Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 33

Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 33 meðferðar- ursdóttur ndanförn- stjórnvöld unni gegn um. Í því angur lög- em sýndu aaldri auk rslu á að stöðugt nalöndun- i. dir stjórn vins Lev- . Ingrida rra Lett- 45 látist í neyslu en efði verið drinum 21 karlmenn. um 46%, mfetamíns ökumenn r áhrifum eiturlyfja en í fyrra hefði þessi tala verið 208. Vandamálið væri því mikið og á því þyrfti að taka með samstilltu átaki. Sólveig Pétursdóttir sagði að um skipulagða alþjóða glæpastarfsemi væri að ræða og því væri alþjóðlegt samstarf sérstaklega mikilvægt. Ekki mætti einblína á einn þátt bar- áttunnar heldur þyrfti að taka á mál- inu frá öllum hliðum og með opnum huga. Levitsky sagði að eiturlyf í fang- elsum væru mikið vandamál í Bandaríkjunum. Ingrida Labucka sagði að um 8.300 fangar væru í Lettlandi og um fjórðungur þeirra væru eiturlyfjaneytendur. Þeir ættu auðvelt með að svala fíkn sinni innan veggja fangelsins því bæði fengju þeir send eiturlyf og auk þess væru starfsmenn fangelsa þeim innan handar. Kristina Axén Olin, aðstoð- arborgarstjóri Stokkhólms, sagði stöðu mála ekki góða í Svíþjóð og fram kom að í Noregi væri ástandið þannig að kannabisfíkill, sem færi í fangelsi, kæmi þaðan út sem heróín- fíkill. Torgny Peterson, aðstoðar- framkvæmdastjóri ECAD, tók í svipaðan streng varðandi Svíþjóð, en eftirlit væri erfitt, ekki síst hjá ungu fólki. T.d. þyrfti leyfi foreldra barna yngri en 15 ára til að kanna hvort börnin væru undir áhrifum ein- stakra lyfja en í þessum tilfellum væru foreldrarnir gjarnan ekki til staðar. Sólveig Pétursdóttir sagði í þessu sambandi að góð samvinna hefði t.d. tekist milli lögreglu, skóla, íþrótta- félaga, félagsmiðstöðva og kirkju í Grafarvogi. Hins vegar ættu eiturlyf ekki heima í fangelsum og vinna þyrfti að því að beina þessu ógæfu- sama fólki, sérstaklega ungu fólki, á rétta braut með markvissri endur- hæfingu og nauðsynlegri aðstoð. Töluvert var rætt um eiturlyfja- neyslu í fangelsum og áréttaði Sól- veig Pétursdóttir að breyta þyrfti hugsunarhætti gesta. Eins væri mikilvægt að ungt fólk í gæslu fengi sérstaka meðferð. Engar tilslakanir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að mikið hefði verið rætt um ánauð og fjötra á þessari tveggja daga ráð- stefnu, en framleiðendur eiturlyfja, burðardýr og sölumenn dauðans ýttu undir nútíma þrælahald með þessari ógeðslegu iðju sinni og sam- fara því að hlaða undir sig sjálfa græfu þeir undan dýrmætustu eign borganna, borgurunum sjálfum og ekki síst ungu fólki. Við þessu yrði að bregðast af fullum þunga. Koma þyrfti eiturlyfjanotendum og fíklum til aðstoðar, þannig að þeir gætu lif- að án eiturlyfja en ekki stuðla að frjálsu flæði eiturlyfja með tilslökun- um. Tilslakanir í einhverri mynd væru ógn við þessa baráttu og aðeins með samstilltu átaki væri hægt að ná árangri. Þeir sem vildu lögleiða eit- urlyf væru vel skipulagðir og hefðu nægt fjármagn en þeir hefðu ekki stuðning mikils meirihluta borgara Evrópu, sem létu ekki blekkjast af fagurgala þessara talsmanna. Hún sagði ennfremur að mikil- vægt væri að fræða foreldra og börn um hættuna og stuðla að sterkari böndum innan fjölskyldnanna og fjölskylda til að allir gætu lagst á eitt gegn þeim sem væru í eiturlyfjavið- skiptum og þeim sem ynnu að til- slökunum. Báðir hópar væru ógn gagnvart framtíð barnanna og þar með ógn við grundvallarmannrétt- indi, frelsi frá eiturlyfjum. Hún hvatti alla til að halda áfram á sömu braut í baráttunni gegn eiturlyfjum, sagði að treysta mætti á stuðning Reykjavíkur í þeirri herferð og að svo mæltu sleit hún ráðstefnunni. á síðari degi ECAD-ráðstefnunnar barátt- rlyfjum Morgunblaðið/Golli sdóttir dómsmálaráðherra, Ingrida Labucka, orgarstjóri Stokkhólms, Þórólfur Þórlindsson ramkvæmdastjóri ECAD. hugsuðum a í öndun- ðum hann ð létta á við að það rveginum ða og það tur í því Hákonar beinast að vöðvum í öndunarveginum sem bólgna út og þrengja hann og valda þannig andnauð. „Hann hefur sýnt fram á að vöðv- arnir í öndunarvegin- um hafa frumur sem geta leyst úr læðingi eiginleika sem valda þessum vandamálum. Vöðvafrumurnar bera í sér boðkerfi sem get- ur látið öndunarveginn dragast saman við áreiti og bólgu og þetta veldur vítahring sem leiðir til versnunar og áframhalds sjúkdómsins.“ Hann segir fleiri vísindamenn hafa einbeitt sér að bólguvaldandi þáttum í öndunarveginum í rann- sóknum sínum á astma. „Við héldum áður að astmi orsakaðist af því að ónæmisfrumur úr blóðrásinni kæmu þarna inn og yllu bólgum. Núna sjáum við að það eru eiginleikar í uppbyggingu öndunarvegarins sjálfs sem geta valdið þessum bólgu- skapandi þáttum.“ Von um nákvæmari meðferð Barnes segir rannsóknirnar geta breytt því hvernig meðhöndlum hans verði háttað í framtíðinni. „Hugsanlega verður hægt að þróa nákvæmari meðferðarúrræði eða lyf sem ráðast sérstaklega að þessari óeðlilegu hegðun vöðvanna. Nú orð- ið gefum við sjúklingunum innönd- unarstauka með sterum en ástæða þess að við gefum ekki lyfið í töflu- formi er að það hefur miklar hlið- arverkanir sé það gefið á þann hátt. Ef maður hefði hins vegar lyf, sem verkaði með enn meiri nákvæmni á sjúkdómsvaldandi áreiti, væri möguleiki að gefa það í töfluformi sem yrði miklu þægilegra fyrir sjúk- lingana.“ Barnes undirstrikar þó að ekkert meðferðarúrræði sé til sem geti al- veg læknað sjúkdóminn. „Ef sjúk- lingurinn hættir að taka lyfin þá kemur sjúkdómurinn aftur. Núna er rannsakað hvort hægt sé að þróa einhvers konar töflur eða sprautur sem muni slökkva á sjúkdómnum þannig að ef meðferðinni er hætt þá komi hann ekki aftur. Þannig erum við að vonast eftir því að finna lækn- ingu. Ein hugmyndin er sú að hægt yrði að bólusetja börn áður en þau fá sjúkdóminn. Þannig myndu þau öðl- ast ónæmiskerfi sem verndaði þau gegn astma og núna er fólk að rann- saka hvort það myndi virka.“ Peter Barnes r andmælandi á doktorsvörn hérlendis ga bólu- astma „Ég ætla nú bara að leyfa börn- unum mínum að velja þegar þau verða fullorðin. Ég ætla ekki að hafa áhrif á þeirra trúarafstöðu.“ Þetta er viðhorf sem séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju og höfundur þriggja bóka um börn og trú, kveðst oft hafa heyrt í samtölum sínum við foreldra. „Með þess- ari afstöðu er verið að hafa mikil áhrif. Hið trúar- lega í uppeldinu skiptir þá ekki meira máli en svo að það má bíða þar til maður er orðinn fullorðinn. Uppalendur eru aldrei „hlutlausir“. Með afstöðu okkar eða afstöðuleysi til allra hluta erum við sýknt og heilagt að senda skilaboð til barnanna okkar. Guðlaust uppeldi er líklegt til að skila guð- lausum börnum. Rannsóknir hafa sýnt að það er meiri fylgni á milli guðlauss uppeldis og guðleysis á fullorðinsárum en trúarlegs uppeldis. Af ein- hverjum ástæðum virðist fólk varðveita betur sína guðlausu afstöðu frá bernsku en þá trúar- legu. Menn hafa getið sér þess til að þetta stafi af því að hin guðlausu vestrænu samfélög styðja betur við hið guðlausa viðhorf en hið trúar- lega. Jafnvel börn sem fá trúarlegt uppeldi er hætt við að glata trú sinni nema þau séu leidd inn í félagsskap sem styður þau mjög eindregið í sinni trúarlegu afstöðu.“ Tvær bóka Sigurðar, Börn og bænir og Börn og sorg komu fyrir nokkrum árum út hjá Skálholtsút- gáfunni. „Kveikjan að Börnum og bænum var er ég varð afi í fyrsta sinn og er tekin saman handa þeim sem vilja kenna börnum að biðja og handa börnum sem hafa lært að biðja. Ég hef oft heyrt foreldra tala um að þeir kunni ekki eins margar bænir og þeir vildu og þessari bók var að nokkru leyti ætlað að koma til móts við slíka þörf.“ Bókin er einnig góður leiðarvísir um hvaða bænir eiga við ólík tilefni og stór kostur við hana er að hún hvetur börnin til að orða sínar eigin bænir. „Þessari bók var afskaplega vel tekið og hefur verið gefin út í þremur upplögum. Það var greini- legt að svona bók vantaði til að fylla í skarð.“ Í vetur kom út bókin Börn og trú af sjónarhóli sálarfræði, uppeldisfræði og guðfræði. Þessi bók er nokkuð annars eðlis en tvær fyrri bækurnar, hún er meiri að vöxtum og fræðilegri. Sigurður segir þó að bókin eigi að geta nýst öllum sem vilja sinna trúfræðslu og trúaruppeldi sinna eigin barna eða annarra. „Þó er hún fremur ætluð kennurum, guðfræðingum og öðrum sérfræðing- um en hinar tvær bækurnar, sem voru af minni hálfu fyrst og fremst ætlaðar almenningi en ég hef haft fregnir af því að þær hafi einnig nýst vel fólki í uppeldis- og heilbrigðisgreinum.“ Varla getur þú talist hlutlaus gagnvart efninu? „Nei, en ég reyni að vera hlutlægur og á því er grundvallarmunur. Ég reyni að fara rétt með ólíkar kenningar og ólík viðhorf og vera hlutlæg- ur á þann hátt. Ég vona að ég verði ekki sakaður um að hafa brenglað fræðin, viðhorfi mínu til góða.“ Heldurðu að umræða í vetur í kjölfar atburða 11. september,hafi fælt börn og foreldra frá trú- ariðkun? „Nei, það held ég ekki, þótt mörg börn hafi orð- ið óttaslegin vegna atburðanna. Ég held að aðal- áhrifin hafi orðið að fólk almennt hafi spurt sig af meiri alvöru en áður, hvað það viti um þau trúar- brögð sem þarna er verið að lýsa. Ég varð t.d. mjög greinilega var við aukinn áhuga í Kenn- araháskólanum á trúarbragðafræðum í kjölfar þessara atburða.“ Sigurður starfaði í mörg ár sem námsstjóri í kristnum fræðum og trúarbragðafræðum í menntamálaráðuneytinu og hefur því fylgst vel með því hvernig trúaruppfræðslu barna og ung- linga er háttað á grunn- og framhaldsskólastigi. Hann hefur einnig verið stundakennari í mörg ár við Kennaraháskóla Íslands. Hann segir forkast- anlegt hvernig framhaldskólarnir skilji við nem- endur sína á þessu sviði en þar sé ekki boðið upp á kennslu í trúarbragðafræðum nema í undantekn- ingartilvikum. En er þá ekki pottur einnig brotinn í grunn- skólunum? „Jú, hann er brotinn en þó ekki formlega. Sam- kvæmt námskrá grunnskólanna á að kenna krist- infræði og trúarbragðafræði alveg upp í 10. bekk. Hins vegar verður að játa það með nokkurri hryggð að þessari kennslu er afskaplega misvel sinnt. Kennarar og skólastjórar eru býsna miklir kóngar í sínum ríkjum og ef foreldrar veita þeim ekki aðhald gerir það enginn. Við vitum það mætavel að enginn kennari kæmist upp með að hætta að kenna stærðfræði því þá myndu foreldr- arnir láta í sér heyra. Þegar kennaranemarnir koma úr æfingakennslu heyrum við í Kennarahá- skólanum ýmsar sögur um hversu vel þessari grein er sinnt sumstaðar en einnig hversu illa eða alls ekki annars staðar. En ef litið til námskrár og námsefnis þá stendur kristni- og trúarbragða- fræði sterkt.“ Þetta hlýtur þá að hafa áhrif á hversu alvarlega börnin taka þessar greinar? „Að sjálfsögðu. Ég heyri það á fermingarbörn- unum frá því ég tók við prestsembætti hér. Ég er nú búinn að vera prestur tiltölulega stutt. Ferm- ingarbörnin koma afskaplega misvel í stakkinn búin. Sum eru frábærlega vel uppfrædd og hafa auk þess tekið þátt í barnastarfi kirkjunnar, önn- ur eru nánast eins og þau hafi aldrei heyrt á neitt af þessu minnst. Þetta geta reyndar verið börn úr sama skóla og þá leynir sér ekki hvort börnin hafa fengið stuðning heima fyrir eða ekki.“ Tal okkar beinist nú að bókinni Börn og sorg sem kom út fyrir fjórum árum og var ekki síður vel þegin en fyrsta bókin. „Nútíma samfélag er orðið svo firrt gagnvart dauðanum að það er hægt að komast á fullorð- insár án þess að hafa nokkurn tímann komist í ná- vígi við dauðann,“ segir Sigurður og bætir við að dauðinn sé hluti af lífinu. „Að hugsa um hann, glíma við spurningar um hann og kynnast honum er eðlilegur hluti af þroskaferli hvers manns. Það er því æskilegt að þessi þáttur sé ekki sniðgeng- inn í uppeldis- og skólastarfi. Ég og kona mín, Jó- hanna G. Möller, höfum farið víða og haldið fyr- irlestra um efni bókarinnar og mér hafa sagt bæði kennarar og starfsfólk í heilbrigðisstörfum að hún hafi komið þeim að góðum notum við erf- iðar aðstæður. “ Hefur sorg barna verið tekin alvarlega? „Það verður að segjast eins og er að framundir síðustu ár hefur sorg barna ekki verið tekin nægi- lega alvarlega. Ég held að það hafi orðið nokkur vitundarvakning í kjölfar snjóflóðaslysanna árið 1995. Séra Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur hef- ur einnig vakið athygli á þessu og ég verð var við að undanfarin ár hafa viðhorfin verið að breytast í þá átt að taka sorg barna alvarlega. Það er nefni- lega engin hlífð við börn að halda þeim fjarri dauðanum og því sem honum fylgir.“ Þegar þú segir þetta hvað áttu nákvæmlega við? „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það eigi að leiða börnin – án þvingunar að sjálfsögðu – til fundar við látinn ástvin og leyfa þeim að kveðja hann. Ég hef margfalda reynslu af því, bæði sem prestur og aðstandandi, að það gerir börnum gott að fá að kveðja hinn látna með þessum hætti. Lát- inn ástvinur lítur ekki illa út og þótt stundin sé sár þá er hún ekki skelfileg. Um leið og ég segi þetta þá legg ég áherslu á að hvert barn er ein- stakt og þeir sem næstir því standa verða að vega og meta hvort því sé gert gott með þessu. En reynsla mín er öll á eina leið og kveikjan að Börn- um og sorg var sú að dóttir okkar féll frá ungum sonum sínum þremur og það kom í hlut okkar fullorðna fólksins í fjölskyldunni að styrkja þá í sorg sinni.“ Hlutlaust trúaruppeldi er ekki til … Eftir Hávar Sigurjónsson SÉRA Sigurður Pálsson, prestur í Hallgrímskirkju. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Ásdís BÆKUR fyrir fullorðna handa börnum. havar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.