Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 54

Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 54
DAGBÓK 54 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Gud- run, Ásbjörn, Queen T og Ottó N. Þorláksson koma í dag. Atlas fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Obsana kom í gær. Mannamót Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl 11. Kóræfingar hjá Vor- boðum, kór eldri borg- ara í Mosfellsbæ á Hlað- hömrum fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014, kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fót- anudd, s. 566 8060 kl. 8– 16. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli Morgungangan verður í dag kl. 10 frá Hraunseli. Á mánudag púttað í bæjarútgerð kl. 10– 11.30, félagsvist kl 13.30. Framboðsfundur um bæjarmál verður 2. maí kl 14 á vegum FEB , á fundinn mæta fulltrúar allra flokka og svara spurningum. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ, Flatahrauni 3. Sunnud: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánud: brids kl. 13. Þriðjud: Skák kl. 13. Miðvikud: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Sögu- slóðir á Snæfellsnesi og þjóðgarðurinn Snæfells- jökull 3 daga ferð 6.–8. maí gisting á Snjófelli á Arnarstapa, farið verð- ur á Snæfellsjökul, leið- sögn Valgarð Runólfs- son. Skráning hafin á skrifstofu FEB. Baldvin Tryggvason verður til viðtals miðvikudaginn 8. maí nk. um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB, panta þarf tíma. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum frá kl. 10–12 f.h. í síma 588 2111. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf, Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug á veg- um ÍTR á mánu- og fimmtudögum kl. 9.30. Boccia á þriðjudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 9.30, umsjón Óla Kristín Freysteins- dóttir. Í dag kl. 13–16 myndlistasýning Huga Jóhannessonar opin, listamaðurinn á staðn- um, veitingar í Kaffi Berg. Hvassaleiti 56–58. Leik- húsferð: föstudaginn 5. maí verður farið að sjá Kryddlegin hjörtu í Borgarleikhúsinu. Skráning á skrifstofunni og í síma: 588 9335.Þriðjud: kl. 10:30 Söngstund við pí- anóið, kl. 13:30 Helgi- stund. Þorvaldur Hall- dórsson kemur í heimsókn og syngur. Vesturgata 7. Hand- verksýning verður 10. 11. og13. maí frá kl. 13– 17 alla dagana. Meðal annars verður sýnt hannyrðir, postu- línsmálun, myndmennt tréútskuður og leir- mótun. Ragnar Páll Einarsson leikur á hljómborð alla dagana. Kl. 15 10. og l1. maí sýna nemendur Sig- valda dans. 13. maí kl 15 syngja Hvannirnar und- ir stjórn Sigurbjargar Petru Hólmgríms- dóttur. Hálfsdagsferð. Þriðjud. 30.apríl kl.13: Farið verður á mynd- listarsýningu, Erlu Sig- urðardóttur á Listasetr- inu Kirkjuhvoli, Akranesi. Kaffiveit- ingar, skoðunarferð um Akranesbæ undir leið- sögn Bjarnfríðar Leósdóttur. Skráning í s. 562 7077. Athugið tak- markaður sætafjöldi. Allir velkomnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópavogi alla laugardagsmorgna. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, matur, óvissu- ferð með Kristjáni Guð- mundssyni. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Aðalfundur Kl. 14 GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Samtökin gegn fátækt halda opinn fund laug- ardaginn 27. apríl kl. 14.30 í Hallgrímskirkju. Umræður: Frambjóð- endur borgarstjórn- arkosninganna mæta. Allir velkomnir. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Árlegur fjáröfl- unardagur verður sunnudaginn 5. maí í Safnaðarheimilinu. Kaffisala félagsins með kökuhlaðborði og hluta- veltu. Húsið opið frá kl. 14. Lifandi tónlist. Tek- ið á móti kökum frá kl. 11 sunnudaginn 5. maí. Allir velkomnir. Svarfdælingar í Reykjavík og nágrenni, vorkaffi verður í safn- aðarheimili Háteigs- kirkju sunnud. 28. apríl kl.15, kór Svarfdæla sunnan heiða tekur lag- ið. Lífeyrisþega deild Sfr. Aðalfundur inn veður í dag laugardag 27. kl. 14. í félagsmiðstöðinni Grettisgötu 89, 4. hæð venuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Átthagafélag Sandara Aðalfundurinn og kynn- ing á þjóðgarðinum Snæfellsjökull verður haldið í Litlu-Brekku (hús á bak við veitinga- húsið Lækjarbrekku í Bankastræti) sunnud. 28 apríl kl. 14. Að lokn- um venjulegum aðal- fundastörfum mun fara fram kynning á þjóð- garðinum Snæfellsjök- ull. Um kynninguna munu sjá Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóð- garðsvörður og Skúli Alexandersson. Árshá- tíð félagsins 4. maí, kynnt. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi. Á vegum nefndarinnar verða farnar tvær ferðir á þessu sumri: að Kirkju- bæjarklaustri13.–15. júní, í Skagafjörð 22.– 24. ágúst. Hvíldar- og hressingardvöl að Laug- arvatni 24.–30. júní. Þær konur sem ekki hafa notið orlofs síðast- liðin 2–3 ár ganga fyrir um rými. Innr í s. 554 0388 Ólöf , s. 554 2199 Birna frá 18. apríl–10. maí. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Sambandið ver ágóðanum af þessu til boðunar- og hjálp- arverkefna í Eþíópíu og Kenýu. Móttaka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak. Breiðfirðingafélagið. Sumarfagnaðurinn verður í kvöld í Breið- firðingabúð, Faxafeni kl. 22 í kvöld. Breið- bandið og Arna Þor- steins sjá um fjörið. Kvennadeild Barð- strendingafélagsins. Sumarfagnaðurinn verður sunnudaginn 28. apríl kl. 14 í Breiðfirð- ingabúð Faxafeni 14, fyrir 65 ára og eldri úr Barðastrandasýslu. Í dag er laugardagur 27. apríl, 117. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og þótt þér gjörið þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða þökk eigið þér fyr- ir það? Syndarar gjöra og hið sama. (Lúk. 6, 33.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 drekkur, 4 hagvirkum, 7 upptökum, 8 urr, 9 fita, 11 hluta, 13 klína, 14 furða, 15 vegg, 17 galdra- kvendi, 20 garmur, 22 lágfótur, 23 vatnsfall, 24 víðar, 25 rannsaka. LÓÐRÉTT: 1 hákarlshúð, 2 hænur, 3 sterk, 4 heitur, 5 ham- ingja, 6 lítill silungur, 10 bárur, 12 nöldur, 13 ambátt, 15 megnar, 16 sprungum, 18 krafturinn, 19 gabba, 20 ósoðinn, 21 frábrugðin. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 fornöldin, 8 lubbi, 9 kylfa, 10 tík, 11 tuðra, 13 senna, 15 flesk, 18 sussa, 21 ólm, 22 feigð, 23 eirum, 24 gleðskaps. Lóðrétt: 2 ofboð, 3 neita, 4 lokks, 5 iglan, 6 slít, 7 rata, 12 rós, 14 eru, 15 fífa, 16 Egill, 17 kóðið, 18 smeyk, 19 skróp, 20 aumt. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Óðaverðbólga í ís- lenskum brauðum ÞEGAR gengið er inn í ís- lenskt bakarí til að kaupa sér brauð eða eina vesæla köku með bleikum glassúr, verður mikið gengisfall á íslensku krónunni – hún ekki bara fellur í verði – nei hún hrapar beinlínis niður og neðar. Brauð eru svo miklu dýrari hérlendis en gerist og gengur í öðrum Evrópulöndum, stundum margfalt dýrari – þrisvar sinnun, fjórum sinnum er ekki óalgengt. En neyt- endasamtökin íslensku hafa hreint ekkert um þessa óðaverðbólgu í ís- lenskum brauðum og kök- um að segja: Þaðan heyrist hvorki hósti né stuna, þótt okrið á brauðvörum sé nán- ast ævintýralegt og með öllu taumlaust og hafi stað- ið í áratugi. Ekki virðast stjórnvöld landsins heldur hafa neitt við þau verðlags- mál að athuga. Það ein- kennilega er að hráefnið, hveiti, mjöl og sykur er yf- irleitt selt hérlendis á nokkru lægra verði en í ná- grannalöndunum, svo ekki getur dýrt hráefni verið skýringin. Það vakti hneykslan alþjóðar þegar í ljós kom að um verðlagn- ingu grænmetis var samið á spássertúrum í Öskuhlíð – til að verðleggja brauð- vörur hittast menn kannski í Bakarabrekkunni? Njáll. Fyrirspurn til Framsóknarfélags Reykjanesbæjar KÆRA stjórn Framsókn- arfélags Reykjanesbæjar. Nú fer að styttast í bæj- arstjórnakosningar hér í bæjarfélaginu og ég geri ráð fyrir því að það verði harður kosningaslagur á milli flokkanna. Því er ég mjög hissa á að búið sé að leggja niður starfandi félag hér, Framsóknarfélag Njarðvíkur, en það virtist fara mjög í taugarnar á mönnum hér að þetta litla félag skyldi vera til. Menn virtust ekki skilja það að þetta litla félag hafði mikinn stuðning í Njarð- víkum, en nú er sá stuðn- ingur farinn til annarra flokka. Hvar er nú sam- heldnin? Hvar er samstað- an, kæru Framsóknar- menn? Þetta voru stór mistök og afleiðingarnar geta ver- ið þær að ekki fáist maður inn í kosningunum í vor. Það munar um alla. Vonast ég eftir skýring- um um þessi mál. Munið að kosningar snú- ast um fólkið í byggðarlag- inu en ekki um persónur, eða persónulegar skoðanir á Framsóknarfélagi Njarð- víkur. Kær kveðja – og vona ég að ykkur gangi sem allra best í kosningunum í vor. Ingigerður Guðmunds- dóttir, Njarðvík. Tapað/fundið Átekin filma týndist 24 mynda kodak filma átek- in í hulstri týndist 5.–10. mars á höfuðborgarsvæð- inu. Skilvís finnandi hafi samband í síma 555 0206. Dýrahald Köttur í óskilum SVARTUR og hvítur kött- ur, ólarlaus, er í óskilum á Suðurnesjum. Kötturinn hefur hugsanlega komist þangað í bíl því hann var út- ataður í olíu. Upplýsingar hjá Jóni í síma 847 8267. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... BETRI helmingur Víkverjagegnir starfi formanns hús- félagsins í stigaganginum þar sem Víkverji býr. Af þeim sökum barst inn á heimilið á dögunum bréf frá dreifingarstjóra Íslandspósts þar sem bent var á að póstkassar í and- dyri stigagangsins uppfylltu ekki skilyrði reglugerðar um grunnþjón- ustu nr. 505/1997. Var farið fram á að úr þessu yrði bætt fyrir 15. júní næstkomandi. Ekki var tilgreint í bréfi dreifing- arstjórans hverju væri ábótavant við póstkassana en hins vegar fylgdi með ljósrit úr fyrrnefndri reglugerð og var sérstaklega merkt við 12. grein sem ber yfirskriftina „Bréfakassar og bréfarifur“. Í þessu merka plaggi mátti lesa ýmislegt markvert um það hvernig póstkassar skuli vera úr garði gerð- ir. Meðal annars kom fram að bréfarifur skulu vera minnst 25x260 mm að stærð. Við hverja bréfarifu og/eða á hverjum kassa í kassasam- stæðu skal vera skilti eða gluggi, minnst 26x100 mm að stærð, þar sem tilgreint er með stóru og skýru letri fullt nafn húsráðanda og ann- arra sem hjá honum búa. Innbyrðis staðsetning kassanna skal vera sem eðlilegust, t.d. kassi fyrir íbúð á fyrstu hæð neðstur til vinstri í samstæðunni o.s.frv. Fleira markvert má lesa í reglu- gerð um grunnþjónustu, sem lætur fátt fram hjá sér fara. Víkverji er t.d. ekki viss um að hundaeigendur séu upplýstir um að þar sem hund- ur er á heimili viðtakanda getur póstþjónustuaðili krafist þess að bréfakassi sé staðsettur gangstétt- armegin við lóðarmörk. x x x NÚ ER betri helmingur Vík-verja allur af vilja gerður en átti þó í hinu mesta basli með að finna út hvað væri athugavert við póstkassana í anddyri blokkarinn- ar. Gat t.d. verið að gluggarnir á póstkössunum, þar sem nöfn íbú- anna eru skráð, væru ekki af réttri stærð? Eða var innbyrðis staðsetn- ing kassanna óeðlileg? Brá hann því á það ráð að senda tölvupóst til dreifingarstjórans þar sem hann óskaði eftir að það yrði nánar til- greint hvað væri að kössunum. Svar kom um hæl eftir að dreif- ingarstjórinn hafði persónulega gert sér ferð í blokkina með bréf- beranum til að gera úttekt á póst- kössunum. Og útkoman var sláandi: „Niðurstaðan er sú að hæð frá gólfi að efri jaðri bréfarifu er um 1.800 mm en samkvæmt reglum má hæð- in ekki fara yfir 1.750 mm.“ x x x LIGGUR því fyrir að til að upp-fylla kröfur póstþjónustunnar þarf að rífa alla póstkassasamstæð- una af veggnum í anddyri blokkar Víkverja, sem líklega mun kalla á að anddyrið þurfi málunar við eftir á. Síðan yrðu kassarnir festir aftur upp og þess gætt að þeir væru inn- an réttra hæðarmarka (og ekki of lágt þannig að neðri jaðar neðstu bréfarifu færi ekki undir 700 mm) og eðlilega staðsettir innbyrðis. Þetta myndi vissulega allt kosta sitt fyrir fátækt húsfélagið en Vík- verji hefur verið að velta því fyrir sér hvort ekki megi leysa málið með því að útvega bréfberanum skemil, sem jafnvel gæti verið hærri en þeir fimm sentímetrar sem munar, ef hann er svo lágvaxinn að hann eigi í erfiðleikum með að ná upp í efri bréfarifurnar í blokk Víkverja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.