Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 17
í Skútuvogi
Laugardagur
Sími 525 3000 • www.husa.is
Brandur Gíslason
garðyrkjumeistari
leiðbeinir um val og
notkun á trjáklippum
frá kl.
í verslun Skútuvogi 16.
Hekkklippa 2.695 kr. (3.197)
Greinaklippa 1.245 kr. (1.834)
12-14
Verið velkomin...
JAZZDANSSKÓLI Emilíu frum-
flutti á sumardaginn fyrsta söng-
og dansleikinn Annie í Frumleik-
húsinu í Keflavík. 55 stúlkur á
aldrinum 6 til 15 ára taka þátt í
uppfærslunni og er þetta stærsta
verkefnið sem skólinn hefur ráðist
í.
Þetta er jafnframt annað stóra
verkið sem ungmenni í Reykja-
nesbæ setja upp á stuttum tíma, en
aðeins rúmur mánuður er síðan
nemendur í Myllubakkaskóla
sýndu söngleikinn Bugsy Malone
við frábærar undirtektir. Sam-
anlagt telur fjöldi þátttakenda í
sýningunum tveimur rúmlega 100
ungmenni og því má ljóst vera að
menningarlíf ungs fólks í Reykja-
nesbæ blómstri þessa dagana.
Emilía Dröfn Jónsdóttir hefur
rekið Jazzdansskóla Emilíu í 10
ár. Þegar starfsemin byrjaði sl.
haust og 10 ára starfsafmæli að
renna upp, var ákveðið að ráðst í
stórvirki. „Annie hefur lengi verið
í uppáhaldi hjá mér og ég sá að
þetta gæti alveg gengið. Ég fékk
Jón Marinó Sigurðsson í lið með
mér, en hann hefur mikið starfað
með Leikfélagi Keflavíkur og hef-
ur einnig reynslu af því að vinna
með börnum. Ég fékk einnig ann-
an danshöfund til liðs við mig,
Berglindi Skúladóttur, ég og eig-
inmaður minn, Skúli Bjarnason,
réðumst í þýðingu á söngtextunum
og starfsemi vetrarins hefur alveg
verið helguð þessu verki. Strax í
september byrjuðum við að æfa
dans- og söngatriði en í janúar sl.
byrjuðum við á sjálfu verkinu,“
sagði Emilía í samtali við Morg-
unblaðið.
Ekki óvön sviðinu
Verkið fjallar um munaðarleys-
ingjann Annie sem býr á mun-
aðarleysingjahæli en leiðin liggur
upp á við eftir að hún kynnist Vil-
hjálmi sem er milljónamæringur.
Jón Marinó samdi handritið, ásamt
því að leikstýra. „Ég byggi þetta
handrit á kvikmyndahandritinu,
þ.e. sagan er í grófum dráttum sú
sama, en ég legg áherslu á dans-
og söngatriði og tengi þau saman
með leik,“ sagði Jón Marinó.
Annie er fyrsta stóra leik-
stjóraverk Jóns Marinós en hann
hefur áður leikstýrt grunn-
skólabörnum í smærri skólaverk-
efnum. Hann segir að æfingarnar
hafi gengið erfiðlega fyrst, enda
um stóran hóp að ræða, en það
hafi einungis verið byrjunarörð-
ugleikar. „Við erum öll mjög
ánægð með árangur stelpnanna og
hversu miklu við höfum náð út úr
þeim, þó vissulega mæði mismikið
á þeim. Díana Ívarsdóttir tón-
menntakennari aðstoðaði okkur
svo undir lokin til að hjálpa söngv-
urunum að brjótast út úr skelinni.
Undanfarna daga hafa þær verið á
æfingum í allt að 3 klukkutíma á
dag, sem er mikið fyrir ungt fólk,
en þetta hefur gengið vel og jafn-
framt verið mjög skemmtilegur
tími,“ sagði Jón Marinó.
Aðalleikkonan, Guðbjörg Guð-
mundsdóttir sem er 10 ára, tekur
undir orð leikstjórans. Guðbjörg
hefur verið í Jazzdansskólanum
frá 5 ára aldri og ekki alveg óvön
því að koma fram. „Það eru nem-
endasýningar í Jazzdansskólanum
á hverju ári og ég hef einnig tekið
þátt í smærri uppfærslum bæði í
Jazzdansskólanum og grunnskól-
anum, en þetta er fyrsta stóra ver-
ið sem ég tek þátt í og í fyrsta sinn
sem ég þarf að syngja ein,“ sagði
leik- og söngkonan unga og er þar
með rokin upp á svið og umbreytt
í munaðarleysingjann Annie. Hún
er örugg í hlutverkinu og ljóst að
öll fyrri sviðsreynsla hefur verið
gott veganesti.
Næstu sýningar á Annie eru í
dag og á morgun, næstkomandi
miðvikudag, laugardaginn 4. maí
og sunnudaginn 5. maí, allar
klukkan 14.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Mikið mæðir á Guðbjörgu Guðmundsdóttur sem leikur titilhlutverkið í
Annie. Hér er hún með öðrum stelpum á munaðarleysingahælinu.
Munaðarleysing-
inn Annie á sviði
Frumleikhússins
Keflavík
ÓLAFUR Þór Ólafsson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi Sandgerðisbæjar
og stjórnmálafræðingur, er í efsta
sæti Sandgerðis-
listans sem er
nýtt framboð á
staðnum. Listinn
mun bjóða fram
undir listabók-
stafnum Þ.
Kosningaskrif-
stofa Sandgerðis-
listans var opnuð
á Strandgötu 11
á sumardaginn
fyrsta. Við það tækifæri var fram-
boðslisti kynntur. Kosningaskrif-
stofan er opin virka daga klukkan
18 til 22 og um helgar kl. 14 til 18,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu. Kosningastjóri er Guð-
mundur Skúlason.
Sandgerðislistinn hefur ekki áður
boðið fram. Frambjóðendur eru
margir ungt fólk, á aldrinum 20 til
30 ára. Á listanum er einnig Grétar
Mar Jónsson, skipstjóri og fram-
bjóðandi Frjálslynda flokksins, sem
áður starfaði á vegum K-lista Al-
þýðuflokks og óháðra í Sandgerði.
Framboðslistinn er þannig skip-
aður: 1. Ólafur Þór Ólafsson stjórn-
málafræðingur, 2. Hallbjörn V.
Rúnarsson leiðbeinandi, 3. Linda
Björk Holm sjúkraliði, 4. Sigríður
Ágústa Jónsdóttir forstöðumaður,
5. Hannes Jón Jónsson slökkviliðs-
maður, 6. Ari Gylfason sjómaður, 7.
Ólöf Ólafsdóttir hársnyrtisveinn, 8.
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir tónlist-
arnemi, 9. Jórunn Björk Magnús-
dóttir leiðbeinandi, 10. Sigrún Pét-
ursdóttir nemi, 11. Bragi Guð-
jónsson viðskiptafræðingur, 12.
Þorbjörg E. Friðriksdóttir af-
greiðslumaður, 13. Grétar Mar
Jónsson skipstjóri og 14. Haraldur
Sveinsson eldri borgari.
Ólafur Þór efstur
Sandgerði
Ólafur Þór
Ólafsson
SÝNINGIN Brúðkaup 2002 verður
haldin í Reykjanesbæ á morgun,
sunnudag, klukkan 11 til 19. Sýning-
in fer fram í Heklusalnum á Fitjum í
Njarðvík.
Á fimmta tug verslana og þjón-
ustufyrirtækja á Suðurnesjum bjóða
upp á sýningu og skemmtidagskrá
fyrir alla fjölskylduna, allan daginn.
Brúðkaupssýn-
ing í Heklusal
Njarðvík
STEFNUSKRÁ Samfylkingarinnar
í Reykjanesbæ fyrir komandi kosn-
ingar verður kynnt félagsmönnum á
fundi í dag. Þá verður opnuð vefsíða,
www.s-listinn.is. Í byrjun næstu viku
kynna frambjóðendur stefnuskrána
fyrir bæjarbúum og bera hana í hús.
Gengið frá stefnu-
skrá Samfylkingar
Reykjanesbær
MARGT er gert á viku bókarinnar
sem lýkur í Bókasafni Grindavíkur
um helgina til að auka bókaáhuga
hjá bæjarbúum, meðal annars eru
bækur Halldórs Laxness áberandi í
uppstillingum og boðið er upp á
hressingu á bókasafninu.
Á degi bókarinnar voru flutt verk
eftir Nóbelsskáldið, í fundarsal bæj-
arstjórnar og var húsfyllir. Meðal
annars lásu grunnskólanemendur úr
verkum hans og leikin var tónlist.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Ungir gestir bókasafnsins fylgdust spenntir með þegar Hörður Torfa-
son lék og söng lög við texta Halldórs Laxness, á degi bókarinnar.
Gestir fá bókamerki
með ljóðum Laxness
Grindavík
FRAMSÓKNARFLOKKURINN í
Reykjanesbæ heldur opinn fund um
möguleika á notkun leigubíla í stað
strætisvagna. Fundurinn verður
næstkomandi mánudag í félagsheim-
ili Framsóknarflokksins á Hafnar-
götu 62 í Keflavík og hefst kl. 20.
Fundur um leigu-
bílaverkefnið
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦