Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 43

Morgunblaðið - 17.04.2002, Síða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 43 Í minningargrein um Árna Pétur Lund sem birtist 9. mars, var rangt farið með nafn eiganda síldarsöltunarstöðvarinnar Óðins á Raufarhöfn. Vilhjálmur var Jónsson en ekki Einarsson. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessu. Elsku afi. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Aldrei mun ég gleyma þegar ég var lítil stelpa og átti heima í Miðtúni, hversu yndislegt það var að hlaupa með kaldar tásur upp í rúm til þín og ömmu og njóta þess að kúra hjá ykk- ur. Ófáar á ég líka minningarnar úr fjárhúsunum og frá daglegum við- burðum allt árið um kring, þar sem þú leyfðir mér og Halli alltaf að fylgja þér og vappa í kringum þig, sama hvað þú varst að gera. Ynd- isleg voru líka kvöldin þegar þú, ég, pabbi og Hallur löbbuðum heim tún- ið í svarta myrkri eftir kvöldgjöfina og á himninum voru óteljandi stjörn- ur. Amma beið þá alltaf eftir okkur með eitthvað gott, sem hún gerir enn þegar maður kemur heim í Miðtún. Eftir að við fluttum inn á Húsavík er mér það eftirminnilegt hvað við biðum spennt í stofuglugganum eftir því að við sæjum bílinn koma keyr- andi inn í bæinn, okkur fannst alltaf svo gaman að fá þig og ömmu í heim- sókn. Ekki man ég eftir öðru en að hafa þig og ömmu hjá okkur í Brúna- gerðinu á jólunum og mikið held ég að það verði skrýtið um næstu jól þegar þig vantar. Mér er það eftirminnilegt þegar ég labbaði með þig í hjólastólnum í fyrrasumar út í bæ og við keyptum okkur ís í góða veðrinu, þegar þú fórst að spyrja mig hvernig lífið gengi hjá mér. Ég fann hvað það skipti þig miklu máli að mér liði vel og litlu strákunum mínum, þér þótti svo óskaplega vænt um okkur. Síð- ustu orðin sem ég heyrði frá þér voru: „Mikið óskaplega eru þeir ynd- islegir,“ en þá varstu að dást að strákunum mínum sem voru að hnoðast ofan á þér í rúminu þínu. Þessi orð munu ylja mér um hjarta- rætur allt mitt líf og lýsa því svo vel hvernig þú varst. Aldrei man ég eftir því að þú hafir talað til mín öðru vísi en að segja elskan. Elsku afi, ég þakka guði fyrir hvað ég gat setið hjá þér þína síðustu daga og kvatt þig vel. Ég þakka þér allar okkar yndislegu stundir og bið Guð að varðveita þig og blessa. Ég veit að þér líður vel þar sem þú ert. Þín Hróðný Lund. Afi Árni Pétur er dáinn. Ótal góð- ar minningar á ég um hann afa minn, þar sem hann stendur úti á hlaði í Miðtúni að fagna gestum eða kveðja, þar sem við sitjum inni í stofu og spjöllum um gamla tíma eða það sem fyrir hafði borið í síðustu veiðiferð minni á jörð afa og ömmu. Þeim minningum sem ég á um afa minn má skipta í tvennt. Aðrar eru frá því þegar hann var hraustur og vinnandi bóndi sem aldrei sló slöku við; hinar eftir að afi tók að veikjast. Vorið 1990 var ég einu sinni sem oft- ar að vori til í sauðburði hjá afa og ömmu í Miðtúni. Nóg var að gera enda afi með margt fé og á vorin er tími annríkis í sveit. Ég man þann dag enn svo vel þegar ég var ásamt þeim frændsystkinum mínum Árna Pétri og Hróðnýju með afa í fjárhús- unum þegar ég tók eftir að eitthvað ÁRNI PÉTUR LUND ✝ Kristján ÁrniPétur Lund fæddist á Raufar- höfn 9. september 1919. Hann lést á öldrunardeild Sjúkrahúss Húsavík- ur 1. mars síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Snartar- staðakirkju 9. mars. var að afa. Hann sagði eitthvað fyrst sem við skildum ekki og hneig svo niður. Þetta var í annað skiptið sem afi fékk blóðtappa og eftir þetta náði hann aldrei fyrri heilsu. Oft var afa vart hugað líf en að vera með sterkt hjarta og löngun til að lifa sýnir að marga raunina er hægt að yfirstíga þrátt fyrir slæmar horfur. Þegar ég hugsa um öll þessi skipti sem afi var veikur á spítala sé ég að óbilandi löngun afa til að lifa og sjá ástvini sína var hans sterkasta vopn í erfiðum veikindum, enda var afi alltaf í góðu skapi og þótti vænt um allt og alla. Í Miðtúni var og er gott að vera og mér finnst ekkert jafnast á við dvöl þar, hvort sem er í langan eða stutt- an tíma. Melrakkasléttan þar sem afi Árni Pétur og amma Helga byggðu sitt bú er einstök náttúruparadís þar sem maðurinn spilar jafnmikilvægt hlutverk og aðrar lífverur. Það er ógerningur annað en að hrífast af mikilfengleika náttúrunnar á svona stað. Mergð einstakra fuglategunda, iðandi líf í fjörum og móum sem og upp til heiða. Mikilvægt varpsvæði rjúpna gerir það að verkum að fálki á veiðum er dagleg sjón, mikið magn andfugla, vaðfugla, máfa og spör- fugla bætir svo flóruna enn frekar. Svo á veturna þegar frostið bítur má sjá kindur á beit í fjörunni og krumma í ætisleit. Af þessu um- hverfi mótast þeir sem þar búa og kennir fólki að meta lífið á sinn hátt. Það gerði afi tvímælalaust og bauð alla þá velkomna til sín og ömmu sem höfðu löngun til að dveljast á Slétt- unni. Ég man enn hve mikið ég hlakkaði alltaf til að fara norður í Miðtún á vorin og kom fyrir að ég vaknaði sem strákur, búinn að dreyma alla nótt- ina að fjölskyldan væri á leið í sveit- ina til afa og ömmu. Að fara á hest- bak, keyra traktor, veiða á bryggj- unni, smala eða hjálpa afa við eitthvað annað var það sem dró huga minn norður á Sléttu, og svo auðvit- að að vera bara í kringum ömmu og afa. Þarna eignaðist maður góða vini enda margir frændur og frænkur sem hittust á Leirhafnartorfunni á sumrin. Þessi hópur skyldmenna er enn mjög samhentur og meira en það, einnig bestu vinir. Afi gat stundum verið snöggur upp en var jafnfljótur niður aftur og alltaf vissi maður að þótt maður fengi skammir fyrir að gera það sem ekki mátti eða ekki átti að gera var það strax gleymt hjá afa. Hann kall- aði okkur frændurna og syni sína helst aldrei réttum nöfnum enda mörg nöfnin sem skipuðu stóran sess hjá honum. Þetta var einkenni afa sem gaman var að. Ef hann vantaði eitthvað gat ávarpið verið eitthvað á þessa leið: „Æi, Grímur minn, Ninni minn, Elvar minn, eða nafni minn, viltu finna fyrir mig...“ eða bara „heyrðu elskan...“ Hinsvegar var maður yfirleitt búinn að átta sig löngu áður en hann hafði sagt rétta nafnið, sem þýddi einfaldlega að hann var að tala til þess sem næstur var í það skiptið. Svona man ég afa minn alla tíð. Eftir að árin urðu fleiri og ég hafði fengið bílpróf urðu ferðirnar í Mið- tún einnig fleiri og annað var haft fyrir stafni á Sléttunni. Samt var alltaf best að hitta bara afa og ömmu. Haustið eftir að ég lauk grunnskóla vann ég í sláturhúsinu á Kópaskeri en bjó í Miðtúni hjá afa og ömmu. Þessi tími er mér ógleymanlegur, að vera einn hjá ömmu og afa og búa í Miðtúni með þeim þótt ekki hafi það verið langur tími. Veiðimennsku hef ég hlotið í arf og ekki finnst betri staður til að stunda hana en norður á Melrakkasléttu. Eins og ég hef minnst á áður er mergð einstakra fuglategunda þar mikil og má þá nefna sérstaklega tegundir eins og rjúpu og grágæs. Margar hafa ferð- irnar verið norður til að fara á gæs, sem er einstaklega gaman, enda ræður maður sér sjálfur þar og að upplifa náttúruna við veiðiskap er einstök upplifun. Þótt Melrakka- sléttan sé nærri eins langt frá suð- vesturhorni landsins og hægt er þá skiptir vegalengdin engu máli. Það er góður staður og hafa margir vinir mínir sem þangað hafa fengið að koma haft orð á því hve þar er frá- bært og vilja fara oftar. Ekki vant- aði, að afi og amma byðu þá hjart- anlega velkomna. Næst þegar ég legg leið mína norður með Helga bróður, Halli og Vigni frænda, eða hverjum þeim sem verður með í för í það skiptið, mun afi ekki vera þar til að taka á móti okkur. Ég veit hins vegar að ég og aðrir munum hugsa mikið til hans og vonandi hefur hann auga með okkur. Ég hef oft öfundað pabba og bræður hans yfir að fá að njóta þeirra forréttinda að alast upp á slík- um stað sem Melrakkasléttan er. Þegar þeir voru ungir var margt fólk á nálægum bæjum og mikið líf í sveitinni. Mikið langaði mig að búa þar þegar ég var yngri og hefur það enn ekki breyst. Afa fannst alltaf gaman að heyra hve mér og öðrum leið vel í sveitinni hans og þegar hann var á spítalanum á Húsavík þar sem ég heimsótti hann alltaf á leið út á Sléttu sagði ég honum oft hve mig hefði langað að taka við búinu hans, ef ég hefði verið aðeins eldri þegar hann varð að hætta búskap. Það þótti afa vænt að heyra en vissi þó að kindurnar hans og búið gætu ekki verið í betri höndum en hjá Kidda frænda og Þóru í Reistarnesi. Fjár- maður var afi með eindæmum góður og þekkti hann hverja kind í hús- unum þótt öðrum þættu þær nánast eins. Fyrir um þremur árum átti hann þess kost að fara í fjárhús með Halli frænda ekki langt frá Húsavík, þá hættur búskap fyrir löngu og bú- inn að vera á sjúkrahúsinu í langan tíma. Hallur minnist þess að þegar afi kom inn í fjárhúsin hafi hann allur lifnað við og stokkið ofan í krærnar, maður sem þurfti hjálp við að standa upp og leggjast dags daglega. Ekki þurfti afi nema rétt að taka í lamb- hrút einn, finna á honum skrokkinn, þá gat hann sagt til um rétta vigt. Þetta hafði hann einfaldlega í sér. Þegar ég hugsa til baka er ég um- fram allt stoltur af afa mínum enda var hann hörku duglegur til allrar vinnu, vinur eins og þeir gerast best- ir, barngóður með eindæmum, vel að sér um margt og framúrskarandi góður í því sem skipti máli til að byggja bú á harðbýlu landi. Svo heyrði ég afa aldrei lasta neinum manni. Við og afi vissum að hverju stefndi og tími hans var kominn. Samt er söknuðurinn mikill enda þótti mér mikið vænt um hann eins og honum um mig, og alla afkom- endur sína. Ég kveð nú afa minn Árna Pétur með þessum orðum og veit að honum líður nú vel þar sem hann er. Guð geymi þig elsku afi minn og blessi minningu þína. Þinn Elvar Árni Lund. Mig langar að minnast Árna P. Lund með nokkrum kveðjuorðum. Fyrir tæplega hálfri öld ólst ég upp ásamt stórum frændsystkina- hópi norður á Melrakkasléttu þar sem tíminn stóð nánast í stað öll bernskuárin og veröldin afmarkaðist af fjallahringnum og ströndinn kringum bæina okkar. Í minning- unni var þetta fallegur tími þar sem barnið þekkti árstíðirnar af lyktinni og birtunni, það er eins og hafi alltaf verið sólskin. Til að skapa þessa minningu í huga þarf einstakt gott mannlíf. Árni Pétur í Miðtúni var einn af bændunum á neðri bæjunum á Leirhafnartorfunni maður Helgu frænku minnar, hinir voru bræður hennar Kristján og Steinar faðir minn sem nú eru báðir látnir. Þetta fólk sem þarna bjó á efri og neðri bæjunum var allt frændfólk með sína maka. Árni Pétur var einn af piltunum hans afa míns og piltarnir hans afa voru pabbarnir og aðrir vinnandi menn. Það var alltaf svo mikil hlýja í orðunum hans afa míns. Hann vann í smiðjunni sinni alla daga nánast blindur maður, en spurði ömmu og okkur krakkana oft hvað eru piltarn- ir að sýsla í dag. Piltarnir hans afa míns voru alltaf eitthvað að sýsla, það þurfti að byggja hús og rækta tún, heyja, smala, róa til fiskjar og fara á greni, stundum skroppið í síld- arvinnu austur á Raufarhöfn. Sam- vinnan var mikil og okkur fannst sjálfsagt að bændurnir væru nefndir í sömu andránni. Í öllu þessum verk- um var Árni Pétur afburða duglegur maður. Þau hjónin reistu sér íbúðar- hús og nefndu það Miðtún. Árin liðu hvert af öðru, bændun- um búnaðist nokkuð vel og búin urðu stærri. Þar var Árni Pétur fremstur í flokki, hann hafði ræktað upp gott fjárbú af miklum dugnaði. Það fædd- ust alltaf fleiri og fleiri börn á Slétt- unni. Hjá hjónunum í Miðtúni voru fæddir sex duglegir strákar og myndin í huganum tengist litlum strákhnokkum sem Árni Pétur er að leiða yfir tún og móa, er litlu hend- urnar stækkuðu var farið að grípa í verk og fá hrós fyrir. Í mínum huga hefur Miðtúns- heimilið alltaf verið tengt glaðværu fólki. Helga frænka mín með sinn skemmtilega húmor og bóndi hennar snöggur uppá lagið brosir í kampinn með pípustertinn, einhverjir gestir við eldhúsborðið og alltaf pláss fyrir fleiri. Synirnir að koma eða fara og segja frá einhverju skemmtilegu. Þessi tími bernskunnar þar sem eng- inn hafði dáið, en mörg börn fæðst tók enda. Við vorum minnt á að allt á sitt upphaf og sinn endi, það var eins með sumarið á Sléttunni. Þar kom líka haust og vetur og á tímabili þótti okkur nóg um kveðjustundirnar, en við eigum minningu um okkar sam- ferðafólk sem gaf okkur hlýju og ást til að vera þær manneskjur sem við erum í dag. Þjóðfélagið var að breyt- ast úr bændaþjóðfélagi yfir í þéttari byggð með öðrum atvinnugreinum og unga fólkið af Sléttunni aflaði sér menntunar, stofnaði heimili og sett- ist ekki að í sveitinni. Við kynntum makana okkar og síðan börnin hvert af öðru fyrir fjölskyldunni okkar í sveitinni. Þar var okkur tekið opnum örmum. Allir voru velkomnir. Þar var Miðtúnsheimilið sem okkar ann- að heimili. Þar var komið fullt af barnabörnum og nú voru það aðrar litlar hendur sem Árni Pétur leiddi og sýndi fjárhúsin sín og kindurnar. Það var sama hlýjan og áhuginn í orðunum hans Árna Péturs og áður í orðum afa míns þegar Árni Pétur ræddi um tengdadætunar og barna- börnin sín. Ég var eitt sinn spurð að því hvernig er þetta með hann frænda þinn úr Miðtúni, hann talar alltaf svo fallega um konuna sína, ég hló og sagði þeir gera þetta allir, þeir hafa lært þetta af föður sínum, hann talar alltaf um Helgu sína í þessum sama tón.Við frændsystkinin sem ólumst upp saman eigum góðar minningar um gott mannlíf sem þessi kynslóð bjó okkur. Steinar faðir minn dvaldi hjá systur sinni og mági síðustu árin sín, þar leið honum svo vel, alltaf svo gott að borða hjá Helgu minni, sagði hann. Kristinn bróðir minn tók við fjárbúinu í Miðtúni og ræktar áfram sauðfé á Sléttunni. Árni Pétur var orðinn aldraður maður, hann dvaldi á Sjúkrahúsi Húsavíkur síðustu árin en hann fylgdist vel með búskapnum í sveitinni sinni og var alltaf að spyrja frétta. Minningin um góðan mann lifir og þegar nýr dagur rís þá hverfa stjörnurnar ekki, heldur um- vefur þær svo mikil birta að við sjáum þær ekki lengur. Helgu frænku minni, frændum mínum í Miðtúni og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína. Sesselja Steinarsdóttir. og það var af fullri einlægni að hann jafnan tók málstað þeirra sem aðrir hæddust að. Þá hafði hann oft aðrar útgáfur af atburðum sem flestir hafa sannmælst um í opinberum rétttrún- aði. Hetjur voru ekki heilagar í hans augum, jafnvel þvert á móti. Árni Jón gat að sönnu verið óvæg- inn og jafnvel einsýnn, en hann stóð líka í margri baráttunni einn og tók oft til máls þegar aðrir kusu að þegja af hagkvæmnisástæðum eða af ótta við yfirvöld staðarins. Slíkir menn eiga oft fleiri en einn reisupassa, en ég hygg að þeir séu frekar veigalítil plögg þegar hið stóra vegabréf eilífð- arinnar er opnað. Ég vil að lokum þakka Árna Jóni kynnin og sendi aðstandendum hans samúðarkveðjur. Einar Már Guðmundsson. Þeim fækkar gömlu stríðshetjun- um. Nú þegar ég kveð í dag tengda- föður minn sem látinn er eftir erfiða baráttu síðustu vikna kemur margt upp í hugann. Þegar Árni Jóhannsson er fallinn frá er horfinn einn af litrík- ari persónuleikum úr þeim hópi manna sem stunduðu sjóinn á tímum hins vitfirringslega hildarleiks seinni heimsstyrjaldarinnar. Sjómennska á slíkum tímum setur óafmáanlegt mark sitt á þá sem af komast en okk- ur sem þekkjum slíka hluti einungis af afspurn eða af bíómyndum veitist oft erfitt að setja okkur í spor þeirra sem hildirnar háðu og hættir til að gera grín að því sem við þekkjum ekki. Árni byrjaði ungur til sjós og sigldi á strandferðaskipum, farskipum og togurum lungann úr sinni starfsævi. Eftir að sjómennsku lauk vann hann árum saman hjá Áburðarverksmiðj- unni í Gufunesi þar til að starfslokum kom. Á langri starfsævi kynntist hann mörgum og kom víða við en allt- af voru sterkastar taugarnar til Eim- skips þar sem hann sigldi sín mann- dómsár og mótaðist kannski hvað mest á þeim tíma. Tengslum sínum við Eimskip hélt hann til hins síðasta, mætti þar á aðalfund ár hvert og var ófeiminn við að bera þar upp mál og segja skoðun sína á því sem betur mætti fara. Árni var reyndar alltaf óhræddur við að láta álit sitt í ljós og hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, jafnvel svo sumum fannst oft nóg um en aðrir höfðu jafnvel gaman af. Árni var félagshyggjumaður og einlægur sósíalisti, tók virkan þátt í baráttu sinna stéttarfélaga, tók alltaf málstað minnimáttar og lagði góðum málefnum lið þegar honum fannst þess þurfa með. Hann fæddist og ólst upp í Reykjavík kreppuáranna og þurfti ungur að bjarga sér sjálfur. Hann fór sem unglingur í sveit í Fljótshlíð og hafði oft uppi minningar frá dvöl sinni í sveitinni. Síðar á lífs- leiðinni eignaðist hann kindur sjálfur sem hann hugsaði um í frístundum sér til mikillar ánægju. Árni kynnist Díu að stríðinu loknu og saman eyddu þau í blíðu og stríðu rúmum fimmtíu árum. Börnum henn- ar tveim gekk hann í föðurstað og saman eignuðust þau sín fjögur börn sem öll eiga sínar fjölskyldur og af- komendahópurinn er orðinn býsna stór. Það kostaði mikla vinnu að sjá fyrir stóru heimili en saman eignuðust þau sitt eigið húsnæði, fyrst í Smáíbúða- hverfinu og síðustu áratugina bjuggu þau í húsi sínu sem þau byggðu sér í Breiðholtinu þar sem barnabörnin áttu margar stundir með afa og ömmu. Er starfsævi lauk og hægðist um gátu þau gert meira fyrir sig sjálf, ferðalög og heimsóknir til barna þeirra erlendis urðu hluti af tilver- unni og fóru þau t.d. tvisvar í siglingu til Evrópu með skipum Eimskips. Kæri tengdapabbi, síðustu tvö ár voru þér erfið og oft sárt að geta ekki gert meira til að létta þér tilveruna, en að leiðarlokum hér vil ég þakka þér samveruna, siglingar sem við fór- um saman o.fl. og bið guð og góðar vættir að leiða þig og vernda á nýjum siglingarleiðum. Fyrir hönd aðstand- enda vil ég þakka starfsfólki Land- spítala fyrir frábæra umönnun í veik- indum Árna. Guð styrki ykkar starf. Trausti Ingólfsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.