Morgunblaðið - 17.04.2002, Page 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 19
www.ef.is
Skoðaðu þessa
frábæru pönnu!
Fást grunnar eða
djúpar og sem
grillpönnur.
24-26-28-30 sm.
Feitislaus steiking.
Hagstætt verð!
3 viðurk
enningar
„Frábær“
hjá
þýskum
neytenda
samtöku
m
Besta steikarpannan
í Evrópu....
samkvæmt dómi þýskra
neytendasamtaka
Opinn fyrirlestur
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands
Odda við Sturlugötu
Sími 525 4500
www.vidskipti.hi.is
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands
Marketing the Nation State
John A. Quelch, prófessor við Harvard háskóla, flytur erindi um mikilvægi
markaðssetningar þjóðríkis nú á tímum þegar mörg fyrirtæki eru alþjóðaleg en
ekki bundin tilteknu þjóðríki. Hann veltir meðal annars fyrir sér hvernig
markaðssetning þjóðríkis getur haft áhrif á útflutning, ferðaiðnað og erlendar
fjárfestingar.
Þurfum við að markaðssetja Ísland með tilliti til ofangreindra þriggja þátta sem
skipta okkur svo miklu máli?
John A. Quelch, prófessor við Harvard háskóla, er víðfrægur
fræðimaður á sínu sviði.
Hann er m.a. sérfræðingur í alþjóðaviðskiptum, alþjóða
markaðssetningu og mannauðsstjórnun og hlutverkum
alþjóðafyrirtækja og þjóðríkja.
Quelch er höfundur og meðhöfundur fjölmargra bóka um ýmis málefni
sem lúta að viðskiptum auk þess sem hann hefur setið í stjórnum ýmissa
stórfyrirtækja og í fjölmörgum ráðgjafanefndum á vegum ríkisstjórna
margra þjóða.
Fundarstjóri er Ágúst Einarsson,
forseti Viðskipta- og hagfræðideildar.
Fyrirlesturinn verður í stofu 101, Lögbergi
föstudaginn 19. apríl, kl. 12 – 13.30.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
0
6
0
1
6
/
si
a.
is
LÍFEYRISSJÓÐIR Bankastræti
keyptu mest þeirra fjögurra aðila
sem keyptu hlutabréf þau sem
Ovalla Trading Ltd. seldi síðastlið-
inn mánudag í Tryggingamiðstöð-
inni hf., TM. Ovalla Trading seldi þá
62,5 milljónir króna að nafnverði
hlutafjár TM, eða 6,71% af heildar-
hlutafénu, á genginu 12,80. Sölu-
verðið nam því 800 milljónum króna.
Lífeyrissjóðir Bankastræti, sem
er samrekstrarfélag Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og Lífeyris-
sjóðs hjúkrunarfræðinga, keyptu um
27,3 milljónir að nafnverði hlutafjár
TM, eða 2,93% af heildarhlutafé fé-
lagsins, fyrir 350 milljónir króna.
Fjárfestingarfélagið Straumur hf.,
Lífeyrissjóður sjómanna og Kaup-
þing banki keyptu hver fyrir sig
rúmlega 11,7 milljónir að nafnverði,
eða 1,26% af heildarhlutafénu, á
kaupverðinu 150 milljónir.
Fyrir þessi viðskipti átti Fjárfest-
ingarfélagið Straumur 0,3% hlut í
TM, sem félagið hafði keypt á um-
liðnum vikum.
Ovalla enn næststærsti hluthafinn
Eftir sölu Ovalla Trading Ltd. á
6,71% hlut í TM er hlutur félagsins
11,31% af heildarhlutafénu. Félagið
er næststærsti hluthafinn í TM, eins
og fyrir söluna, næst á eftir Fram
ehf., félagi fjölskyldu Sigurðar heit-
ins Einarssonar útgerðarmanns úr
Vestmannaeyjum. Þriðji stærsti
hluthafinn er Ísfélag Vestmannaeyja
hf.
Ovalla Trading Ltd. er fjárfest-
ingafélag í eigu Gaums Holding SA
og Austursels ehf. Eigandi Gaums
Holding er Fjárfestingafélagið
Gaumur ehf., sem er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar og barna hans, Krist-
ínar og Jóns Ásgeirs, stjórnarmanns
í TM. Eigandi Austursels ehf. er
Hreinn Loftsson hrl., stjórnarmaður
í TM, fyrrverandi stjórnarformaður.
Straumur selur og kaupir
Hinn 1. mars síðastliðinn seldi
Fjárfestingarfélagið Straumur hf.
öll hlutabréf sín í TM að verðmæti
tæplega 1.700 milljónir króna en það
var Landsbankinn sem keypti þau
bréf. Skömmu fyrir aðalfund TM 19.
mars síðastliðinn seldi Landsbank-
inn fjölskyldu Sigurðar heitins allt
hlutaféð. Eftir þau viðskipti átti fjöl-
skyldan og aðilar tengdir henni
43,29% hlut í TM og fékk fjóra menn
kjörna í stjórn félagsins á aðalfund-
inum og þar með meirihluta.
Þórður Már Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Straums, segir kaupin
endurspegla að Straumur telji fjár-
festingu í hlutabréfum TM vera hag-
stæða á þessu verði. „Straumur tek-
ur ákvarðanir eftir aðstæðum hverju
sinni um kaup og sölu bréfa,“ segir
Þórður.
Hreinn Loftsson vildi í samtali við
Morgunblaðið í gær hvorki tjá sig
um sölu Ovalla Trading á hlutabréf-
um TM né um önnur hugsanleg við-
skipti Ovalla.
Lokaverð hlutabréfa TM á Verð-
bréfaþingi Íslands í gær var 13,30,
hækkaði um 0,10 frá deginum áður,
eða um 0,76%.
Sala Ovalla Trading Ltd. á 6,71% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf.
Lífeyrissjóðir
Bankastræti
keyptu mest
!
"
#
"$%"&'
(
$
)*
&
(
! +"
& ,-
&
(
(
#,.- /
0 "
12#
#
"
& -3
4
"
5
6
7
8
9
:
*
;
<
5=
55
56
57
58
59
5:
5*
5;
5<
6=
6=)
'
ÁRSREIKNINGUR Húsavíkur-
kaupstaðar verður lagður fyrir til
kynningar í bæjarráði Húsavíkur
næstkomandi fimmtudag. Helstu
niðurstöður hans eru að tekjur juk-
ust um 10% milli áranna 2000 og
2001 og námu 812 milljónum króna í
fyrra. Rekstrarkostnaður mála-
flokka jókst á sama tímabili um 5%
og nam 650 milljónum króna.
Greiðslubyrði lána jókst um 70%
og nam 272 milljónum króna. Fjár-
festingar drógust saman um 73%, úr
712 milljónum króna í 190 milljónir
króna.
Útgjöld bæjarins umfram tekjur
námu í fyrra 299 milljónum króna, en
810 milljónum króna árið 2000.
Skuldir samtals, að meðtöldum líf-
eyrisskuldbindingum, jukust um
15% og námu 3,3 milljörðum króna í
árslok 2001. Neikvæð peningaleg
staða að teknu tilliti til lífeyrisskuld-
bindinga nam á sama tíma 2,7 millj-
örðum króna og versnaði um 18% á
milli ára.
15% skulda-
aukning hjá
Húsavíkur-
kaupstað
ACO-TÆKNIVAL hefur verið til-
nefnt til verðlauna í tveimur flokkum
á verðlaunahátíð tæknifyrirtækisins
Cisco Systems sem haldin verður í
Bandaríkjunum 29. apríl til 2. maí nk.
Annarsvegar er fyrirtækið tilnefnt í
flokki fyrir lausn varðandi samruna
síma- og tölvukerfa eða svokallaða IP
Telephony-þjónustu en hinsvegar í
flokki nýjunga, sem veitt eru fyrir
lausnir á venjulegum vandamálum
með nýrri tækni.
Að sögn Magnúsar Bergssonar,
framkvæmdastjóra Kjarnasviðs Aco-
Tæknivals, verðlaunar Cisco Systems
árlega ýmis samstarfsfyrirtæki sín
víðsvegar um heiminn fyrir framúr-
skarandi árangur við lausn verkefna
og þjónustu, til að stuðla að faglegri
starfsemi. „Tilnefningarnar eru mikill
heiður fyrir okkur, enda gerir Cisco
mjög strangar kröfur við mat sitt á
þeim lausnum sem verðlaunaðar eru.
Meðal annnars er metið hvernig var
staðið að framkvæmd verkefna,
hversu langan tíma þau tóku og ekki
síst hversu ánægður viðskiptavinur-
inn er með lausn þeirra.“
Aco-Tækni-
val tilnefnt
til Cisco-
verðlauna