Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 25
Glæsibæ • Simi 545 1500
Örn
Hjálmarsson
Svara a› me›altali 264 spurningum um vei›i á dag
Útilíf hefur á a› skipa sérfræ›ingum í hverri deild og í vei›ideildinni svarar Örn Hjálmarsson
öllum spurningum vi›skiptavina um allt milli himins og jar›ar sem l‡tur a› stangvei›i.
Hva›a línu er best a› nota í straumvatni, hva›a ger› flugu á ma›ur a› nota í Langá í 2. viku
í ágúst, hva› hentar best a› nota í vei›ifer› fjölskyldunnar?
Komdu og spjalla›u vi› Örn um allt sem vi› kemur stangvei›i.
„Vöruúrval á vei›ivörum er nokku› gott á Íslandi. Ég hef leita›
til Útilífs vegna fless a› flar finn ég flær vörur sem hafa reynst
mér best. fiar fæ ég persónulega og faglega fljónustu.“
Haraldur Haraldsson, lei›söguma›ur í Grímsá.
Get ég
a›sto›a›?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
74
78
04
/2
00
2
KOSNINGARNAR í Kólumbíu í
næsta mánuði, þegar nýr forseti
verður kjörinn, gætu markað
þáttaskil í sögu landsins, þar sem
skæruhernaður færist í aukana, og
atvinnuleysi er 18 prósent. En
frambjóðendurnir fara ekki mikið
út á meðal kjósenda, í ljós þess
hverjar hættur þeim eru búnar í
kosningabaráttunni. Hafa kólumb-
ísk stjórnvöld lagt til, að í staðinn
fari kosningabaráttan að mestu
fram í sjónvarpi.
Alvaro Uribe, sem nýtur mests
fylgis frambjóðenda, slapp ómeidd-
ur þegar bílsprengja sprakk
skammt frá bílalest hans á sunnu-
daginn. Þrír létust og 15 særðust,
að sögn embættismanna. Uribe er
harðlínumaður sem heitið hefur
hörðum aðgerðum gegn vinstri-
sinnuðum skæruliðum. Kosning-
arnar í Kólumbíu fara fram 26. maí.
Uribe var á ferð í bílalest í borg-
inni Barranquilla þegar sprengja
sprakk í fólksflutningabíl sem var
lagt við götu er leið Uribes lá um.
Að sögn lögreglu var sprengjan
sprengd með fjarstýringu. Ekki
væri unnt að svo komnu máli að
segja til um hver bæri ábyrgðina.
Uribe kom fram í fjölmiðlum eftir
tilræðið og sagði að sprengjan hefði
verið gífurlega öflug, hann hefði
verið í vandlega brynvörðum bíl,
sem hefði eyðilagst gersamlega.
Þeir sem létust stóðu skammt frá
bílnum sem sprakk.
Kosningabaráttan í Kólumbíu
Frambjóðend-
ur í lífshættu
Alvaro Uribe
Bogota. AP, AFP.
FLUGSTJÓRI kínversku farþega-
þotunnar sem fórst í Suður-Kóreu
með 166 manns um borð tjáði flug-
málafulltrúum í gær að engin vél-
arbilun hefði orðið í vélinni áður
en hún skall til jarðar. Tala þeirra
sem létust í slysinu var í gær kom-
in í 124, en 38 lifðu af. Flugstjór-
inn, Wu Xing Lu, er á sjúkrahúsi,
mikið marinn og hlaut smávægi-
lega heilablæðingu.
Þotan var af gerðinni Boeing
767-200 og var í áætlunarflugi frá
Peking til Kimhae-flugvallar
skammt frá borginni Busan, syðst
á Kóreuskaganum. Vont veður var
í Kimhae er vélin kom inn til lend-
ingar, rigning og þoka. Í annarri
tilraun til lendingar fórst vélin í
fjallshlíð skammt frá flugvellinum.
Flugumferðarstjórar höfðu veitt
lendingarheimild en beðið áhöfn-
ina að fljúga umhverfis flugvöllinn
og gera aðflug úr gagnstæðri átt í
annarri lendingartilrauninni, sök-
um mikils vinds.
Þegar s-kóreskir flugmála-
fulltrúar ræddu við flugstjórann í
gær, í fyrsta sinn eftir slysið, sagði
hann að vélin hefði virkað eðlilega
áður en hún rakst í fjallið. Full-
trúarnir segja að vélin hafi farið
nokkrum kílómetrum lengra en
áætlað hafi verið til þess að breyta
um aðflugsátt, og rakst þá í fjalls-
hlíðina. Slysstaðurinn er í um 4,6
km fjarlægð frá flugbrautinni.
Þetta var í fimmta sinn sem
flugstjórinn flaug til Kimhae, en í
fyrsta sinn sem hann var beðinn
um að fljúga umhverfis flugvöllinn
til að lenda úr gagnstæðri átt.
Ekki var ljóst hvort flugstjórinn
hafði fengið upplýsingar um veð-
urskilyrði og staðhætti við
Kimhae-flugvöll áður en lagt var
upp frá Kína.
Mistök flugmanna
líklegasta orsökin
Flugmálayfirvöld í S-Kóreu hafa
þegar sagt að líklegasta orsök
slyssins séu mistök flugmanna. Í
gær fannst hljóðritinn úr stjórn-
klefa vélarinnar, og kann hann að
veita vísbendingar, en flugriti vél-
arinnar, er geymir tækniupplýs-
ingar um flugið, fannst á mánu-
daginn.
Þetta er í fyrsta sinn sem vél á
vegum Air China ferst, en félagið
var stofnað 1988.
Kóreumenn í ráðhúsi borgar-
innar Kimhae leita að myndum
af ættingjum sínum er fórust í
flugslysinu í Suður-Kóreu.
Segir
enga bil-
un hafa
orðið
Kimhae í S-Kóreu. AP.
Flugstjórinn lifði af er
þotan fórst í S-Kóreu