Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 29
FRAMHALDSMYNDIN um
Vampírubanann Blade tekur upp
þráðinn þar sem frá var horfið í
fyrri myndinni. Þannig hefst frá-
sögnin þar sem Blade (Wesley
Snipes) ferðast um heiminn og
eyðir blóðsugum samhliða því sem
hann leitar að læriföður sínum
Whistler (Kris Kristofferson) sem
drepinn var í lok fyrri myndarinn-
ar. Eins og ofurhetjumyndum
sæmir er Whistler síðan vakinn til
lífsins með aðferð, sem ekki er einu
sinni reynt að gefa röklega skýr-
ingu á, og taka þeir félagar síðan til
óspilltra málanna við að útrýma
nýrri tegund af vampírum sem eru
svo hættulegar að gamaldags
vampírur ganga í lið með þeim í
herferðinni.
Fyrri myndin um vampíurban-
ann svartklædda vakti fremur litla
athygli þegar hún var frumsýnd í
kvikmyndahúsum, en hefur síðan
verið að ávinna sér fylgi meðal
aðdáenda sæber- og fantasíu-
mynda. Hér hafa Blade-menn bætt
um betur í framhaldsmynd þar sem
skrímslgerving nýju vampíruteg-
undarinnar tekst einstaklega vel.
Þar er blandað saman áhrifum frá
geimverunum hans Ridleys Scotts
og áhrifum frá skordýraríkinu. Þá
er sérstaklega skemmtilegt hvern-
ig myndin vinnur úr vampírumýt-
unni með því að flétta hana saman
við systurmýtuna um Franken-
stein-skrímslið sem eltir uppi skap-
ara sinn í hefndarskyni fyrir tilvist
sína. Þá er jafnvel meiri Rambó í
söguhetjunni núna en í fyrri mynd-
inni en í henni átti hann það til að
opna munninn lengur en í þær sek-
úndur sem það tekur að spýta út úr
sér stuttum brandara, líkt og ein-
kennir tjáskipti Blade nú.
Skemmtileg tengsl eru mynduð við
Rambó í stílfærðum hægmyndum
sem sýna blóðsugubanann vígbú-
ast. Það eina sem vantar er svita-
bandið góða til að ímynda sér að
þarna sé svartur Rambó lifandi
dauður kominn.
Greinilegt er að meira fjármagni
er varið í framhaldsmyndina en þá
fyrri og allar tæknibrellur eftir því
framúrskarandi góðar. Blade II er
sömuleiðis ljómandi góður vitnis-
burður um hversu mjög kvik-
myndatækninni, þá sérstaklega
tölvugrafík, hefur fleygt fram síðan
1998 þegar fyrri myndin var gerð.
Sem sagt, Blade II er eitthvert
besta þrjúbíó sem lengi hefur borið
fyrir íslenska kvikmyndahúsagesti
sem gaman hafa af óheftu hug-
myndaflugi afþreyingarmenning-
arinnar.
Dæmið snýst viðKVIKMYNDIRLaugarásbíó, Regnboginn
Leikstjóri: Guillermo Del Toro Handrit:
David S. Goyer. Kvikmyndataka: Gabriel
Beristain. Aðalhlutverk: Weslyy Snipes,
Kris Kristofferson, Ron Pearlman. Sýn-
ingartími: 94 mín. Bandaríkin. New Line
Cinema, 2002.
Blade II (Vampírubaninn II) Heiða Jóhannsdóttir
Út er komin ljóðabókin Hjarta þitt er
stjarna sem skín í heila mínum eftir
Gunnar Randversson og Lukas Moo-
dysson. Í bókinni eru frumsamin ljóð
eftir Gunnar og ljóðaþýðingar hans á
ljóðum Lukasar. Ljóðin eru um 30
talsins og skiptast ljóð Gunnars í þrjá
hluta. Þetta er fyrsta ljóðabók Gunn-
ars en Lukas er þekktur kvikmynda-
leikstjóri í Svíþjóð og hefur m.a. gert
kvikmyndirnar Fucking Amal og Til-
sammans sem báðar hafa verið
sýndar hérlendis. Bókin er 44 bls. að
stærð. Kápu hannaði Eva Hrönn Haf-
steinsdóttir og útgefandi er PP forlag.
Leiðbeinandi verð er 1.790 kr.
Ljóð
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals-
staðir Hefðbundin leiðsögn verður
um sýningar safnsins kl. 15, auk þess
verður táknmálstúlkur með í för.
Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga
frá kl. 10-17, miðvikudaga 10-19.
Salurinn Tónsmíðanemendur í
Listaháskóla Íslands halda tónleika
kl. 20:30. Flutt verða verk eftir Gest
Guðnason, Inga Garðar Erlendsson,
Ólaf Björn Ólafsson, Þóru Gerði
Guðrúnardóttur og Önnu Þorvalds-
dóttur.
MÍR, Vatnsstíg 10 Næstsíðasta
sunnudagssýning í vetrardagskrá
MÍR er kl. 15. Þá verður sýnd heim-
ildarkvikmynd sem fjallar um hetju-
lega vörn Leníngradborgar 1941-44,
þegar Þjóðverjar héldu borginni í
herkví í nær tvö og hálft ár. Myndin
er sýnd óþýdd með rússneskum
texta.
Tvær aðrar heimildarmyndir verða
sýndar í dag: Önnur frá 1952 um við-
gerð á Péturs-Páls virkinu í Péturs-
borg. Hin, gerð árið 1983, um fjórðu
úkraínsku vígstöðvarnar í síðari
heimsstyrjöldinni. Skýringar með
þessum tveimur kvikmyndum eru á
ensku.
Friðrikskapella við Hlíðarenda
Hinir árlegu vortónleikar Valskórs-
ins verða kl. 20. Flutt verða íslensk
og erlend lög af ýmsum toga undir
stjórn Guðjóns Steinars Þorláks-
sonar við undirleik Helgu Laufeyjar
Finnbogadóttur. Aðgangur er
ókeypis.
Þjóðmenningarhús Ókeypis er á
sýningar alla sunnudaga framvegis.
Í húsinu eru sýningar helgaðar
kristnitöku og landafundum.
Mánudagur
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Verðlaunahafar í Stóru upplestrar-
keppninni í 7. bekk lesa úr verkum
Halldórs Laxness kl. 20.30. Lesið
verður úr verkum þar sem börn og
unglingar koma við sögu, þar sem
æska og unglingsár mætast, lífið
knýr dyra og ástin kviknar. Baldur
Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdótt-
ir völdu efnið en flytjendur eru Ásdís
Arna Björnsdóttir, Friðrik Már
Jónsson, Grímur Þór Vilhjálmsson,
Guðmundur Bragi Árnason, Ingi-
björg Friðriksdóttir, Jórunn Steins-
son, Kristjana Fenger, Óli Ágústs-
son, Sandra Dögg Friðriksdóttir.
Einnig leika Jón Ágúst Eyjólfsson
og Eiríkur Már Reynisson á gítar.
Kór Öldutúnsskóla syngur undir
stjórn Egils R.Friðleifssonar.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
FASTEIGNIR
mbl.is
Sunnudagur
Þjóðmenningarhúsið kl. 13: Les-
ið verður úr barnabókum. Rithöf-
undarnir Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson, Kristín Steinsdóttir og
Yrsa Sigurðardóttir lesa úr verk-
um sínum og nýútkominni bók
sem nefnist Töfrataflið og aðrar
sögur. Bókin er gjafabók Félags
íslenskra bókaútgefenda í tilefni
af viku bókarinnar.
Laxnesshátíð í Mosfellsbæ
Mosfellskirkju kl. 11: Messa helg-
uð Halldóri Laxness. Séra Jón
Þorsteinsson þjónar fyrir altari.
Dr. Gunnar Kristjánsson, prófast-
ur á Reynivöllum, prédikar.
Kirkjukórinn flytur ljóð Halldórs
Laxness og Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir syngur. Sigurður I. Snorrason
leikur á klarinett.
Blóm frá íbúum bæjarins lögð á
leiði skáldsins að lokinni messu.
Bæjarleikhúsið við Þverholt kl.
17: Endurtekin dagskrá frá 25.
apríl.
Vika bókarinnar