Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður Axels-dóttir Laxdal fæddist í Stóragerði í Myrkárdal í Eyja- fjarðarsýslu 29. mars 1927. Hún lést á Landspítala í Fossvogi aðfaranótt 19. apríl síðastlið- ins. Foreldrar henn- ar voru Axel Guð- mundsson, f. 1. ágúst 1882 í Mel- gerði í Glerárþorpi (Glæsibæjarhreppi) í Eyjafjarðarsýslu, d. 1948 á Sjúkrahúsi Akureyrar, og kona hans Lilja Hallgrímsdóttir, f. 26. maí 1891 á Gásum í Glæsibæjarhreppi, d. 15. janúar 1969. Systkini Sigríð- ar eru: Stefanía Hallfríður, Guð- mundur, Anna Friðrika, Ingvar og Lilja Guðrún, og eru þau öll látin. Sigríður var gift Halldóri Lax- dal, útvarpsvirkja og loftskeyta- manni. Þau stofnuðu og áttu Radíóbúðina í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Helgi Laxdal (lát- inn), maki 1. Helga Thorberg. 2. Sigurlaug Einars- dóttir. Helgi átti þrjú börn: Sigrúnu, Halldór og Hrólf. 2) Grímur Laxdal, maki Jóninna Hólm- steinsdóttir. Eiga þau þrjú börn: Ólínu Sigríði, Berg- lindi Helgu og Helga, og tvö barnabörn: Grím og Fróða Brooks. 3) Anna Lilja Laxdal, maki Hermann G. Karlsson (slitu sam- vistum). Eiga þau þrjú börn: Elsu Lilju, Sigríði Láru, Axel Má, og þrjú barna- börn: Thelmu, Heklu, Kötlu. 4) Halldór Laxdal, maki Lilja Ei- ríksdóttir. Eiga þau tvö börn; Hildi og Hilmar, og eitt barna- barn Helenu. 5) Óli Sævar Lax- dal, maki Kristín Th. Óladóttir. Eiga þau fjögur börn: Írisi Ósk, Svanþór, Sævar og Elvar. Útför Sigríðar verður gerð frá Kópavogskirkju á morgun, mánudaginn 29. apríl, og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag þegar ég kveð mína góðu vinkonu Sigríði fer ég aldarfjórðung aftur í tímann og minnist þess þegar ég kom á heimili hennar í fyrsta skipti sem verðandi tengdadóttir. Ég skynjaði strax að þar fór kona með sterkan persónuleika, ákveðin en jafnframt hlý og gefandi. Tengdamóðir mín varð hún til skamms tíma en sú lífsreynsla sem við gengum í gegnum varð þess valdandi að við tengdumst tryggða- böndum og vináttu hennar hef ég átt öll þessi ár. Hugurinn leitar til baka til ánægjulegra stunda í sumarbú- staðnum við Álftavatn. Þar kom ég oft í heimsókn á árum áður til þeirra hjóna, Sigríðar og Halldórs, eigin- manns hennar, en hann lést fyrir tólf árum. Í fyrstu komu með mér lítil frændsystkini og síðar börnin mín. Þótt hún væri ekki amma barnanna minna bar hún hag þeirra ætíð fyrir brjósti og fylgdist vel með því sem þau tóku sér fyrir hendur í lífinu. Það var þroskandi fyrir mig og unga fólkið að koma í bústaðinn því þar fengum við að kynnast því hvernig Sigríður og Halldór héldu í gamla tímann, lengi vel voru þau m.a. með kolaeldavél og útikamar og fannst manni ekki mikið um nútíma- þægindi. Þau höfðu sannarlega efni á nútímalegri tækjum en þannig vildu þau hafa það. Í henni bjó sveitastelpan sem ólst upp í bað- stofumenningu í Myrkárdalnum, í einangraðri sveit á sínum tíma. Lík- lega hafa áhrifin frá uppvaxtarárun- um mótað hana og átt sinn þátt í því hversu sjálfbjarga og mikill dugnað- arforkur hún var. Hún gekk sjálf í næstum hvað sem var og var komin vel yfir sextugt þegar hún sendi mynd af sér á jólakorti þar sem hún var uppi á þaki á sumarbústaðnum að fást við lítils háttar viðgerðir. Sumarbústaðurinn var sælureitur þeirra hjóna, þau gróðursettu mikið af trjám í gegnum árin og í dag þeg- ar maður keyrir þar framhjá blasir við manni mikill skógarlundur sem þau í sameiningu lögðu grunninn að. Þau dvöldu í bústaðnum meira og minna allt sumarið. Húsbóndinn keyrði á milli til Reykjavíkur á dag- inn til að fylgjast með sínu stóra fyr- irstæki sem hann stjórnaði og rak við góðan orðstír til margra ára. Hann kom síðan í sveitina á kvöldin. Þar var hann ekki forstjórinn, held- ur maður sem fór í vinnugallann og vann sín verk í hljóði í samhljómi við náttúruna. Maður skynjaði það hvað þeim hjónum leið vel í þessu um- hverfi. Þarna held ég að Sigríði minni hafi liðið hvað best, hún var náttúrubarn í eðli sínu og unni sum- arbústaðnum og sveitasælunni. Það er ekki hægt að minnast Sig- ríðar án þess að nefna það hversu mikill dýravinur hún var, hún vildi helst alltaf hafa eitthvert dýr nálægt sér. Ég minnist þess að einu sinni var hún með hest. Þá ræktaði hún fugla um tíma og síðustu árin átti hún alltaf hund. Um tíma eftir að hún varð ekkja og heilsan fór að gefa sig fór hún að mála myndir sem hún gaf sínum nánustu og hafði gaman af. Þetta tómstundagaman færði henni mikla gleði og þar fékk hún útrás fyrir vinnusemi sína og og þann innri kraft sem í henni bjó. Hún var trúuð kona og til hennar var ávallt gott að leita og mörgum einstaklingum hefur hún veitt styrk og von á erfiðum stundum. Andleg mál voru henni hjartfólgin og frá því hún var barn að aldri sá hún og skynjaði margt sem mörgum er hul- ið. Hún trúði því að við færum á ann- að tilverustig og kveið ekki vista- skiptunum. Margar stundirnar og mörg sím- tölin höfum við átt um þessi málefni, ráðið í drauma og kíkt í spil. Ég þurfti oft að leita til hennar með ým- is mál og kom aldrei að tómum kof- unum. Hún var úrræðagóð og hafði alltaf svör á reiðum höndum, ef ekki hringdi hún stuttu seinna og þá var svarið komið. Það gustaði líka stundum í kring- um mína kæru vinkonu, hún lá ekki á skoðunum sínum, sagði sína mein- ingu hvort sem fólki líkaði það betur eða verr og gat oft verið föst fyrir. Þessi þáttur í skapgerð hennar hef- ur líklega valdið því að það var aldr- ei til í henni uppgjöf þrátt fyrir mót- læti sem hún gekk í gegnum. Í veikindum hennar undanfarin ár reis hún alltaf upp aftur og hafði þá að orði að hún væri nú „ekki tilbúin að fara alveg strax“, hún ætti eftir að „ganga frá nokkrum hlutum“. Sjálfsbjargarviðleitnin og seiglan var ótrúlega mikil í þessari konu og í húsinu sínu bjó hún fram að því síð- asta, oft meira af vilja en mætti. Sigríður átti stóra fjölskyldu. Hún eignaðist fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Þá átti hún fimmtán barnabörn og átta langömmubörn. Ég sendi þeim samúðarkveðjur. Það er komið að kveðjustund, í líf- inu skiptast á skin og skúrir og fór Sigríður ekki varhluta af því. Hún fékk að reyna mikið og var búin að sjá á eftir mörgum ástvinum sínum. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Við fjölskyldan í Klausturhvamm- inum viljum þakka Sigríði þá hlýju og þann kærleik sem hún sýndi okk- ur alla tíð. Guð blessi minningu minnar kæru vinkonu. Sigurlaug Einarsdóttir. Esku Sigga amma, minningar um þig eru margar og góðar, en nú er barátta þín á enda og þú hefur hlotið hvíldina. Þegar ég rifja upp æskuárin mín minnist ég þess skemmtilega tíma er við komun öll saman á heimili ykkar afa á jólunum, börn og barna- börn, með jólapakkana og jólaskap- ið. Við krakkarnir biðum spennt eft- ir að opna þá en það mátti ekki fyrr en að máltíð lokinni. Á gamlárs- kvöldum var einnig ógleymanlegt að fylgjast með flugeldunum af stóru svölunum hjá þér, þar sem útsýnið er mjög mikið. Fyrir tæpum tveimur árum flutti ég að heiman og í kjallarann hjá þér þar sem þú bauðst mér að búa, því að þér þótti gott að hafa einhvern nákominn með þér í þessu stóra húsi. Við spjölluðum oft saman um æskuárin þín, lífið og tilveruna. Á þessum tíma varst þú byrjuð að mála myndir þér til gamans. Þú kall- aðir oft til mín niður í kjallara og baðst mig að koma upp og líta á myndina sem þú varst að mála þá stundina vegna þess að þér þótti gott að heyra mitt álit, því þér fannst ég ávallt hreinskilin. Þér þótti gaman að spá í spil og bolla fyrir þá sem komu í heimsókn, þar á meðal mig. Einnig sagðir þú mér oft frá draumum þínum og hvernig þú réðst þá. Mér þykir vænt um að við skulum eiga sama afmælisdag og að við skyldun halda upp á stórafmæli tutt- ugasta og níunda mars síðastliðinn, þar sem þú varðst sjötíu og fimm ára og ég tvítug. Ég veit og trúi að þú ert laus við alla sjúkdóma og að þér líður nú vel með afa í sumarlandinu. Elsku Sigga amma mín, minning- arnar um þig munu lifa í hjarta mínu um ókomna tíð og ég bið Guð að varðveita þig og blessa. Íris Ósk Óladóttir Laxdal. Elsku amma, mig langar að þakka þér fyrir samfylgdina, traust þitt og hlýhug. Nú veit ég að friður er með þér hjá þeim sem þér þykir svo vænt um. Spámaðurinn sagði: „Leitaðu að sál dauðans í líkama lífsins, því líf og dauði er eitt eins og fljótið og sær- inn. Því að hvað er að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna.“ Blessuð sé minning þín. Sigrún Helgadóttir. Þegar æviröðull rennur rökkva fyrir sjónum tekur sár í hjarta sorgin brennur söknuð harm og trega vekur. Hart þú barðist huga djörfum með hetjulund til síðasta dags í öllu þínu stríði og störfum sterk varst þú til sólarlags. Öllum stundum vinur varstu veittir kærleiks yl af hjarta. Af þínum auði okkur gafstu undurfagra minning bjarta. (Aðalbjörg Magnúsdóttir.) Með þakklæti í huga, elsku Sig- ríður, fyrir allar okkar ljúfu stundir, sem við áttum saman. Nú hvílir þú í friði í ljósinu bjarta og öll ljósin sem þú kveiktir fyrir samferðamenn þína lýsa skært á altari Guðs. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. Guð blessi og styrki ástvini þína. Guðlaug Snorradóttir. SIGRÍÐUR AXELSDÓTTIR                                              ! "#$!   #$!  $    ! % &      $    $         $   & #$$    ! '$ $  (                                     !        ! ""  # $  % ! ""  ! #$ "  & # ! ""            '                !"#$ %&#                    !                "   #  $  %   !    & "'     ' & ('  ) *( +                                   !" #$ %&'%& ("&% ')$(% *% &$$!"+$$ ,$    - % ')$( ("&% & %'% .,%#& ')$( ,$   !"$ ("&%                                !"      #$   %   &'    (&&'       ! "   #" $#"  %  %      ! " #" #%& " & "'                                     !     "#   "       $   %   &'   (    $  ) $) "   ! " #$%&  &' (#)$##*  (#)$ ! " &' ##* +

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.