Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 19 Zanussi uppflvottavél DA 6152 Bogadregin hurð og stjórnborð. 5 þvottakerfi. 2 hitastillingar. 44.995,- Ver› á›ur 49.995 kr. Tefcold kæliskápur KS 150/RV Með frysti. Samtals 178 lítra. 17 lítra frystihólf. 24.995,- Wilfa örbylgjuofn WP800P20 20 lítra. 6 þrepa hitastillir og affrysting. Snúningsdiskur. Emeleraður að innan. 30 mín. tímastilling. Gefur hljóðmerki. Wilfa-olíufylltur rafmagnsofn CR0610A 1000 W Umhverfisvænn. Hraðvirk hitun. Sjálfvirkur hitastillir heldur jöfnum hita í rýminu. Á tveimur hjólum. 3 hitastillingar. 6.995,- Ver› á›ur 7.995 kr. E i nn heitur í b ú s t a ð i n n 49.995,- Á›ur 36.995 kr. 29.995,- - 7.000kr. Philco Bendix flurrkari Pho-DN550 Tvíátta barkaþurrkari. Kaldur blástur fyrir viðkvæman þvott. 5.000kr. 10.000kr. Ei nn kaldur í b ú s t a ð i n n 2 9.995,- Ei nn góður í b ú s t a ð i n n Við eigum auglýstar vörur! i SMÁRALIND KÓPAVOGI – S. 569 1550 S t æ r s t a v e r s l u n a r k e ð j a m e ð r a f t æ k i í E v r ó p u ! ÞETTA GÆTI KOMIÐ SÉR VEL Þú kau pir nún a en b orgar e kki fyr stu afborg un fyrr en eft ir 4 mán uði, va xtalau st. Og þá er mög uleiki á allt a ð 32 m ánaða raðgre iðslu. FYRSTA AFBO RGUN Í SEPTE MBER! 0VEXTIR% 1 3 ára ábyrgð ef greitt er með biðgreiðslum eða raðgreiðslum Visa, annars 2 ár. 2 Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi í umbúðum. Gildir ekki um tölvur, geisladiska, DVD diska, GSM síma og vörur til persónulegra nota. Starfsfólk veitir frekari upplýsingar. Philco flvottavél WMN 1262MX 1200 snúninga. Tekur 5 kg. 13 þvottakerfi, m.a. ullarkerfi. Tekur inn heitt og kalt vatn. snúnin ga r1200 Philco kæli- og frystiskápur Pho-FR240 240 l með grænmetisskúffu. 59.995,- 1 ÁBYR GÐ Á›ur 59.995 kr. - 10.000kr. Á›ur 69.995 kr. BROTIST var inn á tveimur stöðum á Hólmavík aðfaranótt miðvikudags, á veitingastaðinn Café Riis og í félagsheimilið á staðnum. „Aðkoman var ansi skrautleg og mér finnst það nú óskiljanlegt, fyrst þeir voru á annað borð að brjótast inn, að þeir skyldu ekki tæma barinn og halda ærlega veislu,“ sagði Magnús Magnús- son, veitingamaður og eigandi Café Riis á Hólmavík, en þegar hann kom til vinnu að morgni síð- asta vetrardags hafði verið brot- ist þar inn um nóttina. Þjófarnir hafa byrjað á því að reyna að brjóta upp dyrnar að framanverðu en fóru svo í gegn- um glugga á bakhlið hússins. „Það var búið að taka nokkrar vínflöskur en þeir hafa verið mjög vandlátir á vín og greini- lega að þetta hafa verið einhverj- ir sem voru að leita að vímuefn- um því sjúkrakassinn var tæmdur. Þá var spilakassi Rauða krossins eyðilagður og allt fé- mætt tekið úr honum svo og allt þjórféð frá því við opnuðum stað- inn. Þetta hafa líklega verið snyrtimenni því þá hefur vantað umbúðir utan um peningana og losað til þess kaffipakka en helltu kaffinu í skál á borðinu. Þeir hafa fundið lykilinn að skrifstofunni sem er hér uppi í húsinu og rótað þar. Ég held að við getum verið þakklát fyrir að ekki var allt lagt hér í rúst.“ Þá var brotist inn í félagsheim- ilið á Hólmavík og þaðan stolið myndvarpa og smámynt úr skúff- um starfsmanna. Að sögn Hann- esar Leifssonar, lögregluvarð- stjóra á Hólmavík, er rannsókn á frumstigi. „Við erum með ákveðna vísbendingu,“ sagði Hannes en hann er rannsóknar- lögreglumaður og starfaði í mörg ár í fíkniefnalögreglunni í Reykjavík. „Ég hef verið að vara sérstaklega við þessu hérna, að þessir menn eru orðnir svo þekktir á Reykjavíkursvæðinu að þeir fara að snúa sér að lands- byggðinni. Fólk hérna hefur ver- ið grandalaust fyrir svona löguðu og þetta sýnir að það verða allir að vera á varðbergi. Oftast taka þeir dýra hluti sem auðvelt er að koma í verð,“ sagði Hannes. Verðmætum stolið í innbrotum Hólmavík SUMARIÐ heilsaði með óvenju kuldalegum svip að morgni fyrsta sumardags. Alla nóttina hafði snjó- að í logni og var jafnfallinn snjór í ökkla en frostið 3 gráður. Á fimmtudag var norðan kuldanepja með skafrenningi og um kvöldið var frostið komið í 7 stig. Mikið er komið af fugli en raddir vorsins hafa hljóðnað. Snjótittlingar hafa hópað sig að nýju og vilja fá gjöfina sína heima við hús, svo sem var í vetur. Flórgoðinn lónar við vatns- bakkann og andfuglar sækja að volgum svæðum vatnsins. Síðdegis á fimmtudag hafði floti af gæsum sest að á túni bónda, komið sér þar fyrir með höfuð undir væng. Morgunblaðið/BFH Úr Hlíðarkambi um kvöldverð- arleytið á sumardaginn fyrsta. Kuldaleg sumarkoma Mývatnssveit SUMARDAGURINN fyrsti er sér- íslenskur siður og kærkominn fyrir fólk því þá er frí hjá flestum og eng- inn skóli. Þór Jónsson sem á heima í Vík notaði tækifærið og brá sér í heimsókn í sveitina og fékk að halda þar á rétt nýfæddum lamb- hrút sem er bíldóttur á litinn, en um þessar mundir er sauðburður að hefjast á mörgum bæjum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þór Jónsson sem býr í Vík kom í heimsókn til fréttaritara til að skoða fyrsta lamb sumarsins. Lömb í sum- arbyrjun Fagridalur ÁKVEÐIÐ hefur verið að kanna hug kjósenda til sameiningar sveitarfé- laganna frá Bakkafirði og Vopna- firði, um Norður- og Austur-Hérað og Fellahrepp, til Seyðisfjarðar. Stýrihópur um hugsanlega samein- ingu sveitarfélaga á norðursvæði Austurlands, sem samþykkti þetta nýverið, hefur óskað eftir því að sveitarstjórnir á þessu svæði af- greiði málið frá sér ekki síðar en 15. maí nk. Fulltrúi Þróunarstofu Austur- lands og Háskólinn á Akureyri munu sinna undirbúningi málsins og gefa út kynningarbækling um sameining- arhugmyndirnar. Honum verður dreift meðal íbúa svæðisins fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Skoðanakönn- un eystra Egilsstaðir ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.