Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í INNGANGI þessarar bókar
skýrir höfundur frá því að hann
hafi oft orðið þess var, að sögu-
áhugamenn á Norðurlöndum vildu
gjarnan eiga þess kost að geta lesið
sér til um sögu Færeyja, og þó
einkum færeyska nútímasögu, á
öðru máli en færeysku. Bókin var
að nokkru leyti samin til þess að
verða við þessum óskum, en hún
getur þó vart talist eiginleg saga
Færeyja, a.m.k. ekki ef litið er til
uppbyggingar hennar og efnisskip-
unar. Sagan er ekki rakin í tímaröð,
miklu frekar er hér um að ræða
umræðu um einstaka þætti fær-
eyskrar 20. aldar og sögulegan að-
draganda þeirra mála, sem helst
hafa mótað sögu og líf færeysku
þjóðarinnar síðustu eitt hundrað ár-
in eða svo.
Höfundur skiptir bókinni í þrjá
meginhluta. Í hinum fyrsta rekur
hann höfuðþætti færeyskrar stjórn-
málasögu á 20. öld, leggur áherslu á
þróun skólamála og þátt þeirra í
sjálfstæðisbaráttunni, greinir frá
áhrifum heimsstyrjaldanna tveggja
á mannlíf í Færeyjum, færeysk
stjórnmál og stöðu eyjanna í
danska ríkinu. Í öðrum hluta hverf-
ur hann aftur í aldir og rekur meg-
inþætti sögunnar á fyrri öldum, og
þó einkum á 19. öldinni. Þar leggur
hann m.a. áherslu á þróun og sögu
færeyskrar tungu og þýðingu henn-
ar fyrir mótun þjóðernisvitundar
Færeyinga. Þriðji og síðasti hlutinn
fjallar svo um sögu sjálfstæðisbar-
áttu Færeyinga frá því á ofanverðri
19. öld og fram undir lok 20. aldar.
Margt er gott um þessa bók.
Eins og vænta mátti frá hendi
Hans Jacobs Debes, er hún ljóm-
andi vel skrifuð og hefur að geyma
margan fróðleik. Formið, sem höf-
undur hefur valið sér er hins vegar
vandmeðfarið og á köflum verða
bókarhlutarnir meira í ætt við sjálf-
stæðar ritgerðir en samfelldan
texta. Nokkuð ber einnig á end-
urtekningum, sem geta í sjálfu sér
verið gagnlegar, en eru oftast
óþarfar.
Í bókarlok, á eftir meginmáli höf-
undar, er að finna stutta grein-
argerð fyrir haffræði og jarðfræði
Færeyja. Sá kafli hefði að mínu viti
átt betur heima í upphafi bókar, en
kannski er hér fremur við ritstjór-
ana að sakast en höfundinn, og
sama á við um ýmsa stutta sérkafla
um einstök málefni (þemu) og ein-
staklinga, sem sett hafa svip á sögu
Færeyja. Sumir þessara kafla eru
heldur illa samdir og ekki lausir við
ónákvæmni, sem ólíklegt er að
Hans Jacob hefði gert sig sekan
um.
Bókarhöfundur, Hans Jacob
Debes, er mörgum íslenskum sagn-
fræðingum að góðu kunnur. Hann
varði doktorsritgerð sína um sögu
færeyskrar þjóðfrelsisbaráttu við
Háskóla Íslands árið 1984 og var
síðan lektor og prófessor í sagn-
fræði við Fróðskaparsetur Færeyja
um árabil. Hann er mikilvirkur rit-
höfundur og hefur m.a. samið
fyrstu þrjú bindin í Sögu Færeyja,
og ævisögu Jóhannesar Patursson-
ar, auk fjölmargra annarra bóka og
tímaritsgreina.
Allur frágangur þessarar bókar
er smekklegur. Hún er prýdd sögu-
legum ljósmyndum og listaverkum
og kápuna prýðir ljósmynd af mál-
verki Frimodt Joensen af fæðing-
arstað höfundar, Gjógv, á sumar-
degi 1984.
LEIKLIST
Sagnfræði
- Historien om den færöske nutids oprind-
else eftir Hans Jacob Debes. Útgefandi
Steen A. Cold og Kristian Hvidt. Multi-
vers 2001. 307 bls., myndir.
FÆRINGERNES LAND
Þættir úr
færeyskri
nútíma-
sögu
Jón Þ. Þór
KVENNAKÓR Reykjavíkur og
Senjorítur Kvennakórs Reykjavík-
ur, sem er kór eldri félaga, halda
tónleika í Langholtskirkju í dag,
sunnudag. Senjoríturnar syngja kl.
14 og Kvennakórinn kl. 17. Gestur
Senjorítanna er Kvennakór
Reykjavíkur. Þær syngja létt sum-
arlög, söngleikjalög og gospel.
Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdótt-
ir. Undirleikari á píanó er Þóra
Fríða Sæmundsdóttir.
Kvennakór Reykjavíkur syngur
íslensk þjóðlög sænsk sumarlög,
lög eftir Brahms, Schubert létt
söngleikjalög o.fl. Stjórnandi
Kvennakórs Reykjavíkur er Sig-
rún Þorgeirsdóttir. Píanóleikari er
Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Gestur
tónleikanna er Soffía Stefánsdótt-
ir, mezzósópransöngkona Í júní-
byrjun fer kórinn til Tékklands í
tónleika- og keppnisferð.
Tveir kórar
í Lang-
holtskirkju
GUK+
Sýningu dönsku listakonunnar
Nönnu Gro Henningsen í GUK+
lýkur á sunnudag.
Verkið sem Nanna gerði fyrir
þessa sýningu tengist eyjunni Tiree
sem er 736 mílur frá sýningarstöð-
unum þremur á Selfossi, Lejre í Dan-
mörku og Hannover í Þýskalandi.
Sýningin er opin milli kl. 16 og 18,
að staðartíma. Hægt er að skoða
myndir af sýningunni á slóðinni
http://www.simnet.is/guk.
Sýning framlengd
Sýning Rebekku Rán Samper
„Curriculum vitae“ í Gallerí Sævars
Karls er framlengd til 2. maí.
Þjóðmenningarhúsið
Sýningin úr sögu kristni á Íslandi,
sem sett var upp sumarið 2000 til að
minnast þess að 1000 ár voru frá
kristnitöku, lýkur 1. maí.
Um 30.000 þúsund manns hafa séð
sýninguna þau tæpu tvö ár sem hún
hefur staðið.
Sýningarlok
ERLA Sigurðardóttir opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli, Akranesi, kl. 14 í
dag, laugardag. Sýninguna nefnir
Erla „Samtíningur og sitthvað“ og
sýnir á aðalhæð um 30 vatnslita-
myndir. Á efri hæð sýnir hún frum-
myndir úr þremur bókum, Nílar-
prinsessunni eftir Guðjón Sveins-
son, allar myndirnar, og svo hluta
mynda úr tveimur bókum eftir Sig-
urð Thorlacius, Um loftin blá og
Sumardagar. Erla lauk prófi úr
máladeild MHÍ og nam við lista-
skóla í Trier í Þýskalandi sumarið
1991. Hún hefur starfað við mynd-
list frá því hún lauk námi. Hún hef-
ur myndskreytt hátt á annan tug
barnabóka, auk þess starfar hún
sem kennari við Myndlistarskóla
Kópavogs.
Sýningunni lýkur 12. maí. Lista-
setrið er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 15-18.
Samtíningur og sitthvað
ÞAÐ var að heita má húsfyllir á
tónleikunum þótt þeir hefðu lítið
verið auglýstir. Tónleikarnir hófust
á tveimur ljúfum og vel þekktum
lögum, Sveinar kátir syngið og Nú
máttu hægt um heiminn líða. Þótt
þessi lög geri útaf fyrir sig ekki
miklar kröfur mátti strax heyra að
hér var reyndur og samstilltur hóp-
ur á ferð. Næstu lög voru negra-
sálmarnir, My Lord og Soon a will
be done. Í þessum lögum fór veru-
lega að reyna á kórinn. Að mati
undirritaðrar var flutningur þess-
ara laga einstaklega góður. Ekki
varð annað séð en stjórnanda tæk-
ist hér að ná fram því sem hann
vildi, og kórinn fylgdi honum í einu
og öllu. – Lagið Nocturne eftir
Evert Taube var næst á söng-
skránni. Þetta lag þekkir undirrit-
uð ekki, en það er gullfallegt og var
vel flutt. Hér (í bassasólóinni) kom
mýkt bassanna í þessum kór glöggt
í ljós. – Næst komu þrjú rússnesk
lög sem öll voru skemmtilega flutt.
Í einu þeirra söng einn kórfélaginn,
Guðmundur Gíslason, einsöng. Síð-
ustu tvö lögin fyrir hlé voru Nor-
röna folket og Landkjenning eftir
Edvard Grieg við ljóð Bjørnstjerne
Bjørnson. Flutningurinn á báðum
þessum lögum var kór, píanóleik-
ara og stjórnanda til mikils sóma. Í
báðum þessum þekktu kórverkum
sungu félagar úr kórnum, þeir
Björgvin Þórðarson og Guðmundur
Gíslason, einsöng.
Eftir hlé voru eingöngu íslensk
lög á efnisskrá kórsins. Fyrstu tvö
lögin voru Hornbjarg við lag Páls
Halldórssonar og ljóð Þorsteins
Gíslasonar, og Ingólfs minni við lag
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og
ljóð séra Matthíasar. Næsta lag,
Kópavogsbær eftir fyrrverandi
stjórnanda kórsins, Jón S. Jónsson,
við ljóð Þorsteins Valdimarssonar,
er afar fallegt og var vel flutt af
kórnum. Þá kom lag Friðriks
Bjarnasonar, Hóladans, við ljóð
Jónasar Guðlaugssonar. Þetta
ágæta lag heyrist ekki oft á tón-
leikum karlakóra. Það var vel flutt
af kórnum og einsöngvaranum
Guðmundi Gíslasyni. Í næstu
tveimur lögum var kórinn virkilega
kominn á kunnuglegar slóðir. Þetta
voru lögin Landnemar eftir Sigurð
Þórðarson, fyrsta stjórnanda
Karlakórs Reykjavíkur, og Brennið
þið vitar eftir Pál Ísólfsson, en
bæði ljóðið eru eftir Davíð Stef-
ánsson. Flutningur þessara laga
var sem vænta mátti kröftugur og
áhrifamikill. Í Brennið þið vitar
naut kórinn traustrar aðstoðar
Bjarna Þórs. Síðast flutti kórinn
syrpu laga eftir Árna Thorsteins-
son við ljóð Hannesar Hafsteins og
Jónasar Hallgrímssonar. Í þessu
verki var hlutur píanóleikarans,
Bjarna Þórs Jónatanssonar, stór og
var leikur hans öruggur og glæsi-
legur.
Í heildina voru þessir tónleikar
mjög góðir. Styrkur kórsins er m.a.
þéttleiki og mýkt í raddbeitingu, og
einnig er gott jafnvægi og samstill-
ing milli radda. Áheyrendur klöpp-
uðu líka flytjendum óspart lof í lófa
og þakkaði kórinn fyrir sig með
nokkrum aukalögum. Kórinn held-
ur nú í tónleikaferð til Svíþjóðar
þar sem hann mun flytja sömu efn-
isskrá. – Í söngskrá, sem tónleika-
gestir fengu í hendur, kemur fram
að kórinn mun syngja með karla-
kórnum Göta Par Bricoles Sångkör
og Íslenska kórnum í Gautaborg.
Það má telja til fyrirmyndar að í
hinni prentuðu söngskrá eru heiti
laganna og skýringar við ljóðin
þýdd á sænsku. Þannig er áheyr-
endum þar í landi gefin hugmynd
um innihald og „anda“ laganna. –
Ástæða er til að óska stjórnanda og
flytjendum til hamingju með þessa
tónleika og afrakstur vetrarstarfs-
ins. Kórnum er hér að lokum óskað
góðs gengis í söngferðinni til Sví-
þjóðar.
TÓNLIST
Ýmir
Karlakór Reykjavíkur – eldri félagar.
Stjórnandi: Kjartan Sigurjónsson
Einsöngvarar: Guðmundur Þ. Gíslason og
Björgvin Þórðarson. Píanóleikur: Bjarni
Þór Jónatansson. Sunnudagur 21. apríl.
KÓRTÓNLEIKAR
Þéttar og mjúkar
karlaraddir
Jónína Gísladóttir
Á TÓNLEIKUM í Salnum á morg-
un, sunnudag, kl. 16, leika þau
Hjörleifur Valsson fiðluleikari,
gríski víóluleikarinn Ilias Sdoukos
og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari verk eftir Mozart,
Franz Schubert og César Franck.
Á efnisskránni eru Dúó fyrir
fiðlu og víólu í G-dúr eftir W.A.
Mozart KV 423, sem hann samdi í
Salzburg árið 1783, Sónata í a-
moll „Arpeggione“ D 821 eftir
Franz Schubert og hin þekkta són-
ata César Franck í A-dúr sem hef-
ur verið fiðluleikurum kærkomið
viðfangsefni frá því að hún var
samin árið 1886.
Hjörleifur hefur nú verið búsett-
ur á Íslandi í eitt og hálft ár og
starfað sem fiðluleikari og kenn-
ari, auk þess að gegna stöðu
aðstoðarskólastjóra tónlistarskóla
Garðabæjar. Hann stundaði m.a.
nám við Tónlistarháskólann í Ósló,
Konservatoríuna í Prag og Folk-
wang-Hochschule í Essen í Þýska-
landi. Í Essen kynntist hann
gríska víóluleikaranum Ilias
Sdoukos þar sem hann var við
nám. Sdoukos er meðlimur í hin-
um ýmsu kammerhópum í Grikk-
landi og Þýskalandi og hefur kom-
ið víða fram á tónleikum þar sem
og í Kanada, Ástralíu, Afríku og
Kýpur, en hann starfar nú sem
leiðari víóludeildar grísku þjóð-
aróperunnar.
Nína Margrét hefur verið virk í
tónlistarlífi landsins um langt
skeið. Hún var m.a. tilnefnd til ís-
lensku tónlistarverðlaunanna fyrr
á árinu og til Menningarverðlauna
DV fyrir hljóðritun sína á píanó-
verkum Páls Ísólfssonar.
Verk þriggja tón-
skálda í Salnum
Morgunblaðið/Ásdís
Nína Margrét Grímsdóttir, Ilias Sdoukos og Hjörleifur Valsson.
Gallerí Ófeigs Hadda Fjóla Reyk-
dal opnar fyrstu einkasýningu sína
í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg kl.
16. Þar sýnir hún vatnslitaverk sem
öll eru unnin á þessu ári en mynd-
efnið er sótt til náttúrunnar.
Hadda Fjóla lauk prófi frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árið 1998.
Sýningin er opin virka daga kl. 10–
18 og laugardaga kl. 11–16 og
stendur til 15. maí.
Ráðhús Reykjavíkur Stórsveitar-
veisla á vegum Stórsveitar
Reykjavíkur verður kl. 14 og býð-
ur sveitin æskunni til leiks eins og
undanfarin ár á þessum árstíma og
koma fram Stórsveit Tónlistarskóla
FÍH, Stórsveit Tónmenntaskóla
Reykjavíkur, Léttsveit Tónlistar-
skóla Keflavíkur, Samvinnustór-
sveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
og Tónlistarskóla Garðabæjar.
Grafarvogskirkja Söngskemmtun
á vegum Söngseturs Estherar
Helgu verður kl. 17. Kórarnir eru
Regnbogakórinn, Raddir regnbog-
ans, Sólskinskórinn, Rauða kross
kórinn og byrjendur Söngsetursins.
Seljakirkja Vortónleikar Kvenna-
kórsins Seljanna, undir stjórn Ingi-
bjargar Guðjónsdóttur, verða kl.
16.
Á efnisskrá eru íslensk og erlend
lög. Undirleikari á píanó er Val-
gerður Andrésdóttir.
Menningarmiðstöðin, Gerðu-
bergi Sýning útskriftarnema Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti verður
opnuð kl. 14. Ýmsar uppákomur á
vegum nemendanna verða við opn-
unina og einnig verður ljóðaflutn-
ingur. Sýningin er samstarfsverk-
efni FB og Gerðubergs og stendur
til 26. maí.
Kirsuberjatréð, Vesturgötu
Brúðkaupsdagar hefjast kl. 11 og
stendur kynningin fram til fimmu-
dagsins 2. maí. Opið er virka daga
kl. 12-18 og 11-15 laugardaga.
Næsti bar, Ingólfsstræti 1a Birg-
ir Rafn Friðriksson – Biurf, opnar
einkasýningu kl. 16. Sýningin ber
heitið „Lottó í Næsta bar“.
Sýningin stendur til 25. maí.
Gallerí Tukt, Hinu húsinu, Póst-
hússtræti 3-5 Elitsa Georgieva,
ung listakona frá Búlgaríu, opnar
einkasýningu kl. 16. Á sýningunni
eru olíumálverk og myndir unnar
með blandaðri tækni og eru verkin
öll unnin á þessu ári.
Sýningin stendur til 12. maí.
Höllinni, Vestmannaeyjum Vor-
tónleikar Karlakórs Hreppamanna
verða kl. 17 og eru þeir haldnir í til-
efni þess að kórinn fagnar nú fimm
ára afmæli sínu. Stjórnandi er Edit
Molnár og undirleikari Miklós
Dalmay.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is