Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 31

Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 31
ÚR VESTURHEIMI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 31 Miðasala er í síma 595 7999 og 800 6434, virka daga á milli 9.00 og 17.00, og á slóðinni www.midasala.is, en einnig má leggja inn miðapantanir á símsvara í síma 551 5677. Miðasala er í húsinu klukkutíma fyrir alla viðburði. Sunnudags-matinée sunnudaginn 28. apríl kl. 16:00 Signý Sæmundsdóttir sópran og Gerrit Schuil píanó, flytja sönglög eftir Strauss, Schönberg og Bernstein og bresk sönglög á gamansamari nótunum. ÞJÓÐRÆKNISÞINGIÐ varhaldið í 83. sinn og var það ífyrsta skipti í Bandaríkjun-um. Aldrei hafa þátttakend- ur verið eins margir, en þeir voru um 350 frá Bandaríkjunum, Kanada og Íslandi. Aldrei hefur umgjörðin verið eins glæsileg og aldrei hefur verið boðið upp á eins viðamikla þriggja daga dagskrá á þessum vettvangi. Framtíðin mikilvæg Framtíð Þjóðræknisfélagsins, upp- bygging starfsins í Bandaríkjunum og Kanada auk tengsla félaganna við Ísland var eitt helsta mál þingsins og var ýmsum hugmyndum komið á framfæri, en á þinginu í Vancouver í Kanada í fyrra var samþykkt að vinna að því að koma öllum íslenskum fé- lögum í Norður-Ameríku undir sama hatt. Sigrid Johnson, forseti INL, sagði við Morgunblaðið eftir að hún hafði slitið þinginu sl. sunnudag, að þessar umræður hefðu verið mjög mikilvægar og hún byndi miklar von- ir við störf þeirrar nefndar sem ætti að skila áliti í þessu efni á næsta þingi. Nefndarmenn stefndu að því að heim- sækja stjórnir allra félaga og ræða málin til að fá fram öll sjónarmið og í kjölfarið yrðu drög að stefnu mótuð. Sigrid Johnson sagði að með þessu þingi hefði ýmsum hindrunum verið rutt úr vegi og fjöldi þingfulltrúa segði sitt um áhugann. „Við eigum svo margt sameiginlegt og ekki síst ást okkar á Íslandi.“ Mikilvægt þing Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var heiðursgestur þingsins og flutti setningarræðu þess. Vigdísi var sérstaklega vel fagnað og hún náði vel til þingfulltrúa eins og reyndar allir sem lögðu sitt af mörk- um í viðamikilli dagskrá. Koma henn- ar vakti líka athygli fjölmiðla og m.a. fór hún með Sigga Hall, matreiðslu- meistara, í viðtal hjá ABC-sjónvarps- stöðinni. Heiðursgesturinn var mjög ánægð- ur með þingið. „Svona þing er ákaf- lega mikilvægt,“ sagði hún og bætti við að þegar félögin kæmu saman á þennan hátt fyndu þau frekar fyrir styrk sínum en veikleika. Augljóst væri að í eins mannmörgum þjóð- félögum og Kanada og Bandaríkjun- um væri erfitt að halda félögum þjóð- arbrota gangandi, en afkomendum Íslendinga hefði tekist það. Þingið hefði verið mjög vel skipulagt og um- ræðan um þjóðararfinn, þjóðfélags- mál og framtíð Íslands hefði verið fróðleg. Þá hefði innlegg rithöfund- anna og sagnfræðinganna verið sér- lega skemmtilegt. Engu að síður hefði verið fátt ungt fólk á þinginu, rétt eins og hjá norrænu félögunum á Norðurlöndunum, og ljóst væri að það þyrfti að ná frekar til æskunnar, en Snorraverkefnið væri liður í því. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti kveðju ríkisstjórnar Íslands og sagði m.a. að fjölmennið endurspeglaði mikilvægi þess að starfa saman að sameiginleg- um markmiðum. Hún minnti m.a. á mikilvægi Snorraverkefnisins og greindi frá stuðningi ríkisstjórnar- innar við málefni sem tengdust Vest- urheimi. Aukinn áhugi Haraldur Bjarnason, læknir á Mayo-sjúkrahúsinu í Rochester, Mary Josepson, vararæðismaður, og Edda Björnson Connell, fyrrverandi forseti og gjaldkeri Íslendingafélags- ins Heklu í Minneapolis, voru í und- irbúningsnefndinni í Minneapolis, en auk þeirra komu tugir annarra sjálf- boðaliða að málum fyrir utan stjórn INL, fulltrúar frá Þjóðræknisfélag- inu á Íslandi og fulltrúar íslenskra stjórnvalda, sem studdu þingið á margvíslegan hátt. „Undirbúningsvinnan gekk mjög vel og þingið gat ekki verið betra,“ sagði Haraldur við Morgunblaðið í þingslok. Hann lagði áherslu á að all- ir, sem hefðu komið að málum, hefðu staðið sig frábærlega og þetta erfiða starf hefði verið skemmtilegt í alla staði. Sérstaklega ánægjulegt hefði verið að fá marga gesti frá Íslandi, sem hefðu gert sitt til að auðga dag- skrána með fróðlegum erindum og umræðum um land og þjóð, ýmiss konar sýningum og skemmtiatriðum. Samstarfið við íslensku ríkisstjórnina hefði verið mjög gott, Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Halldór Ás- grímsson, utanríkisráðherra, hefðu sýnt starfinu mikinn velvilja og ómet- anlegt hefði verið að hafa fulltrúa stjórnarinnar á staðnum. „Að öðrum ólöstuðum var sérstaklega gaman að fá karlakórinn Gamla fóstbræður á þingið,“ sagði Haraldur. „Kórinn kom að eigin frumkvæði án fjárhagslegs stuðnings frá okkur og setti skemmti- legan svip á hátíðina. Þá var ómet- anlegt að hafa Vigdísi Finnbogadótt- ur, Valgerði Sverrisdóttur og Pál Skúlason, háskólarektor, auk sendi- herranna með okkur.“ Haraldur sagði enn fremur að þingið hefði aukið áhugann á Þjóð- ræknisfélagi Íslendinga í Norður- Ameríku og auknum tengslum þess við Ísland. „Það er mjög mikilvægt auk þess sem mjög miklu máli skiptir að finna fyrir þessum aukna áhuga frá Íslandi,“ sagði hann og bætti við að vonandi skipuðu Bandaríkin álíka sess á þingum framtíðarinnar og að þessu sinni. Eins væri mikilvægt að Bandaríkjamenn tækju þátt í nefnd- arstörfum í auknum mæli því þannig kæmust ný sjónarmið betur til skila. Starfið í INL byggðist á traustum grunni og hefðin væri sterk. Margt væri vel gert og starfið væri mjög mikilvægt en mikill áhugi væri fyrir því að breyta áherslum Þjóðræknis- félagsins í Bandaríkjunum. Til dæmis með því að starfið þar tengdist meira daglegum viðfangsefnum á Íslandi eins og kynningu á Íslandi í sambandi við ferðamál og sölu á íslenskum vörum. Með því að veita slíka þjón- ustu gætu bandarísku félögin verið fjárhagslega sjálfstæðari. „Framtíðin er spennandi en aðalatriðið er að Ís- land er miðpunktur alls starfsins.“ Edda Björnson Connell sagði að þingið sýndi hvers grasrótin væri öfl- ug en áréttaði að hátíðin hefði aldrei orðið eins og hún var nema með góð- um stuðningi íslensku ríkisstjórnar- innar, Iceland Naturally og annarra styrktaraðila. Mikill áhugi Banda- ríkjamanna og Kanadamanna af ís- lenskum ættum og annarra áhuga- manna um Ísland og íslensk málefni á því að koma saman sem ein sterk heild hefði líka haft mikið að segja. „Við vorum með frábæra ræðumenn, ágætar sýningar, besta matinn frá Ís- landi og einstaka skemmtikrafta. Við höfum lært mikið á þessu þingi, styrkt vinasambönd og eignast nýja vini. Þetta hefur verið besti tími lífs míns.“ Mary Josepson og Bob Pegram, eiginmaður hennar, hafa varla gert annað en vinna að undirbúningi þingsins frá áramótum. Mary sagði að þingið sýndi augljóslega hvað mik- ill áhugi væri á Íslandi í Norður-Am- eríku. „Þetta getur leitt til enn meiri þátttöku í Kanada og Bandaríkjun- um, en rækta verður hverja jurt fyrir sig og hafa mismunandi þarfir í huga.“ Hún sagði að hyggja þyrfti að mörgum mismunandi þáttum varð- andi lög, fjármál, viðskipti og menn- ingu, en að ári yrðu línur skýrari. „Starfið snýst fyrst og fremst um Ís- land og ást á Íslandi og við þurfum að taka öllum opnum örmum, sem eru samstiga okkur að þessu leyti.“ Römm er sú taug „Römm er sú taug“ er yfirskrift næsta ársþings Þjóðræknisfélags Ís- lendinga í Vesturheimi, sem fram fer í Edmonton í Kanada 1. til 4. maí 2003. Íslendingafélagið Norðurljós sér um skipulagninguna, en þar hefur Walter Sopher, 2. varaforseti INL, verið í fararbroddi. Hann sagði að þó ekki verði lagt nándar nærri eins mikið í þingið að ári og gert hafi verið nú, megi gera ráð fyrir álíka mörgum þátttakendum. „Íslenska ríkisstjórn- in á stóran þátt í hvað vel tókst til hér og þetta var glæsilegt þing. Þingið okkar verður ekki tilþrifaminna og ég á von á um 300 þátttakendum,“ sagði hann, en undirbúningur hefur þegar staðið yfir í tvo mánuði. 83. ársþing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi haldið í Minneapolis Ísland og íslensk mál- efni mið- punktur alls Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vestur- heimi fór fram í Minneapolis í Bandaríkjun- um um liðna helgi. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með þessari glæsilegu hátíð. Morgunblaðið/Steinþór Edda Björnson Connell, Haraldur Bjarnason og Mary Josepson á þinginu í McNamara-miðstöðinni. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og heiðursgestur, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, voru helstu ræðumenn þingsins. Ray Johnson, fyrrverandi forseti Þjóðræknisfélagsins, Sigrid Johnson, forseti INL, og Harley Jonasson, forseti Íslendingadagsnefndar í Gimli nýliðin tvö ár, höfðu í nógu að snúast á þinginu í Minneapolis. Aðalræðismannshjónin í Minneapolis, Maddý og Örn Arnar, voru áberandi á þinginu og Örn flutti tilfinn- ingaþrungna og hjartnæma ræðu sl. laugardagskvöld. Um 350 manns sóttu þingið og er það metþátttaka. steg@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.