Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
og sýslumaðurinn í Kópavogi
annars vegar og formaður
bæjarráðs og bæjarstjóri
Kópavogs fyrir hönd Kópa-
vogsbæjar hins vegar hafa
gert með sér samkomulag um
fíkniefnavarnir í grunnskól-
um bæjarins.
Í samstarfssamningnum
segir að aðilar séu sammála
um að hafa samstarf um fíkni-
efnavarnir og vinna markvisst
gegn útbreiðslu og neyslu
fíkniefna meðal nemenda í
grunnskólum Kópavogs. Þeir
telja mikilvægan þátt í fíkni-
efnavörnum að halda uppi öfl-
ugri fræðslu meðal nemenda
um skaðsemi fíkniefna og
jafnframt að leita allra leiða
til þess að ná framangreindu
markmiði. Lögð er áhersla á
að lögreglan í Kópavogi, Fé-
lagsþjónustan og grunnskólar
bæjarins hafi með sér öflugt
samstarf um þetta verkefni. Í
samræmi við þessi markmið
hefur Kópavogsbær lýst því
yfir að hann sé reiðubúinn til
þess að ráða starfsmann í
heilt stöðugildi til þess að
sinna forvörnum í fíkniefna-
málum í grunnskólum Kópa-
vogs og mun bærinn annast
launagreiðslur hans. Mun
starfsmaðurinn m.a. bera
ábyrgð á tengslum og sam-
vinnu lögreglu og fjöl-
skyldudeildar er lúta að al-
mennri fræðslu til nemenda
og aðgerðum í einstökum
fíkniefnamálum er berast
stofnunum.
Tímamótasamningur
„Samningur þessi markar
tímamót,“ sagði Sólveig Pét-
ursdóttir dómsmálaráðherra
við undirritun hans. „Með
honum verður samstarf bæj-
aryfirvalda og lögreglu gert
mun nánara, sem ég tel að
geti leitt til þess að störf
beggja aðila, félagsmálayfir-
valda í Kópavogi og lögregl-
unnar verði markvissara.“
Þá sagði Sólveig að fíkni-
efnavandinn væri áhyggjuefni
fyrir Íslendinga. „Við náum
ekki árangri í þessari baráttu
nema með því að takast á við
vandann með öllum þeim að-
ferðum sem okkur eru mögu-
legar og alls staðar þar sem
hann birtist. Við verðum að
leggja áherslu á löggæslu,
tollgæslu, alþjóðlega sam-
vinnu, meðferðarúrræði og
síðast en ekki síst, forvarnir.“
Samningur sem stuðlar að auknum forvörnum í bænum
Nánara samstarf bæjar-
yfirvalda og lögreglu
Morgunblaðið/Golli
Gunnar Birgisson, forseti bæjarstjórnar, Sólveig Péturs-
dóttir dómsmálaráðherra, Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, og Þorleifur Pálsson sýslumaður við undirritun
samstarfssamningsins í gær.
Kópavogur
SIV Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra veitti í
gær leikskólanum Norð-
urbergi í Hafnarfirði við-
urkenningu í tilefni af
Degi umhverfisins fyrir
brautryðjendastarf í um-
hverfismálum leikskóla.
„Leikskólar hafa í
miklum og vaxandi mæli
sinnt umhverfisfræðslu á
síðustu árum og standa
fyllilega jafnfætis öðrum
skólastigum hvað varðar
áhuga og framtak á sviði
umhverfismála,“ segir í
frétt frá umhverfisráðu-
neytinu. „Norðurberg í
Hafnarfirði hefur þar
unnið brautryðjendastarf
undir forystu leik-
skólastjórans þar, Önnu
Borg Harðardóttur.“
Starf að umhverf-
ismálum í Norðurbergi
hófst fyrir sex árum,
fljótlega eftir að Anna
réðst til starfa við leik-
skólann. Leikskólinn fékk
styrk til að vinna að þró-
unarverkefni sem hlaut
nafnið Umhverfismennt í
leikskóla.
Skýrslu um verkefnið
var skilað til mennta-
málaráðuneytisins árið
1998 og hefur það nýst
öðrum leikskólum til þess
að hefja starf að um-
hverfismálum.
Leikskólastjórinn hefur
einnig heimsótt leikskóla
víða á höfuðborgarsvæð-
inu til að fræða þá um
starfið á Norðurbergi. Á
Norðurbergi eru börnin
frædd um náttúruna með
því að fara með þeim um
nánasta umhverfi sitt og
segja þeim frá því sem
ber fyrir augu. Allt sorp
er flokkað og allar mat-
arleifar og annar lífrænn
úrgangur jarðgerður.
Fernur eru skolaðar og
börnin læra að láta ekki
vatn renna að óþörfu eða
ljós loga í dagsbirtu.
Morgunblaðið/Golli
Anna Borg Harðardóttir, leikskólastjóri Norður-
bergs í Hafnarfirði, tekur við umhverfisviðurkenn-
ingunni hjá Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra.
Norðurberg fær
viðurkenningu
Hafnarfjörður
„ÞAÐ er eins og að renna sér
í gegnum regnbogann eða
vera á diskóteki að fara niður
nýju vatnsrennibrautina
okkar,“ segir Alfreð Alfreðs-
son, laugarvörður í Grafar-
vogslaug, en ný vatnsrenni-
braut var formlega opnuð af
Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra á sum-
ardaginn fyrsta. „Renni-
brautin er rúmlega 50 metra
langt svarthol, en á nokkurra
metra kafla kemur mikil lita-
dýrð í brautina,“ segir Al-
freð. Þá var einnig opnuð ný
útilaug, 12 metra barnalaug
með barnarennibraut.
Grafarvogslaug var troð-
full af börnum við opnunina
en fyrstu ferðina í nýju
vatnsrennibrautinni fóru
börn og barnabörn starfs-
fólks laugarinnar, sem voru
að sögn Alfreðs himinlifandi
með brautina. Hann segir að
með nýju brautinni og nýju
barnalauginni sé aðstaðan í
Grafarvogslaug orðin mjög
góð fyrir jafnt börn sem full-
orðna.
Ný vatns-
rennibraut
tekin í notkun
Grafarvogur
Svarthol eða diskótek? Börnin létu vel af nýju brautinni, enda spennandi að koma úr niða-
myrkri á fleygiferð og þeysast undir regnbogann í 50 metra langri brautinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri klippti á borðann
við opnun nýju vatnsrennibrautarinnar.
Menningarmálanefnd
Garðabæjar stendur fyrir
opnum kynningarfundi um
býlið Krók á Garðaholti og
umhverfi hans á mánudags-
kvöldið 29. apríl nk. kl. 20–
22 í samkomuhúsinu á
Garðaholti. Í frétt frá
Garðabæ kemur fram að
Krókur sé lítill bárujárns-
klæddur burstabær sem var
endurbyggður úr torfbæ ár-
ið 1923. Í bænum var búið
allt til ársins 1985. Afkom-
endur síðustu íbúanna í
Króki gáfu Garðabæ bæjar-
húsin í Króki ásamt útihús-
um og innbúi árið 1998 með
því skilyrði að bærinn yrði
endurbyggður sem nú hefur
verið gert. Bærinn þykir
gott dæmi um húsakost og
lifnaðarhætti alþýðufólks á
þessum landshluta á fyrri
hluta 20. aldar.
Kynningarfundur á
Króki og umhverfi hans
Garðabær
SUMARDAGURINN fyrsti
var helgaður Halldóri Laxness
í Mosfellsbæ og einkenndust
hátíðarhöld af því. Nemendur
grunnskólanna tveggja, Lága-
fellsskóla og Varmárskóla,
sýndu metnaðarfulla dagskrá
sem samanstóð af leikþáttum
úr verkum Halldórs, myndlist-
arsýningum svo og fjölda tón-
listaratriða. Mátti þar sjá
börnin bregða sér í gervi Hall-
dórs sjálfs og þá blésu þau
einnig lífi í persónur bóka hans
með eftirminnilegum hætti, en
fjöldi gesta sótti skemmtanir
skólanna. Laxnesshátíð verður
áframhaldið í Mosfellsbæ nú
um helgina.
Sumar-
komu
fagnað
á Lax-
nesshátíð
Mosfellsbær
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessi verk voru meðal þeirra sem sýnd voru á myndlistarsýningu í Varmár- og Lágafells-
skóla á sumardaginn fyrsta í tengslum við Laxnesshátíð Mosfellsbæjar.