Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 53
ALÞJÓÐLEG ungmennaráðstefna
sem Jafningjafræðslan stendur fyrir
í samvinnu við ECAD (European Ci-
ties Against Drugs) verður haldin á
Grand Hótel Reykjavík 24. apríl. Yf-
irskrift ráðstefnunnar er Human
Rights – An Issue for Europe og fer
ráðstefnan fram á ensku.
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki í
Evrópu á aldrinum 18 til 24 ára sem
er leiðandi í forvörnum og/eða æsku-
lýðsstarfi. Markmið ráðstefnunnar
er að ungt fólk víðs vegar að úr Evr-
ópu hittist og greini hvaða áhrif
fíkniefnamisnotkun hefur á daglegt
líf og vinni saman að mögulegum
lausnum á fíkniefnavandanum.
Verndari ráðstefnunnar er frú Vig-
dís Finnbogadóttir.
Erindi halda m.a.: Þórólfur Þórl-
indsso, Wima Farzan, franskur fé-
lagsfræðingur, Guðrún Jónsdóttur
frá Stígamótum, einnig verður ungt
fólk með framsögu á fundinum.
Nemendur úr Borgarholtsskóla
kynna vinnu sína um áhrif staðal-
mynda á ungt fólk. Á ráðstefnunni
verður einnig unnið í hópavinnu.
Niðurstöður ungmennaráðstefnunn-
ar verða síðan kynntar á borgar-
stjóraráðstefnu ECAD sem haldin
er í Reykjavík um sama málefni dag-
ana 25. og 26. apríl.
Nánari upplýsingar um ráðstefn-
una er að finna á www.hitthusid.is.
Skráning fer fram á www.congress-
.is, segir í fréttatilkynningu.
Alþjóðleg ung-
mennaráðstefna
BINDINDISFÉLAG ökumanna
(BFÖ) hefur hleypt af stokkunum
átaksverkefni undir yfirskriftinni
„Akstur krefst athygli“ með það að
markmiði að efla umferðaröryggi
og draga úr slysum. Í verkefninu er
athygli beint að ýmsu hátterni öku-
manna sem eykur líkur á slysum.
BFÖ vekur athygli á því að skort-
ur á einbeitingu og truflun við akst-
ur á þátt í þriðja hverju umferð-
arslysi á Íslandi, sem jafngildir
1.500 slysum árlega. Meðal algeng-
ustu truflana við akstur er þegar
ökumenn stilla útvarpið eða geisla-
spilarann, sinna farþegum í bílnum,
hagræða hlutum, hringja eða tala í
síma, matast undir stýri, spegla sig
og snyrta, stilla miðstöðina, reykja
eða fylgjast með einhverju sem er
að gerast utan við bílinn, s.s. slys-
um, óhöppum eða vinum í öðrum
bílum.
BFÖ mun hjálpa ökumönnum að
koma í veg fyrir að truflanir sem
þessar valdi þeim vandræðum. BFÖ
ráðleggur ökumönnum því m.a. að
leggja bílnum áður en farið er að
nota símann eða leyfa honum að
hringja. Þá er svöngum ökumönn-
um ráðlagt að gefa sér tíma til að
stoppa og fá sér bita í stað þess að
matast undir stýri. Þá er ökumönn-
um ráðlagt að biðja farþega um að
stilla útvarp eða miðstöð eða stöðva
bílinn til stilla tækin.
Til að koma í veg fyrir truflun
sem fylgir því að sinna öðrum far-
þegum, börnum eða gæludýrum í
bílnum er ökumönnum ráðlagt að
ganga úr skugga um að börn séu
ávallt tryggilega fest í við-
urkenndum öryggisbúnaði og gott
er að láta þau fá bækur eða leik-
föng til að stytta þeim stundir.
Gæludýr skulu höfð í búrum en
ekki laus í bílnum. Ökumönnum er
einnig ráðlagt að forðast rifrildi
eða samræður sem krefjast mik-
illar einbeitingar. Einnig er bent á
að stórhættulegt getur verið að
fylgjast með slysum eða óhöppum
eða afskiptum lögreglu af vegfar-
endum á meðan ekið er. Fallegt út-
sýni, byggingaframkvæmdir, aug-
lýsingaskilti eða vinir í öðrum
bílum trufla sömuleiðis.
Ökumenn eru einnig hvattir til
að spenna beltin og sjá til þess að
aðrir farþegar geri það líka. Þá eru
þeir hvattir til að aka aldrei syfj-
aðir og gefa sé nægan tíma til að
komast á ákvörðunarstað.
Ungir ökumenn eru sérstaklega
hvattir til að vera ekki með heyrn-
artól við akstur og sleppa öllum
„stælum“, s.s að taka krappar
beygjur eða fara fram úr á gatna-
mótum til þess að „sýna sig“.
Bindindisfélag ökumanna með heilræði til ökumanna
Akstur krefst athygli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nokkrir þeirra sem standa að átaksverkefni Bindindisfélags ökumanna, f.v.: Svavar Ottósson, framkvæmda-
stjóri Flytjanda, Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs hf., Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár/Almennra, og
Halldór Árnason, formaður Bindindisfélags ökumanna.
NÁMSKEIÐ um samningatækni
fyrir fólk í kjarasamningum verður
haldið hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands í dag, miðvikudaginn 17.
apríl kl. 13 – 16 og þriðjudaginn 18.
apríl kl. 9 – 16.
Meðal viðfangsefna eru skipulag
og undirbúningur samninga: að
setja markmið í viðræðum, skoða
viðsemjandann og leita árangurs-
ríkra leiða, samningaferillinn;
formsatriði, hegðun, valdið við
samningaborðið, tilboð, gagntilboð,
nart, gervigjaldmiðlar og tilslakan-
ir og minnisatriði fyrir frágang
samninga, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kennarar verða Birgir Björn
Sigurjónsson hagfræðingur og Júl-
íus Kr. Björnsson sálfræðingur.
Verð: 18.700 kr. Nánari upplýsing-
ar og skráning: http://www.endur-
menntun.hi.is.
Námskeið um
samningatækni
HÓLASKÓLI heldur námskeið þar
sem fjallað verður um efni og aðferðir
við lagningu göngustíga þannig að
náttúra og umhverfi beri sem minnst-
an skaða af, laugardaginn 27. apríl kl.
9–18 í Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal.
Rætt verður um tilgang og fram-
kvæmd merkinga, lagningu á nýjum
gönguleiðum og viðhald á eldri leið-
um. Námskeiðið fer hugsanlega að
hluta fram á ensku en umsjónarmað-
ur þýðir þegar á þarf að halda. Um-
sjón með námskeiðinu hefur Bjarni
Kristófer Kristjánsson. Nánari upp-
lýsingar má fá hjá Hólaskóla http://
www.holar.is (undir símenntun), eða í
síma. Umsóknarfrestur rennur út 19.
apríl, segir í fréttatilkynningu.
Merking, stikun og
viðhald gönguleiða
HALDINN verður hádegisverðar-
fundur á vegum Lyfjahóps Sam-
taka verslunarinnar – FÍS undir
yfirskriftinni: ,,Mútur eða miðlun
upplýsinga?“, í dag, miðvikudaginn
17. apríl kl. 12, í Skálanum, Hótel
Sögu.
verður fjallað um markaðssetn-
ingu lyfja á Íslandi og rætt hvort
lyfjafyrirtæki gangi svo langt í
þeim efnum að takmarka beri enn
frekar svigrúm þeirra á þessu
sviði. Þá munu framsögumenn
ræða hvar siðferðisleg mörk upp-
lýsingamiðlunar til lækna og al-
mennings liggja.
Frummælendur eru: Hjörleifur
Þórarinsson, formaður lyfjahóps
Samtaka verslunarinnar – FÍS,
Magnús Jóhannsson, yfirlæknir
hjá Lyfjastofnun og Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Læknafélags
Íslands. Fundarstjóri er Sigur-
steinn Másson og mun hann að
stuttum framsöguerindum loknum
stjórna umræðum, segir í frétta-
tilkynningu.
Fundur um mark-
aðssetningu lyfja
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas fer á Njáluslóðir, laugardag-
inn 20. apríl. Lagt verður af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 12.
Sögusetrið á Hvolsvelli verður
skoðað. Síðan verður farið á sögu-
staði Njálu með leiðsögumanni. Kl.
19 verður á boðstólum þríréttuð mál-
tíð. Leikþáttur verður sýndur og
söngur.
Verð er kr. 5.900 á mann, farið
með rútunni er kr. 2.000 á mann.
Þátttaka tilkynnist til Kristjáns
Árnasonar, eða Þórs Jakobssonar í
síma, eða á netföngin, kristjar@hi.is
eða thor@vedur.is, segir í fréttatil-
kynningu.
Á Njáluslóðir með
Grikklandsvina-
félaginu
TÍSKA, tónlist, hreyfing og hönnun
verða áberandi á göngum Kringl-
unnar í dag, miðvikudaginn 17. apr-
íl, til sunnudagsins 21. apríl. „Upp-
lifun“ kallast þessi fimm daga hátíð,
þar sem verslanir í Kringlunni
draga fram það nýjasta sem þær
hafa á boðstólum auk þess sem
gestum verður skemmt með ýmsu
öðru móti.
Eitt hundrað gínur verða á göng-
um Kringlunnar, klæddar nýjustu
vor- og sumartískunni. Ennfremur
verður kynnt samkeppni 10 ís-
lenskra fatahönnuða og taka gestir
Kringlunnar þátt í valinu. Lifandi
málverkasýning verður á ferð, en
hún lýsir sér í því að gengið verður
með málverkin um Kringluna.
Einnig ætlar listmálarinn, Steinn
Sigurðsson, að sitja daglangt við
trönurnar. Þrjú ný Harley Dav-
idson mótorhjól verða til sýnis. M.a.
skemmta djass-fönkdúettinn Des-
men og Birgitta í Írafári, segir í
fréttatilkynningu.
Tíska, hönnun
og lífsstíll í
Kringlunni
JAY H. Jasanoff, prófessor við mál-
vísindadeild Harvardháskóla, flytur
opinberan fyrirlestur á ensku í boði
Heimspekideildar og Málvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands, föstu-
daginn 19. apríl. kl. 12.05, í Norræna
húsinu. Heiti fyrirlestrarins er „The
nominative singular of Germanic n-
stems“ og fjallar um uppruna nefni-
fallsendingar í veikri beygingu fall-
orða.
Uppruni nefni-
fallsendingar
MÁLSTOFA stjórnmálafræðiskor-
ar um sveitarstjórnarmál verður
haldin fimmtudaginn 18. apríl kl.
12.05–12.55 í Odda, stofu 201, Há-
skóla Íslands.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor og
deildarforseti félagsvísindadeildar,
heldur erindi um sveitarstjórnar-
kosningar. Hann mun m.a. leita
svara við spurningunum um hvort
hlutur kvenna í sveitarstjórnum hafi
verið lakari en á þingi og hvort rík-
isstjórnarþátttaka Sjálfstæðisflokks
hafi haft áhrif á gengi flokksins í
sveitarstjórnarkosningum. Þá mun
Ólafur fjalla stuttlega um kosning-
arnar í Reykjavík. Allir velkomnir,
segir í fréttatilkynningu.
Málstofa um sveit-
arstjórnarmál
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Hermanni
Guðmundssyni, formanni
Vinstrihreyfingarinnar – grænu
framboði á Akranesi:
„Vegna fullyrðinga tveggja þing-
manna Framsóknarflokksins í fjöl-
miðlum undanfarið um stefnu
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs á Akranesi vill undirritað-
ur koma eftirfarandi á framfæri.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð á Akranesi hefur ekki aðra
stefnu í málefnum stóriðju og virkj-
ana en stefnu flokksins. Núverandi
starfsleyfi Norðuráls er upp á 180
þúsund tonn og hyggst fyrirtækið
auka framleiðsluna upp í þá tölu fyrir
árslok 2004. Það væri ábyrgðarlaust
af framboði á Akranesi að taka ekki
tillit til ákvarðana sem þegar hafa
verið teknar um stækkun Norðuráls
og stjórnvöld hafa veitt heimild fyrir.
Afstaða til einstakra virkjunarkosta
er sjálfstætt mál og allar virkjanir
verða að uppfylla skilyrði um að um-
hverfisáhrif séu í lágmarki án tillits
til þess hvernig orkunni er ráðstafað.
Nú þegar feluleikur Framsóknar í
málefnum Norsk Hydro hefur verið
afhjúpaður væri iðnaðarráðherra og
formanni iðnaðarnefndar nær að
svara Austfirðingum því hvaða úr-
ræði þeir hafa í atvinnumálum fjórð-
ungsins, annað en að sitja og bíða
eftir álveri, í stað þess að reyna að
snúa út úr stefnu vinstri grænna á
Akranesi til að fela eigið úrræða-
leysi."
Yfirlýsing frá VG á Akranesi
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð efnir til ráðstefnu um sveit-
arstjórnarmál í Kiwanishúsinu,
Engjateigi 11 í Reykjavík, dagana
19. og 20. apríl kl. 13–16. Steingrím-
ur J. Sigfússon setur ráðstefnuna.
Dagskráin er fyrst og fremst snið-
in að þörfum frambjóðenda til kom-
andi sveitarstjórnarkosninga. Til
ráðstefnunnar eru boðaðir efstu
menn á framboðslistum sem VG
stendur að, þ.e. U-listum og blönd-
uðum listum með þátttöku VG
fjallað um nýjar rannsóknir á ís-
lenskum sveitarfélögum og rætt um
hlutverk sveitarfélaga í atvinnumál-
um, umhverfismálum og velferðar-
málum með sérstakri áherslu á mál-
efni aldraðra. Þá verða í boði ýmsar
hagnýtar upplýsingar og þjálfun
fyrir frambjóðendur, segir í frétta-
tilkynningu.
Ráðstefna VG
um sveitar-
stjórnarmál MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Stúdentaráði
Háskóla Íslands:
„Mörg hagsmunamál stúdenta við
Háskóla Íslands snúa beint að
Reykjavíkurborg. Stúdentaráð Há-
skóla Íslands skorar á þá lista er boð-
ið hafa fram til borgarstjórnarkosn-
inga að gera grein fyrir stefnu sinni í
þessum málum.
Meðal þeirra mála er hvað mest
brenna á stúdentum eru málefni stúd-
entagarða. Félagsstofnun stúdenta
hefur nýtt allar lóðir sínar við Háskól-
ann. Brýnt er að úthlutað verði fleiri
lóðum til uppbyggingar garða, ann-
aðhvort á Háskólasvæðinu eða í
næsta nágrenni.
Ekki er útlit fyrir að uppbygging
garða verði nægileg næstu árin til að
anna eftirspurn. Leiga húsnæðis á al-
mennum markaði er í mörgum tilfell-
um of há til að stúdentar ráði við
hana. Biðlistar á stúdentagarða eru of
langir og lítið framboð eykur á fjár-
hagsvandræði stúdenta og hrekur þá
jafnvel frá námi. Því er mikilvægt að
Reykjavíkurborg endurskoði fjár-
hagslegan stuðning sinn við uppbygg-
inguna. En bæði ríkisvaldið og
Reykjavíkurborg hafa dregið úr þess-
um stuðningi undanfarin ár.
Stuðningur við stúdenta og há-
skólamenntun í Reykjavík er einn af
helstu möguleikum borgaryfirvalda
til að gæða borgarflóruna meira lífi.
Stúdentar eru framtíðarútsvarsgreið-
endur og er því kappsmál að vel sé að
þeim búið meðan á námi stendur.“
Vilja upplýsingar
um afstöðu til
stúdentagarða
LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsir
eftir vitnum að umferðaróhappi á
gatnamótum Njarðargötu/Hring-
brautar/Vatnsmýrarvegi, miðviku-
daginn 10. apríl 2002 um kl. 17.10.
Þarna rákust saman tvær fólksbif-
reiðar, lítil ljósgrá Volkswagen Polo
og eldri Mazda 626, grá að lit. Ágrein-
ingur er um stöðu umferðarljósanna
er óhappið varð. Ökumaður á sendi-
bifreið, merktri Kodak, er beðinn um
að hafa samband vegna máls þessa.
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða bif-
reið við Tækniskóla Íslands á Höfða-
bakka, þann 12. apríl sl. Ekið var á
græna Volvo fólksbifreið með núm-
erinu PT-834, þar sem hún stóð
mannlaus á bifreiðastæði skólans.
Mun þetta hafa gerst um kl.16.45.
Tjónvaldur yfirgaf vettvang án þess
að tilkynna tjónið til hlutaðeigandi
eða lögreglu. Því er hann eða aðrir
sem geta gefið upplýsingar um atvik-
ið, beðnir um að snúa sér til umferð-
ardeildar lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum