Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 29
EIGNIR ÓSKAST TIL KAUPS
ÁKVEÐNIR KAUPENDUR
EINBÝLISHÚS Á SJÁVARLÓÐ
ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA
Traustur kaupandi óskar eftir 300-500 fm einbýlishúsi á sjávarlóð. Staðsetning:
Seltjarnarnes, Skerjafjörður, Arnarnes. Einnig kæmi Ægisíða til greina.
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI
ÓSKAST
Höfum kaupendur að góðum einbýlishúsum á Seltjarnarnesi.
Mjög góðar greiðslur í boði.
TVÍBÝLISHÚS ÓSKAST
Tveggja íbúða hús með rúmgóðri aukaíbúð óskast strax.
Staðsetning vestan Elliðaáa. Verðbil 25-40 millj.
EINBÝLI ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA
Æskileg staðsetning: Stigahlíð - Hlíðar (t.d. Háahlíð) - Stóragerðissvæðið -
Norðurmýri - Þingholt. Traustur viðskiptavinur óskar eftir 280-400 fm einbýlishúsi
á einhverjum af ofangreindum stöðum. Staðgreiðsla í boði.
RAÐHÚS VIÐ VESTURBRÚN,
HVASSALEITI EÐA Í FOSSVOGI ÓSKAST
Traustir kaupendur óskar eftir raðhúsum við Vesturbrún,
Hvassaleiti og í Fossvogi.
RAÐHÚS Í FOSSVOGI OG
HVASSALEITI ÓSKAST
Höfum verið beðnir að útvega góð raðhús í Fossvogi og Hvassaleiti.
HÆÐ Í HLÍÐUNUM
Höfum kaupanda að 110-140 fm hæð í Hlíðunum.
EINBÝLISHÚS Í ÞINGHOLTUNUM
ÓSKAST
Fjársterkur kaupandi óskar eftir góðu 250-400 fm einbýlishúsi í Þingholtunum.
HÆÐ Á TEIGUM, LÆKJUM
EÐA HEIMUM ÓSKAST
Höfum kaupanda að 5 herb. hæð í einhverju af ofangreindum svæðum.
ÍBÚÐ Í KÓPAVOGI ÓSKAST - 4RA HERB.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-120 fm 4ra herb. íbúð í nýlegri blokk í Kópavogi.
Íbúð í stórri lyftublokk í Reykjavík kemur vel til greina.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ ÓSKAST
Höfum kaupanda að 2ja herbergja íbúð á 1. eða 2. hæð.
Svæði: Háaleiti, Fossvogur, Smáíbúðahverfi eða Heimar.
GARÐABÆR
Gott raðhús í Garðabæ, gjarnan á einni hæð
m. fjórum herbergjum og góðum stofum, óskast.
KOLBEINSSTAÐAMÝRI
Traustur kaupandi óskar eftir góðu raðhúsi eða parhúsi í Kolbeinsstaðamýri.
EINBÝLISHÚS Í SMÁÍBÚÐAHVERFI,
STIGAHLÍÐ EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
Höfum trausta kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum á þessum svæðum.
SÉRHÆÐIR ÓSKAST
120-160 fm sérhæðir óskast. Æskileg staðsetning: Vesturbær, Hlíðar, Þingholt,
Fossvogur eða Kringlusvæðið.
120-160 FM ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSI ÓSKAST
Æskileg staðsetning: Klapparstígur, Skúlagata eða Kirkjusandur.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Höfum kaupendur að ýmiss konar atvinnuhúsnæði, t.d. 100-200 fm skrifstofu-
og verslunarplássum. Einnig höfum við sterka fjárfesta sem
óska eftir stórum eignum sem eru í útleigu.
150 FM SKRIFSTOFUHÆÐ (PLÁSS)
ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm skrifstofuhæð (rými). Staðgreiðsla í
boði.500-700 FM
SKRIFSTOFUHÆÐ Í REYKJAVÍK ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 500-700 fm skrifstofuhúsnæði. Staðgreiðsla. Plássið
mætti gjarnan vera í austurborginni.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 29
SIGNÝ Sæmundsdóttir sópransöng-
kona syngur á Sunnudagsmatinée í
Ými kl. 16.00 á morgun. Meðleikari
hennar á píanó verður Gerrit Schuil.
Efnisskráin verður mjög fjöl-
breytt og áherslan verður á tónlist
frá fyrri hluta 20. aldarinnar, en
Signý flytur sönglög eftir Richard
Strauss og Arnold Schönberg,
söngva úr „Peter Pan“ eftir Leonard
Bernstein, og auk þess nokkur bresk
lög, þar sem öll alvara er látin lönd
og leið og söngkonan og píanóleik-
arinn slá á gamansama strengi.
„Þetta verða hefðbundnir ljóða-
tónleikar að hluta til,“ segir Signý.
„Ljóðakransinn eftir Richard
Strauss samanstendur af mjög fal-
legum og angurværum lögum, en
líka djúpum, um sorgina, ástina,
þrána og fegurðina, og þar eru bæði
lög sem heyrast oft og önnur sem eru
sjaldnar flutt, en ljóðskáldin eru öll
mjög þekkt. Það sama er uppi á ten-
ingnum í lögum Schönbergs. Þetta
eru æskuverk, og standa nálægt síð-
rómantíkinni. Við flytjum fyrst einn
söng úr Sieben frühe Lieder við ljóð
sem heitir Waldesnacht. Þar svipar
Schönberg mjög til Richard Strauss.
Við syngjum svo ljóðaflokk op.2, en
þótt lögin séu samin snemma á ferli
hans er hann samt farinn að teygja
sig aðeins yfir í nútímalegri og ex-
pressjónískari stíl, án þess að lögin
séu atónal. Þarna hefur laglínan al-
gjörlega yfirhöndina, en þó ögrar
hann áheyrendum líka í mjög spenn-
andi hljómagangi. Allt eru þetta
mjög falleg lög og krefjandi. Þetta er
mjög skemmtilegur ljóðaflokkur; ég
kynntist honum fyrir mörgum árum
og hann er alltaf í miklu uppáhaldi
hjá mér. Hann er mjög spennandi
hvað túlkun varðar, fer yfir breitt
svið bæði í túlkun og tónsviði.
Ljóðaflokkurinn eftir Bernstein er
lítill og sætur. Þetta eru þrjú lög sem
hann samdi við söguna um Pétur
Pan. lögin er lögð í munn Vöndu, vin-
konu Péturs og eru mjög skemmti-
leg. Bernstein samdi þetta á sínum
tíma við látbragðsleik sem var svo
aldrei sýndur – ekki fyrr en löngu
seinna. Við ljúkum dagskránni svo
með enskum gamansöngvum sem
Roger Vigonles píanóleikari útsetti.
Þetta eru skrýtin og skondin lög með
óvæntum endalokum. Þetta er eitt-
hvað sem allir geta skemmt sér við.
Það er gaman að koma með svolítið
annan tón í tónleikana og þessi lög
eru gjörólík ljóðakrönsunum í fyrri
hlutanum. Eitt laganna fjallar til
dæmis um söngkonu sem á við mjög
sérkennilegt vandamál að glíma.“
Signý og Gerrit Schuil hafa unnið
mikið saman á síðustu árum og settu
meðal annars upp einmenningsóper-
una Mannsröddina sem sýnd var í Ís-
lensku óperunni fyrir tveimur árum.
„Við erum farin að þekkja vel inn á
músíkina hvort hjá öðru og samstarf-
ið gengur afskaplega vel. Svo er
virkilega gaman að þessi tónleikaröð
skuli vera að festast í sessi í þessu
flotta húsi. Ýmir er mjög söngvænt
tónlistarhús og hljóðfærið alveg frá-
bært. Það er hátt til lofts og bjart og
maður kemst í mjög góða tengingu
bæði við húsið og áheyrendur, því
þeir eru svo nálægt manni. Það
skiptir miklu máli að ná góðu sam-
bandi við áheyrendur á svona tón-
leikum, ljóðatónlistin er þannig.“
Signý Sæmundsdóttir er ein mik-
ilvirkasta tónlistarkona landsins og
hefur komið fram við fjölda tækifæra
bæði heima og erlendis, haldið ein-
söngstónleika og komið fram með
kórum og hljómsveitum og á sviði Ís-
lensku óperunnar.
Signý Sæmundsdóttir og Gerrit Schuil á Sunnudagsmatinée
Ljóðatónlistin
krefst nálægðar
Morgunblaðið/Golli
Signý Sæmundsdóttir og Gerrit Schuil við Ými.
LEIKHÓPURINN Á senunni
hefur tekið saman dagskrá úr verk-
um Halldórs Laxness sem flutt er í
Kaffileikhúsinu um þessar mundir.
Það eru leikararnir Felix Bergsson
og Jakob Þór Einarsson sem flytja
dagskrána og á þeirri sýningu sem
ég sá nutu þeir aðstoðar píanóleik-
arans Agnars Más Magnússonar.
Dagskráin samanstendur af
kvæðum og textabrotum úr verkum
Laxness og eru kvæðin ýmist sungin
eða lesin, auk þess sem nokkur
textabrot úr skáldverkum Laxness
eru leiklesin. Þeir Felix og Jakob
Þór tengja atriðin saman á skemmti-
legan hátt með stuttum sögum af
skáldinu og viðbrögðum við verkum
hans. Í kynningu á dagskránni lofa
þeir félagar gestum hugljúfri stund
og við þau fyrirheit er staðið.
Meðal þeirra kvæða sem sungin
voru má nefna Vögguljóð á Hörpu
og Hvert örstutt spor, sem flestir Ís-
lendingar þekkja. Þá fluttu þeir
nokkur af minna þekktum kvæðum
Laxness, svo sem hin „súrrealísku“
kvæði Rodymedia Palmata og S. S.
St. Clarie, svo og hið alþekkta Ung-
lingurinn í skóginum.
Flutningur Jakob Þórs á kvæði
Bjarts í sumarhúsum sem hann orti
til Ástu Sóllilju, og hefur að geyma
ljóðlínurnar: „… hvað er auður, ást
og hús / ef engin urt vex í þinni
krús?“, kallaði fram tár í augnkrók-
ana, en aftur á móti veltust gestir
um af hlátri þegar þeir félagar leik-
lásu kaflann úr Heimsljósi þar sem
Nasi, „útgerðarmaður og fjáreig-
andi“, þvingar Ólaf Kárason til þess
að yrkja fyrir sig bónorðskvæðið
fræga: „Líneik veit eg langt af öðr-
um bera / létta hryssu í hópi staðra
mera.“
Í heild var þessi dagskrá bæði
skáldinu og flytjendum til mikils
sóma og er óhætt að hvetja menn til
að missa ekki af þessari skemmtun.
Kaffileikhúsið hentar einstaklega
vel fyrir dagskrár af þessu tagi,
gestir sitja við borð og dreypa á
kaffi eða öðrum veigum meðan á
dagskránni stendur (einnig er hægt
að mæta snemma og fá sér kvöld-
verð). Vel færi á að bjóða upp á fleiri
dagskrár af svipuðu tagi og væri til-
valið að halda upp á stórafmæli ým-
issa skálda og rithöfunda með þess-
um hætti (minna má á sjötugsafmæli
Guðbergs í október næstkomandi).
Sælustund
í Kaffileikhúsinu
Soffía Auður Birgisdóttir
LEIKLIST
Kaffileikhúsið
Dagskrá úr verkum Halldórs Laxness.
Flytjendur: Felix Bergsson og Jakob Þór
Einarsson. Píanóleikari: Agnar Már
Magnússon. Fimmtudagur 24. apríl.
ÉG BÝÐ ÞÉR DÚS MÍN ELSKULEGA ÞJÓÐ