Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 28

Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 28
LISTIR 28 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni hæð í Víkurhverfi, Grafarvogi. 4 svefnherb. Bílskúr. Tvö af raðhúsunum eru með tvöfaldan bílskúr. Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060. Raðhús - Víkurhverfi SALTFISKURINN syngur er yfirskrift tvennra tónleika sem Kammerkór Kópavogs heldur um helgina. Fyrri tónleikarnir verða í Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði á laugardag kl. 16, hinir síðari í Iðnó á sunnudag kl. 16, en þeir eru lið- ur í sýningunni Laxness og leiklistin, sem þar stendur yfir. Á tónleikunum verða flutt þekkt lög eftir Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og Jón Nordal úr leikritum Laxness en einnig lög sem minna eru þekkt. Þrír kórfélagar syngja ein- söng á tónleikunum, þau Þóra Guðmannsdóttir, Pétur Örn Þórarinsson og Þórunn Elín Péturs- dóttir. Sú síðastnefnda mun frumflytja lag eftir stjórnanda kórsins, Gunnstein Ólafsson, við ljóðið „Frændi þegar fiðlan þegir“ og Pétur Örn syngur „Lagstúf úr Atómstöðinni“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Í bókinni er það guðinn Benjamín sem syngur en guðinn Brilljantín leikur undir á saltfisk. Að auki verður flutt kórverkið „Við Kína- fljót“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð Þor- geirs Sveinbjarnarsonar, en verkið var síðast flutt á tónleikum fyrir aldarfjórðungi. Undir- leikari á tónleikunum er Vilhelmína Ólafs- dóttir, píanóleikari. Morgunblaðið/Sverrir Þóra Guðmannsdóttir, Gunnsteinn Ólafsson stjórnandi, Pétur Örn Þórarinsson, Þórunn Elín Pét- ursdóttir og Vilhelmína Ólafsdóttir píanóleikari. Saltfiskur- inn syngur DAGSKRÁ tileinkuð verkum Þor- valdar Þorsteinssonar verður í Borgarleikhúsinu í dag. Leikverk Þorvaldar verða skoðuð frá mörg- um mismunandi sjónarhornum. Textar úr verk- um hans verða leiknir, leiklesn- ir, skoðaðir og skeggræddir á Nýja sviði, Litla sviði og í forsal Borgarleikhúss- ins. Þorvaldur hefur verið nokkurs konar hirðskáld hjá Leikfélagi Reykjavíkur í vetur, þar sem leikgerðin af bókunum hans um Blíðfinn var sýnd fyrr á árinu, en And Björk, of course ... var frumsýnd fyrr í þessum mánuði. Auk Leikfélags Reykjavíkur eru bæði Möguleikhúsið og Stopp leik- hópurinn að leika verk eftir Þor- vald. Dagskráin hefst með sýningu á vegum Möguleikhússins á barna- leikritinu Prumpuhóllinn á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Kl. 14 verður leiklestur á Maríusögum og leikarar flytja inngang frá höfundi. Kl.16.30 verður söngur og flutt stutt brot úr verkum Þorvaldar og fjallað um leikskáldið. Kl. 17.30 eru pallborðsumræður undir stjórn Benedikts Erlingssonar. Auk leikara Möguleikhússins koma fram fjölmargir leikarar Leikfélags Reykjavíkur og leik- stjórar. Um kvöldið verður sýning á And Björk, of course ... á Nýja sviðinu. Borgarleikhúsið Dagskrá helguð Þor- valdi Þor- steinssyni Þorvaldur Þorsteinsson ♦ ♦ ♦ Í EDEN í Hveragerði stendur ný yf- ir 10. einkasýning Ólafar Pétursdótt- ur listakonu. Þar gefur að líta vatns- litamyndir frá ýmsum tímum. Myndmótíf hennar eru ýmis, m.a. landslag og uppstilling. Heimabær hennar Hafnarfjörður er einnig við- fangsefni hennar. Sýningin er opin til 6. maí. Vatnslita- myndir í Eden VIÐ upphaf Sæluviku á Sauðárkróki frumsýnir Leikfélag Sauðaárkróks annað kvöld Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjóns- son í leikstjórn Stefáns Sturla Sigurjónssonar, í félagsheimilinu Bifröst og er það fyrsta frum- sýningin í húsinu eftir gagngerar breytingar. Frumsýningin markar upphaf Sæluviku sem hefst formlega á morgun kl.14 í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Fyrir því er orðin nokkurra ára hefð að upphaf vikunnar fari saman við opnun listsýn- ingar í Safnahúsinu og verða þá einnig kunn- gerð úrslit í vísnasam- keppni sem Safnahúsið stendur að í tilefni Sælu- viku. Meðal myndlistar- sýninga er Tvívídd/Þrí- vídd sem er samsýning þriggja myndlista- kvenna, þeirra Önnu S. Hróðmarsdóttur, Guð- rúnar H. Bjarnadóttur (Höddu) og Sigurrósar Stefánsdóttur. Þá gengst Bjartsýnisfélagið Lista- líf fyrir tónleikum í Miðgarði í Skagafirði kl. 17 á morgun, sunnu- dag. Þar koma fram söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson, sem hafa nýverið slegið í gegn á eftirminnileg- um tónleikum í Íþrótta- höllinni á Akureyri og síðar í Háskólabíói. Meðleikarar þeirra verða Veislutríóið; Anna Guðný Guð- mundsdóttir, píanóleik- ari. Sigurður I. Snorra- son, klarinettuleikari, og Páll Einarsson, kontrabassaleikari, ásamt Sigrúnu Eð- valdsdóttir, fiðluleik- ara. Síðan spinnur vikan sig áfram með iðulaus- um glaumi og gleði, tónleikum ýmiss konar og skemmtidagskrám víða um hérað, menn- ingarkvöldum og leik- sýningum og á föstu- dagskvöld eru að venju, í Íþróttahúsinu á Sauð- árkróki, úrslit í Dægur- lagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks, en keppnin hefur notið vaxandi vin- sælda með þátttöku víðsvegar að af landinu. Formleg lok sæluvikunnar eru síðan með dansleikjum laugardags- kvöldið 4. maí. Fjölbreytt dag- skrá á Sæluviku Sauðárkróki. Morgunblaðið. Sigrún Hjálmtýsdóttir Óskar Pétursson AÐ þessu sinni rekur Páll Stein- grímsson, heimildarmyndargerðar- maðurinn góðkunni, sögu og upp- runa íslenska hestsins og varpar m.a. fram þeirri trúverðugu kenningu að hér sé kominn náinn afkomandi ís- aldarhestsins sem forfeður vorir rissuðu á veggi og varðveist hafa í hellum Suður-Evrópu. Svipmótið leynir sér ekki þegar hellamyndirnar eru bornar saman við þann íslenska í vetrarhárum. Uppruni okkar sér- stæða smáhests hefur verið nokkuð á reiki, sú kenning algeng að hann sé ættaður frá Mongólíu austur. Sögð er saga þessa einstæða kjör- grips allt frá því að landnámsmenn fluttu hann til landsins fyrir 1.200 ár- um til nútímans. Sökum einangrun- arinnar hefur hann lítið breyst á þessum langa tíma og með honum þróast einstakir eigin- leikar í gangi og skap- gerð sem eiga sér enga líka. Líkt og eigandinn hefur íslenski hesturinn mátt þola súrt og sætt, orðið harðger tegund þar sem vetrarhörkur, jarðbönn og veikindi hafa grisjað stofninn í gegnum aldirnar. Síð- ustu áratugina hefur hann fengið nýtt hlut- verk og meðhöndlun, orðið virtur og eftirsótt- ur víða um lönd og fjölgað gífurlega um land allt. Í dag er íslenski hesturinn orðinn e.k. gæludýr, stöðutákn og einkum þjálfaður til þess að lulla undir þétt- býlisbúum og keppa á mótum hér og erlendis. Hann er snar og glæstur þáttur í ímynd landsins og feitur biti í ferðamannaiðnaðinum. Nútíma- myndin er að sjálfsögðu skýrust dregin í Ísaldarhestinum, m.a. farið með okkur í stórkostlega hestaferð með ferðamenn um Hornstrandir þar sem náttúruunnandinn Páll gef- ur sér tíma til að beina sjónum að fegurð lands- ins, dýralífi og jarðar- gróðri. Þræddar slóðir rekaflutningaleiðangra yfir öræfi og jökla, riðið í leitir á afrétti, slík störf eru í dauðateygjunum þegar sauðfé fer hríð- fækkandi sakir breyttra búskaparhátta. Ísaldarhesturinn er fróðleg mynd, falleg og vel heppnuð bæði sem sem heimild um merki- legt hlutverk „þarfasta þjónsins“ og ágæti í gegnum tíðina (reyndar hefði verið gaman að sjá sundreið vatnahesta í kolmórauðum jökulám, svo snar þáttur sem slíkir gripir voru í hversdagsamstri, flutn- ingum og samgöngum, kveðskap og bókmenntum. Sjálfsagt eru þeir og vatnamennirnir orðnir harla fágæt- ir). Sem kynning á eftirsóttri sölu- vöru og hrífandi þætti í túrhestaiðn- aði þjóðarinnar vítt um lönd hittir Ísaldarhesturinn beint í mark. KVIKMYNDIR Háskólabíó: Heimilda- og stutt- myndahátíð í Reykjavík Leikstjórn og handrit: Páll Stein- grímsson. Sýningartími: 52 mín. Kvik 2002. ÍSALDARHESTURINN  Hestar og túrhestar Sæbjörn Valdimarsson Páll Steingrímsson PAWEL Panasiuk sellóleik- ari, Guido Bäumer og Vigdís Klara Aradóttir halda tón- leika í Salnum í dag kl. 17. Bäumer leikur á þrjá saxó- fóna: alt-, tenór- og barítón- saxófóna og Vigdís Klara leikur á sópran- og barítón- saxófóna og bassaklarinettu. Á efnisskrá er nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Grand duo concertante no. 5, „… til vökunnar helkalda voðadraums“ fyrir sópran- og barítónsaxófóna og raf- hljóð. Einnig verða flutt verk eftir Edison Denisov (1929–96), Sonate sem sam- in er 1994 fyrir altsaxófón og selló; eftir Olgu Neu- wirth (f. 1968) Fondamenta samið árið 1998, fyrir bassa- klarinett, barítón- og tenór- saxófóna og selló; eftir Sofiu Gubadulina (f. 1931), Duo- Sonate fyrir tvop barítón- saxófóna sem samið var árin 1977–1995. Atli Heimir segir að verk sín megi kalla „anekdótumúsík“, en heiti þess er fengið úr ljóði Ein- ars Ben., Álfhamri. „Þetta er Grand duo concertante númer 5, og ég nota svolítið sama elektrón- íska efnið í öllum þessum verkum. Þetta vann ég í elektróníska stúd- íóinu í Kópavogi og hafði Harald Sveinbjörnsson mér til aðstoðar. Ég hef unnið í svona stúdíóum áð- ur, en takkarnir eru alltaf að breytast, þannig að ég vil vinna með aðstoðarmanni. Þarna eru barnsraddir, söngur og hrein raf- hljóð, öllu blandað saman, og svo saxófónarnir með. Þessi verk mín eru hugleiðingar um ákveðnar ljóðlínur og temu og því kalla ég þetta stundum anekdótumúsík. Ég veit ekki alveg hvað maður myndi kalla það á góðri íslensku, kannski atvikslýsingar eða stemmningslýsingar.“ Saxófónar og selló í Salnum Guido Bäumer og Vigdís Klara Ara- dóttir með saxófónana. Á myndina vantar Pawel Panasiuk sellóleikara. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.