Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 60
60 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EINN þriðji stúlknasveitarinnar
heimsfrægu TLC, Lisa Lopes,
gjarnan kennd við vinstra augað,
lést í bílslysi í Hondúras á fimmtu-
dag.
Lopes, sem var í fríi, var ein sjö
farþega í bifreiðinni en sú eina sem
lét lífið.
Lopes var rappari og uppreisn-
arseggurinn í TLC, einhverri far-
sælustu og um leið skrautlegustu
hljómsveit síðasta áratugar, og
vann til fjölda verðlauna með sveit-
inni þ.á m. Grammy-verðlauna.
Meðal laga sem hún gerði vinsæl
með TLC eru „Creep“, „Waterfall“
og „No Scrubs“ og hafa plötur
þeirra þrjár, Ooooooohhh...On the
TLC Tip frá 1992, CrazySexyCool
frá 1994 og FanMail frá 1999 sam-
anlagt selst í vel á annan tug millj-
óna eintaka.
Stormasöm ævi
Þótt Lopes hafi einungis staðið á
þrítugu þegar hún lést hafði hún átt
stormasama ævi. Hún komst í frétt-
ir 1994 þegar hún var handtekin
fyrir að kveikja í húsi þáverandi
kærasta síns, ruðningsstjörnunnar
Andre Rison. Hún var fundinn sek
og dæmd til hárrar fjársektar og í 5
ára skilorðsbundið fangelsi. Einnig
skipaði dómari henni að fara í með-
ferð til þess að vinna bug á áfeng-
isvanda sínum. Sambandi þeirra
Rison var þó síður en svo lokið. Þau
voru sundur og saman allt fram á
síðasta ár að þau tilkynntu að þau
ætluðu loksins að láta pússa sig
saman, en því höfðu þau ekki látið
verða af er Lopes hvarf yfir móð-
una miklu.
Í september á síðasta ári komst
Lopes enn eina ferðina í fréttir er
hún hvarf sporlaust. Eftir tveggja
vikna þrotlausa leit fann lögregla
hana á hóteli í New Orleans þar
sem hún dvaldi grandalaus á heimili
vina sinna.
Eins og systur
LA Reid, lærifaðir og yfirmaður
útgáfufyrirtækis hennar Arista, var
harmi sleginn yfir fregnunum. „Það
fá engin orð lýst sorginni sem þessi
missir veldur í brjósti mér. Lisa var
ekki einasta hæfileikaríkur tónlist-
armaður heldur var hún mér einnig
sem dóttir. Framlag hennar til tón-
listarinnar mun varðveitast um ald-
ur og ævi.“
Vinkonur hennar í TLC, þær
Tionne „T-Boz“ Watkins og Roz-
onda „Chilli“ Thomas segja í frétta-
tilkynningu sem þær hafa sent
sameiginlega frá sér að þær hafi
verið „eins nánar og fjölskylda“ og
að þær hafi „í raun orðið fyrir syst-
urmissi“.
„Systrakærleikurinn“ hefur samt
ekki alltaf verið jafnmikill. Oft hef-
ur samstarfið hangið á bláþræði
eins og t.d. þegar þær neyddust til
að lýsa sig gjaldþrota, um miðbik
síðasta áratugar, þrátt fyrir rífandi
sölu. Lopes hótaði síðan að slíta
samstarfinu á meðan gerð FanMail
stóð sökum þess að ekkert laganna
sem hún hafði samið náði inn á
plötuna.
Sólóferill á ís
Eftir gott gengi FanMail ákváðu
þremenningarnir að gera hlé á
samstarfinu og sinna langþráðum
sólóþörfum. Lopes gerði þá sína
fyrstu plötu, ein síns liðs. Hét hún
Supernova og kom út í Evrópu í
fyrra en sökum áhugaleysis út-
varpsstöðva vestra var útgáfa plöt-
unnar þar snarlega sett á ís, þar
sem hún hefur verið síðan. Hins
vegar var Lopes ekki af baki dottin
og gerði fyrir fáeinum mánuðum
útgáfusamning við Death Row-fyr-
irtæki Suge Knight um að hann
myndi gefa út efni með henni undir
dulnefninu N.I.N.A.
Fyrir skömmu bárust síðan
fregnir af því að „systurnar“ hefðu
enn og aftur sæst með faðmlagi og
kossum. Ekki nóg með það heldur
voru þær farnar að vinna að næstu
TLC-plötu sem koma átti út síðar á
árinu. En eftir hið sviplega fráfall
Lopes hljóta örlög þeirrar plötu að
vera óviss.
Lisa „Left Eye“ Lopes, sem var
30 ára, verður jarðsungin í Atl-
anta síðar í þessum mánuði.
Reuters
TLC er skráð á spjöld sögunnar sem farsælasta stúlknasveit sögunnar.
TLC-stúlknatríóið er orðið að dúett
skarpi@mbl.is
Lisa „Left Eye“
Lopes fórst í bílslysi
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit 358.
Mbl DV
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr. 337.
Sýnd í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 16.
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 367
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. Vit 367.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. B.i.12 ára Vit 375.
Sýnd. kl. 2. Ísl. tal. Vit 338
kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 370. Sýnd kl. 2, 4 og 6. E. tal. Vit 368
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
½ SG DV
Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd
sumarsins er komin til Íslands.
„The Scorpion King“ sló rækilega í gegn
síðustu helgi í Bandaríkjunum.
FRUMSÝNING
Frá framleiðendum
The Mummy
Returns.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12. Vit 335.
ANNAR PIRRAÐUR.
HINN ATHYGLISSJÚKUR.
SAMAN EIGA ÞEIR AÐ
BJARGA ÍMYND
LÖGREGLUNNAR
JOHN Q.
DENZEL WASHINGTON
Hér er hinn nýkrýndi Ósk-
arsverðlaunahafi Denzel
Washington kominn með
nýjan smell. Hér leikur
hann JOHN Q, föður sem
tekur málin í sínar hendur
þegar sonur hans þarf á
nýju hjarta að halda og
öll sund virðast lokuð.
MBL
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4.45.Síðustu sýn.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
SG. DV
SG DV
MYND EFTIR DAVID LYNCH
Ævintýrið um Harry Potter og viskustein-
inn er nú komið aftur í bíó í örfáa daga.
Sýnd Kl. 5. Enskt tal.
2 FYRIR 1
Sýnd kl. 7 og 10. B. i. 16.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i.12 ára
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
Sýnd kl. 3. Ísl. tal.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16.
HK DV
HJ Mbl
„Meistarastykki“
BÖS Fbl
Sýnd kl. 3. Síðustu sýn.
MULHOLLAND DRIVE
Hér er hinn ný-
krýndi Óskarsverð-
launahafi Denzel
Washington kom-
inn með nýjan
smell. Hér leikur
hann JOHN Q, föð-
ur sem tekur málin
í sínar hendur þeg-
ar sonur hans þarf
á nýju hjarta að
halda og öll sund
virðast lokuð.
Frá framleiðendum
The Mummy
Returns.
Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd
sumarsins er komin til Íslands.
„The Scorpion King“ sló rækilega í gegn síðustu helgi í
Bandaríkjunum.
FRUMSÝNING
LOKASÝNING Á reykjavík guesthouse sunnudag kl. 5.