Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 52

Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 52
52 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞANN 10. maí árið 1940 var Ísland hernumið af breska heimsveldinu. Flestir Íslendingar kipptu sér ekki upp við það og voru beinlínis ánægðir með hersetuna, þar sem hersetuliðið var breskt en ekki þýskt. BNA (Bandaríki Norður- Ameríku) tóku við af Bretunum og undir stríðslok voru Íslendingar frjálsir á ný (þó var Keflavíkurflug- velli enn stjórnað af Bandaríkja- her). Það var hins vegar hinn 30. mars, 1949, að Ísland gekk í Atl- antshafsbandalagið (NATO) og ár- ið 1951 skrifuðu Íslendingar undir ákveðinn herverndarsamning, sem tryggði herliði BNA dvöl á landinu. Ísland varð enn á ný hersetið. Skilgreining á hersetu er „dvöl erlends hers í landi“ og er það ein- mitt staða Íslands í dag. Herlið BNA er enn hér og það er svo sannarlega ekki á förum. NATO, hernaðarsamband sem BNA stofn- uðu til að vernda sig og hagsmuni sína, er úrelt! Kalda stríðinu er lokið! Samt sem áður heldur NATO áfram fasískum afskiptum sínum af umheiminum, s.s. að umróta yfir- borði Júgóslavíu með sprengju- regni og láta Júgóslava borga skemmdirnar. Ríkisstjórn Íslands gerir sjálfa sig seka um fasisma með því að samþykkja árásir BNA á Afghanistan, samþykkja árásir NATOs á fyrrverandi Júgóslavíu og með aðgerðarleysi gagnvart árásum Ísraels á íbúa Palestínu. Ég vil ekki búa í veröld þar sem sprengjuflugvélar minnka áhættu landliða (en um leið auka hættu óbreyttra borgara á að láta lífið), til þess eins að vernda ríkisstjórnir frá reiðum mæðrum fallinna her- manna. Ég vil ekki búa í veröld þar sem einstaklingar neyðast til þess að fljúga á stórhýsi til þess eins að stöðva yfirgang Vesturveldanna! Ég vil ekki búa í veröld þar sem óbreyttir borgarar, börn og full- orðnir, eru teknir af lífi án dóms og laga. Hvers konar veröld ætlið þið að afhenda okkur, næstu kynslóð, í hendurnar? Hersetið Ísland og bullandi hatur milli trúarbragða? Nei, ég vona ekki! Rómantískir þjóðveldissinnar áttu sér draum um sjálfstætt Ísland og ég vil að þessi draumur rætist. Ég vil sjá sjálfstæði Íslendinga. Ég á mér draum um að mann- kynið geti hætt að berjast og hafið ást, gagnvart öllum. Freud sagði að við byggjum yfir tveimur hvöt- um, gereyðingar- og sköpunarhvöt- inni. Er ekki kominn tími til að skipta um ríkjandi hvöt? JAKOB TÓMAS BULLERJAHN, nemandi í MH. NATO, fasismi og Ísland á 21. öldinni Frá Jakobi Tómasi Bullerjahn: NÚ, ÞEGAR flestir merkilegustu fornmunir þjóðarinnar hafa það ömurlega hlutskipti að hírast í kössum víðsvegar um Reykjavík- urborg vegna viðhalds og viðgerða á Þjóðminjasafninu, kemur upp í hugann að tengja þessa fornmuni betur ferðaþjónustunni. „Menning- artengd ferðaþjónusta“ er tísku- orð, sem æ fleiri taka sér í munn við hátíðleg tækifæri. Öll ferða- þjónusta er menningartengd, þótt súlustaðir höfuðborgarinnar fylli ef til vill ekki þann flokk, þar sem um innflutta „menningu“ er að ræða. Hvernig væri að afhenda Háskóla Íslands húsnæði Þjóð- minjasafnsins til afnota og flytja öll menningarverðmæti okkar dreifbýlismanna heim í hérað? Með öðrum orðum, að nú þegar verði hafinn undirbúningur að flutningi fornmuna, sem Þjóð- minjasafnið hefur verið með að láni um árabil, til síns heima á landsbyggðinni. Hús Þjóðminja- safnsins er ekki hentugt fyrir þá starfsemi sem hún á að hýsa, m.a. vegna fjölda glugga. Betur væri að byggja nýtt hús í samstarfi með Reykjavíkurborg og koma þar fyr- ir verðmætum sem tengjast beint sögu Reykjavíkur og nágrennis og lýðveldisstofnuninni. Hvert bæjar- og sveitarfélag á, eða er í samstarfi um rekstur minjasafns. Húsnæði er til staðar og starfsmaður (starfsmenn) eru á launum við vörslu þeirra og muna sem í þeim eru geymd. Til þess að gera söfnin sérstök, er nauðsyn- legt að einstaka verðmætir hlutir séu í hverju safni, hlutur eða hlutir sem fundist hafa í nágrenni safn- anna og tengjast sögu svæðisins órjúfanlegum böndum. Stöðugt er verið að reyna að finna leiðir til að „stöðva“ ferða- manninn lengur á hverjum stað, og af veikum mætti er verið að koma upp ýmiskonar afþreyingu og m.a. í því sambandi er verið að byggja á sögutengdri ferðamennsku. Hér eru því á ferðinni mjög brýn verk- efni, sem gerðu svæðin mun áhugaverðari en ella, auk þess sem ekki er heppilegt að allir helstu dýrgripir Íslandssögunnar séu á einum stað. Dæmin sanna, að Þjóðminja- safnið hefur á að skipa misgóðum geymslum. Allar gersemar þjóð- arinnar geta horfið í jarðskjálfta eða öðrum hamförum í einu vet- fangi. Krafan okkar er því, að fá Valþjófsstaðahurðina heim ásamt Miðhúsasilfrinu og öllum öðrum merkilegum minjum sem fundist hafa á Austurlandi. Þeim skal koma fyrir á því safni (söfnum), sem staðsett er næst „heimaslóð“ gripsins. BENEDIKT VILHJÁLMSSON rafeindavirkjameistari, Egilsstöðum. Fornmunina heim í hérað Frá Benedikt Vilhjálmssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.