Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 23
Mótuð rafhljóð Í upphafi fjórða þáttar eru rafhljóð enn á ferð, að þessu sinni mótaðri, ekki bara óhljóð, og takturinn býsna nútímalegur og hann gengur að segja í gegnum allan þáttinn. Hann verður þó æ ógreinilegri sem líður á og hljómsveit og síðar kór taka völdin, gera stemmninguna upphafna og há- tíðlega, sérstaklega söngkonur kórs- ins sem renna sér upp tónstigann eins og ekkert sé, svífa upp á háa c-ið og halda sig þar sem þeim sýnist. Því- líkt einvalalið! Steinharpan snýr aftur í fimmta og næstsíðasta þætti verksins, ágengur síbyljutaktur og ofan á hann kyrjar Steindór næstu erindi þegar Heim- dallur, útsendari alföðurs, innir Iðuni eftir því hvað sé á seyði: hlýrnis, helj- ar, / heims ef vissi / ártíð, æfi, / ald- urtila. Smám saman eykst þunginn í tónlistinni eftir því sem erindið sæk- ist verr; mun þó miður / mælgi dugði. Vindur svo fram að Heimdallur og ferðafélagar eru krafðir sagna í veislu en undir lok þáttarins kyrjar Steindór aftur ellefta erindi kvæðis- ins eftir stuttan strengjakafla rétt eins og til að undirstrika hve mikið var í húfi og hve slyppur Heimdallur sneri aftur. Oflítilfræg erindisleysa Lokaþáttur verksins hefst á heillandi upphafsstefi þar sem tilfinn- ingaríkur strengja- og síðar blásara- söngur rennur saman við einsöng ónefndar söngkonu úr kórnum sem syngur snilldarlega. Síðan tók Stein- dór upp þráðinn þar sem frá var horf- ið, goð sitja veislu til heiðurs Heim- dalli og inna hann eftir orðum Iðunnar allan þann dag unz nam húma. Þegar ljóst er að hann hefur farið erindisleysu / oflítilfræga er ráð Óðins að gengið verði til rekkju því Nótt skal nema / nýræða til. Þegar hér er er komið hefði hugs- anlega mátt skjóta á sjöunda kafla, enda verður áherslubreyting í verk- inu, en gítarólga er notuð smekklega til að brúa ólíkar stemmningar. Í takt við það að gýgjar og þursar, / náir, dvergar / og dökkálfar taka á sig náð- ir verður hrynskipan hægari og strengir myrkari, gítarhljómar Jóns Þórs gefa fyrirheit um það sem koma mun á hinum síðasta degi sem hefst brátt. Blásið til heimsendis Það er mál fræðimanna að Hrafna- galdur sé brotakennt kvæði, vísur hafi líkastil afbakast, hugsanlega vanti framan á kvæðið og örugglega aftan á það. Eins og þeir Hilmar Örn, meðlimir Sigur Rósar og Steindór Andersen skilja kvæðið, ef marka má tónlistina sem þeir hafa samið við það, er það þó býsna heillegt og lítið eða ekkert vantar aftan við, því þegar Heimdallur blæs í horn sitt næsta morgun er hann ekki að kveða goðin til þings, hann er að blása til heims- endis. Aðdragandi lokaerindis Hrafnagaldurs er mjög tilkomumikill í verkinu sem og ekki varð komist hjá gæsahúð þegar Steindór hóf síðasta erindið; Risu raknar, / rann álfröðull, / norður að Niflheim / njóla sótti; / upp nam Árgjöll / Úlfrúnar niður, / hornþytvaldur / Himinbjarga. Eftir að hann lauk við erindið hóf kórinn síðan að syngja Alföður orkar í sífellu og smám saman jókst stígandin í tón- listinni þar til rafvædd Sigur Rós kom inn af fullum þunga á nítjándu mínútu, ragnarök. Sannkallaður galdur Óhætt er að segja að sannkallaður galdur hafi verið upp magnaður á sviðinu í Barbican þetta sunnudags- kvöld; flutningurinn tókst framúr- skarandi vel. Verkið sjálft er tilkomu- mikið, helst að meira hefði mátt vera af Sigur Rós, þ.e. þeim þunga sem rafmagnaður leikur hljómsveitarinn- ar gefur, en það stendur víst til að auka hlutverk hennar til muna í Laugardalshöllinni 24. maí næstkom- andi; eftir generalprufuna verður verkið enn betra ef að líkum lætur. Kemur ekki á óvart að fleiri hafa fal- ast eftir að fá að heyra verkið, en að sögn hefur borist ósk um að það verði flutt austur í Japan. Tilvitnanir í Hrafnagaldur eru af vefsetri þeirra Eysteins Björnssonar og Williams P. Reaves sem helgað er kvæðinu; sjá: www.hi.is/~eybjorn/ ugm/hrg/main.html MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 23 Viltu kynnast því fegursta í EVRÓPU í einstakri ferð? Listatöfrar Ítalíu á fegursta tíma 27. júní-9. júlí Florens við Arno, höfuðborg lista. Við Gardavatn Óperusýning í Arenunni, Verona Hnattreisa Ingólfs 2002 - nýr heimur! „Einn dagur sem þúsund ár“ Hnattreisur Heimsklúbbsins eru mestu ferðaviðburðir Íslandssögunnar. Minningarnar lifa í vitund fólks sem fór þær, meðan það lifir. Margir hafa vitnað um þær á opinberum vettvangi, t.d. í tímaritinu ÚRVAL 1. tbl. 2001. Fólk sér heiminn, líf sitt og umhverfi í nýju ljósi eftir slíka reynslu. Ótrúlegt en satt, fólk undrast eftir á, hve ódýrt ævintýri hnatt- reisan er, enda hefur verið leitað allra hugsanlegra leiða til að gera hana í senn ódýra og þægilega. Ummælin eru á þá leið, að Hnattreisan, ferð ævinnar, hefði ekki getað verið betur úr garði gerð. Hver dagur hennar getur orðið sem þúsund ár í huga þér. Aðeins 30 geta komist með, og ekki seinna vænna að tryggja sér þátttöku, því nú eru 4 sæti laus. Ná- kvæm lýsing ferðar liggur fyrir. Staðfestingargj. 50 þús. Leiðin liggur um fegurstu lönd jarðar á suðurhveli, sem flestum Íslendingum eru enn ókunn. Ferðatilhögun í stórum dráttum: Viðskiptafarrými gegn aukagreiðslu! 1) Flogið til London með Flugleiðum og áfram samdægurs með British Airways til Suður-Afríku. Þar er dvalist og ferðast um í viku, ekið hina rómuðu „Blómaleið“ frá Port Elizabeth til Cape Town en þaðan farið í skoðunarferðir á Góðrarvonarhöfða og um hið frjósama og undurfagra Cape hérað. 2) Flogið frá Cape Town til Jóhannesarborg- ar með BA en þaðan með ástralska flugfé- laginu Qantas til Sydney. Dvalist í Sydney 3 daga og farið í skoðunarferðir um borgina, nágrennið og upp í Bláfjöll. Flogið til Auck- land, stærstu borgar Nýja-Sjálands. Kynnis- ferðir þaðan og til höfuðstöðva frumbyggj- anna, Maori í Rotorua. Samtals 5 dagar á Nýja-Sjálandi. 3) Ekið frá Rotorua til flugvallar Auckland og flogið til Papeete á Tahiti, þar sem lent er um kvöldið og einum degi bætt inn í tímatal- ið, því að farið er austur yfir daglínu. Dvalist 4 daga á hinum undurfögru eyjum Tahiti, sem eru jarðnesk paradís, og gist á einu besta hóteli Tahiti. 4) Flogið frá Papeete til Santiago, höfuðborg- ar Chile, með millilendingu á Páskaey. Flogið áfram til hinnar fögru heimsborgar Buenos Aires og dvalist þar í 3 daga. Borg tangósins er full af lífi og töfrum þess lífsstíls, sem er horfinn annars staðar. 5) Flogið frá Buenos Aires til Iguassu, þar sem er mesta fossasvæði heimsins, gist á 5* hóteli, og morguninn eftir er fossasvæðið með um 270 fossum skoðað, eitt af undrum heimsins og ógleymanleg sjón, áður en haldið er áfram til Rio de Janeiro. 6) Dvalist við frægustu strönd heimsins, Copa- cabana, á fyrsta flokks hóteli, 3 daga í fegurstu borg heimsins, vegna hins óviðjafnanlega borgar- stæðis milli hárra fjalla með hitabeltisbaðströnd við húsdyrnar. Rio er borg lífsgleðinnar, þar sem léttleikinn birtist t.d. í ólgandi sveiflu sömbunnar. 7) Í ferðalok er flogið með British Airways yfir nótt til London, og ferðinni haldið áfram til Keflavíkur síðdegis, nema óskað sé að framlengja í Rio eða London. VERÐ í tvíbýli: kr. 699.800-, sem er aðeins um 1/3 raunvirðis. Hækkun frá ár- inu 2000 aðeins um 15%. Reikningsglöggur mað- ur í síðustu hnattreisu komst að þeirri niðurstöðu að allur ferðakostnaður með hótelum, öllum flutningum og fararstjórn innifalinni kostaði að- eins um kr. 10 á km í ferðinni, sem mun vera eitthvert lægsta fargjald, sem um getur, enda væri strætisvagnagjald í Reykjavík um 10-15 sinnum hærra á km með engu inniföldu. Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Ævintýraferðin „Einn dagur sem þúsund ár“ hefst 3. nóv. árið 2002 og stendur í einn mánuð með heimkomu 2. des. Ferðin þræðir fegurstu leiðir Ítalíu frá norðri með megináherslu á TOSCANA hérað, þar sem dvalist er 4 daga í FLORENS, og PISA og SIENA heimsóttar. Annað eins tækifæri hefur ekki boðist fyrr að kynnast háborinni list Ítalíu í fegurstu borgum hennar með heillandi sögu og hrífandi listum, myndlist í málverki og höggmyndum, arkitektúr, bókmenntum og tónlist. Ingólfur Guðbrandsson stýrir ferðinni og tengir listir landsins saman á ótrúlega lifandi og áhrifaríkan hátt. Ferðin er samfelld lista- veisla og unaður, ferðast með lúxusfarartæki um landið í 12 daga, búið á frábærum gististöðum í miðju helstu menningarborga heims. Fegurðin gleður hjarta manns að innstu rótum, og létt er yfir ferðinni, þar sem gælt er við skilningarvitin með sannri lífsnautn í þessu ólýsanlega leikhúsi heimsins, sem Ítalía er, en enginn ókunnugur ætti að ímynda sér, að hann sé þess umkominn að kalla slíka töfra fram á eigin spýt- ur. Góð leiðsögn kunnugs manns er ómetanleg. Ummæli um Ítalíuferðir Ingólfs eru mjög samhljóma: „Besta háskólanámskeið í listum, sem ég hef komist í kynni við.“ „Við hlustuðum gagntekin sem í akademíu á orð leiðsögu-, lista- og fræðimanns. Honum verður aldrei fullþakkað fyrir frábæra leiðsögn og höfðingslund.“ - „Hver stund var nýtt til fulls án þess að nokkrum væri ofgert, og áhugi Ingólfs hlaut að hrífa alla með sér. Við erum ríkari eftir, og ferðin verður sífellt undrunar- og ánægjuefni.“ Allur þessi munaður, flug, akstur, valin gisting með morgunverði, fararstjórn Ingólfs fyrir aðeins rúmar 12 þús. kr. á dag - og í lokin stærsta óperusýning heims, sjálf AIDA Verdis í Arenunni í VERONA í boði HEIMSKLÚBBS INGÓLFS. Staðfestar símapantanir 56 20 400 í dag frá kl. 13-15 Sydney Tahiti Iguassufossar Samba í Ríó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.