Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 57
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð viljasterk og vitið
hvers þið eruð megnug. Þið
hafið leiðtogahæfileika, eruð
ábyrg og með báða fætur á
jörðinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir hitt einhvern sem er
óvenjulegur, líflegur og sér-
lega skemmtilegur. Þetta er
einstaklingur sem lætur sig
álit annarra litlu skipta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag munt þú reyna að berj-
ast gegn hvers konar tak-
mörkunum. Þú vilt vera þinn
eigin herra og ráða örlögum
þínum sjálfur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Forvitni þín vaknar og
ímyndunaraflið fer á flug. Þú
átt auðvelt með að meðtaka
hugmyndir og vilt þróa þær
áfram.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir átt von á skyndilegri
stöðuhækkun eða launa-
hækkun í dag. Óvænt hlunn-
indi gæti einnig rekið á fjörur
þínar, einkum ef þú hefur
áhrif og völd.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samskipti við vini munu leiða
til nýrrar reynslu sem gefur
þér betri innsýn í umheiminn.
Umræður verða líflegar,
skemmtilegar og áhugaverð-
ar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Í dag kann loks að hilla undir
að þú getir látið þann draum
rætast að stofna eigin at-
vinnurekstur eða eitthvað á
eigin vegum. Þú færð skyndi-
lega stuðninginn sem þú
þarfnast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver daðrar við þig og þú
kemst úr jafnvægi. Þótt þú
vildir helst leiða viðkomandi
hjá þér ert þú samt svolítið
montinn af því að einhverjum
finnist þú aðlaðandi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú færð góðar hugmyndir um
hvernig hægt sé að endur-
skipuleggja og bæta ýmsa
hluti í tengslum við vinnuna
með tækni og rafrænum sam-
skiptum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gerir þér skyndilega grein
fyrir því að það er mikilvæg-
ara að þú haldir þínum per-
sónueinkennum en að reyna
stöðugt að miða þig við aðra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú öðlast kjark til að eyða
peningum í eitthvað fyrir
heimilið eða fjölskylduna og
fyllist stolti yfir ákveðninni
sem þú sýnir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er góður dagur til að
breyta einhverju í kringum
þig. Það er ekki ólíklegt að
kominn sé tími til að hressa
aðeins upp á tilveruna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð upplýsingar í dag
sem gætu leitt til þess að þú
skiptir um vinnu eða finnir
nýjar leiðir til að afla fjár. Það
er um að gera að prófa nýjar
hugmyndir sem þú hrífst af.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SAGNVANDINN að neð-
an kom upp á HM 1979.
Settu þig í spor norðurs,
sem hefur opnað létt á einu
hjarta út á skiptinguna og
verður svo að taka erfiða
ákvörðun í næsta hring.
Það er enginn á hættu:
Norður
♠ 873
♥ ÁG972
♦ --
♣ÁG1087
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 4 hjörtu
4 spaðar ?
Hvað á norður að segja?
Bresku höfundarnir
Reese og Bird gera spilið
að umtalsefni í bók sinni
Frægar sagnákvarðanir
(Famous Bidding Dec-
isions) og setja upp eftir-
farandi möguleika – pass,
dobl, fimm lauf og fimm
hjörtu.
Það er hugsanlegt að sá
tími sé runninn upp að
tölvur geti leyst sagn-
vandamál af þessum toga,
en við spilaborðið verða
menn að treysta á eigin til-
finningu og reynslu. Eitt
blasir strax við: ef makker
á hjartakóng er líklegt að
hægt sé að hnekkja fjórum
spöðum með því að spila
undan ásnum í upphafi. En
er það áhættunnar virði?
Er kannski hugsanlegt að
fimm hjörtu vinnist? Það
veltur á spilum makkers,
ef hann á gott tromp og
stuttan spaða ætti að vera
góður möguleiki á 11 slög-
um. Þetta er greinilega
erfið ákvörðun og höfund-
ar mæla með því að
ábyrgðinni sé velt yfir á
makker með passi. Ekki
lakari spilari en ítalski
meistarinn Benito Garozzo
gerði það með slæmum ár-
angri í viðureign við Ástr-
ala:
Norður
♠ 873
♥ ÁG972
♦ --
♣ÁG1087
Vestur Austur
♠ KD10964 ♠ Á
♥ 8 ♥ 1065
♦ KD965 ♦ ÁG103
♣5 ♣96432
Suður
♠ G52
♥ KD43
♦ 8742
♣KD
Vestur Norður Austur Suður
Seres Garozzo Cummings Lauria
-- 1 hjarta Pass 4 hjörtu
4 spaðar Pass Pass Dobl
Allir pass
Garozzo spilaði út litlu
hjarta (níunni) undan ásn-
um, en Lauria gerði þau
mistök að spila laufkóng
áður en hann gaf makker
tígulstungu. Þar með fór
sú innkoma og vestur vann
sitt spil. Eins og sjá má
vinnast fimm hjörtu í NS
vegna stíflunnar í spaða-
litnum, en það verður að
fallast á það með höfund-
um og Garozzo að passið sé
illskásta sögnin.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3
d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rb4
6. Bc4 Rd3+ 7. Ke2 Rf4+
8. Kf1 Re6 9. Re5 Rc6 10.
Rxc6 bxc6 11. Ra4 Dd6 12.
d3 Rd4 13. Be3 e5 14. Hc1
Dg6 15. Dd2 Be7 16. Da5
Dh5 17. Bxd4 exd4
Staðan kom upp Amber
mótinu í Monakó sem lauk
fyrir skömmu. Tafl-
mennskan á þessu
móti er að jafnaði
afar lífleg og svipt-
ingar miklar enda
etja þar kappi
fremstu skákmenn
heims í atskákum
og blindskákum.
Jeroen Piket (2659)
hafði hvítt gegn
Ljubomir Ljuboj-
evic (2548). 18.
Rxc5! Bxc5
18...Dxc5 var slæmt
vegna 19. Bxf7+ og
hvítur vinnur drottninguna.
Í framhaldinu verður hvít-
ur sælu peði yfir. 19. Bb3
O-O 20. Dxc5 Dh6 21. h4
Hb8 22. Hc2 Ba6 23. Hh3
Bc8 24. Hg3 Dxh4 25. Kg1
Hb6 26. Dxd4 g6 27. Hf3
De7 28. Df6 Db7 29. Hc5
a5 30. He5 a4 31. He7 axb3
32. Hxb7 Bxb7 33. a3 Bc8
34. d4 Be6 35. d5 Bg4 36.
Hf4 h5 37. f3 Bc8 38. e5
Bf5 39. g4 hxg4 40. fxg4
og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
UMKVÖRTUN
Eftir fimmtíu ára dvöl
í Akrahrepp eg má nú deyja
úr sulti, nakleika, kröm og kvöl,
kvein mitt ei heyrist, skal því þegja.
Félagsbræður ei finnast þar,
af frjálsum manngæðum lítið eiga,
eru því flestir aumingjar,
en illgjarnir þeir, sem betur mega.
Guð veit eg hef þar árin öll
erfiðiskröftum veikum slitið,
öreiga vildi forðast föll,
fældist því hvergi mæðustritið.
Líkaminn sýnir leifarnar
og lúamerkin á veiku holdi,
að eg sérhlífinn varla var
við hann, á meðan fjörið þoldi.
Hataði eg leti og óhóf allt,
einfalda lífið hentast þótti,
barmaði lítt, þó blési kalt,
brauð til nágranna skjaldan sótti.
Áttræðum mér nú enginn sést
ávöxtur meiri en letingjanna,
atvinnu þoli allan brest,
upp á svo kominn björgun manna.
- - -
Bólu-Hjálmar
KIRKJUSTARF
Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13-
16.30. Föndur, spil og helgistund.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12.
Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur,
bænastund, kaffiveitingar og samræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára
börn kl. 16. Starf fyrir 11-12 ára kl. 17.30.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á neðri
hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir
eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir
kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur.
Kórinn er ætlaður börnum úr 1.-3. bekk.
Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30.
Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Heilsuhópurinn kemur
saman kl. 11-12 í Litla sal. Spjallað yfir
kaffibolla. Heilsupistill, létt hreyfing og
slökun. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 12-12.30. Fyrirbænaefnum má
koma til sóknarprests og djákna í síma
520-1300. Kærleiksmáltíð kl. 12.30. Mat-
armikil súpa, brauð og álegg kr. 500. Sam-
vera eldri borgara kl. 13-16. Kaffi og smá-
kökur. Söngstund með Jóni Stefánssyni.
Tekið í spil, málað á dúka og keramik í
stóra sal. Upplestur sr. Tómasar Guð-
mundssonar og Jóhönnu G. Erlingsson (kl.
13.30-15.15) í Guðbrandsstofu í anddyri
kirkjunnar. Boðið er upp á akstur heiman
og heim fyrir þá sem komast ekki að öðru
kosti til kirkju. Allir hjartanlega velkomnir.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-
7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10-
15.30 ætlaður börnum í 1.-4. bekk. Æfing
kl. 18 fyrir fermingarbörn sumardagsins
fyrsta 25. apríl. kl. 20 lokapartý ferming-
arstarfsins og unglingakvöldanna. Pizza og
gos kr. 400. Mætum öll.
Neskirkja. 7 ára starf kl. 14. Opið hús kl.
16. Lestur úr ævisögu séra Jóns Stein-
grímssonar eldprests, þar sem frá var horf-
ið. Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Bæna-
messa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður eftir stundina.
Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
spil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöldmál-
tíð. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á
eftir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða
frá kl. 13-16. Kirkjuprakkarar kl. 17-18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára
börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl.
17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
Unglingastarf KFUM&K Digraneskirkju kl.
20.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Op-
ið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl.
17. Litlir lærisveinar í Lindaskóla kl. 17.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu verði
að lokinni stundinni. Allir velkomnir. KFUM
fyrir drengi 9-12 ára kl. 16.30-17.30.
Kirkjukrakkar í Rimaskóla fyrir börn 7-9 ára
kl. 17.30-18.30. KFUK Unglingadeild kl.
19.30-21. Æskulýðsfélag Engjaskóla fyrir
börn 8.-9. bekk kl. 20-22.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum
í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheimilinu
Borgum. Starf með 10-12 ára börnum (TTT)
á sama stað kl. 17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Tekið á móti fyr-
irbænaefnum í kirkjunni og í síma
567 0110.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-
16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti
Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri
borgara í dag kl. 13:00. Helgistund, spil og
kaffiveitingar
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága-
fellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15-
14.30. Foreldramorgnar í safnaðarheimili
frá kl. 10-12.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði.
Allir aldurshópar. Umsjón Ásta Sigurðar-
dóttir, cand. theol. Æfing kórs Keflavíkur-
kirkju frá kl. 19.30-22.30.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera á
morgun, fimmtudag kl. 19. Fyrirbænaefn-
um er hægt að koma áleiðis að morgni
fimmtudagsins milli kl. 10-12 í síma 421-
5013. Sóknarprestur. Spilakvöld aldraðra
fimmtudag kl. 20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum, allir velkomnir.
Kl. 17 sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur.
Kl. 20 opið hús í KFUM&K húsinu fyrir ung-
linga í 8.-10. bekk.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Uppl. í síma
565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Fíladelfía. Létt máltíð á vægu verði kl. 18.
Kl. 19 er kennsla og þá er skipt niður í
deildir. Það er krakkaklúbbur fyrir krakka 3-
12 ára, unglingafræðsla fyrir 13-15 ára,
fræðsla fyrir ungt fólk á aldrinum 16-20
ára. Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til
skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitn-
isburðarstundir. Allir velkomnir.
SÍK, Háaleitisbraut 58. Samkoma kl.
20.30. Hjónin Guðlaugur Gíslason og Birna
G. Jónssdóttir tala. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í
safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall.
TTT-starf kl. 17.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Mannakorn
fyrir 11-12 ára kl. 17.30.
Safnaðarstarf
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Hef ég ekki margoft bannað þér að leika
með matinn þinn.
Nei, stopp strákar!
Ekki lyfta með
bakinu, lyfta með
fótunum.
Með morgunkaffinu