Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 43
Reykjavík var að breytast úr bæ í borg. Hringbrautin umlukti bæinn, en hluti hennar varð síðar Snorra- braut og Þorfinnsgata. Innan Hring- brautar skyldi Reykjavík vera eins og Róm til forna, sem ekki skyldi byggjast út fyrir múra sína. En múr- ar bresta, veggir falla og götur missa gildi sitt. Norðurmýrin var þegar í byggingu fyrir seinni heimsstyrjöld- ina. Hún sprengdi bæjarmynstrið og við sem fæddumst og ólumst upp í því hverfi, börn landnemanna þar, lifðum nýja sýn, ný viðhorf, við bjuggum í fyrsta úthverfi Reykjavík- ur. Við vorum Austurbæingar. Nátt- úran óheft öðrum megin og handan Hringbrautar bæjarlíf höfuðstaðar- ins. Þetta myndbrot kemur mér í hug nú, þegar ég kveð Gylfa Reykdal, jafnaldra minn, æskufélaga og skóla- bróður frá barnsaldri til fullorðins- ára. Túnin á Klömbrum og Sunnu- hvoli voru leikvellir okkar, göturnar nýttust fyrir boltaleiki, það var við- burður, ef bifreið ók eftir þeim. Árin í barnaskólanum liðu hratt og er við hófum nám í Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar vorum við í sama bekk og sessunautar eitt árið. Fyrri hluta þess vetrar var til þess tekið, hve illa okkur kom saman. Ég sat vinstra megin við hann, og þar sem hann skrifaði með vinstri hendi en ég með þeirri hægri rákumst við alltaf hvor í annan. Þegar við uppgötvuðum það skiptum við um sæti og allt féll í ljúfa löð á ný! Gylfi var einstaklega fær teiknari og voru teikningar hans og skreytingar í skólanum ógleyman- legar og sýndi hann þá þegar mikinn þroska og augljóst var að hæfileikar hans til myndskreytinga voru miklir. Í Menntaskólanum í Reykjavík völd- um við hvor sína leiðina, Gylfi valdi máladeild og ég stærðfræðideild. Alltaf héldum við sambandi og oft vorum við félagarnir allir í Norður- mýrinni samferða í og úr skóla. Áður en varði stóðum við tveir saman á tröppum skólans, 17. júní 1958, með hvíta kolla og ræddum framtíðina. Höfðum við báðir heyrt að nám í arkitektúr á Ítalíu væri talið vera í hæsta gæðaflokki og bundumst fast- mælum á staðnum að láta reyna á það strax um haustið. Teningunum var kastað. Eftir æv- intýralega ferð, með Gullfossi til Leith, lestarferð til Lundúna og svo nokkrum dögum síðar til Rómar í einum áfanga, stigum við þar út í ull- arfrökkunum okkar um miðjan októ- ber í yfir 30 stiga hita. Við nutum ómetanlegrar aðstoðar Hilmars Kristjónssonar, deildarstjóra hjá FAO, og hann kom okkur fyrir á gistiheimili Dolo-fjölskyldunnar rétt utan við hina fornu múra, og þar deildum við herbergi í heilan vetur, sóttum saman tíma í arkitektúrdeild Rómarháskóla, skoðuðum Róm hátt og lágt bæði á degi og nóttu. Jafn ná- in samvera svo gerólíkra manna sem við vorum hefði getað endað með ósköpum, en við vorum báðir jafn sammála um að útkljá strax öll ágreiningsefni, ef upp kæmu, tíminn væri of dýrmætur fyrir ósætti. Og það var jafnlétt og sætaskiptin forð- um. Latínukunnátta Gylfa kom sér vel og var hann einstaklega fljótur að ná ítölskunni og talaði hana vel. Um vorið tók hann hæsta próf í fríhend- isteikningu, sem útlendingur hafði tekið við deildina, og voru myndir hans teknar á sérstaka sýningu, svo hann fékk þær því miður ekki allar aftur. Seinni veturinn okkar í Róm fjölg- aði í þessari litlu Íslendinganýlendu. Sigurjón Jóhannsson kom í arkitekt- úrdeildina og Davíð Arnljótsson í verkfræði og leigðum við allir saman íbúð. Sú sambúð gekk prýðisvel, og var námið stundað af kappi fram eft- ir vetri, en eftir stóru gengisfelling- arnar heima á Íslandi fór heldur að losna um, þar sem fyrirsjáanlegt var að peningarnir voru brunnir upp. Um það leyti kynntumst við Doug. Þessi ungi bandaríski hermaður var staðsettur í Napólí og hafði brenn- andi áhuga á menningararfleifð Ítala og fór einn til Rómar til að skoða hana. Í stuttu máli bjó hann hjá okk- ur, þegar hann var í Róm, og við skiptumst á eða fórum allir með hon- um að skoða borgina, sem við þekkt- um orðið betur en nokkra aðra borg. Margt mætti fleira telja upp áhuga- vert, en látið ógert hér. Við kvöddum Borgina eilífu með söknuði. Það voru forréttindi að mót- ast á slíkum stað. Við félagarnir frá Róm héldum góðu sambandi heima á Íslandi og er mér sérlega minnisstætt hóf, sem þau, þá nýgift hjón, Ragnhildur og Gylfi, héldu okkur og kærustum okk- ar í kjallaranum á Guðrúnargötu 10, það var ógleymanlegt kvöld og var ljóst þá, að „heimþrá“ okkar til Róm- ar var mikil. Svo tvístraðist hópurinn til ann- arra Evrópulanda, og þegar ég flutti aftur heim til Íslands frétti ég af Gylfa, sem mjög vinsælum myndlist- arkennara í Lindargötuskólanum. Leiðir okkar lágu síðan saman aftur í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, haustið 1981, þar sem hann kenndi myndlist og ég tæknilega teikningu. Hann kenndi við skólann í átta ár og rifjuðum við oft upp gamla tíma. Fyrir tveimur árum mátti lesa auglýsingu í Morgunblaðinu frá William nokkrum D. Buckwalter þar sem hann auglýsti eftir gömlum fé- lögum sínum frá Rómarborg árið 1960 og eina nafnið sem hann mundi eftir var Gylfi Reykdal. Þarna var hann Doug okkar á ferðinni, sagnfræðiprófessor og aðstoðarrekt- or Ohio-háskóla, nýkominn á eftir- laun. Langaði hann til að endurnýja kynnin og sýna Carri, konu sinni, bestu sagnfræðikennarana sína! Það var eins og hálf þjóðin hefði lesið þessa auglýsingu og sá til þess að við allir fimm gömlu félagarnir hittumst aftur eftir fjörutíu ár, og þar urðu fagnaðarfundir. Í Róm var Gylfi okk- ar fremstur í ítalskri sagnfræði með menntaskólalatínuna að bakhjarli. Þess vegna mundi Doug best eftir honum. Þessi heimsókn hristi okkur saman aftur. Við erum þakklátir fyr- ir að hafa fengið tækifæri til þess. Minningarnar verða ekki teknar frá okkur, þó að við verðum að sjá á bak samferðamönnum yfir móðuna miklu. Tíminn sem liðinn er kemur ekki aftur, en ljúfa lífið í Róm gleym- ist ekki. Þar héldu engir veggir. Múrarnir fornu koma upp í huga mér í hvert sinn, er ég ek Snorrabraut- ina, sem eitt sinn hét Hringbraut. Við Sigurveig vottum aðstandend- um Gylfa dýpstu samúð okkar. Pálmar Ólason.  Fleiri minningargreinar um Gylfa Reykdal bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 43 Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 husavik@huseignir.is Páll Eiríksson, hdl. lögg. fasteignasali Glæsileg 176 fm efri hæð og ris ásamt góðum bílskúr með kjallara. Aðalhæðin skiptist í hol, 2 svherb., 2 stofur, eld- hús og baðherb. Ris. Hol, 3 herb., bað- herb. og geymsla. Fallegur arinn í stofu, mjög rúmg. eldh., góðar suðaust- ur svalir, litlar austursvalir í risi. Mjög fallegt og vel byggt steinhús. Verð 25,0 millj. Uppl. veitir Elías sölum. í síma 898 2007. Óskum eftir öllum gerðum eigna á skrá Grenimelur KÖTLUFELL Góð 83 fm íbúð með stórkostlegu útsýni í blokk sem er nýklædd. Nýir gluggar, yfirb. svalir. Verð 9,6 millj. 1995 ARAHÓLAR - 2JA HERB. Rúmgóð 2ja herbergja íbúð, um 60 fm, á 3ju hæð í lyftuhúsi, STÓRGLÆSILEGT útsýni. Góðar yfi- byggðar v-svalir, hús og sameign í góðu ástandi. Laus 20. júní. Áhv. ca 3 millj. Verð 8,5 millj. 2014 BARMAHLÍÐ Rúmgóð 2ja herb. kj.íbúð í fjórbýli. Gott eldhús og góð stofa. Góð fyrsta eign. Verð 7,9 millj. Áhv. 4,2 millj. 2039 AUSTURSTRÖND - SELTJN. Mjög góð 3ja herbergja endaíbúð á 6. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli. Glæsilegt útsýni til Esj- unnar, uppá Akranes og víðar. Ljóst parket á gólfi. Svalir út frá stofu. Íbúð í góðu ástandi. Sameiginl. lóð. Verð 11,9 millj. 2000. BLÁSALIR - KÓP. Nýleg fallega innréttuð og rúmgóð 3ja her- bergja íbúð með sérinngangi á 1. hæð (jarðhæð) í tveggja hæða húsi. Verð 13,5 millj. 2031 RAUÐALÆKUR Mjög falleg og rúmgóð 3 herb. íbúð á jarðhæð, sérinng. Nýtt rafmagn, tvöf. gler, nýtt þak, nýjar tröppur m. hita. Verð 11,6 millj. 2033 VESTURBERG - 3JA HERB. Hugguleg 3ja herb. íbúð á 4. hæð með frábæru útsýni. Búið að klæða 3 hliðar hússins. Þvottahús og búr innaf eldhúsi. Verð 9,3 millj. 2019 ÍRABAKKI Björt 4 herb. 83 fm íbúð á 3. hæð. Flísar, parket. Tvennar svalir. Þrjú svefnh., gott útsýni. Verðlaunagarður. Nýmál- uð, hiti í gangstétt. Verð 10,9 millj. 2035 HJALLAHLÍÐ - MOSFBÆR Glæsileg neðri hæð í tvíbýli. Hús fullbúið. Íbúðin er 4ra herb. um 117 fm auk bílskúrs. Þvottah. sér og góð gólfefni. Verð 16,9 millj. 2037 BARÐAVOGUR - EINBÝLI Einnar hæðar timburhús á góðum út- sýnisstað innst í lokuðum botnlanga. Fimm svefnherbergi og rúmgóð stofa. Falleg lóð með miklum gróðri. Bílskúrsréttur. Verð 18,5 millj. 2008 KEILUFELL - EINBÝLI Timburhús, hæð og ris, rúmir 150 fm auk þess bílsk. Hús í sérl. góðu ástandi. Möguleg skipti á 3-4 herb. íb. m. bílsk. í Breiðh. eða bein sala. Verð 18,9 millj. 2036 jöreign ehf Opið í dag, sunnudag frá kl. 12-14 Sími 533 4040 Opið í dag, sunnudag, l www.kjoreign.is Ármúla 21, Reykjavík Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali, ESPIGERÐI Vorum að fá í einkasölu fal- lega og rúmgóða 4ra herbergja enda- íbúð á 8. hæð í þessu vinsæla húsi. Glæsilegt útsýni, tvennar svali. Sér- þvottahús í íbúð. 2034 GILJASEL - 2 ÍB. - BÍLSKÚR Vel stað- sett og gott einbýlishús á mjög góðum útsýnisstað og stendur innst í botn- langa. Hægt að innrétta aukaíb. með sérinngangi. 5 svefnherb. 3 stofur. Góð- ar innréttingar. Þetta er eign sem hentar fyrir 2-3 fjölskyldur. Allar nánari uppl. á skrifst. 1661 Borgartúni 22 105 Reykjavík Sími 5-900-800 Opin hús Í dag, sunnud. 28. apríl, er opið hús á eftirtöldum stöðum SMÁRAGATA 14 - ÞINGHOLT Glæsileg hæð á frábærum stað í Þingholtunum. Íbúðin er nýstandsett frá A-Ö, t.a.m. gólfefni, raf- lagnir, pípulagnir, baðherbergi og eldhús er nýtt. Íbúðin skiptist í 2 stórar stofur, gott eldhús, stórt baðherbergi og 2 svefnherbergi. Í kjallara er fal- leg stúdíóíbúð sem hentar vel til útleigu eða fyrir ungling. Sérbílastæði fylgir á lóð, komin bílskúrsplata. Eignin er sérlega glæsileg og á frábærum stað. Verð 21,9 millj. Þröstur sýnir eignina milli kl. 15 og 17. NEÐSTALEITI 8 - KRINGLUHVERFI Hér er um að ræða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin skiptist í 2 svefnherb., stofu, eldhús, bað og þvottahús sem er innan íbúðar. Góðar innréttingar. Vel staðsett eign í góðu ástandi. Húsið er nýlega málað og yfirfarið. Stutt í alla þjónustu. Stórar svalir. Mikið útsýni. Verð 13,5 millj. Guðmundur og Gréta sýna eignina í dag milli kl. 15 og 17. HULDULAND 1 - FOSS- VOGI Mjög falleg 4ra herb. 97 fm íbúð á 2. hæð á góðum útsýnisstað. Nýtt gegnheilt parket er á öllum gólfum nema á baði. Eldhúsið er algjörlega endurnýjað með mjög góðum innréttingum. Rúmgóð stofa, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Stórar suðursvalir. Góð staðsetn- ing. Verð 12,9 millj. Hallur og Ingibjörg taka á móti ykkur í dag milli kl. 15 og 17. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  SKÚTUVOGUR 2, RVÍK - TIL LEIGU Skrifstofuhúsnæði. Um er að ræða glæsil., vandað nýtt lyftuhús (2. hæð) og 3. hæð (út- sýnisturn). Tilvalin eign fyrir t.d. lögfræðing, verkfr., stofnanir, læknastofu o.fl. o.fl. Góð aðkoma, næg bílastæði. Einstök staðsetning. Afh. strax. Ath. að 1. hæðin er öll leigð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.