Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 18

Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 18
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 18 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ HEILSUSTOFNUN Náttúrulækningafélags Ís- lands í Hveragerði stóð nýlega fyrir málþingi um endurhæfingu krabbameinssjúklinga. Fyrir rúm- um áratug var farið af stað með endurhæfingu fyrir krabbameinssjúklinga á Heilsustofnun, sem hefur gefist vel. Endurhæfingin er sniðin að þörf- um hvers og eins og tekið á andlegum, líkamleg- um og félagslegum afleiðingum sjúkdóms, skurð- aðgerða, lyfja- og geislameðferðar. Meðferðin byggist á hugmyndafræði stofnun- arinar og felst í margþættri fræðslu, þjálfun, slökun og hvatningu. Með þessu móti er fólki hjálpað til að takast á við lífið við nýjar aðstæður. Kostur við endurhæfingu á HNLFÍ er að maki, náinn ættingi eða vinur á kost á að dveljast með sjúklingnum og fá tækifæri til að byggja sig upp á nýjan hátt. Einnig er boðið upp á hópendurhæf- ingu fyrir konur sem fengið hafa brjóstakrabba- mein. Fyrsti frummælandi málþingsins var Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir og svaraði hann m.a. spurningunni, hvers vegna endurhæfing væri nauðsynleg. Bætt meðferð sjúklinga hefur skilað bættri lifun. Sumir sjúklingar læknast, en aðrir læra að lifa með langvarandi sjúkdómi með aðstoð endurhæfingar. Hver eru markmið end- urhæfingarinnar? Þau eru m.a. bætt lífsgæði, verkir minnka, önnur svæði líkamans eru vernd- uð frá hnignun og sjálfsvirðing eykst. Nanna Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur ræddi um endurhæfingu út frá sjónarhóli hjúkrunar og sagði að framtíðarsýnin væri sú að veita fyrir- myndar og framúrskarandi endurhæfingu. Tilraunaverkefni í Kópavogi Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari sagði m.a. í erindi sínu frá tilraunaverkefni, sem hófst í janúar sl. og er á göngudeild LHS, sem staðsett er í Kópavogi. Þar er um að ræða þverfaglegt meðferðartilboð fyrir þá sem fengið hafa krabba- mein og blóðsjúkdóma. Í forgangshóp eru þeir sem eru í meðferð eða hafa verið síðustu 6 mán- uði. Þarna vinna 2 sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfi og sálfræðingur. Boðið er upp á einstaklings- og hópmeðferðir. Reynsla þessarar tilraunar gefur til kynna að mikil þörf er fyrir meðferð sem þessa. 40 beiðnir hafa borist. Sjúklingarnir eru í 90% tilfella konur, flestar með brjóstakrabba- mein. Margrét sagði einnig frá þarfagreiningu, sem hún og Nanna Friðriksdóttir framkvæmdu í mars og apríl sl. Um var að ræða spurningalista sem lagður var fyrir lítið úrtak krabbameinssjúklinga. Könnunin var gerð í tilefni af málþinginu. Í svör- um sem bárust kom m.a. fram að 81% fannst vanta sérhæfða endurhæfingu og sama hlutfall taldi að það myndi nýta sér hana, væri hún í boði. Einungis 3% svarenda sögðust vilja fara inn á legudeild til endurhæfingar sem er í samræmi við það sem frummælendur málþingsins voru sam- mála um. Fólk vill fá að vera sem mest heima á meðan á meðferð stendur. 81% svarenda sagðist vilja líkamlega endurhæfingu en einungis 43% vill fá sálfélagslega endurhæfingu. Aðrir frummælendur voru Sigríður Eysteins- dóttir næringarfræðingur, Sigurður Jónsson sjúkranuddar, Halla Þorvaldsdóttir sálfræðingur og Hjördís Jónsdóttir endurhæfingarlæknir. Allt að 80 manns tóku þátt í málþinginu og fund- arstjóri var Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilsustofnunar. Fjallað um endurhæfingu krabbameinssjúklinga Hveragerði Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Þátttakendur á málþinginu. Á FYRSTA sumardag ( á pólsku: Pierwszy Dzien Lata ), var opið hús í leikskólanum Brimveri á Eyrar- bakka, þar sem til sýnis voru ýmis verk barnanna auk þess sem ný skólanámskrá fyrir árin 2002 til 2006 var lögð fram til kynningar og dreif- ingar. Leikskólinn Brimver hefur starfað síðan 1975. Í fyrstu var skólinn til húsa í Brimveri, húsi Ungmenna- félags Eyrarbakka. Þegar skólinn flutti svo í eigið húsnæði hélt hann nafninu, sem fengið er upphaflega úr skáld- sögum Guðmundar Daníelssonar, en Guðmundur bjó um aldarfjórðung á Eyrarbakka. Núverandi húsnæði skólans var tekið í notkun 30. ágúst 1999. Það er alls 281 fermetri að grunnfleti og rúmar 39 börn samtímis í skóla. Nú eru alls 49 börn í skólanum, þar eð ekki eru öll börnin þar á sama tíma. Þau koma víðsvegar að af Árborgar- svæðinu. Skólinn starfar í tveim deildum, heitir önnur Kötlusteinn og þar eru börn frá eins til þriggja ára. Hin deildin heitir Merkisteinn og hýsir þriggja til sex ára börn. Nokkur barnanna eru af erlendu foreldri, ensku, pólsku og frönsku. Þau eru tví- tyngd og hafa lítið fyrir því. Sem dæmi má nefna að lítill fimm ára hnokki les reiprennandi bæði íslensk- an og pólskan texta. Morgunverður, hádegismatur og síðdegishressing er til reiðu fyrir þá sem vilja. Starfsmenn eru 12, þar af 4 mennt- aðir leikskólakenn- arar, auk þess sem tvær starfsstúlkur stunda fjarnám við Kennaraháskól- ann og ljúka því væntanlega á þessu ári. Leikskólastjóri er Kristín Eiríks- dóttir. Skólinn er rekinn af sveitarfé- laginu Árborg. Þema skólans er að ala með börnunum víðsýni og umburðar- lyndi. Kenna þeim að njóta leikgleði, að öðlast færni til samskipta og örva sköpunargleði þeirra. Leitast er við að hafa sem best samband við foreldra, sem hafa verið mjög áhugasamir um skólann. Kynning landanna sem sum barnanna eiga tengsl við hefur verið unnin með góðri hjálp foreldra þeirra. Þá hefur skólinn tölvur til nota fyrir eldri börnin, ýmis kennsluforrit og fleira sem tilheyrir tækni nútímans. Opið hús í leikskól- anum Brimveri Eyrarbakki Börnin á leikskólanum eru víðsvegar að úr Árborg. Morgunblaðið/Óskar SUMARDAGURINN fyrsti heils- aði með sól og kyrrlátu veðri á Selfossi. Skátar fóru fyrir hefð- bundinni skrúðgöngu um götur frá Sandvíkurskóla til skáta- messu í Selfosskirkju. Fjöldi fólks var í göngunni og naut hreyf- ingar og sólar á þessum fyrsta sumarmorgni ársins. Húsfyllir var í kirkjunni þar sem skátarnir mynduðu fánagöng fyrir göngu- fólk á leið inn í kirkjuna. Morgunblaðið/Sig. Jóns Sumri heilsað Selfoss Elva Rún og Esther Ýr voru í sumarskapi þegar þær tylltu sér á stein við Aust- urveginn á Selfossi að lok- inni skrúðgöngu með skát- unum á sumardaginn fyrsta. ÞAÐ er einn af vorboðunum í Þorlákshöfn þegar félagar úr Kiwanisklúbbnum Ölveri koma í grunnskólann og gefa öllum börnum í 1. bekk reið- hjólahjálma. Þetta hafa þeir kiwanisfélagar í Þorlákshöfn nú gert í tíu ár þannig að segja má að allur skólinn sé nú búinn að fá hjálma. Að vísu koma ávallt ný börn í skólann þannig að vorboðinn verður áfram vel þeginn. Að þessu sinni komu þeir ekki í skólann með hjálmana heldur buðu nemendum 1. bekkjar ásamt foreldrum þeirra í pylsuveislu í Kiw- anishúsinu, þar mætti lög- reglan og ítrekaði nauðsyn þess að nota hjálmana og fara varlega í umferðinni. Skóla- börn í Hveragerði koma einnig til með að njóta góðs af eins og undanfarin ár. Þeir kiw- anismenn standa ekki einir að gjöfinni því þeir eru styrktir af Sveitarfélaginu Ölfus, Hvera- gerðisbæ, Vátryggingafélagi Íslands, Tryggingamiðstöðinni og Búnaðarbankanum í Hvera- gerði. Hjálmavæðingu skólans er lokið Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson Þau eru stolt með nýju reiðhjólahjálmana sína, börnin í 1. bekk grunnskól- ans, og ekki eru þeir síður stoltir af góðum verkum kiwanisfélagarnir. Þorlákshöfn HOLLVARÐASAMTÖK Fjöl- brautaskóla Suðurlands voru stofnuð á sumardaginn fyrsta með stofnfundi í skólanum. Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl milli brautskráðra nemenda skólans, innbyrðis og við skólann, og hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni. Formaður nýkjörinnar stjórnar samtakanna er Hjörtur Þórarins- son og auk hans voru á stofnfund- inum kosin í stjórnina þau Anna S. Árnadóttir og Sigurður Eyþórs- son, en síðan munu Starfsmanna- félag FSu og Nemendafélag FSu hvort tilnefna einn mann í stjórn- ina. Stofnun samtakanna hefur mælst mjög vel fyrir og hafa nú þegar á þriðja hundrað einstak- lingar gerst aðilar að samtökunum auk á fjórða tugar fyrirtækja og félagasamtaka. Hægt er að skrá sig í samtökin á heimasíðu skól- ans, www.fsu.is, og munu þeir telj- ast til stofnfélaga sem skrá sig í samtökin fyrir 25. maí nk. Morgunblaðið/Sig. Jóns Undirbúningshópur að stofnun Hollvarðasamtaka Fjölbrauta- skóla Suðurlands: Hjörtur Þór- arinsson, Sigurður Eyþórsson, Sigurður Sigursveinsson, Anna Árnadóttir, Gunnar Þorsteins- son og Ásmundur Sv. Pálsson. Hollvarða- samtök stofnuð Selfoss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.