Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 20

Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 20
20 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ DANSLEIKHÚSIÐ hef-ur formlega starfsemiá morgun en morgun-dagurinn er jafnframtalþjóðlegur dagur dansins sem haldinn er hátíðlegur um allan heim. Formleg opnun Dansleikhússins hefst með nýrri sýningu í Borgarleikhúsinu þar sem frumsýnd verða verk eftir þrjá ís- lenska danshöfunda. Það er Jassballettskóli Báru sem stendur að stofnun dansleikhússins og segir Bára Magnúsdóttir skóla- stjóri að um sé að ræða þróun- arverkefni þar sem vakið sé til lífs- ins lifandi, skemmtilegt og skapandi leikhús þar sem dansinn er í aðalhlutverki. En hver var að- dragandinn að stofnun Dansleik- hússins ? „Aðdragandi að stofnun Dans- leikhússins hefur lengi blundað undir yfirborðinu. Við höfum fundið fyrir því að það hefur sárlega vant- að vettvang fyrir dansara og dans- höfunda. Nú er mikill uppgangur og dansáhugi og vonum við að með tilkomu Dansleikhússins verði til breiðari starfsgrundvöllur fyrir danslistamenn,“ segir Bára. 600 manns við nám í skólanum Irma Gunnarsdóttir er fram- kvæmdastjóri verkefnisins og kenn- ari og deildarstjóri hjá JSB. Hún segir þörfina fyrir þennan vettvang vera mjög brýna. „Í dag er mjög mikill fjöldi í dansnámi. Hjá Jass- ballettskóla Báru eru nemendur nú um 600 talsins. Dansleikhúsið veitir þeim framtíðarsýn og eitthvað til að stefna að en það hefur verið allt of algengt að efnilegir og hæfi- leikaríkir einstaklingar hafi hætt í dansi vegna þess að verkefnin og tækifærin hafa verið af skornum skammti. Vonandi geta komandi kynslóðir dansnemenda átt atvinnu- grundvöll sem dansarar eða dans- höfundar í framtíðinni,“ segir Irma. Þær Bára og Irma segja að stefnt sé að því að danshöfundar, dansarar og aðrir listamenn sem starfi fyrir Dansleikhúsið fái greitt fyrir vinnu sína. „Jassballettskóli Báru lítur á Dansleikhúsið sem þróunarverkefni en skólinn hefur alfarið styrkt þessa fyrstu listdanssýningu. Við vonum hins vegar að Dansleikhúsið geti fengið opinbera styrki í nán- ustu framtíð,“ segir Bára og bætir við að húsnæðisskortur sé farinn að segja til sín hjá skólanum með allan þennan fjölda nemenda og nú nýtt dansleikhús. Fjölbreytt efnisskrá Irma segir að allir dansarar og danshöfundar sem hafa langt dans- nám að baki og hafa hæfileika og metnað til að ná langt eigi mögu- leika á að starfa með Dansleikhús- inu. En hverjir taka þátt í þessari fyrstu uppfærslu? „Það eru þrír danshöfundar sem hafa margvíslega reynslu að baki og sextán dansarar, fjórtán frá Jassballettskóla Báru og tveir frá danshópnum Götustrákarnir,“ segir Bára. Hún segir að verkin séu afar ólík og fjölbreytt og í þeim komi nútímadans, klassískur listdans og jassdans við sögu. Annað kvöld verða semsagt frumsýnd þrjú ný dansverk. Það fyrsta er eftir Irmu Gunnarsdóttur, danshöfund og kennara til margra ára hjá Jassballettskóla Báru og framkvæmdastjóra Dansleikhúss- ins. „Verkið sem ég hef samið fyrir sýninguna heitir Dulúð. Það fjallar um lífið sjálft og leyndardóma þess en verkið spannar sólarhring í lífi mismunandi einstaklinga. Hug- myndin að mínu verki gengur ekki upp nema að hafa bæði kynin. Ég nældi mér í tvo karldansara úr danshópnum Götustrákarnir en þeir eru strákar sem vilja skapa sér tækifæri á sviði dansins og það er virkilega gaman að hafa þá með,“ segir Irma. Jóhann Freyr Björgvinsson, fyrrum dansari hjá Íslenska dans- flokknum til margra ára, á einnig verk á sýningunni. Jóhann hefur jafnframt fengist við kennslu og samið nokkur verk undanfarin ár. Nýjasta verkið hans heitir 8Villt og segir hann að það fjalli um ákveðið augnablik sem flestir standa frammi fyrir einhvern tímann á lífs- leiðinni. „Í verkinu er ég að kljást við augnablikið rétt áður en maður heldur að maður sé að taka stærstu ákvörðun í lífi sínu. Það sem gerist er að maður týnist, meira get ég ekki sagt,“ segir Jóhann. Síðasta verkið sem flutt verður er eftir Katrínu Ingvadóttur, dans- ara hjá Íslenska dansflokknum og kennara hjá Jassballettskóla Báru til margra ára. Um verkið sitt Brot segir hún: „Brot fjallar um fólk sem er búið að missa sjónar á sjálfu sér og er komið í heim sem er því ókunnugur.“ Mikil hvatning fyrir unga dansara Danshöfundarnir segja að mikil hvatning felist í Dansleikhúsinu. „Það hefur verið mikill skortur á tækifærum fyrir dansara og dans- höfunda hérlendis. Dansleikhúsið hvetur danslistafólk til að halda áfram og skapa sér tækifæri,“ segir Jóhann. Katrín segir að dansararnir séu ungir en mjög metnaðargjarnir: „Það er mjög gaman og gefandi að vinna með þessum dönsurum. Þeir hafa æft dans frá unga aldri og langar virkilega til að sýna hvað í þeim býr, en þeir eru á aldrinum 17 – 25 ára,“ segir Katrín og Irma tekur við: „Já, það er kominn tími til að gefa þeim meira krefjandi vettvang en almennar nemendasýn- ingar, atvinnumennska ætti að verða þeirra næsta skref,“ segir hún að lokum. Ný tækifæri fyrir dansara Morgunblaðið/Þorkell Nýtt dansleikhús, sem skapar ný tækifæri fyrir þann fjölda dansara og danshöfunda, sem búa hér á landi, hefur starfsemi með sýningu í Borgarleik- húsinu á morgun. Ragna Sara Jónsdóttir heyrði í bjartsýnum og kraftmiklum aðstandendum þess. „Það er mjög gaman og gefandi að vinna með þessum döns- urum. Þeir hafa æft dans frá unga aldri og langar virkilega til að sýna hvað í þeim býr.“ rsj@mbl.is Þau Irma Gunnarsdóttir, Jóhann Freyr Björgvinsson og Katrín Ingvadóttir ríða á vaðið sem danshöfundar hjá hinu nýstofnaða Dansleikhúsi. Verk eftir þau verða frumsýnd annað kvöld á stóra sviði Borgarleikhússins. Einbeitnin skín úr andliti Sigríðar Soffíu Níelsdóttur, eins af dönsurum í verki Jóhanns Freys Björgvinssonar, 8Villt, á æfingu í vikunni. ÉG hef oft hugsað til þess hversu Ís-lendingar til sjávar og sveita hafiverið einangraðir og afskiptir fyrrá öldum. Fólk bjó yst á annesjumeða inn til dala, í verulegri fjar- lægð frá öðrum bæjum eða byggðu bóli. Samgöngutækin voru hestar eða tveir jafn- fljótir. Ekkert útvarp, ekkert sjónvarp, eng- inn sími, engin önnur afþreying nema hús- lestrar og jafnvel bækur voru af skornum skammti. Í mesta lagi sálmabók og Vídalínspostilla. Samkomur og samneyti við aðra voru helstar við jarðarfarir eða kaup- staðaferðir. Hvað hafði fólk fyrir stafni, hvað gerði það sér til dægrastyttingar í fá- breytninni? Einhvern veg- inn þraukaði þetta fólk og ekki má gleyma því að það var fjölmennt á heimilunum, vinnufólk og sveitarómagar, börnin fóru ekki að heiman og afar og ömmur sátu áfram í baðstofunni. Skyldu það hafa verið samræð- urnar og þetta litla samfélag í lágreistu kotinu, sem bjargaði þessum kynslóðum frá þunglyndi myrkurs, kulda og fátæktar? Og fábreytni. Það stóð saman. Hafði félagsskap hvert af öðru. Nú eru breyttir tímar að því leyti að við búum flest í margmenni og njótum nálægðar við annað fólk. Við höfum ljós í híbýlum, síma og tölvur, fjölmiðla til að stytta okkur stund- ir, afþreyingu í menningu, íþróttum og skemmtunum hverskonar. Veitingahús, dansstaði, vídeóleigur og svo vinnum við, flest hver, á fjölmennum vinnstöðum eða eig- um aðild að félagsskap af einni eða annarri gerðinni. En þrátt fyrir allt þetta áreiti, alla þessa valkosti og fjölbreytilegu möguleika á lífsháttum, er kannski alvarlegasta vanda- málið fyrir núlifandi Íslendinga, að bægja frá sér einsemdinni. Og reyndar erum við ekki einir um þá einsemd. Fólk út um víða veröld, hverfur í mannhafinu, týnist, gleymist, liggur kannski dáið dögum saman, af því ættingjar og vinir eru víðs fjarri. Eða eru ekki til. Þegar ég tala um einsemd, er það ekki í þeim skilningi að sitja einhversstaðar einn og yfirgefinn, sambandslaus við umheiminn. Það gera fæstir. En við getum samt verið alein og afskipt í þeirri merkingu að líða áfram í önnum dagsins án þess að eiga neinn að, án þess að eiga tjáskipti nema á yfirborð- inu, án þess aðskipta neinn svo miklu máli, að hann hafi hug á því að rækta samband. Má ekki vera að því. Leikskólar og leikskólapláss eru eitt helsta kosningamálið í Reykjavík. Það vantar gæslu fyrir börnin. Hversvegna skyldi það nú vera? Er það ekki vegna þess að foreldrarnir eru svo uppteknir við að mæta í vinnuna og hafa í sig og á, að þeir mega ekki lengur vera að því að fóstra börnin sín á yngsta aldri? Og svo koma árin, þar sem unglingarnir hamast við að fylgja tísku og straumum og sogast inn í hringiðu freistinga og forboðinna ávaxta og foreldrarnir þekkja ekki og skilja ekki þá hröðu og hörðu veröld sem unglingar nú- tímans verða að berjast við. Það þarf sterkan einstakling til að standa sjálfstætt til hliðar og einangra sig frá fjöldanum og straumnum og vera samt með. Og svo koma vímuefnin og hvar skyldi einsemdin vera meiri en þar sem unglingar eru á flótta og í felum með sitt bitra leyndarmál? Á hinum kanti vegarins situr gamla fólkið, oftast búið að koma því fyrir á gamalmenna- heimilum og nútíma stofufangelsum og heim- sóknartímarnir líða og dagurinn að kveldi kemur, án þess að nokkur maður líti inn eða kasti á þessar vofur fortíðarinnar svo mikið sem minnstu kveðju. Þar er beðið eftir sím- hringingu eða óboðnum gesti. En enginn kemur. Enginn má vera að. Á milli unglingsáranna og ellinnar, liggja vegir okkar í mismunandi áttir, unga fólkið giftir sig og skilur og eftir sitja, hvor í sínu lagi, einstæðir foreldrar, einstæðingar, ein- semdarfólk. Hver situr í sínu skoti, með fólk í blokkinni, með sjónvarpið á fullu, með tölv- una í gangi. En lítið sem ekkert mannlegt samneyti. Gömlu æskufélagarnir týndir og tröllum gefnir, aðrir í fjölskyldunni eiga nóg með sig og svo leyfir fjárhagurinn engar leik- húsferðir eða forvitnilegar mataruppskriftir, ekkert svigrúm til veisluhalda eða vellyst- inga. Í vinnuna, úr vinnunni, engin upplyft- ing, engar samræður eða samskipti, nema þá við afgreiðslufólkið í videóleigunni. Nýlega voru stjórnvöld að skrifa undir samning um sex milljarða tónlistarhús. Ekki mun þetta fólk, sauðsvartur almenningurinn, sækja það hús, jafnvel þótt hann feginn vildi. Hefði nú ekki verið nær að leyfa okkur skatt- borgurunum að leggja fram sex milljarða til betra mannlífs, til öryrkjanna, til gamla fólksins, til einstæðinganna, sem flestir hverjir lifa í einsemd sinnar eigin fátæktar. Hvers vegna erum við alltaf að snobba fyrir menningunni, ef fáir geta notið hennar, eða velferðinni, þegar fæstir hafa aðgang að henni? Einsemd nútímans stafar ekki af stopulum samgöngum eða frumstæðum fjarskiptum. Hún á rætur sínar að rekja til þeirrar firr- ingar, sem hrjáir samfélagið, kapphlaupsins, sem ætlar okkur lifandi að drepa í svoköll- uðum þægindum, hún er afsprengi þess mis- kunnarleysis, þegar við gerumst sjálflæg og eigingjörn. Það er svosum við engan að sakast og hver er sinnar gæfu smiður. En hvað kostar eitt bros í nærveru sálar? Eða til hvers var okkar starf í sexhundruð sumur, ef árangurinn og framfarirnar frá því fyrr á öldum, blasir við í vaxandi einsemd í miðju mannhafinu? Einsemdin í mannhafinu Teikning/Andrés HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Ellert B. Schram ebs@isholf.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.