Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 27 S k ó g a r h l í ð 1 8 • 1 0 5 R e y k j a v í k • S í m i 5 9 5 1 0 0 0 • F a x 5 9 5 1 0 0 1 • w w w . h e i m s f e r d i r . i s N O N N I O G M A N N I • N M 0 6 0 7 5 / si a. is Ítalíuveisla í mat og drykk Heimsferðir bjóða einstaka menningar-, matar- og vínsmökkunar- ferð til þessa fræga héraðs Ítalíu en í Parma er upprunnið flest það sem hefur gert ítalska matarmenningu heimsfræga. Má þar nefna hinn rómaða Parmesan ost, Parma skinku, ólívur, edik og vín. Að auki fá gestir að upplifa hið ótrúlega fallega umhverfi Emilia Romagna héraðsins, fornar borgir, heillandi hallir, vínekrur og kastala og kynnast nýju andliti þessa fagra lands. Palace Maria Afar fallegt 4 stjörnu hótel í hjarta Parma, í göngufæri við Piazza del Duomo, veitingastaði, verslanir og söfn. Öll herbergi með baði, sjónvarpi, síma og loftkælingu. Þekktur veitingastaður, Maxim, er á hótelinu. Dagur 1 Komið er til Parma um kl. 18.30 og ekið með fararstjórum Heimsferða frá flugvelli til mið- borgarinnar. Kvöldverður og gisting í Parma. Dagur 2 Morgunverður á hóteli. Kynnisferð um miðborg Parma, gamla bæinn sem er þekktur fyrir sögu- fræg hús og minnismerki. Snæddur hádegis- verður þar sem hin ítalska matarsmökkun hefst. Frjáls eftirmiðdagur til að rölta um borgina. Dagur 3 Að loknum morgunverði er haldið til Torre- chiara og hinn frægi kastali heimsóttur, en hann er einn stærsti og best varðveitti kastali Emilia Romagna héraðsins. Haldið er áfram í heimsókn til “prosciutti- ficio”, þar sem hin fræga Parma skinka er framleidd og fylgst með hvernig framleiðslunni er háttað. Að því loknu er farið í skinku- og salamismökkun og bragðað á Malvasia vínum frá hæðunum í kring. Um eftirmiðdaginn er haldið í sögufrægan vínkjallara, fræðst um framleiðslu vínsins og smökkun haldið áfram. Ekið til hótels um eftirmiðdaginn. Dagur 4 Hópurinn kynnist framleiðslu á hinum fræga Parmesanosti. Síðan er ekið til Soragna, fallegs þorps í Parmahéraði, með Rocca Meli Lupi frá 1385. Áfram er haldið til Fontanellato, miðaldaþorps þar sem snæddur er hádegisverður í hjarta gamla bæjarins. Um eftirmiðdaginn er ekið til Busseto, fæðingarstaðar Verdis. Endað með vín- og ostasmökkun. Komið til hótels um eftirmiðdaginn. Dagur 5 Morgunverður. Frjáls dagur. Dagur 6 Ekið að morgni til Bologna, höfuð- borgar Emilia Romagna-héraðs. Bologna er fræg fyrir gamla bæinn, háskólann, hallir og kirkjur. Kynnisferð um bæinn og hádegisverður í hjarta borgarinnar. Eftir hádegi er ekið til Maranello, og m.a. er Ferrari safnið heimsótt. Áfram er ekið til Modena, þar sem heimsótt er ein elsta ólívuolíu- og edikverksmiðja svæðisins. Þaðan er komið hið þekkta balsamik edik. Dagur 7 Farið er að morgni til Piacenza og í kynnisferð um gamla bæinn. Hádegisverður á Locanda del Falco, þekktum veitingastað í gömlu borginni og Rivalta kastalinn heimsóttur. Á leiðinni til baka er komið við í Castell’ Arquato, fallegum miðaldabæ. Dagur 8 Brottför að morgni frá Parma og flogið beint heim með flugi Heimsferða kl. 09.00 að morgni. 1. - 8. ágúst og 22.- 29. ágúst Fararstjóri: Ólafur Gíslason Verð á mann í tvíbýli: 99.550 kr. Aukagjald fyrir einbýli: 29.000 kr. Innifalið í verði: Flug, gisting, morgunverður, 4 hádegisverðir, 2 kvöldverðir, ferðir til og frá flugvelli í Parma, kynnisferðir í Parma, Busetto, Bologna og Piacenza, íslensk fararstjórn og skattar. Hótel Heimsferða Hvað er innifalið Gisting á 4ra stjörnu hóteli Morgunverðarhlaðborð 4 hádegisverðir 2 kvöldverðir Eftirtaldar kynnisferðir: • Parma • Torrechiara • Soragna • Fontanellato • Castell´Arquato • Bologna • Modena • Piacenza • Busseto www.europay.is SKAGFIRSKA söngsveitin er öflugur kór, hefur á að skipa góðum söngröddum og nýtur leiðsagnar dugandi söngstjóra, sem einnig er vaxandi tónskáld. Fyrstu fjögur lögin voru íslensk lög sem kórstjór- inn hefur á smekklegan máta „lag- fært“ hvað snertir raddsetningu og bætt við sum þeirra „formála“, án þess að hrófla nokkuð við lögunum sjálfum. Þetta kom einkar vel út í fyrsta laginu, Nú er sumar, eftir Weyse, og einkum þó í hinu fallega lagi Péturs Sigurðssonar, Erla, góða Erla, og Lindinni eftir Eyþór Stefánsson, en tvö síðarnefndu lög- in voru ágætlega sungin af kamm- erkór. Söngur kórsins var hressi- legur í lagi Péturs Sigurðssonar Ljómar heimur logafagur. Eins og fyrr segir leggur kórstjórinn kórn- um til tónsmíðar og að þessu sinni Ó, fagra land, við texta eftir Bjarna Stefán Konráðsson, hressilegt og vel samið kórlag sem kórinn söng með töluverðum tilþrifum. Smávinir fagrir eftir Jón Nordal var fallega sungið, en ítalskur fjallasöngur eft- ir Ortelli er svolítið slitinn samsetn- ingur þótt fluttur væri ágætlega af ungri söngkonu, Láru Hrönn Pét- ursdóttur. Útfærslan á Sofðu rótt eftir Brahms, sungið af Guðmundi Sigurðssyni og Láru H. Pétursdótt- ur, og Silungnum eftir Schubert var nokkuð utangátta. Þess má geta að til er mjög góð þýðing á Sil- ungnum, eftir Jakob Jóhannesson Smára. Í sjö atriðum úr Gloria eftir Viv- aldi sýndi kórinn að hann getur haft í fullu tré við erfið viðfangsefni en í þessu verki reyndi einnig nokk- uð á píanistann, Sigurð Marteins- son, er gerði sínu ágæt skil. Hann átti einnig nokkur tilþrif í Ástardú- ett eftir söngstjórann, sem sunginn var með töluverðum glæsibrag af Kristínu R. Sigurðardóttur og ung- um og efnilegum tenórsöngvara, Magnúsi Sigurjónssyni. Þetta er skemmtilegur smellur hjá Björgvini Þ. Valdimarssyni, vel saminn og söngvænn í góðum óperettustíl. Óperetturnar voru lokaviðfangs- efni tónleikanna og sungu Kristín R. Sigurðardóttir og Guðmundur Sigurðsson dúett úr Sardasfurst- ynjunni eftir Kalmann og gerðu það vel þótt Kristín „missti niður“ loka- tóninn. Önnur lög úr söngleikjum voru úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss og Kátu ekkjunni eftir Lehár. Eins og fyrr segir er Skag- firska söngsveitin öflugur kór og kórstjórinn, Björgvin Þ. Valdimars- son, sýnir sig að vera góður kór- stjóri og það sem meira er vaxandi tónskáld, sem er mikilvægur þáttur í endurnýjun viðfangsefna. Öflugur kór TÓNLIST Langholtskirkja Skagfirska söngsveitin undir stjórn Björgvins Þ. Valdimarssonar flutti ís- lensk og erlend söngverk. Einsöngvarar voru Guðmundur Sigurðsson, Kristín R. Sigurðardóttir, Lára H. Pétursdóttir, Magnús Sigurjónsson og Ragna S. Bjarnadóttir. Píanóleikari var Sigurður Marteinsson. KÓRTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson KARLAKÓRINN Þrestir heldur þrenna vortónleika í Hafnarfirði á næstu dögum og verða þeir fyrstu í Hafnarborg á sunnudagskvöld kl. 20, aðrir í Víðistaðakirkju 1. maí kl. 16 og þeir þriðju í Hafnarborg föstudaginn 3. maí kl. 20:30. Söngár Þrasta hefur verið mjög annasamt, enda fagnar þessi elsti karlakór landsins 90 ára afmæli sínu um þessar mundir. Söngmenn kórs- ins eru rúmlega 60 og söngstjóri er Jón Kristinn Cortez, sem nú er að ljúka fimmta ári sínu með Þröstum. Kórinn heldur í söngferð til Prag, Búdapest og Vínar í ágúst og syng- ur kórinn sömu efnisskrá á vortón- leikunum og í söngförinni. Miðar verða seldir við innganginn og kosta 1.500 kr. Þar verður einnig til sölu nýr geisladiskur með söng Þrasta. Þá verður á tónleikunum forsala aðgöngumiða að tónleikum sænska karlakórsins Orphei Dräng- ar, sem verða í Hallgrímskirkju 14. og 15. júní í sumar, en kórinn er af mörgum talinn besti karlakór í heimi og heiðra þeir Þresti á 90 ára afmælinu með komu sinni. Það ætla einnig að gera karlakórar frá Finn- landi og Noregi, ásamt Fóstbræðr- um og Karlakór Reykjavíkur, sem ætla að sameinast Þröstum á stór- tónleikum í Kaplakrika í Hafnar- firði laugardaginn 15. júní. Karlakór- inn Þrestir syngur inn sumarið Listhúsinu Laugardal, sími 552 5540 Ódýrari orðabækur Hvalaskoðun við Ísland er eftir Ás- björn Björgvinsson og Helmut Lugmayr. Í bókinni er sagt frá lífsháttum hvala, atferli þeirra og hegðun. Einnig er birt yfirlit yfir nokkrar fugla- og sela- tegundir sem sjást í hvalaskoð- unarferðum. Auk mikils fjölda litljós- mynda prýða bókina myndskreytingar af öllum hvölunum eftir Martin Camm. Í bókinni eru upplýsingar um öll hvala- skoðunarfyrirtæki á Íslandi. Bókin er gefin út á þremur tungu- málum: íslensku, ensku og þýsku hvert í sinni bók. Ásbjörn Björgvinsson er for- stöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík. Hann hefur hlotið marg- víslegar viðurkenningar fyrir störf sín í þágu hvalaskoðunar, m.a. orðu hinn- ar Gullnu Arkar frá prins Bernhard í Hollandi og Global 500 verðlaunin frá UNEP. Helmut Lugmayr hefur unnið í mörg ár sem leiðsögumaður á Íslandi og Grænlandi. Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er 64 bls., í handhægu broti, prentuð í Odda hf. Jón Ásgeir í Aðaldal hannaði bók og kápu. Dýralíf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.