Morgunblaðið - 28.04.2002, Qupperneq 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"
!" # $% "& "' ( $ )& ( *
+ '() # ", ( -. + " $
() "" /! "0
!" ($& $/! " # ,, ' ( *
"" 1 )&2 3"" &3&" %" ("
/",
MEÐ GÆÐIN Í STAFNI
Laugavegur 1 • Sími 561 7760
Velkomin um borð
Nú er
gatan
grýtt!
Vegna endurbóta efst
í Bankastræti er ekki eins
auðvelt og áður að komast
til okkar.
Þess vegna greiðum
við þér leið og veitum
15% afslátt
af öllum vörum á meðan á
framkvæmdum stendur.
BORGARKÓRINN er einn
margra áhugakóra, sem vel má
fylgjast með, sérstaklega vegna
þess, að söngstjórinn, Sigvaldi Snær
Kaldalóns, leggur kór sínum til
frumsamin viðfangsefni. Borgarkór-
inn hélt sína vortónleika í Fríkirkj-
unni sl. þriðjudagskvöld og byggði
söngskrána á söngverkum, sem
samin hafa verið við ljóð eftir Hall-
dór Laxness og Stein Steinarr.
Fyrstu fimm lögin voru Vorvísa, Hjá
lygnri móðu og Maríukvæði Atla
Heimis, sem kórinn söng af þokka,
þá Íslenskt vögguljóð á Hörpu, Jóns
Þórarinssonar, og Unglingurinn í
skóginum, eftir Jórunni Viðar, sem
Þórunn Guðmundsdóttir mjög vel
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar. Í þeim hluta söngskrár sem
tilheyrði Steini Steinarr var Gömul
vísa um vorið, fallegt lag eftir Gunn-
stein Ólafsson, sem kórinn söng af
þokka og einsöngslagið Hljóð
streymir lindin í haga, eftir Jón Þór-
arinsson, sem Þórunn og Ólafur
Vignir fluttu. Þessi lög mætti flokka
sem hefðbundin viðfangsefni á kór-
tónleikum og voru þau um margt
best flutt af kór og einsöngvara.
Önnur viðfangsefni voru dægurlög
eftir Magnús Eiríksson, Ragnar
Bjarnason og Guðmund Árnason,
ýmist flutt að tríói eða kórnum.
Fimm lög eftir kórstjórann, Sig-
valda Snæ, voru flutt af kórnum, tvö
við kvæði eftir Halldór Laxness,
Tveir fuglar og Vor hinsti dagur og
þrjú við kværði Steins; Í draumi sér-
hvers manns, Flóttinn og Elín Hel-
ena en í tveimur þeim síðastnefndu
söng Þórunn Guðmundsdóttir ein-
söng og Bryndís Hákonardóttir með
henni í lokalaginu.
Borgarkórinn söng margt af
þokka, sérstaklega fystu lögin og lag
Gunnsteins en í dægurlögin vantaði
þann kraft sem slík lög lifa á. Sig-
valdi Snær átti fimm lög á þessum
tónleikum og var eitt þeirra, Flótt-
inn, við kvæði Steins, frumflutt. Tón-
mál laganna eftir Sigvalda Snæ er
skýrt og á köflum vel fellt að texta
ljóðanna, með tölverðum tilfærslum
hljóma en það vantar þónokkuð á að
raddfærslan og lagferlið sé losað úr
viðjum hljómanna. Hljómsetning er
sem sagt einkennandi fyrir út-
færslur Sigvalda. En þrátt fyrir
þetta var margt gott að heyra í lög-
um Sigvalda, sérstaklega Í draumi
sérhvers manns og Elínu Helenu.
Eins og fyrr segir söng kórinn
margt af þokka en líður fyrir fá-
menni karlaraddanna, sérstaklega í
hljómmeiri viðfangsefnum.
Þokkafullur söngur
TÓNLIST
Fríkirkjan
Borgarkórinn flutti söngverk við kvæði
eftir Halldór Laxness og Stein Steinarr.
Stjórnandi: Sigvaldi Snær Kaldalóns. Ein-
söngvari: Þórunn Guðmundsdóttir. Píanó-
leikari: Ólafur Vignir Albertsson. Þriðju-
dagurinn 23. apríl. 2002.
KÓRTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
ÁRNI Björn Árnason
píanóleikari tekur ein-
leikarapróf frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík
annað kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20:00. Á efnis-
skrá eru verk eftir J.S.
Bach, Beethoven,
Rachmaninoff og
Prokofieff.
Þeir nemendur í Tón-
listarskólanum í
Reykjavík sem taka ein-
leikarapróf koma fram
á tvennum tónleikum,
annars vegar sem ein-
leikarar með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og
hins vegar á einleiks-
tónleikum. Árni Björn var ein-
leikari í Píanókonsert nr. 3 eftir
Prokofíeff á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands 6. febrúar
sl. undir stjórn Bernharðs Wilk-
insonar en mun ljúka einleik-
araprófi á tónleikunum í kvöld.
Þegar Árni Björn er spurður
hvernig einleikstónleikarnir legg-
ist í hann í samanburði við Sin-
fóníutónleikana segir hann um
tvö ólík og jafn krefjandi verk-
efni að ræða. „Maður er í raun
naktari á einleikstónleikum, þar
sem maður stend-
ur aleinn á svið-
inu. En um leið er
maður frjálsari til
að fara sínar eigin
leiðir. Þetta verð-
ur því stór áfangi
að takast á við,
ekki síður en tón-
leikarnir í Há-
skólabíói.“
Árni Björn hefur
hug á að sækja
framhaldsnám við
Síbelíusarakadem-
íuna í Helsinki í
Finnlandi og held-
ur hann út í inn-
tökupróf strax í
maí. „Þannig verður nóg að gera
eftir einleikaraprófið en ég mun
þó geta notað flest verkin sem ég
hef æft fyrir tónleikana í kvöld.
En það verður fínt að ljúka þess-
um áfanga,“ segir Árni að lokum.
Árni Björn Árnason fæddist
1982. Hann hóf píanónám árið
1990 í Nýja Tónlistarskólanum
hjá Brynju Tryggvadóttur. Árið
1993 lærði hann hjá Þorsteini
Gauta Sigurðssyni við sama skóla
og áfram hjá honum næsta vetur
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Síðan 1995 hefur hann haldið
áfram píanónámi sínu þar hjá
Halldóri Haraldssyni og tekið
þátt í Masterclass-námskeiðum
hérlendis og erlendis. Árni Björn
tók einnig þátt í píanókeppni
EPTA árið 2000 og Norrænu pí-
anókeppninni í Nyborg í Dan-
mörku árið 2001 og sótti í kjöl-
farið píanótíma hjá Anne Øland í
Kaupmannahöfn á haustönn 2001.
„Verður fínt að ljúka
þessum áfanga“
Árni Björn Árnason
píanóleikari.
sjúkrahúsa, skóla og menningarstofn-
ana. Það er þessi síðarnefnda um-
ræða, en ekki hin sem er ómálga, laus
úr viðjum orðanna og hafin yfir öll
marktæk landamæri gildis og tíma.
Hví ættum við til dæmis að hanga
yfir illskiljanlegum matseðli og enn
óskiljanlegri vínlista á rándýrri
greiðasölu þegar við getum fengið
okkur hamborgara og kók við hliðina
á mun hagstæðara verði? Eða hví
skyldum við að hanga frammi fyrir ill-
skiljanlegri list í gallerí@hlemmur.is
ÞJÓÐLEGAR áherslur hafa ætíð
skipað Ólöfu Nordal nokkra sérstöðu
meðal kollega sinna. Hún hefur aldrei
skirrst við að höfða til þjóðsagna,
nokkurs sem ekki verður sagt að sé
beinlínis sjóðheitt meðal íslenskra
listamanna sem flestir telja sig hafna
yfir öll slík svæðisbundin og söguleg
landamæri.
Ef marka má textann sem fylgir
sýningu Ólafar varar hún okkur þó
eindregið við því að taka tilbúning
fyrir marktækan veruleik. Reyndar
erum við vöruð við allri merkingar-
áráttu vegna þess hve heftandi hún
reynist. Séu þessi skrif í samræmi við
skoðanir Ólafar þá fer hún hættulega
nærri þeim nóminalisma – nafn-
hyggju – og afstæðishyggju sem ein-
kennir íslenska listnormið um þessar
mundir. Í nafni frelsisins er varasamt
að álykta því það getur slegið á marg-
ræðni hlutanna og fengið okkur til að
halda að þeir séu háðir ákveðinni
merkingu.
Vandinn við textann er sá að þar er
barninu borið á brýn frelsisþrá í nafni
markleysunnar, sem er miklu nær að
ætla okkur fullorðnum, því það erum
við en ekki þau sem höfum óstöðvandi
þörf fyrir að rýja hlutina merkingu
sinni. Þegar buddan kallar fórnum við
trúnni á jólasveininn; ævintýrið;
ósnortna náttúru; frið og sátt manna í
milli; að ógleymdri trúnni á að listin
sé einhvers virði, en veljum í staðinn
umræður um mikilvægi aukinnar
orkuframleiðslu; hagkvæmari nýt-
ingu auðlinda og hagræðingu í rekstri
þegar við getum fullt eins farið til ein-
hvers listsalans og fengið okkur eitt-
hvað skemmtilegt, eða sætt á veggina
fyrir mun minni pening?
Af þessu má sjá að ég vil ekki
sleppa Ólöfu með það að myndir
hennar séu rúnar merkingu, svo full-
ar af óvæntri skírskotun í þjóðsögur –
gamlar og nýjar – hjátrú og hug-
myndaríka barna- og alþýðuspeki.
Hvort sem um samsettar höggmynd-
ir er að ræða sem hún ljósmyndar eft-
ir á, eða tölvutvinnaðar stafrænur, þá
glata verk hennar engu af fyndni
sinni þótt úr þeim megi lesa ákveðin
minni. Skoffín og skuggabaldur, Ríki
Móri eða Tilberaminnið eru sögur,
sömuleiðis uppfullar af kímni og
óheftu ímyndunarafli þótt þær séu frá
tímum sem sumir núlifandi menn
telja að hafi verið snöggtum hug-
myndasnauðari en öldin okkar. Verði
þeim bara að góðu í sinni sjálfsblekk-
ingu.
Skoffín og skuggabaldur
MYNDLIST
galleri@hlemmur.is, Þverholti 5
Til 28. apríl. Opið fimmtudaga til sunnu-
daga frá kl. 14–18.
LJÓSMYNDAVERK
ÓLÖF NORDAL
Halldór Björn Runólfsson
Fingur, eitt af verkum Ólafar
Nordal í galleri@hlemmur.is.
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is