Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 31
GOSPELSYSTUR Reykjavíkur
ásamt Bergþóri Pálssyni og söng-
leikjadeild söngskólans Domus Vox
flytja Perlukabarettinn „Mardi
Gras“ í Íslensku óperunni á fjórum
sýningum á næstunni. Tvær sýning-
ar verða á sunnudagskvöld og
þriðjudagskvöld, kl. 20 og 22, bæði
kvöldin.
Perlukabarettinn byggist á úrvali
laga úr ýmsum söngleikjum ásamt
öðrum söngperlum. Stjórnandi er
Margrét J. Pálmadóttir. Kabarett-
stjóri er Bryndís Petra Bragadóttir
leikkona og um hljómsveitarstjórn
sér Stefán S. Stefánsson.
Auk flytjenda og stjórnanda koma
fjölmargir aðilar að undirbúningi ka-
barettsins svo sem danshöfundar,
útlitshönnuðir og tæknimenn.
Gospelsystur Reykjavíkur eru að
ljúka sínu fimmta starfsári og hefur
Margrét J. Pálmadóttir stjórnað
þeim frá upphafi. Í kórnum eru rúm-
lega 100 konur á öllum aldri og taka
þær allflestar þátt í þessari upp-
færslu bæði með söng og dansi.
Margar kórkonur stunda söngnám
við söngskólann Domus Vox.
Miðar eru seldir í miðasölu Ís-
lensku óperunnar og hjá Gosp-
elsystrum Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Þorkell
Bryndís Petra Bragadóttir kabarettstjóri í fangi Bergþórs Pálssonar.
Með þeim á myndinni eru þrjár Gospelsystur.
Perlukabarettinn
í Íslensku óperunni
MINNINGARBROT og per-
sónuleg lífsreynsla er viðfangs-
efni sýningar á nýjustu seríu
teikninga og málverka eftir
kanadíska listamanninn, Aaron
Mitchell sem opnuð verður á
Mokka í dag, sunnudag.
Málningarlímband, vatnslit-
ir, olíulitir, vaxlitir, blýantur og
húsamálning spila stórt hlut-
verk í verkum listamannsins.
Sérhvert efni sinnir sínu hlut-
verki í að hjálpa áhorfandanum
að skilja tilgang hvers verks.
Stór hluti af bóklegu námi
Aarons var ljóðlist og skapandi
skriftir, þegar hann var við
nám við The Ontario Collage of
Art and Design. Aaron Mitchell
lærði hjá hinu kunna skáldi
Lillian Allen, þetta speglast í
verkum Mitchells þar sem ljóð-
brot og óbundið mál undir-
strika hvert verk.
Aaron Mitchell lauk námi ár-
ið 1999 frá the Ontario College
of Art and Design. Meðan á
námi stóð, lærði Mitchell hjá og
vann með mörgum af kunnustu
samtímalistamönnum Kanada.
Daniel Solomon, Nancy Pater-
son og hið margrómaða skáld
og rithöfundur Lillian Allen
voru m.a. kennarar Aarons.
Hann býr bæði í Toronto og á
Íslandi og hefur undanfarið
starfað sem gestakennari og
ráðgjafi við Myndlistaskólann á
Akureyri.
Aaron
Mitchell
á Mokka
Eitt verka Aaron Mitchell
á Mokka.
Forðafjör Líf og fjör
Nýtt fjölvítamín sem gefur þér
góðan forða af öllum vítamínum
og steinefnum í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum