Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRIÐRIK Jens Guð- mundsson, fulltrúi á Skattstofunni í Reykjavík, er látinn, á 77. aldursári. Hann var á sínum tíma í þeim hópi frjálsíþrótta- manna sem „íslenska íþróttavorið“ er kennt við. Friðrik ólst upp í Vesturbænum, lauk Samvinnuskólaprófi árið 1945 og starfaði lengi hjá Olíuverslun Íslands. Síðan vann hann hjá Skattstofu Reykjavíkur þar til hann lét af störf- um. Friðrik var KR-ingur og stundaði glímu og frjálsar íþróttir um árabil. Ungur hóf Friðrik að stunda íþróttir hjá KR og varð einn af fremstu frjálsíþrótta- mönnum landsins. Keppti í kúluvarpi og kringlukasti frá stríðs- lokum og fram á sjöunda áratuginn. Friðrik varð Íslandsmeistari í kúlu- varpi 1948 og 1952 og meistari í kringlukasti 1949. Hann var í lands- liði Íslands í frjálsíþrótt- um árum saman. Friðrik fæddist í Reykjavík 9. nóvember 1925. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbaut 16. apríl síð- astliðinn. Árið 1945 kvæntist Friðrik eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Sigurjónsdóttur, sérkennara, f. 1925. Þau eignuðust fimm dætur og einn son sem lifa föður sinn. Andlát FRIÐRIK JENS GUÐMUNDSSON VERÐMÆTI húsnæðis undir lík- amsræktarstöð í nýjum höfuðstöðv- um Orkuveitu Reykjavíkur á Rétt- arhálsi er 28 milljónir króna, sam- kvæmt svari Þorvaldar Stefáns Jónssonar, framkvæmdastjóra byggingarnefndar, við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks sem lagt var fram í borgarráði á þriðju- dag. Í svarinu segir að líkamsræktarað- stöðunni sé ætlað pláss fyrir ofan tækjarými í húsinu þar sem verða spennustöðvar og varaaflstöðvar fyr- ir húsið. Fyrir ofan líkamsræktar- stöðina sé fyrirlestrarsalur með hall- andi gólfi sem geri lofthæðina an- kannalega. Umrætt húsnæði myndi því aðeins nýtast sem geymsluhús- næði væri það ekki nýtt fyrir þessa starfsemi. Starfsemi líkamsræktar- stöðvarinnar hefur verið boðin út og mun Orkuveitan ekki eiga tæki í hús- inu, heldur einungis varanlegar inn- réttingar og er vonast til að leigan sem greidd verði fyrir húsnæðið verði hærri en kostnaðurinn af því. Fyrir sameiningu veitnanna var 320 fermetra líkamsræktaraðstaða í húsnæði Rafveitu og Vatnsveitu en engin hjá Hitaveitu. Þar fyrir utan voru sturtur, gufuböð og búningsað- staða á um 340 fermetrum. Þá segir í svari Þorvaldar að veiturnar hafi átt allan búnað og greitt þjálfurum laun en starfsmenn hafi ekki greitt fyrir aðgang að stöðinni. Komið hefur fram að í nýju líkamsræktarstöðinni muni starfsmenn þurfa að greiða fyr- ir afnot af stöðinni, en OR mun styrkja starfsmenn til að stunda lík- amsrækt þar sem þeir vilja. Nýja Orkuveituhúsið er sam- starfsverkefni tveggja arkitekta- stofa, Hornsteina arkitekta ehf. og Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar hf. Einnig komu verkfæræðistofurn- ar Línuhönnun, Almenna verkfræði- stofan, Fjarhitun, Rafhönnun og VSÓ að hönnun hússins. Nýjar höfuðstöðvar OR Kostnaður við líkamsræktarað- stöðu 28 milljónir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða fyrrverandi kennara við Menntaskólann að Laugarvatni rúm- ar 5 milljónir sem um samdist milli kennarans og stjórnenda skólans þegar gerður var starfslokasamning- ur við kennarann á síðasta ári. Samningurinn var gerður í júlí í fyrra að ósk stjórnenda ML og var sendur ríkisféhirði. Áður höfðu skólayfirvöld rætt við menntamála- ráðuneytið um málið og kynnt efni samningsins munnlega. Mennta- málaráðuneytið taldi hins vegar að ákvörðun um starfslokasamninginn hefði hvorki verið borin formlega undir ráðuneytið né fjármálaráðu- neytið. Eftir nokkur bréfaskipti hafnaði fjármálaráðuneytið því að flokka samninginn undir ófyrirséð útgjöld og óska eftir aukafjárveitingu vegna hans. Menntamálaráðuneytið óskaði eftir því við fjárlaganefnd Al- þingis að fá fjárheimild til að efna samninginn en því var hafnað í des- ember 2001. Því taldi íslenska ríkið að lagastoð skorti fyrir því að greiðsla samkvæmt samningnum yrði innt af hendi úr ríkissjóði og því væri hann ógildur og óskuldbindandi fyrir ríkið. Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að starfslokasamn- ingurinn kvæði á um gagnkvæmar skuldbindingar samningsaðila án fyrirvara. Ríkið hefði ekki staðið við sinn hluta samningsins eða boðist til að rétta hlut kennarans á neinn hátt. Kennarinn hefði hins vegar efnt skyldur sínar sem fólu í sér missi starfs og áunninna lögbundinna rétt- inda svo og samningsbundins réttar til húsnæðis. Þessa hefði ríkið orðið aðnjótandi og orðið, hvað sem öðru liði við þetta, skuldbundið gagnvart kennaranum að efna samninginn að sínum hluta. Mál fyrrverandi kennara við menntaskóla fyrir héraðsdómi Ríkið dæmt til uppgjörs starfslokasamnings MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstarétt- arlögmanni fyrir hönd Guðmundar Sigþórssonar, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu: „Í fjölmiðlum undanfarna daga hafa komið fram getgátur um, að flutningur umbjóðanda míns, Guð- mundar Sigþórssonar, skrifstofu- stjóra í landbúnaðarráðuneytinu, til starfa í Brussel næstkomandi haust standi í sambandi við greiðslur þær á þóknun fyrir störf í framkvæmda- nefnd búvörusamninga, sem fyrir mistök var greidd inn á banka- reikninga hans og tveggja annarra nefndarmanna 13. febrúar sl. en þeir bakfærðu strax og þeim varð ljóst að greiðslurnar höfðu átt sér stað. Af þessu tilefni er nauðsynlegt að taka fram, að ekkert samband er milli þessara tveggja mála. Fyrir- ætlanir um að Guðmundur Sigþórs- son taki þann 1. september nk. tímabundið við starfi sem fulltrúi landbúnaðarráðuneytisins við sendiráð Íslands í Brussel til að vera tengiliður ráðuneytisins við EFTA, ESA og aðrar stofnanir EES, svo og ESB og aðildarríki þess, hafa verið á döfinni í landbún- aðarráðuneytinu um nokkurra mánaða skeið og voru til komnar áður en hitt málið kom upp. Ákvörðun um tilflutninginn var tek- in í fullu samráði við Guðmund Sig- þórsson. Hitt er hins vegar rétt, sem fram hefur komið með skýrum hætti undanfarna daga, að samstarfsörð- ugleikar hafa verið milli æðstu embættismanna landbúnaðarráðu- neytinu, þ.e.a.s. ráðuneytisstjórans Guðmundar B. Helgasonar og stað- gengils hans, Guðmundar Sigþórs- sonar, skrifstofustjóra. Með sam- komulaginu um að Guðmundur Sigþórsson taki við starfinu í Brussel er úr þeim vanda bætt. Unnt er að leita staðfestingar á þeim upplýsingum, sem hér koma fram, hjá landbúnaðarráðherra Guðna Ágústssyni.“ Flutningur til Brussel á döfinni um skeið UNGIR sjálfstæðismenn í Reykja- vík settu í gær af stað það sem þeir kalla Skuldaklukku borgarinnar en hún á að sýna skuldaaukningu Reykjavíkur eins og hún er í raun- tíma. Klukkan er staðsett í Kringl- unni en hugmyndin er að færa hana milli staða fram að kosningum. Það er Samband ungra sjálfstæð- ismanna sem stendur fyrir uppsetn- ingu klukkunnar og segir Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður sam- bandsins, að það sé gert til að vekja borgarbúa til umhugsunar um þá stöðu sem fjármál borgarinnar eru komin í og hvert stefni. „Þess vegna höfum við sett þessa skulda- klukku af stað og við munum láta hana rúlla fram að kosningum.“ Að sögn Inga Hrafns var hraðinn á skuldaaukningunni fundinn út með því að miða annars vegar við skuldastöðuna í árslok 2001 sam- kvæmt ársreikningum og hins veg- ar við áætlun Reykjavíkurborgar fyrir yfirstandandi ár um skulda- stöðuna eins og gert er ráð fyrir að hún verði í árslok. „Þetta er ákveðin aukning og við deilum henni niður á daga, klukku- tíma, mínútur og sekúndur og þannig fáum við hraðann á aukn- ingunni,“ segir Ingvi Hrafn sem segir skuldaaukninguna vera 11 milljónir á dag. Klukkan verður staðsett í Kringl- unni í dag en fyrirhugað er að færa hana í miðbæinn eftir það og svo víðar um borgina. SUS setur upp skuldaklukku Morgunblaðið/Sverrir Klukkan mun tifa fram að kosningum en það eru ungir sjálfstæðismenn sem standa að klukkunni. F.v.: Helga Árnadóttir, Björgvin Guðmundsson og Ingi Hrafn Óskarsson. HORNSTEINN var lagður að nýj- um höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur við Réttarháls í vik- unni. Voru það Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, sem lögðu hornsteininn. Alls er húsið rúmir 14 þúsund fermetrar. Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður 2,3 millj- arðar. Reiknað er með að starfsemi Orkuveitunnar verði flutt í húsið í september í haust, en starfsmenn eru um 500 talsins. Morgunblaðið/Þorkell Hornsteinn að húsi Orkuveitunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.