Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 23
EDUARDO Duhalde, forseti Arg-
entínu, íhugar nú að tengja pesóann
aftur við Bandaríkjadollar vegna
gengishruns argentínska gjaldmið-
ilsins að undanförnu, að sögn argent-
ínskra embættismanna. Argentínsk-
ir bankar voru opnaðir í gær í fyrsta
sinn í viku eftir að þingið samþykkti
bráðabirgðalög sem eiga að afstýra
hruni fjármálakerfisins.
Gengi pesóans hefur lækkað um
70% frá því í janúar þegar Duhalde
afnam ellefu ára tengingu argent-
ínska gjaldmiðilsins við dollarann á
genginu einn á móti einum. Forset-
inn sagði þá að of hátt gengi pesóans
væri helsta orsök fjármálakrepp-
unnar í Argent-
ínu.
Embættis-
menn í Buenos
Aires segja að
argentínski
gjaldmiðillinn
verði líklega
tengdur við doll-
arann á genginu
3,5 á móti einum,
en það er nú 3 á
móti einum dollar.
Duhalde skipaði í gær nýjan efna-
hagsráðherra í stað Jorge Remes
Lenicovs, sem sagði af sér á þriðju-
dag, og búist er við mikilli uppstokk-
un á stjórninni á næstu dögum. Við
embættinu tekur Roberto Lavagna,
sendiherra Argentínu hjá Evrópu-
sambandinu og fyrrverandi við-
skiptaráðherra.
Forsetinn kvaðst einnig ætla að
tilkynna nýja efnahagsstefnu á
mánudag.
Reglur um
sparifjárúttektir hertar
Lavagna fær það erfiða verkefni
að gera ráðstafanir til þess að Arg-
entína endurheimti traust erlendra
fjárfesta eftir að landið lenti í van-
skilum með erlend lán fyrr á árinu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
einnig sett það skilyrði fyrir neyð-
araðstoð að gripið verði til sparnað-
araðgerða sem hefur mætt mikilli
andstöðu meðal þingmanna.
Þing Argentínu samþykkti um-
deilt frumvarp til að herða reglur um
úttektir af bankareikningum. Sam-
kvæmt reglunum er ekki hægt að
taka út meira en andvirði 50.000 kr. á
mánuði en hæstiréttur landsins úr-
skurðaði að fólk ætti að hafa ótak-
markaðan aðgang að sparifé sínu eft-
ir að sparifjáreigendur höfðuðu
dómsmál. Nýja frumvarpið gerir
stjórninni kleift að áfrýja úrskurð-
inum og féð verður ekki greitt út
fyrr en nýr úrskurður verður felldur.
Pesóinn tengdur við dollarann?
Buenos Aires. AP, AFP.
Roberto
Lavagna
NOKKRIR stjórnmálamenn
og stuðningsmenn Didiers
Ratsiraka, forseta Madagask-
ars, hótuðu í
gær að
stofna sjálf-
stætt ríki í
héraðinu
Toliara ef
Marc Raval-
omanana,
andstæðing-
ur forsetans
í forseta-
kosningun-
um í desem-
ber, yrði lýstur sigurvegari í
þeim. Undir þessa yfirlýsingu
taka síðan héraðsstjórar í öllum
héruðum landsins nema í höf-
uðborginni, Antananarivo, en
sá styður Ravalomanana.
Búist er við, að stjórnar-
skrárdómstóllinn úrskurði í
næstu viku hvor hafi sigrað en í
fyrri umferðinni fékk Ravalom-
anana örlitlu meira fylgi en
Ratsiraka en ekki meirihluta.
Var þá ákveðið, að þeir tækjust
á í annarri umferð. Á það vildi
Ravalomanana þó ekki fallast,
kallaði kosningarnar svindl,
lýsti sjálfan sig forseta og skip-
aði sína eigin stjórn.
Kúrsk rifinn
RÚSSNESKI kjarnorkukaf-
báturinn Kúrsk var dreginn í
gær af tíu prömmum í skipa-
smíðastöð
þar sem
flakið verður
rifið í sund-
ur. Hefur
hann verið í
þurrkví í
marga mán-
uði en þar
var kannað
hvað hefði
valdið sprengingunni, sem
sökkti honum í ágúst 2000.
Fórst öll áhöfnin, 118 manns.
Er rannsókninni lokið án þess,
að ákveðin niðurstaða liggi fyr-
ir.
Veiruvið-
vörun aflétt
GRÍSK yfirvöld tilkynntu í
gær, að skólastarf yrði hafið
aftur en því var hætt fyrir
nokkrum dögum til að draga úr
smiti eða útbreiðslu ókunnrar
veiru. Hefur hún valdið dauða
þriggja manna.
Vísindamenn hafa nú greint
veiruna, sem oft má finna í iðr-
unum, en hún veldur háum hita
og getur lagst á hjartað. Vitað
er um að minnsta kosti 50
manns, sem hafa veikst.
Stórslys
kannað
YFIRVÖLD í Suður-Afríku
hafa fyrirskipað opinbera rann-
sókn á dauða 23 manna, sem
fórust er langferðabíll fór út af
vegi síðastliðið fimmtudags-
kvöld og steyptist niður bratta
hlíð. Vitað er, að slysið varð er
einn hjólbarðinn sprakk en
meðal annars verður kannað
hvort bifreiðin hafi verið í
ástandi til mannflutninga. 62
farþegar voru í bifreiðinni.
Umferðarslys eru óvíða jafn
algeng og í Suður-Afríku og
þau kosta þúsundir manna lífið
á hverju ári.
STUTT
Upplausn
á Mada-
gaskar
Didier
Ratsiraka