Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 45

Morgunblaðið - 17.04.2002, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 45 ✝ Katrín Sigur-geirsdóttir fædd- ist á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit 9. mars 1905. Hún lést á Kristnesspítala 24. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurgeir Sig- urðsson, f. 1. júní 1852, d. 26. maí 1910, og síðari kona hans Helga Halldórsdóttir, f. 13. jan. 1864, d. 24. okt. 1945. Þau bjuggu allan sinn búskap á Öngulsstöðum. Katr- ín var yngst af sjö systkinum sem upp komust, en þau eru nú öll látin fyrir allmörgum árum. Hálfsystk- ini Katrínar af fyrra hjónabandi föður hennar voru Sigurlína, f. 9. apríl 1879, d. 13. jan. 1968, bjó á Akureyri, og Sigurður bóndi á Syðra-Hóli í Kaupangssveit, f. 27. júní 1880, d. 21. júlí 1949. Albræð- ur Katrínar voru Kristinn bóndi á Öngulsstöðum, f. 18. apríl 1890, d. 14. nóv. 1966, Halldór bóndi á Öngulsstöðum, f. 13. des. 1891, d. 25. febr. 1967, Valdemar mjólkur- bílstjóri á Önguls- stöðum, f. 24. apríl 1894, d. 18. jan. 1952, og Garðar bóndi á Staðarhóli f. 6. sept. 1899, d. 21. júlí 1980. Katrín giftist 12. júní 1926 Þórði Jónatans- syni, f. á Þórðarstöð- um í Fnjóskadal 2. júlí 1893, d. 3. des. 1976, og bjuggu þau á Öngulsstöðum til 1965 er þau létu af búskap. Börn þeirra eru: Jónína, f. 25. sept. 1927, maður hennar er Ragnar Bollason, þau búa á Bjargi og eiga þrjú börn, Sigurhelga, f. 18. mars 1931, Birgir, f. 24. jan. 1934, þau búa á Öngulsstöðum II, og Ragn- heiður, f. 9. sept. 1940, maður hennar er Friðrik Jónsson, þau búa í Brekku og eiga fimm börn. Barnabörn Katrínar og Þórðar eru átta, barnabarnabörn fimm- tán og barnabarnabarnabörn eru sex. Útför Katrínar fór fram frá Munkaþverárkirkju 3. apríl. Katrínu kynntist ég fyrst 10 ára gamall þegar ég fór til hennar í sveit en Katrín var gift Þórði Jónatanssyni sem var hálfbróðir Jónasar Tómas- sonar afa míns, en þeir voru sam- mæðra. Það var ekki auðvelt að fara frá for- eldrum sínum í fyrsta skipti í svona langan tíma. Sérstaklega þegar for- eldrarnir reyndu yfirleitt að vera mik- ið með okkur krökkunum. En þegar eitthvað var erfitt hjá 10 ára guttan- um var Katrín til staðar, alveg ótrú- lega mild og góðhjörtuð kona sem maður fór mjög fljótlega að líta upp til og virða. Ég var hjá henni í fögur og hálft sumar. Fljótlega eftir að ég kom tók ég eftir því, að aðrir krakkar á bænum kölluðu Katrínu alltaf ömmu svo ég fór að gera það líka og því hélt ég áfram allan þennan tíma, þó að ég hafi verið á 15. ári þegar ég var hjá henni síðasta sumarið. Á þessum aldri tók maður upp á alls konar uppátækjum sem komu náttúrlega misilla við fólk, en það var alltaf sama hjá Katrínu, maður heyrði aldrei annað en: ,,Jaa, Sigurjón“ eða eitthvað í þá áttina. Það má segja að þau hafi nú verið svona öll á bænum, Þórður brosti mikið og var yfirleitt hvetjandi. Börn þeirra, Birgir og Sig- urhelga sem bjuggu á bænum, voru mér aldrei annað en góður skóli og góðar fyrirmyndir, en ég var líklega það sem kallað er í dag ofvirkur og það var ekki alltaf auðvelt að halda aftur af stráknum, en þau höfðu nú sitt lag á hlutunum. Ég heimsótti þau systkinin fyrir einum 10 árum og var Katrín þá orðin frekar lasleg. Hún gleymdi hlutum og átti það til að gleyma nöfnum barna sinna sem umgengust hana daglega. En eins og gerist með svona fullorðið fólk mundi hún mjög vel eftir mér, en ég hafði þá ekki hitt hana í ein 15–20 ár og voru það mjög skemmtilegar umræður sem við áttum um liðna tíma. Var það í síðasta skipti sem ég hitti Katrínu og er ég mjög þakklátur að hafa litið til hennar þá. Stuttu seinna var hún flutt að hjúkrunar- heimilinu á Kristnesi þar sem hún svo lést, en ég hef alltaf fengið að fylgjast með heilsufari hennar seinasta ára- tuginn. Einnig var ég svo lánsamur að kynnast Jónínu, elstu dóttur þeirra hjóna, og manni hennar, Ragnari Bollasyni, en þau búa á Bjargi, sem er næsti bær við. Hann var mjólkurbíl- stjóri þarna í sveitinni og brölluðum við heilmikið saman. Þau áttu þrjú börn sem ég kynntist og var ég einna mest með yngsta barni þeirra, Bolla, sem ég hef átt sem vin alla tíð síðan. Því miður kynntist ég lítið yngsta barni þeirra Þórðar og Katrínar, Ragnheiði, en hún býr á Brekku og þangað var of langt að labba. Ég sendi öllum aðstandendum Katrínar innilegustu samúðarkveðjur og vona að við eigum eftir að halda því sambandi sem við höfum haft. Sigurjón R. Ingvarsson. Síðast er ég sá þig sastu meðal rósa er þú eigin höndum annast mjúklátt hafðir. Frostnótt hefur fölva fegurð þeirra slegið eins og aldurtili ásýnd þína bjarta. Vaknar jurt á vori vetrar upp af dái. Sálin sefur ekki, sofni ég, mig dreymir. Viðnám stríðra vinda vængi hennar styrkir fyrir hæsta flugið, fjöllum ofar bröttum. Himinninn á hæli handa hverju barni sínu, sérhvers hnattar. Sól er allra móðir. Grátum eigi, gleðjumst, gata hver er heimleið, villugjörn, en vörðuð vitum, Drottins orði. (Kristján frá Djúpalæk.) Þínar frænkur Halla og Helga Sigríður. KATRÍN SIGUR- GEIRSDÓTTIR Í fáum orðum lang- ar mig til að kveðja Guðrúnu Jónsdóttur nágranna minn sem lést á heimili sínu 28. febrúar. Við höfum verið nágrannar í sama húsi í rúma tvo áratugi en við ungu hjónin flutt- um á efri hæðina í Bryggjuhúsi í Innbænum og bjuggu Ási og Gunna á neðri hæðinni. Við vorum að hefja búskap en þau voru búinn að koma öllum sínum börnum til manns og farinn að reskjast. Þau tóku vel á móti okkur og hefur sambýlið verið gott allan tíman. Við vorum sam- taka um að halda húsinu okkar við, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR ✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist á Selaklöpp í Hrísey í Eyjafirði 13. nóvem- ber 1922. Hún lést 28. febrúar síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Ak- ureyrarkirkju 8. mars. bæði að innan og utan eins og efni stóðu til enda voru þau bæði hjónin áfram um að hafa snyrtilegt í kring- um sig og sá Guðrún um hafa blóm í garð- inum og ýta á eftir að honum yrði sinnt sómasamlega. Fljót- lega kom upp sú hefð að þegar húsfreyjurn- ar stóðu í bakstri, naut nágranninn góðs af. Vorum við karlmenn- irnir mjög ánægðir með þetta fyrirkomu- lag. Meðan börnin mín voru lítil, stálust þau í heimsókn á neðri hæð- ina, sögðust vera svöng og fengu þá iðulega eitthvað í gogginn. Það hef- ur eflaust ekki verið neitt grín að búa undir svona barnafjölskyldu þar sem lætin gátu keyrt um þver- bak. En ekki var verið að kvarta yf- ir því nema þegar ljósakrónan í stofunni fór að sveiflast ískyggilega. Það var alltaf mikið af börnum kringum Guðrúnu. Hún kom mér fyrir sjónir sem ættmóðirinn sem allir leituðu til enda var hún stolt af sínu fólki og fylgdist vel með öllum í fjölskyldunni. Var mjög gest- kvæmt hjá þeim hjónum. Eftir að Ási og Gunna kláruðu vinnudaginn og settust í helgan stein, má segja að þau hafi haldist inni í hringrás lífsins því það leið vart sá dagur að eitthvert barnið eða barnabarnið kæmi ekki í heimsókn. Þetta var hálfgerð umferðarmiðstöð hjá þeim og höfðu þau mikla ánægju af. Það er ekki hægt að segja annað en börn þeirra hafi sýnt þeim mikla ræktarsemi sem skortir oft á nú til dags. Ég hefði óskað Guðrúnu betri heilsu síðustu árin en elli kerling lætur ekki að sér hæða. Við fjölskyldan höfum misst góð- an nágranna og vin og sendum Ása, börnum þeirra og barnabörnum samúðarkveðjur. Frosti Meldal. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.             0+ A  0+ A  "$  " ("  %          ,              *// + (  $ "0D$$%  ! 2  $ ! " 4"  0D$$% 0 0D$ ! " + (:  "( $$%   ) %     ) * !    "   "   #3H 2#10 11. 8 "> ;8      5$    )     * &! ( #!$$% &! &! ( ! " !: ( &! ( ! " " 8!8 $$% #!$&! ( $% +  $ ! " 28 : &! ( $% %   ) * 6  ' #  3  $  & 3 &     $  !  -3             1, 1.-241     75I> ;8* .%  ' !   & $  "    &  &%  $ ! " +;"1  $ $% " ( ($ ! " 1  $  ! "   $" $$%  0D$1  $ $%   +  $ ! "  "(  1  $ $% " D D ! "   ) %     ) * 7     '   '  3   $  & 3&     $              . 1# #*0*#  5 H$" ("* #!3 !$ ! " #!&* "$ 8'$$%  8) $.$ ! " 0D$ "$ 8'$$% " #!$$ ! " &%  ( 0* "$ 8'$ ! " = .*= $$% . "("* "$ 8'$$%  E %;0* "$ 8'$$% ) (  "$ 8'$$%  (*  $ ! "  "$ 8' * "$ 8'$$% + (?"(J ! "   ) %     ) * 6  ' #  3  $        $  !    " "  "   +,- K#. .-11, 8@( ;8* 0D$ "$ ! $$% 0  = ' *0D$ ! " ."    " 8!$$%   ) %     ) * !        24 4.1 .+,# ;":"$  " "@":""$' ;   FL    , -   .     *     :$ ! " &! @ #*2 " $$% ." 8) #!$2 " $ ! " &% $ "#!@$$% &! 2 " $ ! " . * "$$% 2 "  2 " $ ! " .9!  " ($$%  "$ 8'D"2 " $$% 2" &%  $ ! " %   ) *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.