götum miðbæjarins. Bauð hann mér þá oft á kaffihús, en slíkir staðir voru sem hans annað heim- ili. Ekki er langt síðan hann bauð mér á austurlenskt kaffihús rétt við Hlemm. Þar áttum við ánægju- lega stund saman og ákváðum að hittast fljótt aftur. Af því varð þó ekki. Ég kveð Harald Jóhannsson með virktum og þykist vita, að hann arki nú þær slóðir, þar sem sérviska telst til mannkosta. Guð blessi góðan dreng. Pjetur Hafstein Lárusson. Í fáum orðum vil ég votta virðingu mína og þakka mætum manni hátt í tveggja áratuga hlýja og hnökralausa viðkynn- ingu: Jónas Guðbjörn Guðbjörnsson hóf störf hjá SKÝRR (Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar) árið 1980 og þar starfaði hann í rétt sautján ár. Samstarfsmenn Jónasar frá þess- um árum geyma með sér minn- ingar um ærlegan og góðan dreng þar sem hann var. Jónas var Vestfirðingur, fæddur á Ísafirði, og ólst upp á Hafrafelli í Skutulsfirði í hópi fjögurra yngri systkina. Á unglingsárum veiktist hann alvarlega af heilahimnubólgu. Löng sjúkralega leiddi til líkam- legrar fötlunar sem hann bar menjar æ síðan. Jónas nam vél- stjórn í Vélskólanum á Ísafirði og starfaði síðan sem slíkur á fiskibát- um. Síðar lagði hann fyrir sig akst- ur vörubíla og fleiri störf. Jónas var tvígiftur og eignaðist fjórar dætur í fyrra hjónabandi. Jónas réðst sem fyrr segir til SKÝRR árið 1980 og starfaði þar til að byrja með við útkeyrslu en gerðist brátt umsjónarmaður hús- eignar SKÝRR og húsvörður. Það starf átti vel við hann hygg ég, því hann var þúsundþjalasmiður. Hann lagfærði hvers kyns hluti sem húseignina varðaði og fjöl- breytilegustu tæki og tól gat hann átt til að lima sundur í frumparta, setja saman aftur og gera sem nýja. Jónas var dagfarsprúður svo af bar. Hæglæti, samfara notalegri kímni, einkenndi framgöngu hans JÓNAS GUÐBJÖRN GUÐBJÖRNSSON ✝ Jónas GuðbjörnGuðbjörnsson fæddist á Ísafirði 20. mars 1932. Hann lést á heimili sínu 16. mars síðastliðinn og fór útför hans fram í kyrrþey að ósk hins látna. alla. Engan lét hann þó valta yfir sig í orð- um. Sum beinskeytt svör hans eða hnyttn- ar athugasemdir lifa enn meðal samstarfs- manna hans. Mér þyk- ir vænt um litla sögu af Jónasi sem gerðist þegar hann annaðist útkeyrsluna fyrstu starfsárin hjá SKÝRR: Svo bar til að af óviðráðanlegum ástæðum tafðist áríð- andi vinnsla hjá SKÝRR – slíkt gerist raunar afar sjaldan. Það féll í hlut Jónasar að færa viðskiptamannin- um hin síðbúnu vinnslugögn. Er á staðinn kom setti hann gögnin á litla trillu, sem hann hafði ætíð í bílnum, ók þeim inn í lyftu í húsinu og upp með henni á tiltekna hæð. Þar við lyftudyrnar kemur hann í flasið á frakkaklæddum manni. Það var reyndar sá sem beðið hafði gagnanna drjúgan hluta dags. En nú var þolinmæði hans þrotin og hann á leið út úr húsi. Þar sem hann nú mætir Jónasi færandi hin síðbúnu gögn verður honum það fyrst fyrir að hella yfir sendilinn ávítum vegna alls þessa seina- gangs og þar með að nú væri mæl- irinn fullur og hann á leið út úr húsi – vinnudagurinn á enda. Jón- as hlýddi á ræðuna með venju- bundinni ró. Er hlé var á, sneri hann trillunni aftur í átt að lyftu- dyrunum um leið og hann sagði: „Jæja, ég kem þá bara aftur á morgun.“ Þetta svar batt snöggan endi á öll ræðuhöld, því auðvitað var ekki um annað að ræða en að veita gögnunum viðtöku, þrátt fyr- ir seinkunina. Starfsmenn SKÝRR votta eft- irlifandi eiginkonu Jónasar, dætr- um og öðrum aðstandendum inni- lega samúð. Bjart er yfir minningu Jónasar Guðbjörns Guðbjörnsson- ar. Óttar Kjartansson. Fallinn er í valinn Árni Stefánsson, kennari í Kópavogi, mjög um aldur fram. Kynni mín af Árna voru fyrst og fremst á yngri árum þegar ég sem óharðnaður unglingur á sautjánda ári byrjaði að venja komur mínar á Melaheiði 1 í Kópa- vogi. Ég kynntist eldri syni hans, Snorra, á unglingsárum og varð vin- skapur okkar þá sem nú svo mikill að ég varð eiginlega fastagestur á heimilinu og kynntist ég því Árna vel á þeim árum. Ekki er ofmælt þegar sagt er að kynni mín af ís- lenskukennaranum hafi verið sér- staklega minnisstæð. Fyrir utan það að við ræddum ótæpilega hin ýmsu þjóðfélagsmál og pólitík jafnt utanlands sem innan stendur það fyrst og fremst uppúr í mínum huga hversu Árni átti auðvelt með og hversu ljúft það virtist honum að ræða við ungan manninn um lands- ins gagn og nauðsynjar á fullkomn- um jafningjagrundvelli. Slíkt var þá, og er, afar mikilvægt fyrir ungt fólk, að finna athygli og óskoraðan áhuga hinna eldri á útleggingum hinna ungu og óreyndu. Þetta var ÁRNI STEFÁNSSON ✝ Árni Stefánssonfæddist í Hjarð- arholti í Dölum 17. júní 1938. Hann lést á heimili sínu sunnu- daginn 24. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 6. mars. Árna Stefánssyni gefið, að ég held, betur en flestum öðrum. Fyrir þær sakir hefur hann og mun alltaf skipa ákveðinn sess í huga mínum. Betur færi að fleiri okkar sem fullorð- in teljumst tækjum okkur Árna heitinn til fyrirmyndar að þessu leyti. Skoðun mín á þessu hefur bara styrkst við að heyra að Árni hafi notið hylli nemenda sinna sem grunnskólakennari – það kemur mér engan veginn á óvart, enda aldarfjórðungur síðan ég varð þessara eiginleika hans áskynja. Eitt var það sem mér lengi vel var ekki fullljóst um Árna, en það var rithæfni hans og hvernig raunsæ lífssýn hans birtist þar. Þetta varð morgunljóst fyrir nokkr- um árum síðan er hann ritaði mjög minnisstæða minningargrein um móðurbróður sinn, Magnús Böðv- arsson bónda í Dölum. Árni lýsti þar á afar raunsæjan hátt frænda sínum, kostum hans og göllum á ógleymanlegan og vandaðan hátt – í anda þess raunsæis sem Árna var tamt að mínu viti. Mun ég því ekki reyna að komast með tærnar þar sem Árni Stefánsson hafði hælana í slíkum skrifum og láta þessi fátæk- legu orð nægja. Höllu, Snorra og Sverri og fjölskyldum þeirra bræðra sendi ég hugheilar kveðjur mínar. Grétar Þór Eyþórsson. ✝ Elín Guðmunds-dóttir fæddist í Sjólist á Fáskrúðs- firði 27. maí 1916. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu á Fá- skrúðsfirði 28. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristín Indriða- dóttir frá Vattarnesi og Guðmundur Jóns- son frá Gestsstöðum. Börn þeirra Kristín- ar og Guðmundar urðu átta. Einungis tvær systur lifa El- ínu, þær Jóna Björg og Sigur- björg. Fyrsta barn Elín- ar er Rafn. Elín gift- ist 11. nóvember 1946 Hans Ole Eide Eyjólfssyni. Þau Elín og Eide hófu sambúð og börnin komu hvert af öðru, Inge- borg, Kristín, Agn- ar, Hafþór og lítil dóttir, sem lést á fyrsta ári, óskírð 1960. Barnabörnin eru á annan tug og barnabarnabörnin hátt í tvo tugi. Útför Elínar fór fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 9. mars. Ég vil í þessum fáeinu línum minnast Elínar Guðmundsdóttur frá Fáskrúðsfirði. Ég kynntist Elínu persónulega seint á ævi hennar en það sem vakti athygli mína var að þó að þar færi hógvær alþýðukona var hún eins og prinsessa í framkomu og háttum og umgengust ættingjar og vinir hana þannig og með mikilli virðingu. Maður fann að þar fór stolt en hógvær kona sem mikil virð- ing og væntumþykja var borin fyrir. Eftirtektarvert var hvað börnum og barnabörnum þótti óumræðilega vænt um Ellu og naut hún þess í rík- um mæli. Að öðrum ólöstuðum má segja að Kristín Eide hafi lagt sig í líma fyrir móður sína þegar ellin færðist yfir, en þær Ella og Stína deildu saman heimili í hálfa öld. Ella var Stínu mikil stoð á árum áður eins og for- eldrar eru oft börnum sínum. En þegar aldur fór að færast yfir Ellu fylgdi hún Stínu eftir á öll hennar heimili og bjó hjá henni og tel ég að það hafi verið ómetanlegt fyrir Ellu að finna að hún átti heima heima hjá sér og gæti tekið á móti sínu fólki og gestum þar. Það er ekki sjálfsagt og raunar sjaldgæft að börn eldra fólks taki hlutverk sitt eins alvarlega og Stína Eida gerði gagnvart móður sinni, hjúkri, hlúi að og nánast fórni stórum hluta af lífi sínu og frelsi fyr- ir foreldra sína, en það gerði Stína fyrir móður sína. Mér varð oft hugs- að til þeirra forréttinda sem Ella naut vegna fórnfýsi Stínu og fyrir það ber að þakka. Ég er líka alveg viss um að systkini Stínu voru henni mjög þakklát fyrir að annast móður þeirra svo vel. Ella Eida var mjög lánsöm móðir vegna þess að öll börnin hennar voru afar vandaðar og góðar mann- eskjur og það kristallast í öllum barnabörnum Ellu, sem eru fyrir- myndarfólk hvar sem þau eru. Ella Eida var á allan hátt mjög vönduð og einstaklega góð manneskja og öllum var vel við hana og hún hafði þann góða kost að geta hlustað á fólk ræða málin en skaut svo allt í einu ýmsu gullkorni inn í umræður og þá vissi maður að hún var að fylgjast með. Ég votta öllum hennar nánustu samúð mína því þótt aldur Ellu væri hár og við öllu að búast var svo mikil samstaða og væntum- þykja innan þessarar fjölskyldu og missir þeirra er mikill. Eiríkur Stefánsson. ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.